Mike Pence er sjálfstæðissósíalisti

Hvað eru re­públi­kan­ar? Ah, Lýðveldisflokkurinn í Bandaríkjunum er uppnefndur þannig hjá Quislíngamiðlum, staðreyndin er sú að Mike Pence er það sem Lýðveldismenn í Ameríku uppnefna nashyrninga (Republican In Name Only, RINO).

 

Bregð út af vananum, og deili innlendri tónlist með pistlinum.

 

Alríkislögrega Bandaríska sambandsríkisins - FBÆ - er í dag pólitískt verkfæri kosningaþjófsins Bæden, notuð til að ofsækja andstæðinga hans í stjórnmálum. Mike Pence er stuðningsmaður Bæden, og því ómarktækur kommúnistalygari, eins og allt Lýðræðisfólk veit.

Slíkir eru Alþýðuflokksfólk (Democrats) sem hafa komið ár sinni fyrir borð innan Lýðveldisflokksins til þess að breyta honum í Lýðveldissósíalistaflokk, svipað og gert var við Sjálfstæðisflokkinn hér, sem nú er í reynd Sjálfstæðissósíalistaflokkur á vegum Heimsefnahagsráðsins (H.E.R. (W.E.F.)

Manstu þegar ég sagði þér í fyrra að merking tungunnar myndi gliðna á þessu ári?

Þú trúðir mér ekki.

Hefurðu fylgst með sýndarréttarhöldunum í Bandaríkjunum síðustu árin, viltu nafnalista yfir þá sem hafa verið ofsóttir með pólitískum réttarhöldum? Er einhver Íslenskur fjölmiðill sem gagnrýnir aðför kínversk styrktra kommúnista að vestrænum gildum, þeim sömu gildum og gáfu þér lýðræði, vísindi og velsæld?

Heldurðu að þetta fólk muni ekki breyta landinu í Norður Kóreu, eins og kommúnistar hafa gert við öll lönd þar sem þeir ná alræðisvöldum? Eða ertu SMART borgari? Þá skiptirðu engu máli, því þú ert þegar kominn á vald útópíunnar, hvort sem þú ert Gáfnaljós meginstraumsins eða Antivisti jaðarstraumsins.

Hversu oft þarftu að stíga á skóreimarnar þínar strax eftir að ég varaði þig við hrasi, til að þú snúir þér til Bænar, Iðrunar, Vitnisburðar og Fyrirgefningar? Sjöhundruðsjötíuogsjö sinnum? Nei, sexhundruðsextíuogsex sinnum. Mannverur breytast ekki aftur í manneskjur þó maður vari þær við, þær þurfa að arka út í fúafenið mitt, austan við þúfuna með Kínafánanum.

Það sem er í gangi í heiminum, er að raunsæi gufaði upp árið 2019. Raunsæi er náð frá skaparanum. Án raunsæis, er sama hversu rökréttur þú ert, það snýst allt upp í andstæðu sína.

Hvers vegna gufaði raunsæið upp?

Hvers vegna sturlaðist mannkynið eins og einn maður á svipstundu?

Tólf milljónir dauðar úr Genaglundrinu.

Það þætti fréttnæmt einhversstaðar.

Góðar stundir.

 

 


mbl.is Hætti að ráðast á alríkislögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband