Af orðaglundri merkingarlausrar tungu

Þrátt fyrir genaglundrið í æðunum er fólk að hrynja niður úr hamfarahlýnun, tugþúsundum saman. Sért þú rétt-trúaður sósíalisti, meikar þessi setning ekki sens fyrir þér, sértu upplýst manneskja, fullkomlega.

 

 

Þau vísindi sem bæði mann-kyn og mann-fólk hóf að þróa upp úr 1551 þegar miðöldum lauk, byggðust á því að enginn væri ritskoðaður og að engin kenning væri óverðug þess að vera könnuð. Nú lifum við miðaldir húmanismans sem berst jafn ákaflega fyrir rétthugsun og kristíanistar á miðöldum.

Fæstir vilja sjá þetta, enn færri viðurkenna.

Tökum loftslagshlýnun af mannavöldum sem dæmi. Þú færð engar upplýsingar birtar í neinum fjölmiðlum sem stangast á við hina opinberu stefnu eða þann sannleika sem (að nafninu til) óháðar alþjóðlegar stofnanir boða.

Efist þú um téð ástand sem oft er nú uppnefnt hamfarahlýnun færðu á eftir þér Netrottur (Internet Trolls) sem ásaka þig um samsæriskenningar, eða verstu trúvillu allra tíma; að trúa ekki Á vísindin.

Bendir þú á vísindastaðreyndir, til sönnunar því að þú notir vísindin og þurfir því ekki að trúa á þau, máttu búast við algjörri útskúfun. Fæstir þeirra sem trúa á vísindin vita hverjir klerkarnir eru sem ákvarða réttvísindi og rangvísindi.

Fæstir þeirra sem trúa á hamfarahlýnun elítunnar vita hvað hún heitir en hún gengur undir tvennum nafngiftum. Sú sem er algengari meðal fræðimanna og kennimanna, er Anthropomorphic Climate Change. Fæstir sem ofsækja þig fyrir ranghugmyndir vita hvað anthropomorphic þýðir.

Síðara hugtakið, sem er fræðiheitið sjálft, er Coupled Nonlinear Chaotic System. Það er gott að læra þessi tvö hugtök, sértu kominn í ranghugmyndahópinn, því það að varpa þeim fram í samræðum eða tafsi við netrottur stingur hraðar upp í þau en vík brott Satan gerir við kristíanista.

Svipað á við um Covid 19, veistu t.d. hvað Polymerase Chain Reaction stendur fyrir, nú eða real time Polymerase Chain Reaction? Þeir sem trúa á PCR skimun geta ekki svarað þessari spurningu og þeir hafa ekki minnsta grun um hver fann það upp, hvað þá heldur hvað hann hafði að segja um notkun tækninnar til smit-skimunar.

Ég rak mig á það í sumar, í veikindum mínum, að heilbrigðisstarfsfólk kunni ekki skil á Covid 19 veikinni annars vegar og Sars-COV-2 smiti hins vegar. Að segja við þau ég hef ekki covid var guðlast því PCR sagði þeim að ég væri smitaður af Sars-COV-2. Þetta endaði á að ein hjúkka öskraði á mig, svo ég ákvað að segja ekki orð innandyra nema það væri vottaður sannleikur.

Veistu hvað Sars stendur fyrir? S... acute respiratory syndrome. Já, ég man ekki hvað essið stendur fyrir og ber of mikla virðingu fyrir þér til að leitarvéla það þó þetta sé ritað innankerfis (Online). Held þó að það sé Severe. Severe Acute Respiratory Syndrome?

Testaðu grímudýrin:

Götin í grímunum eru þrjú nanó, stærðin á ósannaða Vírusnum er eitt nanó.

Forsætisráðherra Nýja Sjálands hélt ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna þar sem hún gerði segðafrelsi (Free Speech) að umtalsefni. Útlistaði hún hversu mikilvægt það væri fyrir lýræðisríki (húmanismans) að ritskoða segðir fólks og tryggja að fólk notaði ekki orð sín til að vopnast gegn allsherjar-ríkinu. Já, hún staðhæfir eins og aðrir Davos Marxistar að segðafrelsi sé vopnabúr gegn einhverju[m].

Augljóst er innan allra þessara lýgræðisríkja samtímans að hatursegð sé rangsegð og skuli bönnuð og refsiverð. Verið er að bæta við bæði Rangfréttum (False news) og Upplýsingaóreiðu (Information Entropy) í guðlöstunarmengið.

Tökum dæmi um hvernig þetta virkar:

Nú kemur fram podcastari og heldur því fram að vírusinn og farsóttin séu af völdum illkvittnis samsæris af hálfu gyðinga. Það er samsæriskenning en ekki hatursegð, en væri flokkað sem hvorutveggja því ógeð Nasista á Gyðingum er frægt. Bæti hann því við að ritskoða þurfi gyðinga, eða úthýsa þeim þá er það hatursegð (sem það réttilega er). Það tæki hins vegar enginn mark á svona vitleysingi, er það? Þarf að refsa honum fyrir hatur sitt og málflutning ef það hefur engar afleiðingar, þ.e. ef enginn tekur mark á honum eða bregst við?

Hefurðu fylgst með rússa ofsóknum sem vestrænu Davosríkin viðhafa og borið saman við gyðinga ofsóknir Nasista?

Höfum í huga að sömu húmanistar og standa að ritskoðunarblætinu vilja nauðungarsprauta fólk og setja í gúlag og takmarka ferðafrelsi þess, eða taka af því bílinn, vegna Vírussins, Sprautunnar, og Hamfarahlýnunar, en getur engin vísindi rætt. Hið opinbera má sumsé viðhafa hatursegðir, samsæriskenningar, rangfréttir og upplýsingaóreiðu; og þetta ranglæti getur Galíleó sannað fyrir hvaða rannsóknarrétti sem er hvenær sem er.

Hversu margir þeirra sem trúa á hamfarahlýnun hafa velt fyrir sér eftirfarandi:

Ein alþjóðastofnun heldur því fram að loftslag sé að hlýna á jörðnini og hún heitir Intergovernmental Panel on Climate Change, skammstafað IPCC. Stofnun þessi gefur reglulega út yfirlýsingar um loftslagsmál (sjávarmál og fleira), sem síðan er notað í fjölmiðlum og stjórnmálum eins og heilagur sannleikur.

Aðrar stofnanir s.s. NASA éta einnig upp eftir IPCC.

Enginn þeirra sem trúa Á vísindin vita heiti þessarar stofunar, enginn þeirra sem slafrar í sig slefið frá stofnun þessari gerir sér grein fyrir að allar yfirlýsingar hennar eru byggðar á takmörkuðum tölvulíkönum og engin þessara líkana hafa nokkru sinni séð framtíðina rétt. Öll þessi líkön spá hamförum tíu ár fram í tímann og hafa gert árum saman, þ.e. við hefðum átt að sjá vistkerfi jarðar hrynja fyrir meir en tveim áratugum.

Þeir sem trúa á vísindin, eru til í að viðhafa hvaða útskýringar sem eru til að fela fyrir þér að engin lýsing er til þeim til staðfestingar. Þetta er jafn virk staðreynd í húmanisma samtímans og það var í kristíanisma miðalda.

Varðandi þetta með lýsingu og útskýringu, er atriði sem fer að því er virðist framhjá öllum. Hitamælir getur lýst hita. Hitastigs kvarðarnir Fahrenheit og Celsíus eru útskýringar. Setningar á borð við það er kalt eða það er hlýtt er huglægt mat, en setningar á borð við það er frost eða það er hiti er hlutlægt mat.

Vísindin geta ekki útskýrt neitt, þau geta aðeins komið fram með aðferðir til mælinga eða verkfræði. IPCC er áróðursstofnun og PCR skimun er áróðurstæki. Áróður, rangsnúningur, útskúfanir, og persónuárásir, eru aðferðir Marxískra kommúnista og öfga-sósíalista til að rústa mannlegum samfélögum og steypa þau inn í útdregin (Abstract) kerfi s.s. lygararíki af ýmsu tagi og alþjóðlegar [ofsóknar]stofnanir.

Þetta er ekki samsæriskenning, en ef það er uppnefnt samsæriskenning, að ég tali ekki um hatursegð eða rangfrétt eða upplýsingaóreiða, þá lestu þetta ekki og jafnvel þó þú gerðir það tækir þú ekki mark á neinu svona djúpu eða flóknu.

Ég segi stundum í myndskeiðum mínum að fólk viti ekkert og skilji enn minna, þó ég viti vel að svona má ekki segja við almenna hlustendur. Það að þú hafir helling af orðum í huganum sem þú heldur að þú kunnir skil á, merkir ekki að þú vitir eitthvað um það sem þau hjúpa, og margir sem vita svo mikið skilja sjaldan hvað skil (Interface) milli innihalds og framsetningar.

Menningin er dáin því við getum ekki rætt neitt lengur, höfum hvorki getuna til né höfum við komið í veg fyrir að Marxistarnir (Dialectical materialists) - sem eyðilögðu Kristíanismann fyrir fimm öldum og eru að eyðileggja Húmanismann núna - láti ríkið ritskoða hvað við segjum.

Var þetta flókin efnisgrein? Enginn myndi nú lesa flókinn texta tvisvar?

Sé menningin dáin, getur kerfisfólkið komið á hvaða lögum sem er, hvaða reglugerðum sem er, hvaða dóms- og réttarfari sem er, hvaða ritskoðun sem er, og framkvæmt þjóða[r]morð eins og þeim sýnist og sagt síðan aðra sögu af því: Hrunin siðmenning.

Í haust voru ábyrgir fræðimenn erlendis, sem ekki birtast í lygaramiðlum lýgveldanna, búnir að finna út að tólf milljónir væru dánar úr sprautunum, í síðustu viku fór sú tala upp í tuttugu milljónir. Er það falsfrétt eða upplýsinga óreiða? Tekur þú mark á þessari fullyrðingu?

Ég vísa ekki í heimild hér, því ég ætlast ekki til þess að þú trúir eða takir mark á neinu sem ég staðhæfi eða útskýri. Ég minni lesendur mína reglulega á tvennt. Bloggið mitt er spennulosun og myndskeiðin eru viðbragð við þeim heimi sem okkur er sýndur.

Ég hef engan sannleika að boða því ég treysti dálitlu sem Ríkið og Marxisminn gera ekki.

Ég treysti því að mann-vera sem gengið hefur í skóla, geti hugsað og dregið ályktanir og taki ekki mark á hvaða vitleysu sem er, en þegar hún heyri eða sjái einhverja staðhæfingu sem er áhugaverð; bregðist hún þannig við að hún rannsaki málið, hvort heldur sem staðhæfingin kemur frá hinu opinbera eða vönduðu fólki.

Ég veit að þetta er ranghugmynd hjá mér. Mann-verur vita ekkert og skilja enn minna og hafa á hvorugu áhuga. Mann-eskjur hins vegar, þær hugsa, þær upplýsa sjálfa sig, og þær fatta spennulosun manna sem rita í örvæntingu sinni um alla þá vitleysu sem valdasjúkt - og oft morðótt - kerfisfólk býður okkur uppá.

Náðir þú alla leið hingað?

Leitaðu að mæligögnum um loftslags og sjávarbreytingar. Þú finnur engar mælingar til að sannreyna. Ekki eina. Takist þér að afsanna þessa staðhæfingu, reyndu að finna myndskeið sem sýnir PCR skimun í framkvæmd. Þú mátt kommenta.

Þarf að útskýra muninum á mann-verum í hjörð mann-kyns annars vegar og manneskjum í samfélögum mann-fólks hins vegar? Sé svo, þá þarf líka að útskýra hvernig sólin hitar jörðina, eða hversu mikið CO2 kemur upp úr eldfjöllum bæði ofanjarðar og neðansjávar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband