Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 13. september 2024
Veitið afslátt á bakkelsi og snúðum - ekkert væl
Hvað vill til að fjölmiðlar eru nú fyrst, eftir fjögurra ára hernað gegn Almúga (Dirty peasants) landsins, bæði heimilum og millistéttar fyrirtækjum, að fjalla um hvernig elítan fitnar og fitnar en hrepparinn þrengir sultarólina (og kemst sjaldnar til Tene)?
Hefur enginn* tekið eftir einbeittum brotavilja -elítunnar- gegn Lýðveldinu og atlögunni til að afmá það? Sé svo, þá er þjóðarsálin dáin!
Það er öllum slétt sama! Almenningur er lyfjaður og sprautaður í botn (fyrir ímyndunarveikir á borð við ADHD og Covid), snjallsímaður í stjarfa, það eru engar stjórnmála umræður á landinu, engin menningarleg samræða, ekkert líf með einu eða neinu.
Lastu tölurnar í tengdri frétt? 60 / 156 gera 38,46 prósent. Einföldun: 40 prósent "þjóðarinnar" hefur ekki efni á Útópíu feitríkisins.
Ef elítan þarf meira í eigin vasa, sem hún á fullkomlega skilið fyrir alla flóknu textana með löngu orðunum - auk þess sem hún elskar okkur í botn - þá er að leggja fleiri álögur og kalla það nayðsynleg viðbrögð við óreiðutilviljunum, og arka áfram veginn.
Á meðan geta öfga kommúnistar Ósjálfstæðaflokksins hótað þjóðinni að hún muni bera mikinn skaða af að efast um virði stórvirkra fugladrápara í Búrfellslundi og Tóta Stríðsfjörð gert landið að "smáhrepp 35" í Brussel, rétt áður en ESB hrynur.
Hæhó og jibbí.
Sástu lögregluna setja upp bleikt? Veistu að það er ekki hennar lagalega né siðfræðilega hlutverk? Fattarðu vægi þessa? Nei, þú fattar það ekki.
Landið er dáið, og fyrir hvern dag sem þú ekki flýrð, stirðnarðu, og á endanum breytist blóðið í duft og verundin í duldarhnoðaða styttu (leirmenni).
- https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/13/thjodin_ber_skadann_af_thessari_framgongu/
- https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/12/thordis_bodar_eitt_frumvarp_bokun_35/
Þegar ráðherra þess flokks sem ævinlega hefur staðið fyrir "að þjóð geti ekki átt neitt" predíkar eins og Marxistapáfi um ímyndaðan skaða fyrir "þjóðina" (hvað sem það nú er), og veit að enginn fjölmiðill ræðir um áhugaverðar fjárfestingar í virkjanamöguleikum smájarða - hinthint- þá er tengda fréttin fyndin, sérlega fyndin.
* Hugtakið Enginn er notað hér í merkingunni, færri en 23 prósent, - samkvæmt "þjóðar"-vitundar-algrími - þ.e. 18 prósent höfnuðu genatilrauninni, það var þaggað, svo enginn hinna 82 prósenta sá hina ógenabreyttu, við bætum við 5 prósent skekkjumörkum, þ.e. að meðan færri en fjórðungur (23 %) sér dauða eigin menningar, þá sér það enginn. Auk þess er þetta ritað föstudaginn 13da, sem passar miðað við að bæta 10 heilags sefírats við. Einfalt.
60.000 heimili eiga erfitt með að ná endum saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 17.9.2024 kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 13. september 2024
"Þetta reddast" --elítan
Sko, aðal málið eru loftskattarnir til ESB og fleiri ólögmætir eignaskattar á hunda, hús og bíla. Ekki bregðast við veruleikanum, nema helst í flóknum textum með löngum orðum.
Hvað, eru aðeins fjögur ár síðan Reykjanesvættur hóf viðvaranir sínar? Hefur hann verið mildur til þessa? --Bergrisinn með járnstafinn.
Annað; Sendifulltrúi Rússa hjá SÞ var að lýsa því yfir að ef Nató ríkin leyfðu Úkraínu að nota langdregnar flaugar til árása inn fyrir landamæri Rússneska Ríkjasambandsins, jafngilti það stríðsyfirlýsingu Nató gegn Rússum, og að viðbrögð þeirra yrðu í samræmi við það.
Sjáðu til; þetta var ekki fjölmiðla yfirlýsing, heldur orðræða á þingi SÞ, og það hefur vægi af Rússa hálfu. Þeir eru ekki froðusnakkar eins og "okkar fólk."
Svo vitnað sé í Otto von Bismarck (snjallasta diplómat og ríkisráðsmann Evrópu undanfarnar fimm aldir): Rússar meina það sem þeir segja. Nú eru síðustu forvöð fyrir Íslenska Lýðveldið að lýsa yfir hlutleysi og hefja opinbera endurskoðun Nató samningsins. Án gríns.
Fyrir okkur hin; yfirgefið allar borgir, núna. Fúskstjórnin, eða Sprauturíkið, er búin að koma þér á lista yfir óvinveittar þjóðir og það hefur afleiðingar á næstu vikum, vonandi mánuðum, og þó þú flýir ekki núna, vertu reiðubúinn með fimmtán mínútna fyrirvara, eins með eldgosin.
Hugtakið sofandi að feigðarósi er alvöru. Sjálfumglöð -elítan- fer ekki að redda neinu úr þessu eða laga sitt eigið fúsk, við erum upp á okkur sjálf núna. Og fyrst þú fattaðir það ekki árið 2020, eða 2021 eða 2022 eða 2023, þá eru takmörk.
Brautin gæti lokast á einum degi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 13. september 2024
Elska skaltu -elítuna- af allri þinni verund*
Ef þú elskar ekki -elítuna- hvers vegna læturðu hana ala upp börnin þín og sprauta glundri í skrokkinn þinn? Hvers vegna læturðu hana þá hirða af þér það sem henni sýnist, með hvaða réttlætingum sem er?
Varla ertu hræsnari?
Tökum snúning á þessu, með enska orðinu "feedback" sem allir meðal "þjóðarinnar" hafa tekið upp, frá forskrift -elítunnar- sem Endurgjöf. Ef -elítan- getur endursamið þína eigin málvitund, hver stýrir þá huga þinum? Eins er með orðafúskið áhrifavaldur sem yfirskyggir Íslenska orðið áhrifahvati?
Endurgjöf er hluti af leikferli sem hefst á Uppgjöf, þegar leikir eru stundaðir s.s. íþróttir og spil, andsvar, mótsvar, og viðsvar (viðurlög, viðkunnanlegt, viðundur, viðkoma, [við*,] ...) eru viðlag við stef í orðræðu; eða "feedback." Endurgjöf er ekki Íslenska, í þessu samhengi. Þá er uppgjöf einnig notað þegar spil er tapað eða gefið eftir með reisn, svo viðsvar væri betra en uppgjöf í merkingunni fídbakk.
Lýðsæld (Populism) hefur verið strokuð út í múgsefjunarástandi (static mob mentality) Íslenskra góðbænda (Citizens) og kotbænda (Serfs) og hreppara (Villains), svo þeir vita ekki lengur hverjir þeir eru, hvaðan þeir koma, og enginn lýðsefari (Populist) hugnast þeim, því allir eru kvarnaðir (Atomized) niður í leirmennsku og bergmál sem ruglað hefur þá svo í ríminu að jafnvel kímni fyrir eigin misskilningi er orðin* að fjalli af sora og óreiðu.
Þú þarft ekki að kannast við ný-yrðingar sem dregnar eru fram úr myrkri málvitundar, því þú kannast við hina frumspekilegu (Metaphysical) verund hugtaksins. Eþaggi?
Nú vill svo til að ég vil fleygja burt styttunni af Jóni Sig. við Austurvöll og setja þar í staðinn styttu af Katrínu Jak. þú manst þegar hún breytti menningarlegri umpólun í enska orðið skautun (Polarization)?
e.s. Ekki taka mark á Spennulosun, hún er lagfæring á óreiðuskoðunum, eða örvæntingartjáning.
* Við notum [enn] jöfnum höndum Verund fyrir "a Being" eða "Beingness" og "Phenomen" (Fyrirbæri) eða "Phenomenology."
* Ef orð (Word" getur einnig orðið (Becoming) hvað er þá lífaflið, hreyfiaflið, kviklægni (Dynamics) orða og orðnotkunar, eða hinnar duldu (Leyndu, [duldar]Flóknu (Complex)) málvitundar, eða dulefnis (frumspeki: metaphysics) tilverunnar, eða tilverundar? Bibban er soldið hrifin af "Logos" í þessu samhengi, svo og öll heimspeki Eingyðistrúarinnar og afleiddra (Derived) trúarbragða og siða. Manstu; hvað er siður? Seyddur er fram hið gerandi gól, svo úr verður lifandi galdur, sem áhrif og gjörð, eh!
Svo vitnað sé í Múhameð, sem þannig vitnaði í 1. Mósebók; það dugar Guði að segja verði og það verður (eða er). Hvað er Er?
* Við höfum tekið upp ritháttinn -elítan- fyrir elítan, því margir Hérlendingar líta svo á að elítan sín sé ekki hluti hnattrænu Elítunnar.
Viðbót 17:10 - Í meðfylgjandi tengli, þar sem Napolitano dómari ræðir við vitringinn Dr. Gilbert Doctorow (þ. 11. sept 2024), kemur fram áhugaverð pæling varðandi Flæmskt hérað í flæmskum hluta Belgíu, þar sem upp kom sú krafa að tungan væri óskiljanlegur hluti landsins sjálfs, en ekki endilega þjóðarbrotsins (Ethnic group), sem er vangavelta sem einnig tengist hugleiðingum Carl Gustav Jung um áhrif lands - eða hugsanlega landvættar - á fólkið sem býr ákveðin lansvæði. Við ræddum þetta talsvert í Arkívinu á sínum tíma, t.d. má velta fyrir sér hvenæar íbúar Arizona og New Mexico muni virkja dýpri vensl við Apache, Navajo, og Hopi, sem grunn þjóðþátt (Ethnicity), eða Tennesee og Kentucky við Cherokee og íbúar New York við Lenape. Þetta er ein af ástæðum þess að við höfnuðum genafræði -elítunnar- á sínum tíma og endurvöktum Herúla genið og gáfum því lausan taum, en sem fyrr segir, er mikið fjallað um þetta í Arkívinu, bæði á Íslensk og Ensku, en í kjölfarið t.d. hafði samband við mig Evrópskt fólk sem unnið hafði svipaða grunnvinnu og notaði þessa orðræðu til að virkja eigið djarfskref á þessu sviði. Herúlar voru strokaðir út með djöfullegri þjóðvélabrögðum, en sorrý, gen rétt eins og hugmyndir og hugtök eiga eigið vitundarlíf, efnisheimurinn sem við erum öll dáleidd af er ... tja, steint og njörvað logos?
- https://www.youtube.com/watch?v=moaP1EdcPVk
- https://www.youtube.com/@judgingfreedom/search?query=doctorow
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. september 2024
Örlítil dagrétting frá síðustu færslu
Elítan fær alltof lítið í skatta og gjöld. Sjáðu bara hvað hún elskar okkur mikið, og samt skuldar Ríki elítunnar heilan helling! Auk þess er það bara Spennulosun að uppnefna Ríki elítunnar Fúskríki og "Lýgveldi."
Þau eru elítan og þau gáfu okkur lögin og mannréttindin, og ef þau fara ekki eftir stjórnarskránni, hafa þau fínar og góðar ástæður til þess, sem við Almúginn eigum ekki að reyna að skilja.
Elítan veit best, og öll neikvæðnin í færslum mínum, eru bara þjáningarfull spennulosun í örvæntingu veiklyndis og skoðanaröskunar, sem hugsanlega, og þó, gæti verið um að kenna mis-hæfum kennurum Ríkisskólans.
... sem er örugglega óvart af hálfu elítunnar, en hatursglæpur af minni hálfu.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. september 2024
Sikileyskur stjórnlagadómur, eða stjórnlagakreppa
Í engu er vegið að háttvirtum lagaprófessor með fyrirsögn færslunnar, en ef hann veit eitthvað um lög, þá veit hann að einungis Forsetinn getur skipað embættismenn, að ekki er hægt að víkja þeim úr starfi, en hægt er að flytja þá til og þá án skerðingar í launum. {sj. t. grein}
Enginn annar getur skipað eða hlutast til um embættismenn, eða vara-embættismenn. Sama hvað Prófessorinn segir, sama hvað Ráðherrann segir, sama hvað Ríkissaksóknari segir, og sama hvaða fyrirsögn er á færslunni. Þá hefur forseti hvorki leyfi til að framselja þetta vald, né þá valdskyldu að stilla sjálfur upp ríkisstjórn og ráðuneytum.
Alþingi hefur ekki umboð til að setja lög um þetta, eða um ráðuneytin eða um forsetann.
Að prófessorinn ýlfrar eitthvað um sjálfstætt dómsvald á Íslandi, þá ætti hann að vita, og ef hann veit það ekki þá er lögspekileg útskýring í boði, að á Lýðveldistímanum, eftir 1944, hefur aldrei verið sjálfstætt og pólitískt hlutlaust dómsvald á Íslandi.
Hvernig það var fyrir 1944, þegar það var undir Dönsku eftirliti, hef ég enga skoðun á, hef ekki sett mig inn í, og treysti fullkomlega núverandi Konungi Dana til að svara til um það, eða hennar tign, móður hans.
Hef rætt alla þessa þætti ítarlega í Arkívinu, í bæði dýpri, umfangsmeiri, og betur útskýrðri orðræðu. Það sem þú hefur núna er Fúskríki, sem við uppnefnum Lýgveldi, en ekki Ríkissmiðju þess Lýðveldis sem við erum heilaþvegin til að trúa á og treysta í blindni.
Færsluritari las uppkastið að fjárlögum fyrir 2025, ekki blaðsíðu fyrir blaðsíðu, enda 380 síður að lengd, og frekar leið lesning. Stiklað var á stóru eftir lykilhugtökum, lykiltölum, og öðrum stökum gildum til afmörkunar. Ég fullyrði eftir lesturinn, að fyrir hverjar hundrað þúsund krónur sem þú borgar Ríkismafíunni (elítunni sem er sneið alþj. Elítunnar), eru tuttuguogfimmþúsund krónur notaðar í Ríkissmiðjuna og restin handa mafíunni.
Tölur ljúga ekki, en rétt eins og með Stjórnarskrána og Biblíuna, það les enginn neitt leiðinlegt. Þannig er allri afþreyingu og menntun stillt upp, þú ert bókstaflega þjálfaður í sjónvarps og útvarps afþreyingu til að sniðganga gagnsemi og festast í tilfinningasemi.
Ég fullyrði að tveir þriðju lesenda minna koma eingöngu fyrir YouTube lögin.
Dæmi?
Árin 2020 og 2021 voru 95 % allra íbúa landsins "skimaðir" með PCR skimun sem ekki getur greint smit. Þar af fundust við dauðaleit rúmlega 6000 smit (með algrími), af þeim urðu í kringum 375 veikir af sótt, þar af dóu 29 til 30 eftir hvernig það er talið en þeir höfðu þó allir verið svæfðir fyrst og settir í öndunarvél (sem er defakto dauði) og þá eftir mjög fumbarakenndu læknismati.
Fáein þúsund - man ekki fjöldann (en það er í Arkívinu) - voru sett í ólögmætt varðhald sem uppnefnt var Sóttkví en var PCR Smitkví, sem ekki stenst lagalega né líffræðilega rýni; allir þessir eiga lögheimtu á bæði skaðabótum og miskabótum, auk þeirra tugþúsunda sem nú þjást af sprautuskaða.
Hér var engin farsótt, en 82 % "lýgveldisþjóðarinnar" fóru þó glaðir í Bill Gates lyfjatilraun (þ.e. sprautaðir tvisvar eða oftar) með óþekktu genaglundri.
Hvar er samræðan um þetta?
e.s. Ég bið alla hérlendinga sem ættaðir eru frá Sikiley afsökunar á fyrirsögninni, hún var sett upp í gríni. Hef sjálfur verið mikið á Sikiley og væri til í að búa þar (ef og þegar Ítalía yfirgefur ESB).
Góðar stundir
Ákvörðunin áfall fyrir ákæruvaldið í landinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. september 2024
Költ er ekki költ ef þú sérð ekki költ
Án gríns, þegar fjölmiðlar í risastóru költi sem sér ekki að það er költ, bendir á afþreyingarefni um ímyndað költ og segir það vera raunverulegt költ, sem aftur sé sönnun þess að stærra költið sé ekki költ, en afþreyingin gefi raunsanna mynd af einhverju ímynduðu költi, þá ertu kominn inn í babúsku költ. {samanber tengda "frétt"}
... þú veist, rússnesku dúkkurnar innaní dúkku innaní dúkku, sem er ekki dúkka?
Án gríns; þú lítur á fyrstu tvær mínúturnar í umræddri "raunveruleikaseríu" og sérð að allt efnið frá alfa til ómega er sviðsett plat. Að mormónar eru til, já, en að téð efni hafi eitthvað með þá að gera, ö, nei.
En hverjum er ekki sama, þegar 95 prósent fólks nennir ekki að gá hver sannaði veiruna, eða hvort eikkur hafi yfirleitt gert það. Dáin menning, eða þannig.
Ég hef verið í tvennum költum, og reynslan, þú skilur; stóra költið "ykkar" er hættulegasta og öfgafyllsta - og hættulegasta - költ allra tíma. Sönnun í boði fyrir þá sem hafa verið á Mars eða Tunglinu - eða Venusi - síðustu fimm til sex árin.
Staðreyndin er sú að veröldin er stór og margbrotin, en kerfið sem ól þig upp, þrífst á útdreginni firringu (Abstract Alienation) og treystir á að þú skiljir ekki þessa fullyrðingu, né kærir þig um að skilja hana, hvað þá vægið (Torque) sem að baki hennar liggur.
... nú eða hryllings-frétt úr stóra költinu, sem þarf að benda á til að hin augljósa veruleika-firring og tilveru tálsýn hrópi á þig, en er afar gott dæmi, sjáir þú hryllinginn:
Var svo hissa að finna bara tvö nothæf Cover af
Catholic Girls költinu hans Zappa,
að við deilum þeim báðum.
Staðreyndin er sú að flest einstrengings trúfélög, varðveita ennþá menningu, ... en þú mátt ekki trúa því, heldur áttu að lyfja tilfinningar þínar í drep, og helst fara í kynbreytingu og uppnefna það leiðréttingu þó þú meigir ekki trúa að þú hafir sál ...
Ha, já, ef kynfærabreyting er kynleiðrétting, þá er líkami þinn bara hulstur utanum sál, en pakkið sem heldur þessu fram trúir ekki á sálina því þá þurfa þau að trúa að til séu guðir, ... þetta móralska pakk hefur enga siðfræði (Morality vs. Ethics), enga siðmenningu, bara langdreinn sjálfumglaðan drafal.
Þú veist að anal og oral teljast ekki með í sumum költum, og því hvorki adultery né fornication, eþaggi? Veistu muninn á adultery og fornication?
Ræðandi um költ ...
Ný raunveruleikasería skekur Bandaríkin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 11. september 2024
Þú mátt fylgjast [afmarkað] með heilaþvotti barna þinna
Ekki er enn komin reglugerð sem tilgreinir á hvaða tímum sólarhrings foreldrar hafi umráðarétt yfir Ríkisbörnunum, en ljóst er að þegar eru til reglugerðir sem tilgreina hegðunarumgengnisréttarviðmið "foreldra" gagnvart mannréttindahöfumundirlögaldri sem skráð eru á þá.
Var þessi texti nógu flókinn, og orðalengd innan félagshyggjumarka?
Hið merkilega er, að smámsaman, allar götur frá 1919, hafa Sósíalistaríkin, sem framið hafa umfangsmestu fjöldamorð, fjölda-lyfjaskaða, stórrányrkju og kúgun í þekktri mannkynssögu, og "borgarar" sem nú eru í öllum tilfellum verr settir en leiguliðar og átthagabundnir hrepparar (þorparar)* miðalda, eru fullkomlega sáttir, að jafnvel þeir eiga ekki lengur börnin sín eða eigið blóð.
Múgsefjun eða stórfelldur heilaþvottur, eða umfangsmikil geðlyfjanotkun?
Þú átt bókstaflega ekkert, borgar sex til sjöfalda skatta, samanborið við langafa þinn, og ert hamingjusamasta mann-dýr allra tíma, eða síðan Darwin breytti þér í tvífætt dýr.
... en þú mátt mæta í suma skólatíma barnanna þinna og fylgjast með (innan takmarkana) (því félags-Ríkið elskar þig).
Það sem er allra fyndnast í öllum samræðum sem upp koma, útíbæ, við Almúgafólk (Dirty Peasants, Villains) er að leirmennin réttlæta "veruleika molana" sem þeim eru innprentaðir, fyrir hönd heilaskrúbbaranna. Enn fyndnara er þegar þeir skeggræða fínstillingar á skilningi Sannleiksfréttanna.
* Hugtakið Þorpari er notað á Íslensku fyrir enska hugtakið Villain sem er andsælis (Diametric opposite) við hugtakið Borgari (Citizen) - hið merkilega er að Íslendingar tóku orðið upp án þess að eiga andsæla hugtakið, enda áttum við enga borg fyrr en upp úr 1940. Þó Reykjavík sé skráð borg eitthvað fyrr, þá stóðst hún ekki í stærðarmörkum samanburð við Evrópsk þorp, þannig séð er Hreppari andsælis við Bóndi, samanber að fram undir lok átjándu aldar var Bóndinn á Íslandi sambærilegur í stöðu og efnum við hinn Evrópska Borgara - en bóndinn hérlendis eftir 1810 er í raun fyrirbærið sem áður var hreppari, kotungur, búandlið. Því dýpra sem við erum meðvituð um hugtakið fúskíslenska, því betur hrannast upp molafjallið. Hrepparinn er því Almúginn, en Bóndinn er elítan, eða Hreppstjóraklúbburinn sem er stærra mengi en Hreppstjórafélagið sem við stundum notum fyrir -elítuna- í Arkívinu. Skemmtilegt grúsk, hér í hugtakaskilgreiningum, og margt enn óuppgötvað. Það er áhugavert í þessu samhengi að setja sig inn í - sögulega - hvernig þessi hugtök þróuðust, og oftlega þurfti leyfi til að setjast að í Kákasískum borgum, en aftur er það arfur frá Rómverskri lagasmiðju, sem hugsanlega á rætur í annaðhvort Persneskri eða Egypskri, en Rómversk lögspeki sótti mikið í þær báðar.
Að Íslenskir þegnar mega í dag uppnefna sig borgara, er innprentun, en samt ágætis hugtak í hnattrænum samtímaskilningi, sem grætilega fáir skilja þó, og þá sérstaklega Vestrænum, eða raunar Kákasískum skilningi ... sem þó er utan efnistaka að sinni ...
... eða þá þrír þættir vestrænnar* siðmenningar, sem enginn veit lengur hvað eru, enda engin siðmenning lengur, heldur ríkjandi viðurstyggð (Bibl.) í það minnsta á Vesturlöndum?
* Hér er gerður greinarmundur á vesturlöndum og Vesturlöndum, sem líklega fer merkingarlega fyrir ofan garð og neðan.
Ekki réttur foreldra að vera inni í skólastofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 10. september 2024
Dr. Borgari og Alm. Borgari, við Miklagil
Miklagil er næstjum jafn djúpt og Barðarbúnga er há, jafn breitt og frá Mosó til Hveragerðis, og á lengdina frá Kjalarnesi til Akureyrar að lengd, en hver er að mæla? Afar okkar og Ömmur muna þann tíma þegar Séra Jón og Jón skildu smámsaman að þó þeir sæju hvorn annan, væri lengra á milli verundarrýmis* þeirra tveggja, en sem svaraði mælingum á Miklagili.
Eins er þegar Dr. Borgari getur hlaupið á milli embætta og "þjónustugeira" -elítunnar-(*) eins og þegar Alm. Borgari gengur á milli herbergja í húsinu sem hann leigir af Lánardróttnum sínum fyrir fimmtánfalt kaupverð. {sjá tengda frétt}
Múgsefjun er ekkert ný á nálinni og heldur ekki frekja (Impudence) og tilætlunarsemi; þrenn hugtök sem aldrei eru rædd í veröld þar sem hugur 65 prósent Almúgans (Dirty Peasant, Sr. Jóns) er lyfjaður niður eins og í mýldri* sefjun.
Hérlendis hafa mælingar (t.d. sprautufíkla Sars-CoV-2 elítunnar) sýnt að á milli 85 og 95 prósent eru háðir múgsefjunar ástandi (séu Antivistar teknir með sem fyrirsjáanlegur hluti þeirra sem ávallt eru á öndverðum meiði), en séu lyfjun allra þeirra sem ekki falla inn í náttúrulegt kerfið, og sá heilaþvottur þeirra að um sé miðtauga sjúkdómi að kenna, er ljóst að ríflega helmingur hinna múgsefjuðu, séu sambland af lyfjun og uppeldi.
Velkomin til Helvítis, þú mátt kommenta, en það breytir engu um kílómetragjaldið til Dr. Sjálfsagðs og dýrðarríkis ættmenna hans og viðhlæjenda.
Tvær fréttir sem gleymdust hraðar en þær birtust, efnislega ...
- mbl.is ... taka_upp_gjald_fyrir_bens_in_og_disil_bila/
- mbl.is ... halla_og_gudrun_i_broddi_fylkingar/
Fyrirvari: Færsluhöfundur vill minna alla lesendur (beggja lit-steindra rýma) á að allt sem ritað er í blogg þráðum höfundar, er spennulosun eingöngu. Allar óreiðufullyrðingar og falsskilnings tjáningar, reiknast á misvandaða uppalendur í skólum Ríkisins.
Við erum ekki á móti neinum, en hræsni og hort, fer nett í pirrurnar ...
Þegar Waylon Jennings var gagnrýndur af Country elítunni í Nashville,
fyrir að hann spilaði ekki Country á réttan hátt, samdi hetjan,
sitt frægasta lag: "Are you sure Hank done it this way."
* Enska orðið Realm er - rétt eins og Frekja - ekki notað hérlendis, en mætti snara sem Lífsými, Lénsrými og/eða Valdrými (samanber Domain (Lén) krúnunnar)*, Heimur, Veröld, en Rými passar ekki. Leitun að betri þýðingu stendur yfir (í merkingarými málvitundar) en það tekur tíma. Færslan notar Verundarrými samanber Realm of a Phenomen or a Being. Hugtakið "a Being" hefur undirritaður lengi notað sem Verund, og rakst nýlega á að þýðendur einnar af bókum Leibniz nota sama hugtak í sömu merkingu, veit ekki hvort hér sé orðabókarhugtak eða málvitundarhugtak á ferð, en "a Phenomen" væri þá rétt þýtt sem Fyrirbæri eða Líffyrirbæri, eða Viðundur, ... hér er málvitund okkar allra í slípun, og hefur verið í áratugi. Til að mynda notum við hér jöfnum höndum Verund fyrir bæði a Being og a Phenomen, en Viðundur er oftar notað í merkingunni "a Freak." Sem fyrr segir, það gæti tekið talsverðan tíma þar til Íslensk málvitund stillir gírókompásinn hér til fulls. Áhugavert stöff.
Viðb. 22:02 - umdæmi getur einnig verið Realm, lénsrými hljómar betur sem rýmislén, ... umrými, ... blah!
* Múll mýlir þverlyndan griðung.
* In my realm ... The Queen.
Mikilvægt fyrir alla að breyta til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 9. september 2024
Blessað stríðið, sem Vestrið þarfnast [af óþekktum ástæðum]
Viktoria Nuland viðurkennir opinberlega að Vesturlönd komu í veg fyrir friðarsamkomulag milli Úkraínu og Rússlands, vorið 2022.
Veit Tóta Stríðsfjörð af þessu? Hún hefur hitt Viktoríu. Þessa sömu sem ásamt Lindsey Graham og John heitnum McCain fjármögnuðu og stýrðu Maidan lita-byltingunni 2014, sem kom á núverandi stjórnsýslu Úkraínumanna og hefur stjórnað kosninganiðurstöðum þar allar götur síðan.
Nuland hefur viðurkennt opinberlega hvað stjórnarskiptin 2014 kostuðu þau í dollurum! Eða eins og Nuland segir um Leppríkjasambandið og okkur; F-ck the EU!
Já, Lindsey Graham, er öldungadeildarmaðurinn sem reglulega er í fréttum að blása í stríðslúðrana, meira stríð í Úkró, sprengja Íran í tætlur, og fleira í þeim dúr. Sá sami og náðist á vídjó í Úkraínu, ásamt Banderista nasistum í Úkró hernum þar sem þeir við mikla stríðssöngva hótuðu innrás í Rússland og að taka Moskvu ekki síðar en 2017!
Þetta er nottla alltsaman Pútler að kenna!
Sem minnir á Venezúela, sem Washington og Evrópsku leppríkin fullyrða um þessar mundir að hafi ólögmætan forseta, vegna einhverra áróðursfrétta um kosningasvindl. Við gætum rætt áhugaverðar kosningar í Bandaríkjunum, og já hér á Stórastalandi, en hitt er annað:
Forseti Úkraínu hefur ekki haft lögmæti síðan í vor, og þingið þar í landi missti sitt lögmæti nú á dögunum. Þau komast þó upp með það, því Vesturlönd vilja að þau komist upp með það - hinthint- og já, Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki tíma til að að standa í kosningum útaf stríðinu, en svo er líka búið að banna með forsetatilskipun að semja frið, ...
... ef þetta hljómar eins og Lýgveldi, þá er um óreiðuröskun að ræða, hjá þér og mér, en ekki -elítunni-.
Staðreyndin er, hvernig sem við vindum málin, að við, já, við, erum siðblindur Almúgi með siðlausa Elítu, og að fólk láti enn ljúga að sér, eftir það sem gerðist 2020 til 2022, er sönnun þess að við erum öll dáin og vistuð í Helvíti.
Þeir sem eru sammála færslunni, eru því undir valdnámi (Occupation) djöfla og drýsla.
Meðfylgjandi myndskeið "gufar oft upp" á Youtube,
en er til á Bitchute og Rumble.
Loks eitthvað þægilegra frá Joe heitnum Strummer, blessuð minning,
og að mínu mati, í anda færslunnar:
Öll stríð gerðust úrelt í fyrstu viku ágúst mánaðar 1945! Engin undantekning.
Ísland á að standa tuan við allt hernaðar brölt. Allar götur frá 1264 til 1944 var reglulega staðfest á Alþingi Íslendinga, að hér skyldu engin herlið vera, og var tekið mark á því erlendis. OG VÆRI SVO ENN. Nú ráða hins vegar ÍsQuislíngar landinu, enda hefur landið ekki haft löglega Ríkisstjórn allan Lýðveldistímann, og síst allra núverandi starfstjórn.
Við eigum að vera í liði með hetjum á borð við Viktor Orbán, og ekkert mjálm!
Á persónulegu nótunum: Mafían sem stjórnar nú Vesturlöndum og Alþjóðakerfinu, framdi árin 2020 til 2022 stærsta glæp gegn mannkyni frá upphafi skráðrar sögu. Þvílíkt skálkaskjól að geta notað stríð í Evrópu og Miðausturlöndum til að fela sig á bak við glæpinn meðan hann firnist í manna minnum, eða kerfinu verður breytt í stafrænt allsherjar og harðstjórnar veldi!
Ef stríðin eru ekki stöðvuð, og málin rædd, verða glæpirnir aldrei gerðir upp, og það merkir að öflugri vættir en Wikipedia, Youtube, Google og Washington, taka yfir og gera málið upp, og sá Bölvættur var vakinn af siðblindu og siðleysi - allra - fyrir þrem árum. Sá bölvættur fer bráðlega framyfir "point of no return."
Ég minni á Bæn, Iðrun, Vitnisburð, og Fyrirgefningu, því englar vakta alla og merkja, og það kostar þig þessa fjóra lykla að vernda og varðveita sál þína í þeim djöfladans sem nú ríður öllum rjáfrum jarðar! Án gríns.
Vissir þú að hugakið Aurora Borealis merkir sjá dögunina úr norðri?
ESB segir upplýsingar um flugskeyti áreiðanlegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. september 2024
"Nöff said"
Á eftir "röddinni" í Krónu auglýsingunum, eru nýju Play auglýsingarnar það skemmtilegasta sem sést hefur í markaðsmerkingu (Branding) á þessari öld.
En dáin menning hefur engan húmor ...
Play gæti reddað sér með því að setja "disclaimer" í lok auglysinganna s.s. "enginn femínisti var skaðaður eða særður við gerð þessa myndefnis."
Bernie Mac (1957-2008),
blessuð minning.
Það finnst mér frekar aumleg frelsishugsjón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)