Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 24. september 2024
-þigildið-
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 22. september 2024
Semítahatur er ekki til hérlendis
Hefurðu hitt einhverja Semíta, og ef svo, berðu til þeirra neikvæðar eitraðar tilfinningar (hatur)? Hefurðu hitt einhverja Júða? Er eitthvað af slíku fólki hérlendis, og hefurðu hitt það?
Ef þú hatar eitthvað, sem þú hefur ekki persónulega reynslu af, þá hefur einhver vélað þig til þess með raunguræðu*, útúrsnúningi og þjóðfélagslegum vélabrögðum.
Einföldun; einhver hefur þá virkjað þitt eigið sjálfshatur.
Þú getur ekki hatað eitthvað sem þú hefur ekki reynslu af, nema í brjósti þér sé þegar til útdregið (Abstract) hatur, og hægt er að tryggja slíkt með skólunartækni. Fólk sem ekki þekkir sinn eigin mann, lætur iðulega múlbinda og virkja tilfinningar sínar.
Það eru engir Júðar (Jews) í Ísraelsríki, heldur búa þar Zionistar, Þjóðarnissósíalistar sem trúa einhverjum afbökunum á ætterni Abrahams sem uppi var 1800 árum fyrir okkar tímatal, þ.e. fyrir 3800 árum!
Þeir trúa einnig afbökun á skilningi trúarritsins Biblían, og tvær þessara afbakana eru að þeir séu -guðs- útvalin þjóð og að Biblían sé landaafsal (land notary).
Þeir bjuggu einnig til hugtakið Semítahatur* (sem ÍsQuslíngar hafa ekki nennt að þýða á Íslensku) eða "Anti Semitism" sem yfirskyggt hugtak fyrir Júðahatur eða "Anti Judaism" sem þeir sjálfir eru sekir um.
Áttatíu prósent allra Júða eða Gyðinga í heiminum, hafna Zionisma og sverja hann af sér. Aukinheldur myndi enginn alvöru gyðingur taka upp [Satanísk] vopn, því þeir trúa ekki á slíkt. Þeir trúa - bókstaflega - á að rétta hina kinnina, því Guð muni vernda þá telji hann þess þörf og geri hann það ekki þurfi þeir að finna út akkuru.
Smá heimavinna og þú sérð í gegnum svona heilaþvottavél. Til dæmis hafa markir sem telja sig kristna látið tæla sig út í Zionisma og þar með sýna fram á að þeir skilja ekki siðfræði kristindóms. Jesú varaði við að blindir leiddu halta.
Skelli hér inn fyrir áhugasama, einum besta Júðisma præmer sem þú færð á Vefnum, en myndskeiðið sem er tveggja tíma langt var unnið í samvinnu Júða og Palestínufólks.
Mæli með fleiri præmerum sem eru einn til tveir klukkutímar. Þú uppleysir (Resolve) ekki menningarefni með stuttum klippum og áróðursfréttum. Þess vegna þarf góðan præmer.
Það er gríðarmikið efni til um þetta, en þú færð aldrei að sjá það!
https://www.youtube.com/watch?v=l2SYMj41Q9U
https://www.youtube.com/watch?v=OXBuUqPndqg
https://www.youtube.com/watch?v=yMsgA05VpQ0
* Raunguræða (Þráttunarhyggjuröskun) er á ensku nefnt Dialectics, sem er hluti Marxisma en Zionismi er byggður á Raungu[nar]ræddri Efnishyggju eða "Dialectical Materialism" rétt eins og Marxismi, þ.e. að snúa einhverju á raunguna og negla í hið áþreifanlega og skera þannig burtu frumspeki hinnar mannlegu hugsunar s.s. lög, ást, vináttu, tilgang, markmið, framtíð, fortíð, dómgreind, sáttmála, innsæi, ofl sem viðheldur lifandi menningu, en menning er einmitt saga [tjáðrar] hugsunar, sé hún afmörkuð í efnishyggju, deyr hún.
* -elítan- nefnir semítahatur oft sem gyðinganíð (Jew-abuse, Bloodlibel), enda ástundar hún fúskíslensku af mikilli íþrótt og augljósu þjóðarhatri, semítahatur og júðahatur sem eru ekki hið sama eru þó ekki hið sama og semítaandúð og júðaandúð sem heldur eru ekki innbyrðist hið sama. Til að mynda er júðaandúð hluti af kristinfræðum (þó hvorki Guðfræði né Siðfræði kristindóms).
Hversu mörg laufblöð eru hér á hugtakagreininni, sem hvert og eitt hefur vægi (Torque), og hvers vegna er þinn náttúrlegi hugur ófær um að vinna úr þessu, jafn vandlega skólaður og hann er?
Semíti (afkomendur Sems Nóasonar) t.d. er í rauninni ekki til sem þjóðþáttur (Ethnicity) heldur trúarlegt hugtak, en Arabar teljast til þessa staks ásamt Hebreum, en Júði er ekki endilega Hebrei, ...
Að kalla okkur gyðingahatara er náttúrulega bara áróður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 22. september 2024
Stafræna eftirlitsríkið lengi lifi, húrra
Ábending: "Lögreglan hefur talað um það að það séu vísbendingar" - ég þarf soldið meira en "talað um" og "vísbendingar" til að múrar gúlagsins verði styrktir og stækkaðir, eða elítan gerð að hálfguðum.
Því miður dugar svona dulspeki handa Almúganum (Dirty Peasants), bæði hreppurum og kotungum.
Svo ég minni á kröfuna um eitt ríki, tvö kerfi - gettó handa mér og mínum þar sem við getum lifað heilbrigðu og náttúrulegu lífi og sett okkar eigin héraðslög. Jafnvel Antivistar væru þar velkomnir.
Jafnvel sumt af rekjanlegu landráðafólki Lýðveldisins fengi að vera memm.
Ræðandi um glæpahópa!
Nógsamt er landrýmið.
Eitt merki dáinnar menningar, er þegar fjöldinn sér ekki eigið költ, eða þær öfgar sem það iðkar.
Í gettói borgararéttar verður löggæsla óþörf, því mig grunar að sumir af betri vélhjólaklúbbum landsins muni hreiðra þar um sig. Treysti þeim betur en Ríkislögreglustjóra og föður hennar.
Meiri tengsl við erlenda glæpahópa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. september 2024
Mannréttindi eða Borgararéttur, úllendúllendoff
Hef spurt fólk undanfarið; hefurðu mannréttindi? Já, er þá svarað í 19 af hverjum 20 skiptum sem spurt er. Þá spyr ég á ný; veistu hversu oft mannréttindasáttmálanum hefur verið breytt síðan 1950? Nei, er svarið, í 20/20.
Yfirleitt skipta svarendur yfir í annað umræðu efni, svo sú þriðja verður skilin eftir í tómarúmi. Held að greindarvísitala hér á blog.is geri hana óþarfa.
Góðar stundir.
e.s. Sívaxandi fjöldi austur-þjóðverja vill aðskilnað frá vestur-þýskalandi, þúsundir hafa þegar flúið (austar) og þetta sést nú þegar í skoðanakönnunum og kosningum, þrátt fyrir hvernig hvorutveggja er stýrt af ónefndum aðilum. Þetta er þó ekki rætt opinberlega, til að vernda "Lýðræðið."
e.s.2. Innfallin siðmenning, merkir tóm bygging. --Nýtt myndmerki "Alþingis."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. september 2024
Dómskerfi Lýgvelda og réttarkerfi siðmenninga
- https://www.stjornarradid.is/media/forsaetisraduneyti-media/media/stjornarskra/1920_stjornarskra.pdf
- https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html
- http://gagnasafn.nyttland.is/stjornarskra-thjodveldis-2021.pdf
e.s. Myndskeið sem færsluritari gerði 2020 um þetta með dómsvaldið (2t18m). Athugið að rásin er ekki mín:
Birtu ekki dóm yfir fyrrverandi forseta bæjarstjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 20. september 2024
-rafrænt viðbit-
Hef áður ritað um að hvergi er nokkur maður hérlendis, að því er virðist, sem skilur stafræna heiminn, eða rafræna gúlagið, sem við erum nú komin inn í, eða að engir staðlar, gegnsæi eða opinber ábyrgð hefur með það að gera.
Það gerist bara, eins og misgott veðurfar sumarsins sem lýkur nú á haustjafndægri. Svipað er með Loftlagsbreytingar af mannavöldum, allir sem trúa á þær í blindni eru ófærir, að því er virðist, að grúska í hvaðan sá áróður kemur eða hvernig hann er unninn.
Aftur er trúað í blindni, rifist um flugvöllinn í vatnsmýrinni - eða þannig - en hvernig stakkurinn og spennitreyjan eru saumuð utan um okkur og ólarnar festar, virðist alsjáandi ósýnilegt.
- https://gudjonelias.blog.is/blog/logostal/entry/2287955/
- https://gudjonelias.blog.is/blog/logostal/entry/2300747/
- https://gudjonelias.blog.is/blog/logostal/entry/2301199/
- https://www.blog.is/forsida/leit/?author_id=32987&query=sta%F0lar
- https://www.blog.is/forsida/leit/?author_id=32987&query=minutes
Nýverið ræddi -elítan- í fjölmiðlum, í tengslum við málefni fatlaðs drengs, hvað væri Meðalhófsregla og hvað væri Góð stjórnsýsla. Útskýring á meðalhófsreglunni, sem einn ráðherra útskýrði vel, er ágæt svo langt sem hún nær. Varðandi hvað sé stjórnsýsla, hvað þá góð stjórnsýsla, það var hvergi útskýrt, en ég staðhæfi að í það minnsta á Lýðveldistímanum hafi engin Ríkissmiðja verið starfrækt á landinu.
Eitt af því sem góðborgarinn treystir á en skólaður hrepparinn og upplýstur kotbóndinn álíta flókið, er að Stjórnsýsla má ekkert gera og ekkert segja nema lög tilgreini. Ennfremur þarf að viðhalda atburðaskráningu (Minutes).
Þverlesnir muna þegar ég leitaði til dímonsins Árnastofnunar og spyrði hvað Statesman (Ríkisráðsmaður) væri á Íslensku.
Nýverið settu sum lögregluembætti upp bleika mynd á vefsetrum sínum og víðar. Um var að ræða sálræna tilfinningatjáningu í tengslum við ákveðnar fréttir. Færsluritari setti athugasemd við þetta hjá einu embættanna og fékk blautar borðtuskur frá ýmsum í nær-samfélaginu. Ekkert þeirra vissi hvað átt er við með setningunni "án greiða né kvíða" (Without fear or favour), eða hvert hlutverk löggæslunnar nákvæmlega er, og hvað það er ekki.
Það er sorglegt að maður finni sig knúinn í spennulosun af þessu tagi, þegar það eina sem suma langar til, er að skreppa á góðum fjallabíl út á landsbyggðina og þjálfa leitar- og smalahunda. Kannski er það ástæðan fyrir að örlögin, eða dulefniskennd áhrif [land]vætta hafa suma bundna við lyklaborð og upptökutæki.
Því einhver þarf að benda á hið augljósa; það vantar kúmenmulning í uppáhellinguna, og graslauk í plokkarann. Annars er ekkert varið í kaffið, og plokkarinn flatur.
Sem betur fer, getur þú ennþá fengið rúgbrauð og viðbit*.
* Náttúrlegt smjör úr kúamjólk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 19. september 2024
Yei, fleiri stofnanir, --Offituríkið
Til þess að -elítan- úthluti þér mannréttindum, þarf hún fyrst að hafa vald yfir hvaða réttindi þú hefur ekki, sem merkir að þú hefur í raun afhent henni þau öll, og fengið sum til baka. {sjá t. frétt}
Áður en sá gjörningur selst - sem kommúnistinn Elenóra Roosevelt fann upp og lokkaði "Sameinuðu Þjóðirnar" útí, og Evrópuleppsambandið hermdi síðan eftir - þarftu að gleyma hugtakinu Borgaraleg réttindi, sem hafa verið hornsteinn Vestrænnar siðmenningar síðan Róm var stofnuð fyrir 2.700 árum, og bíddu nú við; en sá hornsteinn var þá hnoðaður úr meir en þúsund ára lagasiðmenningu Hammúrabí ættarinnar, í bland við Móse gjörninginn á Hóreb hæðum.
Vissir þú að mörg lög Evrópu fram yfir 1551 voru byggð á Hammúrabí lögunum? Að postular Jósúa Maríusonar (Jesú) vitnuðu í þessi lög í Getsemane gjörningnum á sínum tíma? Vissir þú að þegar Býsanska veldið féll (þá nærri tveggja árþúsunda gamalt), viðhéldu Ottómanar lagasiðfræði þess, svo flestöll ríkjasvæði sem áður sögðu sig í lög við Býsans héldu áfram lagasambandi sínu við Konstantínópel, og ekki nóg með það, flest ríkjanna sem áður voru Ottómönsk, viðhalda enn sömu lagasiðfræði og ríkissmiðju, veistu eðlisþætti (Elements) þessara fræða?
Var þetta djúpt og flókið?
Engar áhyggjur, kúturinn minn, Ósjálfstæði kommúnistaflokkurinn reddaressu með nokkrum ríkisstofnunum í viðbót.
Meðan þú hefur Mannréttindi nefndarinnar, hefur þú engin Borgaraleg réttindi, og mátt þakka fyrir að vera niðursoðinn og maríneraður í krukku með merkimiða.
Þegar Ríkismafían segist fá valdið frá fólkinu, en hefur tekið sér völd sem fólkið aldrei hafði, hvaðan koma þau þá? Frá Nefndinni eða eikkuru öðru? Veistu hvað Siður er?
Það er enginn hér á móti Ríkinu, en vita máttu að spilltir og gráðugir pæla í einu og aðeins einu, hvernig megi yfirtaka það, og líkur sækir líkan heim og þegar yfirtakan klárast breytist ríkið í persónugerving þeirra sem yfirtóku.
Vald spillir ekki; en spilltir sækjast eftir valdi, og beita hvaða lygum sem þeim hentar til að ná því. Er þetta samsæriskenning eða rekjanlegur veruleiki?
Geturðu nefnt fimm stofnanir með nafni? Veistu hvað þær voru margar 2017, og hversu margar þær voru 2023? Veistu hvers kyns völdum þeim er úthlutað eða hvernig þá, eða hvernig þau megi takmarka fari þau úr böndunum?
Áður en það verður ólöglegt að rita hið augljósa; sósíalistar og kommúnistar eru lygarar, þjófar og þjóðarmorðingjar, fæddir í raunguræðu, öfund og hatri. Gefðu þeim svigrúm og menning þín deyr, og siðmenning þín verður að tómri byggingu (innfall).
e.s. Veistu hvað skattasiðfræði er? Er það fag í háskólanum, og þá hugsanlega sem auka hæfilén (Faculty) undir fræðigreininni Ríkissmiðja (Statecraft)? Ó, eru slík fög úrelt síðan 1919 þegar öll ríki urðu sósíalistaríki? Tökum samt snúning áessu meðan það má. Gat keisarinn í Róm skattlagt borgara Heródesar, eða gat hann þess í stað krafið Heródes um verndartolla, gat Keisarinn í Róm lagt skatt á Musterið (mestu peníngamaskínu allra tíma), sem var stóra deilumálið á dögum Jesú ef þú hefur lesið Bibbuna. Musterið var skattfrjálst undir Persaveldi, en við vitum ekki hvort það var skattfrjálst undir Hellensku landstjórunum eða undir vernd Egypta, fram að því að Róm mætti með sínar Legjónir, en við vitum að frá 30 til 70 var deilan svo hörð (því musterið var orðið ríkara en Róm) að Legjónir voru sendar til að mölva múra musterisins (eftir að siðmenning Palestínu þess tíma innféll). Fattarðu að þetta umræðuefni hefur vitundar-og-vætta-vægi? Hefurðu fylgst með innfalli NorðurAmeríkuSambandsins undanfarið? Það var Lincoln sem breytti því í Sambandsríki, Wilson og síðan Roosevelt sem hófu öfgasköttun á borgurum Ríkjanna - framhjá lögræði þeirra - í Ríkjasambandinu, og hvert er það komið? Nú er Brussel að undirbúa beinan skatt á borgara Evrópskra ríkja, án valdumboðs (Mandate) til þess. Hvað er Siður? Hvers vegna lögðu sósíalistar niður alla sið[a]fræði, og gáfu þér í daginn siðferði og mannréttindi, en fjarlægðu borgararétt og dómsvirðingar? Aftur: Hvað er Siður? (Ethics vs. Morals, Human rights vs. Civil rights).
Þess má geta að ríkissmiðja Endurreist Þjóðveldis gerir ráð fyrir (í Stjórnarskrá) að öll skattlagning sé ákveðin af héruðunum sjálfum, Ríkið getur aðeins mælst til að héraðsþingin greiði ríkinu skatt, en ekki krafist þess. Þjóðveldið m.ö.o. gerir ráð fyrir að valdið vaxi upp úr moldinni, og verði að grasi, og dögg, en komi ekki ofanfrá guðdómlegri elítu sem komist upp með hvað sem henni sýnist.
Í stjórnarskrá "Lýgveldisins 1944" eru engin takmörk sett á skatta[siðfræði], í Ríkissáttmálanum (Stjórnarskrá), sáttmáli sem er þverbrotinn af sífelldum ásetningi; og það landráða pakk úthlutar þér mannrétindum! ... og þú ert óflúinn! Hvað borgarðu mikið fyrir húsnæðið þitt, hver elur upp börnin þín, hverju var sprautað í skrokkinn á þér?
Veturinn 2020/21 ritaði ég Ríkinu, og bað um upplýsingar varðandi Mannréttindagæslu, fjallaði um þetta í Arkívinu á sínum tíma. Svörin voru mjög áhugaverð. Skrifaði einnig til SÞ í New York, en þótti ekki svara verður. Veistu hvað fyrirspurnin snérist um?
Akkúrat, hvernig gerist þú alþjóðlegur flóttamaður samkvæmt alþjóðalögum eða alþjóðlegum sáttmálum (Treaties)?
Fattarðu hversu þung þessi spurning er, og að hún er [nærri því] hvergi rædd í heiminum öllum? Nærðu mikilvæginu? Já, þetta var rætt í Arkívinu, og þessum spurningum þar svarað.
Að lokum; veistu hvaða umræður voru í gangi varðandi "mannréttindi" öldina áður en Rómarveldi féll, og hið sama öldina áður en Persaveldi innféll og öldina sem Egypska veldið innféll, svo veldi þeirra jafnaði sig aldrei aftur? Veistu hvað Siður er, eða vitundarvættir virðingarverðra hugmynda ggn. viðurstyggilegra? Sömu umræður og núna við innfall Húmanismans. Veistu hvenær Húmanisminn yfirtók?
Mannréttindastofnunin mun væntanlega hafa þetta allt á hreinu. Brynjar er lögfræðingur, og fyrrum löggjafi, hann massaretta.
Að lokum bið ég Ríkisstjórnina afsökunar á öllum óreiðuskoðunum, og lesendur á misskilningi spennulosunar.
viðb. 15:55
Brynjar líklega í stjórn Mannréttindastofnunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 19. september 2024
ÍsQuislínga fúsk - FLÝÐU
Hugtakið "federal government" Sambandsríkisstjórn og "federal state" sambandsríki eru ekki hið sama og Alríkið. Alltaf sama sagan með Quislínga Íslands, þeir eru jafn háðir fúski og Almúginn ríkissprautunum sínum. {sjá t. frétt}
En leppríki Quislínga lítur nottla á Rómverska heimsveldið í Washington sem sinn almáttuga guð, og hegðar sér þannig - og hefur sjálft tekið sér guðdómleg völd yfir eigin almúga - en þú sérð það ekki því dags daglega, hegðar Fúskríkið sér sem "deild 35" í lepp-sambandinu í Brussel, sem í dag semur megnið af lögum "Lýgveldisins" og hegðar sér sem sambandsríkið í Brussel, þvert á alla þá sáttmála (Treaties) sem borgarar þess voru blekktir til að sætta sig við en fengu aldrei að velja sér; fyrirbæri sem því sem næst einhliða ber ábyrgð á þeim stríðum og þjóðarmorðum sem nú eru í gangi.
Er það furða að Almúginn (Dirty Peasants) sem alinn er upp af quislínga fúskurum - lygurum og þjófum - er siðblindur, sjálfumglaður (Complacent) og sinnulaus (Apathetic).
Það er engin framtíð hér fyrir börnin þín, finndu siðmenningu og flýðu þangað. Sástu fréttirnar í vikunni, vesturlanda elítan okkar allra, nánast skyrpti á Trump fyrir að vilja ekki kjarnorkustríð.
Kim Dotcom gerði óformlega könnun á dögunum; 16 prósent vestrænna borgara vill kjarnorkustríð, það er því sem næst einn af hverjum fimm. Veistu eitthvað um Kim? Hvað með Dieudonne? Veistu hvað karlmennska er, þegar heilt heimsveldi ofsækir þig persónulega?
Veistu mikið bergmál? Er sjálfkenni þitt og vitund, vandlega hnoðaður leir?
"Flýðu. Glundroði framundan." og "Farirðu í börnin, vekurðu þér bölvætt sem ekki verður samið við, né kveðinn niður" og "Íslensk siðmenning var lögð niður með sprautulögunum í febrúar 2021, og það tekur þrjár kynslóðir að smíða nýja." --G.H. 2021.
Biblían varar við, þegar siðmenning breytist í viðurstyggð á helgum reit*, þá flýið sem fætur toga. Jesú var ekki að vara hér við einni musterisbyggingu, heldur miklu stærra og mikilvægara fyrirbæri; innfalli [hortugrar] siðmenningar sem ekki nyti lengur neinnar náðar! Er það furða að sú menning rangsnúinnar upplýsingar og siðbótar, sem hagar sér eins og hún geti endurritað alla sögu mann-kyns og mann-fólks í alla staði, fremur sjálfsvíg, og það hratt.
Undanfarin fimm ár, eru minna en dropi, og hvað sagði Bibban; þetta gerist hratt, þegar það hefst. Eða Daníel; risinn með gullhöfuðið, hefur ökla úr leir, og steinninn í hlýðinni stefnir á þá. Þú getur lokað augunum fyrir nið aldanna, en þú sleppur ekki við útsogið (Undertow).
Vissirðu að ávallt þegar vitjunartími (Time of reckoning) fer fram, er fyrst sendur spámaður til vitnisburðar, og þá aðeins í tiltekinn tíma, að þegar hann lýkur vitnisburðinum, fer boltinn að rúlla. Þannig var með okkar tíma.
Heldurðu að Bibban sé bara ópíum fyrir veiklundaða kjána?
e.s. Bandamenn síðari heimsstyrjaldar, er t.d. röng þýðing á samvinnuríkjum* (Allies) síðari heimsstyrjaldar og Suðurríki Bandaríkjanna eru röng þýðing á Bandamannaríkjum (Confederate States), rétt eins og Bandaríki eru röng þýðing á Sameinuðum Ríkjum Norður Ameríku (United States of America). Fúsktúnga, deyr, sjáðu til ... tungumálið sem notað er á landinu í dag er hrognamál, og það er ástæða fyrir því. Leggðu niður Árnastofnun, skilaðu Dönum handritunum sem þeir keyptu löglega og vernduðu, og tungan lifnar við hraðar en sá illskeytti dímonn er kveðinn niður. Menningin hins vegar, það er aðeins meira mál að gefa henni hjartahnoð, en þú verður að byrja á byrjuninni.
... en þú getur ekki hugsað þessar hugsanir, ert ófær að vinna úr þeim, og þú sérð það ekki. En ef þú sérð það, þá skilur þú hvað heilaþvottur og sálarskrúbbun er.
Ellefta boðorðið, þverbrotið! Ha, aldrei heyrt um það? Ég hissa!
Þetta er nefnilega valkosturinn, að hætta að vera strútur og annaðhvort lífga þjóðina þína við, eða hypja þig með börnin þín og genin þín í skjól.
Ég fæ reglulega eftirfarandi spurningu, undanfarin fjögur ár: Hvert?
Í alvöru, það vinnur enginn neina heimavinnu, menningin er dáin.
Veistu muninn á menningu og siðmenningu, kanntu að meta lífsmörk menningar og ábyrga siðmenningu? Ekkert um það í Lífsleikni, eða Jákvæðri sálfræði?
Fyrir sléttum áratug hafði ég samband við Umboðsmann Alþingis og spyrði hvernig Stjórnlagabrot væri a) skilgreint og b) kært. Enginn hafði áður spurt að þessu, og svarið frá þeim kom á óvart. Ég spurði embættið aftur tæpum tveim árum síðar, og þá fékk ég enn fyndnara svar.
Ég er eini borgari landsins sem farið hefur á Þjóðskjalasafnið og lesið Stjórnarskrár plaggið sjálft. Tók með mér vitni, og upptökutæki.
* Abomination standing in a sacred place.
* Allies; samverkamenn eða samvinnufólk, allied states, samverkaríki eða samvinnuríki. Bandalagsmenn eru Confederates.
Fjármögnun alríkisins enn í óvissu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. september 2024
S-ítt með Gr-ndavík - verklagsreglur elítunnar eru í uppnámi
Skiptu út fyrirsögnum undanfarna þrjá daga og settu í staðinn "dáin menning, innfallin siðmenning" og þú sérð hvað föllnu englarnir og púkarnir eru að láta leikbrúður sínar sýna fram á.
Segðu svo að enginn húmor sér hér í Helvíti.
Manstu þegar fólk sem ekki skilur eðlis- og efnafræði* ákvað að eyðileggja allt grunnvatn í nágrenni Hafnarfjarðar og Kópavogs, en neyddust til að "doka við" vegna viðbragða fólks sem þarf kranavatn og hefur ekki efni á elítuvatni úr flöskum?
Gott mál, en veistu hvar þeir eru núna að dæla niður, að vísu tilraunaholur, nokkur hundruð þúsund tonn af eiturmengaðri co2-drullu, steinsnar frá nýlegri ferskvatns borholu?
Einhver að fjalla um það utan Reykjanestáar? --hinthint
Flókið?
Gaurarnir sem sögðu mér frá þessu, bættu við glottandi, "rannsóknir sýna að grunnvatnið jafnar sig á tíu árum." En þeir sögðu einnig frá hversu lengi þessi nauðgun á vatnsæðum Íslenskra jarðlaga hefur verið í undirbúningi.
Múgæsinga og áróðurs [fjöl]miðlar syngja bara hæhó í knérunn.
* Já, fólk sem trúir CO2 þvættingnum í tengslum við hnattværar loftlagsbreytingar, skilur hvorki líffræði né eðlis og efnafræði, og viðurkennir það opinberlega. Slíkt kerfi á ekki framtíð fyrir sér, í hnattrænni sögu, og greinilegt er að fólkið sem fyrir þrem árum rústaði siðmenningu "mannkyns" veit heldur ekkert um tímann og söguna: og þau stjórna okkur öllum, með "verklagsreglum."
Sérðu samhengið? Þetta er það sem öll trúarbrögð kenna, að fólk sem missir náð raunsæis, breytist í djöfulmenni, og að það hefur einhverjar forsendur.
Ekki um eðlilega stjórnsýslu að ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 16. september 2024
Fáeinar óreiðu athugasemdir
Eftir nýjustu stækkun á Rússneska hernum, er hann jafn stór Nató herjunum ef Tyrkjaland (Türkiye) er dregið frá. ... og hefur allan iðnað og hráefni sem þarf í heimsstyrjöld. Compute!
Veistu hvað þetta eru stórar tölur? Ekkert um þær í áróðursmiðlum? Þá veistu að við erum að ræða hér fjóra fimmtu jafn stór Nató herjunum að Tyrkjalandi undanskildu. Og enginn nema Viktor Orbán er að ræða frið, og hann er hundskammaður fyrir það!
Eitthvað verið fjallað um að Úkraínskur þingmaður er um þessar mundir að stefna starfandi forseta landsins fyrir dóm, og ásakar hann um valdarán?
Bandaríski flotinn, sem er besti Nató flotinn, er að fleygja (Scuttle) 17 skipum því ekki er hægt að manna þau, og hin skipin sigla með 80 prósent mannafla, og búið er að leggja niður hámarksaldur sjóliða og fjarlægja nánast allar ráðningarkröfur. Þegar þetta er ritað eru einungis Kínversk flutningaskip sem þora í gegnum Rauða hafið, því Yemenska Houthi hreyfingin hefur í raun flæmt Bresk-Bandaríska flotann í burtu.
Manstu:
- "Glundroði framundan" --Guðjón Hreinberg, 2021
- "Ef þú ferð í börnin, vekur þú Bölvætt sem ekki verður rökrætt við og ekki hættir fyrr en ..." --Guðjón Hreinberg, 2021
Eftirfarandi, eingöngu ætlað langt komnum ritningagrúskurum.
Nýlega ræddi Knesset þingið í fúlustu alvöru hvort beita mætti Palestínska karlmenn "sódómískum" pyntingum í [her]fangelsum Ísraelsríkis - í takt við ósóma Gebeu (Benjamíníta). Einföldun; þingið ræddi hvort lögsækja ætti slíka pyndara ef þeir beittu pyndingunum gegn gyðingum! Nýverið kom í ljós að Palestínskir karlmenn, naktir með hendur bundnar aftan við bak, var fleygt flötum í gólfin og síðan pyntaðir með árásar hundum. Bíddu nú við - hefurðu heyrt um "stríðið á Megiddo völlum" (Har-ma-geddon)? Hefurðu heyrt um viltu hundana sem tættu Jezebel í sig? Atvikið gerðist einmitt í Megiddo fangelsinu. Kristnir Zíonistar eru verri hræsnarar en Zíonistar sem sjálfir eru viðurstyggð - zynagóga Satans, morðóð og siðlaus "djöflamenni" sem þykjast vera eitthvað annað en "djöflamenni." Afsakið orðbragðið, en þetta er milda útgáfan, því það er erfitt að dæma ekki, þegar svona viðbjóður gerist, og sérstaklega þegar þú skilur að allt viðkomandi Zionismann (sem búinn er til af breskum og pólskum frímúrum) eru hortugheit (Hubris), þ.e. að Guði er storkað (hort er gort fyrir augliti guðdóms). Að þetta er að gerast í beinu framhaldi þess þegar musteristjald alls djöfulgangs þessa heims rifnaði í tætlur þann 11. mars 2020, og yfir 65 prósent mannkyns kaus að fórna eigin blóði til fals-skurðgoða-vísinda, er meir en táknrænt.
Hef textann tyrfinn að yfirlögðu ráði. Eins er rétt að minna á túlkanir færsluritara (í Arkívinu) á spádómum Múhameðs varðandi eldinn frá Yemen, og einnig túlkanir Sheikh Imran Hosein á hinu sama sem eru verulega áhugaverðar.
Hefurðu skoðað "domstolar.is" og "haestirettur.is" eða ertu alinn upp á popptónlist og sjónvarpsseríum og rannsakar ekkert sem er leiðinlegt? Teldu dóma og kærur; 92 prósent allra "glæpa" eru Almgúinn, ekki -elítan- sem gefur okkur lögin og dómstólana. Hlutfallið stenst, þversumman af 92 er "meitlað altari."
Bið Ríkisstjórnina afsökunar á öllum óreiðu[mis]skilningi.
Umræður um þessi mál hér í Stórastalandi - og þá hagsmuni Íslenskra borgara í þessum iðuköstum - eru vægast sagt; engar. Sagði eikkur Dáin menning? Skyldi Bölvætturinn 2021 vera alvöru?
Hefur ekkert verið birt í fréttum, hér í Nafla Atlantshafsins, að þingið í Írak hefur tvívegis á einu ári beðið Bandaríska Hernámsliðið að yfirgefa landið, án þess að vera svarað? Eða þá verið fjallað um að bankastjóri Seðlabanka ESB svo gott sem lýsti Brussel kerfið gjaldþrota nú í sumarlok, sama kerfi og í dag semur helming allrar löggjafar á Íslandi?
e.s. Einnig er áhugavert að BRICS fundurinn, þar sem Tyrkjaland mun formlega sækja um aðild, fer fram í Rússneska Lýðveldinu Tatarstan*, í október komanda. Sem er verulega áhugavert í dulfræðilegum skilningi, og þá er vísað til tveggja þekktra kenninga um Tartaríska heimsveldið. En miðað við margt sem er að gerast, þá lítur út fyrir að BRICS kerfið muni leysa SÞ kerfið af hólmi frá og með nóvember komandi, sem það alþjóðakerfi sem lönd utan Nató blokkarinnar treysta!
* Rússneska Ríkjasambandið samanstendur af 21 Lýðveldi og 28 sjálfstjórnarhéruðum (Oblasts), alls 49 sjálfstæðum héruðum.
Múgsefjunar þjóðin er í uppnámi útaf þrem hnífstungum í boði hælisleitenda mannsals-vinstrisins, sem ekki hafa meðferðist fæðingarvottorð né sakavottorð, en er samtímis slétt sama þó tugir þúsunda barna séu sprengd í tætlur með Nató vopnum og réttlætt með Nató áróðri.
Her Tears Broke My Heart ð pic.twitter.com/QxNvvF6gvY
Ryan Rozbiani (@RyanRozbiani) September 15, 2024
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)