Ranghugmynd dagsins

Eina hatrið sem ég sé í kringum mig, eða upplifi í samtíma okkar, er hatur öfga-vinstris á okkur öllum, og sérstaklega hatur þeirra á náttúru og raunsæi, ásamt meðvirkni hægrafólks með téðu hatri, og hvernig fólk sem vill sannleika og réttlæti er sett til hliðar eins og villutrúarfólk, vísindamenn og djöfladýrkendur miðalda.
 
Sé framangreint rangt mat, eða ranghugmynd, þá er ég veikur maður og þarf að fara í endurmenntun í kommúnistagúlagi og vera á sterkum geðlyfjum. Sértu að lesa þetta, á það einnig við um þig.
 
Úr einu í annað.
 
Tucker Carlson frá í gær, er skylduáhorf:

 

Einnig mæli ég með þætti RT um ofsóknir kommúnista Evrópusambandsins gegn Karin Kneissl, fyrrum utanríkisráðherra Austurríkis, fyrir að hún dansaði við Pútler í eigin giftingarveislu.

 

 

Ný lög frá Lýgveldinu: Nú á að flokka allt rusl í fjórar tunnur.

 

Í Brasilíu og í Kína standa yfir umfangsmestu fjöldamótmæli allra tíma, tugir milljóna fólks mótmæla Sósíalisma öfga-vinstrisins, lygum þess og rangsnúningum, milljónir fólks um alla Evrópu mótmæla vikulega síustu 33 mánuði: þögnin er ærandi.

Sjáir þú heiminn einungis í gegnum meginstraums fjölmiðla, veistu ekkert hvað er að gerast í heiminum, og það vekur spurningar um hvað hefur gerst síðustu áratugi og jafnvel aldir sem við vitum ekkert um, og þegar maður á samræður við almennt fólk sem sér heiminn einugis á þennan hátt, slær mann hvað það veit lítið um heiminn sem það býr í.

Þó vita allir af því að kommúnistar loka bankareikningum fólks í Evrópu, Norður-Ameríku, Brasilíu, Íran, Kína, hugsanlega einnig í Rússlandi, ef það hefur ranghugmyndir.

Eignarréttar-helgi bankareikninga þinna er horfin, þú hefur ekki lengur neinn eigna- eða einkarétt . Skattarányrkjan er óhamin, árásin á blóð þitt og lungu óheft. Réttindasvipting (Disenfranchise) fólks á vesturlöndum er mesta siðferðishrun allra tíma, og umræðan um það er á ensku nefnt Krybbur (Crickets), okkur vantar Íslenskt hugtak fyrir hið sama.

Dáin menning, hrunin siðmenning, rokin tunga, glundroðinn hafinn.

Þú átt ekkert, en ert fullkomlega hamingjusamur, á hraða vísindanna.

 

Áríðandi skilaboð til allra kommúnista, marxista, sósíalista og sérstaklega til Young Global Leaders frá Davos: STAR TREK var ætlað sem fantasía til afþreyingar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband