Yfirvegun einfaldleikans

Ef þú sérð ekki að Hrunið 2008 og Covid 2020 er styrjöld Pekíng gegn Vestrinu, þá heppnaðist Antivismi stýrðu andstöðunnar. Ef þú ert enn að eltast við baunatalningu atómsins og réttsýn samhljómsins, eða heldur að þú eigir eitthvað, eða að "þetta reddist" þá ertu fíbbl í tjóðurbandi Marxismans.

Þú sigrar þetta stríð því aðeins að þú viðurkennir að þú átt ekki neitt og hefur engu að tapa.

Meðan Allsherjar-ríkið getur hirt af þér skatta með staðgreiðslukerfi í gegnum launagreiðendur, ertu þegn en ekki borgari, þræll en ekki frelsingi.

Meðan ríkið getur hirt af þér barnagjöld með sama hætti, eru bæði mæður og feður í fjárhúsi ríkisins. Meðan þú greiðir bifreiðagjöld og fasteignagjöld, ertu mjólkurkú sem á ekki neitt en ekki maður.

Meðan ríkið getur rænt börnum af foreldrum sem ala börn sín rangt upp, er ekkert foreldri til, aðeins útungunarvélar. Meðan ríkið getur sett á þig grímur eða sprautað þig með ólyfjan, ertu gangandi kjötstykki en ekki mannvera.

Meðan ríkið eitt hefur réttindi til að ákvarða uppeldi og menntun barns þíns býrðu alla þína ævi í allsherjar fangabúðum en þú munt aldrei geta séð girðinguna, hvað þá viðurkennt að hún sé þarna opnist augu þín.

Meðan stjórnarskráin takmarkar ekki skattavald ríkisins og meðan forsetinn skrifar undir lög sem stjórnarskráin bannar, hefurðu ekkert lýðræði og ekki einu sinni ríkissmiðju, hvað þá siðmenningu.

Ef þú skilur þessa færslu, ertu hægri-öfgamaður og rangmenni og ef þú tjáir þig um þessi mál, muntu missa félagsleg réttindi þín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband