Besta menntun í heimi [en ekki hér]

Allir vita að "við" höfum besta menntakerfi í heimi, eða það er allavega tónninn. Í mörg ár hef ég verið bergmálið í tómarúminu; Það er engin umræða á landinu um hvað menntun sé, og meðan það ástand varir, höfum við ekkert menntakerfi. Aðeins innprentunarkerfi.

Sé það raunveruleikinn, hefurðu enga þjóð, enga hugsun, enga menningu, aðeins fénað.

Í morgun spurði ég: Hvað kostar dagurinn fyrir barnið þitt í "skólakerfinu?" Meðan þú veist það ekki og meðan ég er eini Íslendingurinn sem spyr að því, veistu ekki hvað menntun er.

Þú fengir fimmfalt betri menntun fyrir barnið þitt, ef þú fengir upphæðina beint í vasann til ráðstöfunar í menntun handa barninu þínu.

Spurningin frá í morgun:

Hvað kostar einn dagur í grunnskóla? Hvað borgar ríkið fyrir að kenna einum einstaklingi frá fyrsta til síðasta bekkjar grunnskóla? Hvar er þessi upphæð birt?
Hvað myndirðu fá fyrir helming hennar í einkareknum skóla?
Hvað fengirðu greitt fyrir heimakennslu?

 

Sem minnir mig á annað; Leikskólar eru glæpur gegn fjölskyldu og þar með eyðilegging á menningu. Kannastu við hvernig þú hafnar þessari hugsun, umhugsunarlaust?

 

Tengt efni, frá Bannon og Kari Lake

 

Skemmtilegra efni, um Summerhill og A.S. Neill

"If freedom can save the far-gone problem child, what could freedom do for all the so-called normal children perverted by authority?"

 

Átti skemmtilegar samræður nýlega, þar sem viðmælandi sagði mér undan og ofan af hvernig menntakerfið gerði hitt og þetta rangt og hvernig mætti bæta það, einbeitti ég mér að því að hlusta á hvert orð og koma sem minnstu að frá sjálfum mér. Í lokin spurði ég hann, hver er grunn fallasían í þessu öllu hjá þér? Málefnið var rætt frekar, og í lokin endurtók ég spurninguna.

Í öllum tillögum hans var grunntónninn sá að sósíalistaríkið og sérfræðingar þess áttu að sjá um kennslu barnanna, og kennslufræði Húmanismans væru eini sannleikurinn. Eftir að ég benti honum á þetta, gagnrýnislaust, spurði ég hann hvort hann þekkti upprunalegu merkingu hugtaksins að kenna.

Honum líkaði ekki merkingin, eftir að hann spurði hver hún væri.

 

Loks eitthvað vitrænt á vegum John Taylor Gatto:

 

Að lokum:

Ofvirkni og Athyglisbrestir, jafnvel lesblinda, eru frumspekilegar útskýringar á afleiðingum Marxískra kennsluaðferða. Slíkt lagast ekki með Sprautukynslóðinni.
 
Sem minnir mig á annað: Þú veist að ríkið og lyfjarisar elska að gefa fólki geðlyf, þó eru ekki til nein lífræn próf til að mæla eða meta geðhrif. Hversu hátt hlutfall Íslendinga undir fimmtugu eru ekki á geðhrifalyfjum?
 
Þú sérð sjaldan eigin hugsun, enn síður umhverfið sem hún syndir í, og alls ekki hvatana sem móta hana. Ef einhver sýnir þér þetta, bregstu við með ónotum, jafnvel hatri.
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband