Rangþankar dagsins - 20221221

Á síðustu tíu árum höfum við öll lært, án þess að vita hvernig við föttuðum, og án elítu-áróðurs, að logandi kertaljós brennir eiturgufur [í húsum], að TeaTree olía í vatnsskál á ofninum fælir svarta húsasveppinn, að túrmerik og svartur pipar minnkar bólgur og hjálpar að heila (og fyrirbyggja) krabbamein; en við lærðum ekki að nota reiðufé til að temja bankana eða hafna þáttöku í stærstu eiturefnatilraun allra tíma.
 
Öll vísindi, öll stjórnmál, öll upplýsing, öll reynsla af fasisma, kommúnisma, nasisma, rang-sköttun, gegnsæji, ritskoðun, hvarf fyrir 33 mánuðum, aþþíbara.
 
Þetta reddast, keyptu stærra sjónvarp, betri fangasíma með betra QR code og umfram allt skrepptu til Tene að skoða heiminn. Því þú ert gull og gersemi með kosníngarétt.
 
Nota bene, komst út af stæðinu á vindahæð, skrapp og keypti kók og rækjusamloku. Allt í snjó útumallt í þorpinu; engir rafbílar á ferð.
 
 
 
Allir vita hver Andrew Lloyd Webber er, sem samdi undirspil
við snilldar ljóðverk Tim Rice, sem enginn veit hver er.
 
Það er allt á sömu bókina lært.
Mann-kynið er sinnulaust, siðlaust og siðblint.
 
 
Medvedev í sérstakri sendiferð til KKF í Pekíng.
Stríð í Taiwan og Suður-Kóreu í kortunum.
 
 
Frímúrar settu upp Georgia Guidestone til að segja þér hvað þeir ætluðu sér. Í fyrra rifu þeir verkið, enda hafði það ræst. Eins er með alla spádóma; ef þú veist af þeim, voru þeir hindurvitni.
Engir Spámanna Guðs reit niður eitt orð af því sem haft er eftir þeim, allar bækurnar um þá voru ritaðar eftirá og síðan ritskoðaðar af elítunni. Eina leiðin til að endurtaka þau vélabrögð núna, er að eyða út öllum stafrænum geymslum með gríðarlegum EMP höggbylgjum um allan heim.
Vittu til. Ef hægt er að spauta tvo þriðju hluta mannkyns með eiturefnum, með þáttöku allra, þá verður svona smáverkefni framkvæmt [án hiks].
Svo vitnað sé í Jósúa Maríuson; þið munuð sakna mín þegar ég verð farinn. Eða Postulana ellefu; hann kemur aftur.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Ég las fyrir skömmu í trúlega rt.com um, man ekki nafnið, Vanda, blind, gömul, dáin, hefði sagt að eitthvað ætti að ske, 22.12.2022 svo sem EMF, electric magnetic force frá sólinni. Hugsaði, er verið að ýja að, spá einhverju sem einhverjir ætla að gera? Af hverju velja þeir þessa dagsetningu, þá er sólin lengst frá norður pólnum. Svona eitthvað krassandi setum við í skáldsöguna mína. Ég var búinn að leita aðeins en fann ekki Vöndu? aftur, svo að ég bloggaði ekki. Nú nefnir þú EMF og þá skrifa ég þetta. 

Við skulum vona að allir hætti illskunni og hætti meðala svindli stríðs brjálæði sumir segja leik sýning að einhverju leiti. 

Þá var skrifað að enhver myndin frá Úkrainu sem sýndi Rússneskar flugvélar skjóta á borgir væru úr tölvu leik. 

Síðar kom önnur mynd, og var hún sögð frá Balkanskaga, svart hvít, nú í lit, af einhverri brú. Oft er sagt að það fyrsta sem hverfur í stríði sé sannleikurinn. 

Þetta er úr minni mínu. 

Jónas Gunnlaugsson, 22.12.2022 kl. 01:09

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Guðjón, svolítið torræður. Ég hef trú á að landvættirnar hafi nú rumskað og ákveðið að taka sér stöðu með fólkinu. Gleðileg jól.

Magnús Sigurðsson, 22.12.2022 kl. 06:17

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir þetta félagar. Mig langar að minna á að Obama hafði heræfingu í samstarfi við Kínverska herinn (að mig minnir á Hawaii eyjum) viðbrögð við EMF ástandi. Einnig hefur Dr. David Martin rætt um væntanlega EMF aðgerð - en hann er vanur að fara með hluti sem hann hefur flett upp hjá "kerfisfólkinu."

Þetta er nottla allt spekúlaasjónir, en allt er svo klikkað síðustu misserin að djörfustu kenningar eru í dag skemmtilegt partýspjall.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 22.12.2022 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband