Rangþankar dagsins - 20221222

Veruleikinn er svona: Þriðjungur mannkyns er með ólæknandi afleiðingar af sprautunni. Þriðjungur stendur með morðingjunum. Síðasti þriðjungur veit, og getur sannað, að Elítan og þriðjungur Almennings eru annars vegar siðlausir morðvargar og hins vegar siðblindir fantar.
 
Hulan er horfin, fortjaldið rofið.
 
 
 
 
Stóra spurningin er; tekst vörgum og föntum að klára alla þá eyðileggingu sem er hafin - sem væri sanngjarnt því við eigum ekki betra skilið vegna sinnuleysis okkar og dusilmennsku - eða eru fornir og máttugir vættir lögmætis og réttlætis sem munu grípa inn í og efla réttsýnt og heiðarlegt fólk til að bjarga því sem er björgu virði?
 
Sjáðu til, að glæpurinn er sá stærsti sem nokkru sinni hefur verið framinn, það er óþarfi að ræða. Yfirleitt að hann var upphugsaður, er mann-eskjum óhugsandi. Að mann-verur eru ofurseldar andsetningu Nephilim sálna, er óhrekjanlegt.
 
Þegar raunsæi gufaði upp 2019, var það af ástæðu, og í kjölfarið skiptist mannhafið í mannkyn og mannfólk. Einföldum þetta smá.
 
Jú, glæpurinn, stærð hans og brotavilji, er ótvíræður og óhugsandi. Hitt, að "fólk" lét blekkjast og láta til leiðast af jafn gegnsærri og illa framreiddri lýgi sem "plágan" og "sprautan" voru/eru, er einnig óhugsandi.
 
Að nútímamenning, með alla sína þekkingu og reynslu, láti fletja út siðmenningu sína og siðfræði (Civilization and Ethics) án nokkurrar fyrirhafnar af gerendum eða mótstöðu þolenda, er óhugsandi.
 
Sjáðu; enginn mannlegur hugur er fær um hvorki að fremja né viðhalda né upplifa það sem er í gangi án þess að annaðhvort sjá að dulvættur (eða vættir) eru að fremja hér eitthvað hrikalegt. Sumir sjá að frumspekilegar ritningar hafa lýst blúprintinu nákvæmlega, en það er ekki málið.
 
Stórfenglegt uppgjör er í gangi og enginn getur afneitað því þó margir reyni.
 
Núverandi mann-kyn og Elíta þess á enga framtíð.
 
Sigri þau það sem nú er í gangi, þá er spilið búið fyrir Homo Sapiens Sapiens, og þau misseri sem fara í hönd, verða ein löng dauðahrygla. Sigri þau ekki, verður bæði að dæma alla Elítuna frá toppi til táar (manstu risann á leirfótunum með gullhöfuðið) og beita greiningu á alla unglinga í framtíðinni til að finna þessi átta prósent sem eru veik af Félags, Vald- og Efnishyggju hvöt og mennta þau sérstaklega til afeitrunar
 
Jafnvel latar mæður sem réttlæta uppeldi sitt með  ADHD blóra geta séð nauðsyn þessa síðasta.
 
 
Fyrir allra lengst komna:
 
Guð hefur þrisvar séð mannfólk koma fram á þessa bjargbrún, og hluta þess leirmennast í mann-kyn, tvisvar feiluðum við. Alltaf fengum við byrjunarreit og því er spáð að í þetta sinnið muni sumir komast í gegnum nálaraugað.
 
Til að skilja þetta þarftu að slökkva á efnishyggju þinni og egótískri þröngsýni.
 
Önnur vika sköpunarverksins fer að hefjast, það sem framundan er, fyrir þá sem finna nálaraugað við enda þrönga og krókótta stígsins, er ekki stórkostlegt (hrikalegt) eins og hörmungar (Miracoloso) heldur Stórfenglegt
 
Þetta merkir að jafn hræðileg og við erum ef við ræktum illmennsku okkar og hleypum djöflum og dísum Nefpilim-anna að okkur, því meira erum við megnug ef við beitum skilvindu guðdómlegra heilræða til að rækta og hreinsa sál okkar svo við séum fær um næstu fimmtíuogtvær vikur sköpunarverksins.
 
Sumum hættir hér til að hugsa sem svo, hvers vegna skapar Guð okkur svona léleg, það er röng spurning. Því hann hefði getað skapað okkur þannig að við myndum alltaf velja rétt. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig Guði líður þegar við veljum rangt í tíu skipti af ellefu, í sífellu.
 
Hvernig líður þér þegar þú skapar eitthvað og það þarf að endurhanna og byrja aftur. Var hannað rétt í upphafi, munum við standast raunina til að reynast hæf fyrir næstu viku, komast til áttunda dagsins?
 
Önnur vikan verður stórfengleg en það þarf þátttakendur í henni sem komast yfir flúðir hrikaleikans. Það var rétt hannað, en þú þarft að sjá án þess að horfa. Skilja án þess að vega.
 
Hann veit hvert hann ætlar og hann býður með sér í þá för, þeim sem velja að verða hæfir en hæfið er ekki verðskuldað, heldur náð.
 
Hér hvílir einhver mesti leyndardómur sem nokkru sinni hefur í orð verið settur.
 
... og fímúrar og kommúnistar elska að eyðileggja og skemma leið þína að þessari niðurstöðu, því þeir elska dauða og djöfulmennsku; allt sem frá þeim kemur er hatur, lygar, rán, rústun og dauði. Varist vélabrögð yfirborðsmennsku þeirra og djöfullegs rangsnúnings: Biðjið, Fyrirgefið, Vitnið og Iðrist.
 
 
Úr einu í annað.
 
Eins og þú veist er Íslenska [Davos] Elítan sem ég uppnefni Ís-Quislínga, á fullum snúning að æsa til stríðs við Rússa eins og enginn sé morgundagurinn. Halda mætti að við værum aðeins stærra þjóðríki en 360 þúsund.
 
Á sama tíma eru skoðanasystkin þeirra á Vesturlöndum að leggja niður smáiðnað, einkarekið efnahagslíf og kæfa alla heilbrigða starfsemi þjóðfélaga sinna með fjalli af reglugerðum sem enginn getur staðið undir. Sú einkarekna starfsemi, hérlendis sem annars staðar á Vesturlöndum, sem enn hangir, er svo sliguð af Covid lánum að fólk kiknar. Einkaheimilin allsstaðar ýta á undan sér yfirdrætti og kreditkorta lánum, að aldrei verður greitt niður vegna vaxtabyrði.
 
Við getum skeytt hér inn hvernig kommúnistinn í Seðlabankanum handstýrir hvort stéttafélög fái að gera launasamninga eða ekki, ennfremur því sem hann hefur skikkað bönkum og íbúðalánasjóði reglur sem gera venjulegu fólki svo til ókleift að kaupa íbúð (sem það síðan þarf að borga fimmföldu verði vegna sósíalískra djöflakerfa).
 
Jei, félagshyggjan sem frelsaði okkur frá trúarbrögðum og konungsríkjum og framkallaði tífalda spillingu á við þau. Eigum við að ræða rányrkju fasteignagjalda og annarrar skattheimtu sem þverbrýtur tíundarviðmið? Fólk getur ekki rætt þetta og veit ekki að það getur það ekki, því það veit ekki hvað heilaþvottur er.
 
Hér mætti grínast með athugasemdakerfin þar sem "fólk" auglýsir bergmál innprentunar sinnar í þeirri trú að skoðanir sínar séu þeirra eigin. En það væri kannski of.
 
Látum þetta duga í staðinn; fórnarlömb sprautunnar eru enn að horfa á og lesa elítufjölmiðla!
 
Í þessu írafári síðustu 33 mánuði, hefur sjálfstætt efnahagslíf - sem er burðarás vesturlanda - dregist saman um fimmtung og starfsemi Ríkisins tútnað út um þriðjung. Enginn vill ræða þetta og þeir sem heyra þetta virðast ekki skilja það - raunsæi er horfið
 
Þessi sama elíta er að leggja niður einkabílinn. Halda mætti að fólk vissi að þessi uppfinning raunvísinda er helsta driffjöður framfara á Vesturlöndum - og heimsins alls - síðustu þrjár kynslóðir. Borgaralegt athafna-, tjáningar- og trúarfrelsi eins og það hefur verið afmarkað síðan Endurreisn og Siðbót miðalda bjó til Húmanismann er hið mikilvægasta í bæði menningu og siðmenningu, frá upphafi.
 
Nú eru tímar miðstýrðra og tækni-öflugra ríkja sem geta farið með fólk eins og þeim sýnist og komist upp með að þagga og bókstaflega eyða út allri upplýsingu um framferði sitt. Að ógleymdri þekkingu okkar á Fasistaríkjum Hitlers og Mússólíni, Sovétríkjum Leníns og Kína-kommúnisma Maó formanns; að þessi ríki séu enn til, og að Vesturlönd séu að tileinka sér þá háttu, er forsmán.
 
Eins og Bibban segir, viðurstyggð á helgum reit. Því stór hluti ritninganna - sem kommúnistar vilja helst losna við - snúast einmitt um þegar öryggiskerfum og dómshelgi þjóðríkja og konungsríkja er umsnúið í ranglæti og kúgun, bæði hverju sé um að kenna og eins hvaða lausnir má finna.
 
Nú er hægt að fylgjast með hegðun og skoðun hvers einasta borgara í gegnum símann hans og afmarka með QR kóta og (nú fljótlega) örmerki og miðstýrðum stafrænum gjaldmiðli (CBDC). Þegar við ræðum hugtakið Heimagúlag, þá er það ekki samsæriskenning. Nú þegar er Heimagúlagi beitt af afli, ekki bara í Kína heldur sumum Vestrænna lýðræðisríkja sömuleiðis.
 
... kvöldkyrrð (Krybbukyrrð (Crickets)).
 
Engin umræða. Alltsaman samsæriskenning.
 
Flókið og öfgafullt!
 
Menningin er dáin, hún dó 2018 - 2019. Siðmenningin var lögð niður um allan heim 2021. Glundroðinn hófst á tímabilinu október 2021 til febrúar 2022.
 
... og því var lýst fyrirfram.
 
Nú fyrir nokkrum dögum fór allt Reykjanesið og hluti Höfuðborgarsvæðisins í eitt allsherjar móðursýkiskast, vegna smá snjókomu og norðangarra. Séð hef ég lýsingar fólks sem var við hjálparstörf, í sjálfboðavinnu, á því hvernig sprautudýr sem af ásetningi (miðað við hvar þau búa og eru alin upp) settu bílana sína út á götur og í skafla þar sem vitað var að væri varasamt. Dónaskapurinn og frekjan keyrði um þverbak um allt.
 
Hið sama gerðist þegar Reykjanesbrautinni var lokað. Þaulvanir brautarmenn sem ekið hafa þar fram og aftur í öllum veðrum árum saman, hristu hausinn. Hvers vegna fara stofnanir líka á nojuna?
 
Auk þess sem í ljós hefur komið að Sovétríkið var að spara, því það er gjaldþrota þegar kemur að þjónustu við borgarann en ekki þegar kemur að því að tútna út af möppudýrum. Svo var ein fréttin um það þegar Nefndin stefndi Ráðherra á teppið!
 
Byggingarnar gliðna þegar engin er sálin lengur. Dáið fólk á ferli.
 
Það er hægt að deyja á marga vegu.
 
Nú var birt frétt fyrir fáeinum dögum af einhverjum orðum Pútlers varðandi Úkróstríðið. Var blásið upp einhverju þvættingi og rangsnúningi um orð hans, soðið upp úr einni efnisgrein. Talan sem hann hélt, útskýrði nákvæmlega að Rússneski herinn væri að berjast við allar útgáfur af vopna og stríðstækni Nató, allri.
 
Nú er sending á leiðinni til Zlenský, af árásarvopnum sem vitað er að verða notaðar til að Úkró geti gert beinar árásir á Rússa. Það merkir að úr verður alvöru stríð þarna, í boði okkar eigin stríðsæsingafólks. Ekkert raunsæi er neins staðar í umfjöllun um hvað þarna er í gangi.
 
Nú síðast lýsa Pólverjar því að því sem næst óumflýjanlegt sé að stríðið nái til þeirra og þeir undirbúa herútkall fyrir vorið. Bandaríkin, Pólland og Rúmenía eru að þróa "Coalition of the Willing," sama heiti og var notað fyrir ólögmæta innrás Nató í Írak 2003, með blessun Íslenska Lýðveldisins.
 
Serbía var við það að gera innrás í Kosovo hérað nú á haustdögum; hérað sem tilheyrir þeim en var skorið af þeim með vélabrögðum Nató, með tilheyrandi loftárásum Nató á Serbneska borgara.
 
Húmanisminn er dáinn, þeir sem vígt hafa sál sína með Sósíalískum eða Andlegum Húmanisma, hafa þegar fórnað sál sinni í sprautuhöllunum, veit ég að sumir hafa iðrast, en á heildina litið er núverandi mann-kyn búið að vera. Þú sérð það allt í kringum þig, að ekkert raunsæi er neins staðar.
 
Víða eru bloggarar, hérlendis sem erlendis, að furða sig á  hversu órökrétt margt er og spyrja - hvað er í gangi - en fátt um svör. Við höfum spurt svona oft og svarið er einfalt, en þú þorir ekki að ganga til svarsins og þú veist ekki hvernig þorið var straujað úr þér.
 
Ekki nóg með þetta, sömu "leiðtogar" og eru að leggja niður menningu okkar - með þegjandi samþykki góðborgarans, enda er ábending um þetta samsæriskenning - nú farnir að leggja niður búskap! Nú síðast 3000 bændur í Hollandi, sem er aðeins eitt dæmi. Svo margt má tiltaka, en það er enginn messías eða engin pólitísk lausn í boði.
 
Margir hafa rætt um, erlendis, að fullsprautaðir taki persónuleikabreytingum. Á þessu hef ég enga skoðun, hitt er annað, að ég hef veitt eftirtekt síðustu mánuði, meiri óþolinmæði, aukinni grunnhyggni, og að grynnra sé á reiði og pirring ef eitthvað er ekki hundrað prósent eftir væntingum, en yfirborðskurteisi er þó fín allsstaðar en það má lítið út af bera þar sem áður var gert ráð fyrir mannlegri mýkt.
 
Nú í vetur spyr ég mig sífellt oftar, getur það verið að sprauturnar séu að valda persónuleikaröskun? Mér finnst þverþjóðfélagslegt móðursýkiskast síðustu dagana vega hér þungt.
 
Við höfðum fram í október 2021 að iðrast, sem menning. Varað var við; ef þú fórnar börnunum reisir þú bölvætt sem ekki verður samið við og hættir ekki fyrr en greitt hefur verið fyrir fórnina, elítan og foreldrar, ættlið fyrir ættlið.
 
Þú ert að upplifa fyrstu misserin í þeirri lúkningu.
 
Það er eitt að þú fórnaðir sál þinni fyrir ómerkilega lýgi.
 
Það er annað að þú fórnaðir siðmenningu öryggis þíns.
 
... en svo fórnaðir þú börnunum þínum.
 
... og þú heldur enn að dulvættir séu hægri-öfgar.
 
 
Ég mæli með, eftir þessa löngu spennulosun, þriggja vikna gömlu samtali Alex Jones og Robert Barnes, en ég ákvað í morgun að horfa aftur á það. Sem var rétt ákvörðun.
 
 
 

 

https://rumble.com/v1z339y-biggest-political-scandal-in-history-is-ftx-scam-says-attorney-robert-barne.html

 

Manstu þegar Sorpa fór að tilmælum HER og krafðist þess að allir ruslapokar væru glærir? Ég benti einum starfsmanni Sorpu á að Heims-efnahags ráðið væri á bak við þetta og hann þrætti fyrir, svo ég benti honum á að lesa sér til á sorpa.is.

Fór svo með svartan pokann þangað sem engin reglugerð nær yfir.

Færslan í hnotskurn; Skaparinn opnar ekki fyrir að við fáum aftur menningu fyrr en við biðjum hann um lausn (Deliverance) til réttlætis og mannvirðinga. Til þess vegar eru fjórir lyklar, Bæn, Fyrirgefning, Vitnisburður og Iðrun.

Þetta er það sem opnaði fyrir Guðdómlega sáttmálann eftir þrengingu Eingyðisfólks í Egyptalandi fyrir 3334 árum. Móse var ekki sendur til að leysa afkomendur Abrahams, heldur sem svar við bænum þeirra sem ákölluðu Guð um réttlæti (frelsi) og mannvirðingu.

Síðan gerðust ellefu tákn, tíu þeirra skráð í Annarri Mósebók, hið ellefta er steinahrúga á Giza sléttunni; Abu Rawash, Píramídinn sem sprakk framan í fésið á Faraó.

Leyndardómur sem var mannfólki dulinn til ársins 2020 að opnað var fyrir skilningur á og afhjúpun, eftir að Guðdómlegi sáttmálinn og vægi hans var svipstundis (instantaneously) afhjúpað allri heimsbyggðinni. Fimm árum eftir að skilningur á ellefta boðorðinu var opnaður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Magnaður pistill Guðjón, -það er varla neitt annað til bjargar úr þessi en að fólk vakni til að moka snjóinn og setji síðan strik í sandinn, leifi svo landvættunum að sjá um sína.

Magnús Sigurðsson, 22.12.2022 kl. 19:25

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Já, ég held að það sé einhvern veginn þannig.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 22.12.2022 kl. 21:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband