Glundroði túngunnar

Fyrir fáeinum árum hefði engum komið til hugar að nota orðskrípin Hatursorðræða og Þungunarrof fyrir hatursegð og fóstureyðingu. Þá hefði fólk hlegið að tilraunum kommúnista til að koma orðinu Hán inn í orðabækur.

 

 

Að lögreglan kæmist upp með að gera menn að hryðjuverkamönnum vegna samsæriskenningar einnar saman hefði ekki hvarflað að nokkrum hugsandi einstaklingi og enginn tekið alvarlega, hvað þá að æsa til persónuofsókna vegna slíks. Að uppnefna pólitíska andstæðinga sína "innlenda hryðjuverkamenn" hefði talist ódýrt djók. Að gefa slíkri lögreglu auknar heimildir til ofsókna á hendur fólki án rökstuddra grunsemda um lögbrot, hefði aldrei komið til greina.

Þá hefði enginn stjórnmálamaður eða ríkisráðsmaður þorað að hóta kjarnorkustyrjöld, en því hóta bæði Vestrænir og Rússneskir daglega síðustu tíu mánuði. Ekki hefði neinn komist upp með að uppnefna kemísk tilraunaefni sem bóluefni og þannig stroka út þriggja alda vísindahefð; að neita fólki um lyflækningar (Therapeutics) en þröngva því þess í stað í óreyndar (og ómarktækar) ónæmisaðgerðir hefði enginn þorað að láta á reyna.

Að allt þetta sé órætt í menningunni, er tákn dáinnar menningar. Að lög, reglur, dómar, og hefðir, taki ekki á þessu, er tákn hruninnar siðmenningar. Að merkingarfræði framangreinds sé "flókið" er tákn ruglaðrar tungu (confused language) þ.e. merking tungunnar er marklaus.

Að fólk haldi að "þetta reddist" og bíði átekta, þegar það er hlutverk hverrar manneskju að yfirgefa girðingu mann-vera, og viðurkenna að þú átt ekkert ef þú skuldar meir en þriðjung í því, að skilja að nú er að flýja og lifa: Þú skilur þetta ekki, því þú hefur enga menningu, enga siðmenningu og enga túngu.

Að þú þorir ekki að yfirgefa og smíða nýtt, merkir að þú ert einærisjurt forgengilegrar lýgi en ekki fjölærisjurt í gróðursælum alheimi skaparans.

Meðan ég man, talandi um samsæriskenningar. Kanada og Bill Gates voru samanlegt að ráðstafa á dögunum 300 milljörðum dollara til Davos mafíunnar til að koma örmerki með tilheyrandi tölvurekjanleika í skrokkinn á þér. Það er jafn há upphæð og Bæden og Úrsúla stálu frá Rússum í mars. Kannski las ég samsærisgreininguna rangt, kannski voru það bara 300 millur. Sem gerði það þá alltsaman alltílæ.

Hefurðu rannsakað hvort kynþvottur (Grooming) ókynþroska barna sé hafinn í ríkis skólum Íslenskra "lýgveldis" Sósíalista. Heldurðu að einhver hérlendis þyrði að ræða ef svo væri, eða hefði til þess hugtak?

 

perennialist.info

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

"Að þú þorir ekki að yfirgefa og smíða nýtt, merkir að þú ert einærisjurt forgengilegrar lýgi en ekki fjölærisjurt í gróðursælum alheimi skaparans."

Verður ekki betur orðað.

Haukur Árnason, 12.10.2022 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband