Marxistar grobba sig af hatri á Guði meðan mannfólk deyr úr SIDS og SADS

Íslenska Lýðveldið sem lítur á sjálft sig sem Guð, í það minnsta hagar það sér þannig, setur öllum trúarbrögðum landsins ströng skilyrði. Þú getur ekki stofnað trúarsöfnuð, hvað þá nýja trú, án þess að fá til þess leyfi hjá Ríkinu.

Ef Sússi bróðir kæmi aftur, í ár, yrði hann settur í varðhald á grundvelli forvirkra rannsóknarheimilda.

Sértu leiðtogi eða predikari í sjálfstæðum söfnuði eða trúfélagi, þarftu að gefa Ríkinu árlega skýrslu. Biblían er troðfull af sögum um hvernig menningin deyr þegar þetta ástand varir. Formaður Siðmenntar fagnar því að Bibban sé lögð til hliðar og er munnfroðu hánar því hampað af þeim sem styðja alvalda skurðgoðadýrkun Lýgveldisins.

Kvenprestar Lútersk Evangelísku kommúnistakirkjunnar; eru allar guðleysingjar.

Úr einu í annað.

Veistu hvað SIDS er eða SADS?

Sudden Infant Death Syndrome, er fræðiheiti sem klínt er á þegar ungabörn deyja skyndilega í vöggu í kjölfar bólusetningar, og dauðinn stimplaður óútskýrður vöggudauði. Sudden Adult Death Syndrome er hið sama og SIDS - og dúkkaði upp í kjölfar Covid sprautanna - nema ekki er búið að gefa því Íslenskt heiti ennþá.

Upp úr 1912 lauk á Vesturlöndum allt að fjögurra áratuga baráttu vísindamanna fyrir því að Ríkisstjórnir vestræns Húmanisma legðu niður skyldu-bólusetningar. Hundruðir vísindamanna höfðu lagst á árarnar að birta umfangsmiklar rannsóknir á skaðvaldinum Bólusetning, og höfðu þeir sannað að þessi uppfinning Edward Jenner hafði aldrei stöðvað farsótt en ollið óbætanlegum skaða og jafnvel dauða á milljónum fólks.

Ekkert hefur breyst, hvað þetta varðar; engin bólusetning hefur nokkru sinni stöðvað neina farsótt eða fjöldasjúkdóm. Ekki ein.

Frekar en að klára baráttuna og útrýma þessari djöfladýrkun, sem er einmitt bönnuð bæði í Kóraninum og Bibbunni - þ.e. óformlegar blóðgjafir og blóðfórnir - var farin málamiðlunarleið. Ríkin myndu hætta skyldu-sprautun en þess í stað bjóða upp á þær þeim sem vilja, s.s. heimskum foreldrum og einnig mætti krefjast þeirra þegar fólk ferðist milli heimsálfa.

Ógrynni efnis er til um þessar blóðfórnir í vísindaham sem sanna með ótvíræðum hætti hvers kyns djöfulmennska þessar sprautur eru. Það að þú veist það ekki, er vegna sinnuleysis. Vitir þú af þessu en hafnar því, ertu í liði með höfðingja föllnu englanna.

Læknanemar og aðrir sem mennta sig í líffræði átta sig sjaldan á því að lyflækningar (Therapeutics) og bólusetningar eru andstæður (Mutually exclusive) og hið síðara á ekkert erindi inn í læknisfræði.

Árið 2009 uppgötvaðist að flestar bólusprautur innihalda XMRV vírus, sem veldur miklum skaða og 2019 var orðið ljóst að fela þyrfti þessa staðreynd svo bólukerfið færi ekki á hausinn vegna málaferla. Covid genaglundrið var lausnin og heimssprautan felur fullkomlega tjónið af XMRV.

Núna kemst heimurinn ekki hjá því að horfast í augu við þessi mál. Hálft mannkynið hefur nú verið lagt undir sprautuna og kemst ekki hjá því að lifa afleiðingarnar á eigin heilsu.

Við höfum öll verið alin upp við þá lýgi Sósíalista og áróður Marxista að trúað fólk sem les ritningar, sé heimskt og flatneskjulegt öfgafólk sem ekki lesi sér til um vísindi og horfist ekki í augu við veruleikann; þannig lýsa lygarar oft sjálfum sér best. (Viðurkenning með ásökun)

Húmanisminn er sjálfsdýrkun og sósíalisminn er lygadýrkun: hvorutveggja endar í blindgötu. Öll vísindi sem einhverju hafa áorkað, svo og verkfræði, er fundin upp af andlega sinnuðu fólki sem les ritningar. Öll. Eins er með lagasiðgæði og borgararéttindi. Allt þetta hafa Marxistar nú strokað út á 32 mánuðum.

Ég minni þig á að fæstir ritningagrúskarar eru bókstafstrúar en allir húmanistar og sósíalistar eru það og trúa Wikipedia í blindni.

Þú hlýtur að hafa fyrir löngu síðan áttað þig á í hvaða liði kommúnistamiðillinn mbl er. Lítum snöggvast á klippu úr fyrirtöku á Evrópuþinginu um Covid sprauturnar, því þér er ekki sagt neitt um það í Marxistafjölmiðlum Íslands sem um þessar mundir grobba sig af stríðinu gegn trúnni.

 

"... we had to move at the speed of Science."

 

Sem fyrr segir, hafsjór efnis til, en mér finnast þessir fjórir præmerar bestir:

Ég veit ekki hvers vegna meirihluti mann-kyns er haldið lygablæti, er hættur að reyna að skilja slíkt. Ég er ekki mann-vera heldur mann-eskja, ég tilheyri ekki hjörð mann-kyns heldur hópi mann-fólks.

Ég vil losna út úr djöfladýrkunar heimsveldi Samaels og Píramída hans og komast út á eyðimörkina og tilbiðja þar Skapara Alheimsins og gangast undir ríki Guðdómlega sáttmála hans. Skaparinn er eini sannleikurinn, allt annað er sköpun og þar með mismunandi dökk lýgi.

Ég minni þig á að bloggið mitt er bara spennulosun og þú átt ekki og mátt ekki taka neitt alvarlega sem ég skrifa og segi.

Þar sem ég sleppti tónlistarklippu í dag, njóttu dagsins með hinni frábæru Catherine Austin Fitts í samræðu við Greg Hunter, hún hefur einstakt lag á að koma manni í gott skap og allir vita hvers kyns snillingur hann er:

 

Tvö frábær viðtöl Catherine Austin við Karel van Wolferen (Bitchute):


mbl.is „Til hamingju með þessa uppfærslu!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband