Færsluflokkur: Bloggar

"Það virðist eitthvað" - er samsæriskenning

Þegar -elítan- kemur með kenningu, er hún ávallt tekin sem sannleikur - þannig virkar Valdhyggja* - en opinber kenning og jaðarkenning, eru hvorutveggja kenningar. Margir eru  svo steiktir af Valdhyggju, að þeir stimpla allt sem samsæriskenningar sem er ekki vottað af -elítunni- og allt sem sannleika sem hún gefur í skyn og þarf þá ekki að staðhæfa. {s.t. frétt}

 

 

Þeir sem fylgjast vandlega með einhverju öðru en Áróðursmiðlum - hvort heldur það eru  Hnattræna suðrið eða Vestrið (The global South or The West) - sem beita ólíkum áróðri um sömu hluti og atburði -  vita vel af gegndarlausum bylgjum netárása á öll tölvukerfi heimsins, sérstaklega þau vestrænu.

Að þessu sögðu, er mælt með að fylgst sé með öllum þrem hliðum "sannleika" og "áróðurs" til jafns, því ferningar hafa fjórar hliðar og teningar fleiri! Þannig fæst útleiðing (Deliverance (útdilkun)) frá því að heimsmynda-lygar móti dávald og steingert sjálfkenni* (Self identity).

Síðan við dóum og fórum til Helvítis, þann 11. mars 2020, hefur þetta verið mjög áberandi, til að mynda unnu flestir kerfisstjórar símkerfa tvöfalda vinnu 2020 og 2021 vegna árása og margir bjuggust við polýgon árásum af hálfu Heimsefnahags ráðsins (HER, WEF).

Við útskýrðum í Arkívinu á þeim tíma, að erlendar samsæriskenningar í þessa veru færu flestar yfir öfgastrikið, því Netkerfi heimsins eins og það er hannað af Darpa eftir 1969, gerir ráð fyrir slíkum árásum auk þess sem svo mikið af stjórn- og stoðkerfum heims-klúbbsins reiða sig á Netið að myndi bitna á þeim sem gera árásina til jafns, ef það yrði lagt á hliðina.

Einföldun: það eru þróaðar pinsettuárásir, og daglega, og af mörgum þróunarhópum, í mismunandi tilgangi, áríð um kring, sem taka ekkert jólafrí.

Þá bentum við á (í Arkívinu) að síðan 2001 hafa Rússar þróað sín eigin netstoðkerfi, byggt á gömlum GRU þróunum í Kaldastríðinu, svo þeir geti keyrt sitt Internet óháð hinu vestræna, síðan 2019 hafa þeir þolprófað það á hverju ári og keyrt þá allt opinbera og innlenda kerfið í þrjá til fimm daga óháð erlendum kerfum. Tyrkir eru að undirbúa hið sama, sérstaklega eftir að Nató hóf opinberar aðgerðir gegn þeim (sem þó eru sjálfir í Nató), og Íranir hafa þróað slíkt lengi.

Ekkert um þetta í Kastljósi? Gáfnaljós! Ekki öll ríki utan Nató gettósins eru hryðjuverkaríki og "Rogue States!"

Það breytir ekki þeirri staðreynd að síðan í kringum 1985 eru öll stórveldin með Nethernaðar deildir á sínum snærum, sumar leynilegar (Covert) og aðrar opinberar (Overt). Til að mynda er Breska Brigade 77 vel þekkt og sú Ísraelska einnig, en minna fjallað um þær Kínversku, Írönsku, Rússnesku (nema í tröllaáróðri) og Bandarísku (nema í NSA samsæriskenningum).

Allar þessar nethernaðardeildir beita tveim þriðju getu sinnar og þjálfunar í að verja sín eigin þjóðríki gegn óvinveittum árásum, en þriðjungnum sem stendur útaf er skipt í tvennt, annarsvegar beitt gegn eigin borgurum (eins og valdakerfið hafi eitthvað að fela eða óttast heima fyrir) og hins vegar gegn allskyns hugsanlegum og óhugsanlegum ytri voða.

Hluti af starfsemi þessara aðila er að álagsprófa víðkerfið t.d. vinna hin svokölluð "fimm augu" eða leyniþjónustu kerfi Nýja Sjálands, Ástralíu, Kanada, Bandaríkjanna og Bretlands, samhliða og deila upplýsingum sín á milli og álagsprófa heildarkerfi þeirra, eins er með Nató kerfið.

Setningar á borð við "það virðist eitthvað hafa" er kjánaskapur á okkar tæknivæddu, [sýndar-]stöðluðu og upplýstu tímum. Öll tölvukerfi hafa t.d. sjálfvirka annálaþjölun*  (Logging) og allir ábyrgir fagmenn sem unnið hafa lengur en tvævetur við kerfisstjórn kunna að gera skriftur til að rýna slíkar annálaskrár til úrvinnslu og samrýni.

Til dæmis, ef Vefþjónn á vinsælu vefsvæði er hægvirkur í klukkutíma, eru allar þessar skrár rýndar og síðan eru raktar IP tölur tengdar hverri línufærslu (Record) og síðan rakið eins og hægt er þar til ljóst er hvort árás var í gangi, eða spæjun eða skóflun (en önnur algengasta netárásin er einmitt gagnamokstur eða skóflun - Harvesting), en sú algengasta er DOS (Denial Of Service). Sé ekki um netárás að ræða, er hafin hæggengari rannsókn, eða villuleit í forritskótum og gagnahögun ásamt gagnaþjóns stillingum, og í þriðja skrefi hefst leit að saumnál í heystakki, flísatöngsleit.

... það virðist eitthvað hafa ... nei, það selur ekki - - einhver árás var í gangi, og annaðhvort eru kerfisstjórar og blaðamenn fúskarar, eða einhver er að ljúga, eða einhver er blekktur og keypti vírusinn hráann.

Hér mætti líklega plögga "Varðmenn kvótans" bók minni um faglega nálgun stofnana á eigin innviði, og einelti góða fólksins þegar þau hreinsa burt skemmdu eplin:

 

* "Logging" er í raun dagbókarfærsla og dabókarskjölun og er Tölvuorðasafnið á því að slík þýðing sé fín. Færsluritari hefur lengi leitað hugtaks sem passi betur við Logging og henti þá Íslenskri málvitund. Eins og lesendur Spennulosunar vita, höfum við nokkurn áhuga á svona, og er talsverður listi af hugtökum sem eru á gráu svæði og enn í þróun - skemmtileg íþrótt, sem getur orðið að ástríðu, ef maður hefði ekki einbeittan og fágaðan vilja, eða þannig. Annáll er yfirleitt í tengslum við skráningu fyrir árið, en hver er munurinn á dagskráningu eða annálaskráningu, eða sjóbók eða siglinga[dag]bók, eða verkefnaskrá, eða eikkuru, annáll er fínt orð og að þjala eitthvað er að slípa það niður, kvarna það í frumeindir ... annálsþjöl? Kafteinn James T. Kirk, í Star Trek, elskar að segja "Captain-s log" og svo um kvöldið "Captain-s log, supplemental" - - hvernig myndi maður þýða slíkt á Íslensku?
Star Trek er nebblega Skjalavaldssaga ... og fjallar um elítuna, sjö vitringa, í brúnni og hugmyndir þeirra um veruleikann ... öll sagan er úr annálaskrá, eða annálsþjöl kapteins og stýrimanns (1st officer, Xo). Þetta á við um nánast allar sápur!

Dagbók kapteinsins, siglingabók fleyisins, ... flókið og skemmtilegt.

 

* Þegar þú fattar eðli Félagshyggjunnar, er stutt í að þú þekkir systur hennar Valdhyggjuna og Efnishyggjuna - allar þrjár nota sömu sálfræði, til að drepa menningu og rústa siðmenningu. Til einföldunar, þetta eru þrenn sjúkdómseinkenni siðrofs, þ.e. sturlaðrar þjóðarsálar (Collective Consciousness gone insane).

* Hópdávald elítu, almúga og antivista er í öllum tilfellum nátengt sjálfkenni eða "Self identity" en maður sér sjaldan eigið sjálfkenni utanfrá, eða áhrifavald þess.

 

e.s.

Hvenær er samsæri fúsk, og hvenær er Sannleikur varinn með lygum?

Manstu eftir bókinni hans Illuga um árásir þýskra kafbáta á Íslenskar duggur? Fúskið í bókinni var slíkt að færsluritari skrifaði bæði opinberu skjalasöfnum bæði Þýskalands og Bretlands og innti eftir hvort siglingabækur þýskra og breskra kafbáta væru aðgengilegar frá þessum tíma.

Okkur var svarað.

Hvað er það fyrsta sem kapteinninn gerir þegar hann kemur í land? Hvað er það fyrsta sem fer í bátana þegar skipið ferst? Annálaskráning kapteinsins, tilheyrir útgerðinni - the Admiralty [law*]!

Vittu til, sjóbækurnar eru til - og opnar til rannsókna -  ... en ef allir vita að það voru þjóðverjar, til hvers að rannsaka nánar hverjir sigldu hvar hvaða dag og hver græddi mest á að fela hvað og sviðsetja hvað, og hvers vegna þá að rannsaka feril tiltekins stjórnmálamanns í tengslum við sviðsetningar og lygar?

Frá 1917 til 1948 var Jórdanía (Trans Jórdanía og Palestína) hernumin af Breska heimsveldinu, í lok hernámsins fengu skæruliðasveitir Zíonista (Sósíalísk þjóðernishreyfing með ofbeldisfullar öfga-túlkanir á Júðisma) öll vopn þeirra og í ábæti sendingar hertekinna þýskra skriðdreka og flugvéla, fjármagnað frá London og Washington; þessi skæruliðahreyfing viðhélt hernáminu í skjóli umboðs SÞ frá haustinu 1947 vegna atkvæðagreiðslu sem véluð var fram með þvingunum af hálfu Truman Bandaríkjaforseta, sem afhenti hreyfingunni hálfa Jórdaníu til eignar og viðurkenndi þar með "öfgafullar Biblíuskýringar sem sagnfræði" - þrátt fyrir sterk andmæli yfir 80 prósent Rabbínskra leiðtoga Júðismans. Afleiðingin var andspyrnuhreyfing í sama anda og Franska andspyrnuhreyfingin gegn hernámi Þjóðverja í síðari heimsstyrjöld, bæði í Palestínu og Líbanon. Þessar andspyrnuhreyfingar eru í Áróðursmiðlum nefndar Hryðjuverkasamtök og hver sá sem gagnrýnir hryðjuverk Zionistahreyfingarinnar djöflakenndur sem gyðingahatari ...

Einfalt?

Hver fékk Nóbelinn fyrir að uppgötva HIV vírusinn?

Hver sannaði umræddan HIV vírus?

Hvað segja þau um Covid vírusinn?

Tæplega lýgur -elítan-? Hún er góð og hún elskar þig og á núna allt sem þú átt, því hún á blóðið í þér?

Ekki?

Hver á einkarétt á genabreyttu blóði og hvaða aðilar hafa barist fyrir slíku í meir en þrjá áratugi og eru þeir aðilar tengdir genabreytingunni á þér, og genaskráningu allra einstaklinga í gagnagrunn sem þróaður var með svikamyllu?

Ha? Elítan hefur ekki vottað þetta, svo þetta er samsæriskenning.

Manstu eftir látunum á jöklinum - nú nýverið - samtímis því að Nató þolprófaði innlendu kerfin (og sannleiksmiðlana) samfara flotaæfingu við landið? Ef maður keypti ekki áróðurssöguna fékk maður augabrýrnar frá kverúlöntunum. Sástu hvernig frásögurnar voru saumaðar eins og bútasaumur? Manstu fyrir fáeinum misserum þegar tveir þýsk/austurrískir týndust í jöklasprungunum.

 

Að gefnu tilefni: Færsluritara er ekki illa við elítur eða [heims]Elítuna, hann hefur frekar lágan þanstuðul (Tolerance) þegar lygar og rán eru gerð að siðmenningu. Loks minnum við á, að bannað er að taka mark á Spennulosun!

 

* Admiralty Law - the law of the seas - international treaties on seafaring - judicial lawfulness and legality: Hefur "Íslenska Lýðveldið 44" framið opinbert sjórán á okkar tímum, og gerði síðan dómsglöp í kjölfarið (Judicial malfeasance)? Dómskerfið, eða þannig.

 

e.s. 19:00 - Í fyrsta sinn í sögu rafmagnsvæðingar "Lýðveldisins 44" er hálfr landið rafmagnslaust, og enginn vetrarstormur ... samtímis því er bankakerfi víða á vesturlöndum "í titringi" (sérstaklega í Bandaríkjunum.) og Vefurinn víða mjög hægvirkur, annars er ekkert að frétta, nema tvö smástríð eikkursstaðar, hellingur af fólki á Tene, og ENGIN SAMSÆRI neins staðar.

 

e.s. 21:40 - eftir lestur frétta í dag af Rafmagnsleysinu, og lýsingu á hvað gerðist og hvaða áhrif það hafði, er ljóst að það hafði ekkert að gera með "opinberu samsæriskenninguna" en við vitum ekki enn hvernig þetta var framkvæmt.


mbl.is Rafmagnslaust víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú mátt elska Ofurvættinn - það er tillaga, ekki kvöð

Jamm, það var bara tillaga hjá Jósúa Maríusyni, að elska Skaparann framar öllu og annað fólk - náungann - eins og sjálfan sig. Því hann vonaði að þú myndir hugleiða merkingu orðsins, sem síðar týndist í þýðingu, eða meitlarar viðsnéru viljandi.

 

 

Þú getur ekki elskað eitthvað sem er æðra eða lægra þér sjálfum, þú getur ekki elskað Guð nema gerast barn hans og það gerist ekki nema þú ræktir persónuleg vensl við Ofurvættinn, og gangir þannig vegu að hann sjálfur bjóði þér ættleiðingu, og hið sama gildir um annað fólk, þú getur t.d. ekki elskað elítuna né hún þig, því þú getur aðeins elskað þín eigin vensl.

Sjá færsluna, Leynifélagið, í anda þessarar færslu.

Það getur hver sem er tantrað eikkurar setningar og romsur úr bókum eða leirað einhverja dáleiðslu frá öðrum eða sjálfum sér þar til vitund hans verður steinrunnin eftirmynd - eða skúlptúr -  og fyllt hugarfylgsn sín af skuggum bergmáls og innprentunar þar til hann trúir því sjálfur að greind hans sé þekking, skilningur og greiningar en ekki skreytt kransakaka.

... en það er eitthvað annað sem hangir á spýtunni; þú.

Manstu, að ganga plankann þegar siglt er yfir miðbaug og treysta áhöfninni til að draga þig heilu og höldnu undir kjölinn? Er ökklabandið traust, spottinn nógu langur, festistu í þangi eða ryðguðum nagla undir skipinu, fyllast vit þín í kjölsoginu, hversu margar mínútur geturðu haldið niðrí þér andanum, hvað ef þú rekur höfuðið í og vankast og sýpur hveljur ... sumsé, það hangir eitthvað annað á spýtunni.

... en þú þarft sjálfur að ganga fram af plankanum.

Ein þýðing segir skilja skaltu náungann eins og sjálfan þig, enda kemur þá virðingin og elskan af sjálfu sér, en þá þarftu að geta skilið þín eigin innri hugarfylgsn og það gerist ekki án vitnisburðar og fyrirgefningar sem aftur gerist ekki án iðrunar, og allt þetta gerist í bæninni  ... blah!

... svo hvernig geturðu skilið Ofurvættinn?

Eða þegar Satan sagði við Jósúa, og sýndi honum á allar dýrðir veraldar, þetta er mér í vald gefið og ég veiti þér valdsboð (Authority) yfir þessu ef þú fellur fram og tilbiður mig.

... og Jósúa snupraði ljósengil freistninnar og sagði "efla [m]áttu hagsmuni Skaparans og hans eins."

Hér var einmitt laumuleg villuþýðing, því tilbeiðsla er að efla hagsmuni.

Eða þegar Jósúa benti fólki á að; Hashem er vegurinn, sannleikurinn, og [eilífa] lífið. En Hashem er slangur notað í Arameísku fyrir "Ég er" og er átt við þegar engill Guðs mælti við Móse við logandi runnann sem brann ekki, því Jósúa átti hér við Ofurvættinn sem Skapaði allt sem er, en ekki sjálfan sig.

Villuþýðingar eru mesta íþrótt allra loddara, s.s. þegar þeir breyttu smiti í sótt og skelltu þúsundum fólks í ólöglegt varðhald!

Hver sannaði vírusinn?

Sá sem fann upp PCR skimunina fékk nóbelinn.

Hver fær nóbelinn fyrir að sanna "vírusinn?"

Það getur hver sem er lært utanbókar og látið Félags-, Valds- og Efnishyggju breyta sér í Automaton, en Eingyðistrúin snýst ekki um það, hún snýst um Þig og vensl þín við Skapara Alheimsins, Exclusive.

Fyrsti spámaður þessarar trúar, hét Eva, og hún skildi framangreint og grunn-eitrun okkar, en hvernig átti hún að útbúa spámannlegan vitnisburð sinn svo hann týndist ekki í þýðingu, og hversu snjöll var hún að finna á því lausn.

Allar trúaðar og frómar konur sem ég hef kynnst, vita, og þú ættir að vita, að Eingyðistrúin - og þær trúarbragðareglur sem hún hefur getið af sér - hvílir til jafns hjá báðum kynjum. Enginn spámaður þessarar trúar hefur nokkru sinni getað unnið verk sitt, án aðstoðar og eflingu dyggðugra (Virtuous) kvenna (og ýmissa bersindugra), og á þessu er engin undantekning, og ritningarnar votta þetta í þeim hlutföllum sem leyndardómar kvenleikans krefjast.

... og svo kemur dagurinn þegar einhver stingur upp á við þig að gera hitt og þetta, áorka hinu og þessu, jafnvel koma nakinn fram og slá í gegn, en þín fyrsta hugsun er, "kannski síðar, ég er upptekinn á grúfu í mölinni."

 

e.s. Samdi hljóðbók um Biblíuna, sumarið 2013, hún er enn í uppkasti og verður svo um ókomna tíð. Það eru ýmis atriði sem ég myndi hafa á annan hátt í dag, bæði veit ég meira nú og eins hefur skilningur minn breyst á sumu. Mætti kannski plögga hljóðbókum mínum oftar, en er upptekinn við "þú veist hvað" þessi misserin.

Uppkastið er á media.not.is; http://media.not.is/ordatal/


Ekkert bólar á rafrænum mannréttindum

Það er til nóg landflæmi, undir eitt ríki tvö kerfi svo þeir nútíma borgarar sem vilja heilbrigða og náttúrulega lifnaðarhætti fái sitt svæði, með sinni eigin siðmenningu, Öryggisgettó sem frelsi þau frá [genabreytta, óstaðlaða,] rafræna gúlaginu sem öllum hinum er nú smalað inn í.

Lastu færsluna á undan þessari?

Finnst þér langsótt að verið sé að breyta þér í Borg Drone? Veistu hvað var í sprautunum fyrir þrem árum, ertu viss um að vera ekki genabreytt mannrotta með Luciferase og Graphene Oxide in blóðinu?

Þú veist að þegar fólk í Star Trek fær "Borg Nanobots" í blóðið, hættir það að vilja vera fólk og fer að vilja vera "Borg Drone" og treystir á "the collective centralized voice of [moral] consesus." 

Ó, þetta er nottla allt saman órafull samsæriskenning, því Áróðursmiðlarnir hafa ekkert á þetta minnst. Leiraðar sálir og bergmálskennsla, afgirtar, stríðaldar og ferskar ...

 ... loks væri nottla augljóst að fjölmiðlar og stjórnmálamenn myndu upplýsa okkur um sprautuskaðann ef eikkur væri ... engin umfjöllun = enginn skaði ...just sayin ...

 

Viviane Donner - svalasta "great gig in the sky"
söngrödd sögunnar, og Brasilísk norn*.

 

* Áðdáendur Umberto Eco vita að hann setti ekkert í skáldsögur sínar nema á bak við það væru vandvirkar og djúpar menningarlegar rannsóknir - enda einn færasti táknfræðingur síðari alda - en í "Foucaults Pendulum" eyddi hann mjög miklu plássi í Brasilísk nornafræði, svo mjög að jafnvel Rúmenskar nornir glottu, en eins og dulspakir dulfræðingar* vita eru þær Rúmensku ... en þær myndu aldrei viðurkenna það, s.s. við höfum sannreynt.

* Við gerum mikinn greinarmun á dulspekingum og dulfræðingum (Mystic vs. Mysticalist) - diametric opposites - en síðara hugtakið er týnt á okkar tímum, enda hátt í þrjú árþúsund síðan Ljósengill Dulfræða vék fyrir ... en þessu efni eru gerð full skil í Arkívinu.

e.s. Er enn ekki búinn að finna góða þýðingu á "Diametric Opposites", þó ýmsar tillögur hafi slæðst inn í spennulosun.


mbl.is Norskir rakarar æfir – verða að taka reiðufé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stafræn SIÐmenning - menningin dáin

Undanfarin misseri hefur Kínverski Kommúnista-Flokkurinn (KKF) þróað stafrænt dómskerfi, ekki er ljóst síðustu 12 mánuðina hversu langt prófanir eru komnar, en þá var kerfið komið á prófunarstig, samfara félagslega punktakerfinu (Social Credit Score) sem þeir hafa þróað í meir en áratug. {sj.t. frétt}

 

 

Umræður í dómskerfi Bandaríkjanna - sérstaklega þeim ríkjum þar sem Alþýðuflokkurinn (Democrats) ræður ferðinni - eru þegar hafnar um þróun stafræns dómskerfis. Þá mun tölva geta ákveðið hvort þú hafir brotið af þér, ákært þig og síðan skorið úr um refsiramma - tölvan mun þá geta ákveðið hvort þú getur ræst bílinn þinn, hitastillt húsið þitt eða verslað með örmerkinu, hún getur breytt heimili þínu í fangelsi - bókstaflega - og þannig gert stóru fangelsin úrelt.

Velkominn til snjallborgarinnar sem aldrei er rædd í Áróðursmiðlum, nema í flóknum smáfréttum hér og þar, ef þú fylgist með og rannsakar veistu t.d. að Akureyri, Selfoss og Reykjavik eru verulega langt komin í þessari þróun, en undir rós (Sub Rosa).

Þetta er eitt stærsta dæmi þess að nútíma menning heimsins er dáin og siðmenning "mann-kyns" innfallin. Ef þú skilur þetta, hefurðu undirbúið flótta.

Það að nokkur maður láti sér detta svona nokkuð í hug, er enn ein sönnun þess að djöflar geta samlagast fólki og yfirtekið, svo hinn samlagaði lítur út eins og maður en er djöfull í mannsham (Demon Assimilation) - sem er ekki hið sama og vera andsetinn eða haldinn illum anda/öndum (Demon Possession)*.

Lestu tengda frétt aftur og hafðu í huga hvernig Áróðursmiðlar landsins - og vesturlanda - móta fyrirsagnir og texta frétta til að hafa undiröldu (Subliminal) áhrif á skoðun lesenda, hér er ferskt dæmi um hversu dásamleg útópía er á ferðinni!

Ekki er birt á sama tíma nein frétt um að þing Kaliforníuríkis setti nýverið lög um ábyrgð í þróun gervigreindar og lagalega kröfu um þrautprófanir til að tryggja að gervigreind valdi ekki mannlegu samfélagi skaða. Öfga kommúnistinn Gavin Newsom - ríkisstjóri Kaliforníu - hafnaði lögunum (Veto) með pennastriki.

Hann hefur líklega ekki kært sig um að honum yrði líkt við Pútín, sem þráfaldlega hefur lagt til við þróun hugbúnaðar þar í landi að þess sé gætt með ítrusetu högun og prófunum að gervigreind verði fólki til hagsbóta en megi ekki undir neinum kringumstæðum vinna gegn hagsmunum þess og öryggi.

Við höfum reglulega rætt hér í spennulosun það ginnungagap sem um ræðir hérlendis t.d. varðandi rafræna gúlagið sem "Íslenska Lýðveldið 44" er að innleiða.

Nei, ekki sem "Ísland" er að innleiða ... gættu að múgsefjun áður en þú gerir hana að stafrænu dómsvaldi.

Veistu hvernig "Íslenska Dómskerfið" er þróað og hversu mikið fúsk það er?

Ef ekki, þá áttu Stafræna dómskerfið skilið.

Veistu hvað SIÐur er?

Það Star Trek sem Gene Roddenberry þróaði snérist aldrei um vísindaskáldskap, þó það hafi breyst síðan hann féll frá. Það snérist frá upphafi um það að ræða hvar við værum sem menning, án þess að gera upp á milli heimspekistefna og stjórnmálaflokka.

Heimsmenningin er bókstaflega að breytast í Star Trek Borg Universe, sumt leynt, annað ljóst, loks með valdi, en mest vegna sjálfumgleði og sinnuleysis hinna gúlag vistuðu. Þetta er það sem 2. Mósebók fjallar um, ekki sagnfræði, heldur frumspeki, sýn, og menningu!

Hvað sem fólki finnst um Alex Jones, þá var hann forspár fyrir þrem áratugum þegar hann hóf að benda samtímafólki sínu á það sem nu er augljóst með tveim orðum; "Prison planet" og "Info Wars." Um þessar mundir er Alþýðuflokkurinn í Bandaríkjunum að taka af honum þessi hugtök, með lagahernaði.

Það er óþarft að beita þig lagahernaði. Svo vitnað sé í Solon Islandus*, sem orðaði þetta betur; ég er gull og gersemi.

 

 

Seven of Nine - the "hot borg" you do not want to resist:

 

 

Ein af stóru sjálfblekkingum hópsálar,
er sú að afþreying sé aðeins afþreying,
en ekki -elítu- stjórntæki.

Þegar þú sérð stjórntækið,
sérðu Medúsu, en ekki
endilega spegilskjöldinn.

 

* "Demon Assimilation" og "Demon Possession" var bókstaflega auglýst framan í okkur öll, upp frá 2020, ef lesandinn hefur enn ekki skilið það, minni ég á; ekki sóa tíma þínum og mínum í spennulosunar færslur, ég kæri mig ekki um ómloðun (Resonance) leirmenna og bergmálsfólks hér.

* Sölvi Helgason var annar af tveim fyrstu heimspekingum Íslandssögunnar, og nefndi sig Sólon Islandus, og vísaði þá í Sólon sem var einn af fremstu löggjöfum borgríkis Aþenu þeirra forngikkja og telst með þeirra fremstu heimspekingum, en hann skóp þeim stjórnarskrá eftir nám sitt í Neith fræðum í Saith í Egyptalandi. Það er einmitt Sólon sem bar spádóminn um Atlantis sem er að rætast á okkar tímum til Grískra heimspekinga, en spádómur þessi var vel þekktur meðal Koptískra dulfræðinga. Frímúrar hafa frá dögum Marxistans Platóns viðhaldið þeirri þýðingaraungun (Lost on Translation) að Atlantis hafi verið, en ekki að það verði. Sólon var ekki aðeins að gefa Aþeinu stjórnarskrá heldur var hann að afmá Lagaósið Dracós, sem "Draconian measures" eða "Draconian Law" kemur frá. Sem fyrr segir - veistu hvað dómskerfi er? Háð Sölva á sínum tíma, var mjög beitt, t.d. fór hann í þriggja ára fangelsi í Kaupmannahöfn, fyrir að dirfast að ferðast um Ísland án Hreppstjóraleyfis, ákærður af þeim sem hefðu ef þeir þyrðu, en dirfðust í staðinn að þjófkenna.

Sem fyrr segir, þínum bankareikningum verður ekki lokað af hálfu gervigreindar ný-marsixmans sem nú er að yfirtaka heiminn, og gættu vel að aðal atriðinu sem enginn tók eftir í I. og II. heimsstyrjöld: Allir stríðsaðilar höfðu "identical" kennslukerfi, fjölmiðlakerfi, stjórnkerfi, dómskerfi, elítutröppur og heimsmynd, ásamt stjórnvalds aðferðum. Á stríðsaðilum var nákvæmlega enginn munur, og allir aðilar voru jafn duglegir við hópmorð og þjóðarmorð og endurritun "sagnfræðinnar.

Ef þú tekur afstöðu innan slíkrar súpu, þá ertu grjón í graut.

Ef þú hins vegar Exódusar í anda Móse, endarðu við fjallsrætur, þú veist hvers.

 

 

the-great-sign


mbl.is Samþykki í höfn frá 2 ríkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þyrlupallur á Skessuhorn

Í anda tengdrar fréttar, mælum við með stórum þyrlupalli á Skessuhorni í Skarðsheiði. Þaðan sést vel til allra átta, ódýrt fyrir þyrlur að hefja sig til flugs í allskyns nauðsynleg flug fyrir -elítu- og -skríl- auk þess má reisa rannsóknarsetur loftslagsfirringar á fjallinu, samhliða bröggum fyrir flugmenn.

Þar með nýtist fjallið jafn vel og friðaða hraunið sem fer undir Hvissvöllinn í Hvassahrauni.


mbl.is Svandís: Kom þægilega á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munurinn á Donbass í Úkraínu og á Suður Líbanon

Athugulum ætti að vera augljóst að enginn munur er á afmarkaðri hernaðaraðgerð Rússa í Austur Úkraínu eða Ísraelsríkis í Suður Líbanon. Nú munu ýmsir benda á rakettur Hezbollah undanfarið, en hverju eru þær svar við, og hvað með dráp Úkráinuhers á allt að 20 þúsund borgurum í Donbass áður en Rússar skárust í leikinn?

Að þessu sögðu, við tökum ekki afstöðu hér með einum eða neinum eða á móti einum eða neinum. Afstaða okkar er einföld; Íslensk hegningarlög tilgreina hlutleysisskyldu Íslenskra borgara, og þó -elítan- virði ekki eigin lög, þá virðum við lagasið.

Þá vitnum við í Bandaríska sagnfræðinginn Howard Zinn; "frá aðgerðaleysi til stríðsátaka hljóta að vera þúsund aðrir valkostir."

En bíddu nú við; færsluritari hefur í kvöld skannað bæði Íslenskar og erlendar fréttir af innrás Ísraelsríkis í Líbanon. Vitnað er í allskyns aðila, en hvergi svo mikið sem minnst á löglega ríkisstjórn Líbanons eða þeirra viðbrögð.

"Ábyrgir" blaðamenn og stjórnmálamenn hérlendis ræða oft um innrás Rússa í Úkraínu, en aldrei að það sé afmörkuð hernaðar íhlutun, en hvað nú? Hver er hræsnarinn?

Ef Líbanon bregst við hernaðar íhlutun Adolfs Netanyahu sem innrás, þá er löglegt stríð hafið. Hérlendingar ræða oft um alþjóðalög. Hvað ef Líbanon lítur á þetta sem stríð, og hvað ef Líbanon fær nokkur öflug ríki sér til fulltingis?

Hvað ef hið sama er að gerast í Evrópu, á okkar ljómandi upplýstu endurreisnar og vísinda tímum, öfga og hroka. Ég var alinn upp við að síðan í ágúst 1945 væru öll stríð úrelt. En það eru einmitt "góðu gæjarnir" eða Bandamenn og síðar Nató, sem hafa farið um allan heim með báli og brandi, eldsprengjum og lygum á hverju ári síðan þá, og rústað tugum þjóðríkja eins og það sé sjálfsagður hlutur, ...

... og ef þú upplifðir ekki á eigin skinni fyrir þrem árum hvers kyns djöflar stjórna okkur, hver er þá sál þín?


mbl.is Ísrael sendir herlið inn í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af sögulegum hamförum

MBL birtir frétt í dag með fyrirsögninni (titlinum) Eyðilegging á "biblíulegum skala." Í sjálfu sér ekkert að því enda þó "á biblíulegum skala" sé ekki Íslensk málvitund, þá er um beina túlkun að ræða (úr ensku) og sett innan gæsalappa.

 

 

Sjálfur set ég iðulega skáletrun á beinar tilvitnanir eða á erlend heiti sem ekki hafa verið þýdd, og reyni að hafa skáletrunina aðeins við fyrstu ritun en ekki síðari ritanir í sama texta. Var skipað að gera þetta af prófarkalesara fyrir löngu og held mig við það.

Eins og fram hefur komið, og augljóst er af textum mínum, kann ég ekki Íslensku, en er næmur á málvitund. Þetta myndu Rabbínarnir nefna hringferlis andstæður (Diametric opposites)*. Svipað og með lögfræðinga og lögspekinga, presta og spámenn, stjórnmálamenn og kverulanta, fótboltadómara og karlana í heitupottunum, marxista/femínista og raunsæi, og svo framvegis.

Hvernig þýðir maður setningar og hvenær ekki? --Fúskmál

Hvenær þýðir maður setningar og ef ekki, hví þá? --Þorsteinstunga

Nú grunar mig að mörgum samlöndum okkar á þessum bjánalegu tímum (áður síðustu og verstu) sem við lifum, hefðu ekkert haft út á að setja þó MBL hefði sleppt tvöhögginu* utan um beina tilvitnun í téðri fyrirsögn.

Þó er áhugavert að velta fyrir sér hvernig myndi maður einmitt þýða svona tilvitnun, ef ekki þyrfti að túlka* orðin beint? Til að mynda er mjög algengt í Amerískri málvitund að nota frasann "biblical scale" eða "biblical proportions" og er þá vísað til endalokaspádóma ýmissa spámanna Biblíunnar. Vesturlandafólk heyrir oft þessa frasa í amerískri afþreyingu, en sjaldan úr afþreyingar efni annarra þjóða eða sinnar eigin.

Áður en þessi færsla var rituð, duttu höfundi nokkrir frasar í hug, en þeir stöldruðu ekki við, og þó auðvelt væri að endurhugsa innra ferlið sem fæddi þá af sér, þykir ekki taka því, enda ekki markmið í sjálfu sér að svara spurningunni hér, heldur áframsenda.

Því samfélögin í landinu sem allflest nota móðurmál Þorsteins Ingólfssonar eru hætt að ræða sín á milli hver málvitund þeirra sé, en skyrpa öðru hvoru út úr sér að málið sé að deyja, eins og það sé -elítunnar- að bregðast við ...

... sem gætu verið sögulegar hamfarir!

 

 

e.s. Samsæriskenning frá haustinu 2020: Ef frímúrar hefðu ekki drepið Keith Flint hefði Covid helförin á Englandi misheppnast.

 

* Diametric Opposites; fyrirbæri staðsett andsælis á skífu.

* „Gæsalappir“ eru yfirleitt ritaðar með tvíhöggi (Double quotes) framan og aftan við orð eða málsgrein - ef notuð er ritvél eða takmarkaður ritþór (Text editor), einhögg (Single quote) hins vegar við úrfellingar. Séríslenskar gæsalappir eru aðeins öðruvísi, knésett* 99 framan við og brjóstsett 66 aftan við - ritþórar ráða ekki alltaf við stafasettið sem Linux býður uppá, svo við notum yfirleitt ensku tvíhöggs aðferðina í bloggi, en ekki ef ritað er veigameira efni sem þá er yfirleitt unnið í ritvinnslu (Word processor).

Íslenskar gæsalappir með tölvu:
  Windows:  ritið alt + 0132 framanvíð og alt + 0147 aftanvið (tölur af talnalyklab.).
  Linux:    Ctrl+Shift+U, + 201E fyrir „ en Ctrl+Shift+U + 201C fyrir “.

* Íslenska tölvuorðasafn SKÝ og Íslenskrar málnefndar nefnir knésett og brjóstsett fyrir "subscript" og "superscript." Sumir hefðu notað niðurritað og uppritað þess í stað.

* Munurinn á þýðingu og túlkun er umtalsverður, en í hinu fyrra er mál eða texti tekinn og ekki aðeins skipt úr orðum-einnar-tungu yfir á orð-annarrar-tungu, heldur texti og málsgreinar umorðaðar annars vegar fyrir hljómflæði og hins vegar fyrir málvitund. Þá skiptir setningafræði (Grammar) nokkru og eins merkingarfræði (Semantics, Lexicon). Túlkun er hins vegar þegar eitthvað er tekið beint og erlendu orðunum skipt út fyrir innlendu orðin, án þess að slípa textann. Svipað er einnig í tölvunarfræði, þar sem túlkuð (Translated) forrit eru í raun kóti* sem er þýddur jafnóðum og hann er keyrður/notaður en þýðingin ekki geymd eða vistuð, meðan þýdd (Compiled) forrit eru kóti sem forritarinn þýðir á vélamálskóta (Machine code) og eru flest forrit þannig útbúin, en túlkuð er t.d. JavaScript kótar í vefsíðum og PHP kótar á vefþjónum.

Athugulum er bent hér á annars vegar inngang og hins vegar eftirmála höfundar og þýðanda bókarinnar "Nafn Rósarinnar" eftir Umberto Eco, sem ritað er í anda þessarar færslu.

* Enska orðið "Code" er yfirleitt ritað kóði og þannig er einnig mælt mál, í málvitund samtímans, en Tölvuorðasafnið mælir með orðinu kóti, sem er að vandlega athugaðu máli betri útgáfa, og við notum hér í spennulosun kóði og kóti jöfnum höndum.


Nú hefst heimsstyrjöldin fyrir alvöru

Það er bara þannig að Gleiwitz* gerir ekki alltaf boð á undan sér. Öfugt við það sem áróðursmiðlar vesturlanda og ÍsQuislinga halda fram, þá var Nasrallah eina ástæðan fyrir að Zionista fyrirbærið hefur enn ekki verið strokað út.

Hezbollah hefur staðfest (RT) að hann hafi verið drepinn af ólöglegum loftárásum IDF*. Já, þessar loftárásir eru með öllu ólögmætar. Nú verður ekki aftur snúið, ekki frekar en eftir að Úkróherinn réðist inn í Kúrsk.

Útför Nató mafíunnar fer nú að hefjast. Og Íslenska Lýðveldið 44 er ennþá á óvinalista þeirra sem stjórna útförinni.

Að lokum: Seyyed Hassan Nasrallah; blessuð minning.

 

 

Julia Boutros, um Nasrallah:
"Because of you we will change the Universe, and Destiny will obey":

 

 

 

Úr einu í annað.

Undanfarið hafa margir erlendis en fáir hérlendis tjáð sig um persónulegu sprengjuárásirnar - í Líbanon á dögunum - gegnum talstöðvar og símboða. Margt er á huldu um hvernig leyniþjónustu verkfræðin um þetta fór fram, en margt komið fram. Til dæmis fer huldu höfði í Bandaríkjunum Mossad/CIA gaurinn sem var innsti koppur í búri með framkvæmdina. Þetta eru þó ekki aðal málin, heldur hitt. Annars vegar að um hreinræktaðan stríðsglæp er að ræða, samkvæmt öllum alþjóðlegum lagasáttmálum (Treaties) og mannlegum sjónarmiðum. Hins vegar er ljóst að nú er engum óhætt sem hefur WiFi virkt Lithium tæki í höndunum, hvað þá upp við höfuðið eða fyrir framan andlitið, því tæknin sem var notuð hefur ekkert með sprengiefni að gera í tækjunum sjálfum heldur rafræna virkjun á sprengihættu sem fyrir er, og hægt er að nota bæði til að gera samtímis árás á útvalinn hóp eða einstaklinga.

Rétt eins og stríðin í Armeníu/Azerbaijan og í Líbýu - sumarið og haustið 2020 - breyttu nútímastríðum, þá breytti þetta atvik öllu. {Ég hef einungis tjáð mig um þetta í myndskeiðum, en frá 2020 til 2023 var áhugavert að fylgjast með að allir hernaðarfræðingar nema Natófræðingar veittu þessu athygli og breyttu átakatækni* sinni og valsbrögðum* til samræmis - til dæmis var öllum skriðdrekum Rússlands breytt árið 2021 vegna þessa.} Akkúrat núna eru allir herjir og leyniþjónustur heimsins að fara með flísatöng ofaní hvernig verja má þeirra eigin [samskipta]tæki og stóra spurning er; hvernig geturðu varið þitt tæki og muntu nokkru sinni héðan í frá þora að tjá þig um eitthvað? Muntu t.d. hætta að nota forhöndina þegar þú notar símtæki og nota þess í stað bakhöndina og hafa tækið frá höfðinu þegar talað er í það?

Það er hins vegar áhugavert varðandi valsbrögðin á vasasprengju árásinni, að ljóst er að þú beitir þessu einu sinni og ekki aftur, og því var tímasetningin mjög kjánaleg - en margir erlendis hafa tekið eftir þessu - en hitt er að varfærnar yfirlýsingar úr Zionista herbúðunum gefa til kynna að þessu verkefni hafi verið þjófstartað, sem er einmitt það fyrsta sem færsluritara datt í hug þegar atvikið gerðist.

Allavega, ef þú ert ekki búinn að fatta, að Vesturlönd eru ekki svæðin sem þú tjaldar á til frambúðar næstu árin og áratugina, hvers vegna eyðir þú tíma þinum í að lesa færsl[ur[ frá mér?Því hvorki ég né þú eigum neitt sameiginlegt og allir vita hvað ég er klikk.

 

 

e.s. Kynntu þér málin áður en þú missir þig í leiruðum heilaþvotta-skrúbbuðum tilfinningum. Um það bil 400 milljónir manns í miðausturlöndum munu nú krefjast uppgjörs við Zionista fyrirbærið, og Ísland er memm í lummu veislunni!

 

e.s. Bein tilvitnun í ræðu Netanyahu hjá Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum:
"The UN ... is anti Israel flat earth society."
... en það var einmitt Allsherjarþing SÞ sem gaf Zionistum valdumboð til að ræna landi Palestínufólks og stofna Ísraelsríki, veturinn 47/48.

 

* Tæplega þarf að upplýsa nútímafólk um hvað Gleiwitz atvikið var?

* IDF; Israeli Defense Force.

* Átakatækni; Strategy.

* Valsbrögð; Tactics.


mbl.is Hver var Hassan Nasrallah?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnsýslubook, eða opinbert húmbúkk

Það er dálítið sérstakt þegar fjölmiðill minnist - athugasemdalaust - á embættisfærslu birta á erlendum samfélags [gróusagna]* miðli á borð við Facebook. Megnið af "stofnunum" Lýðveldisins og margar þjónustustoðir s.s. rafmagns og hitaveitur, líta á Facebook sem hæfilegan útgáfumiðil opinberra upplýsinga, og öllum þykir það sjálfsagt. {sjá t. grein}

 

Einföldun: Það er útilokað fyrir nútímaborgara hérlendis að taka þátt í samfélagslegri tilveru landsins nema vera innviklaður í erlend samfélagskerfi. Ef Quislíngar stjórna þjóð[s]inni*, þá endar allt í fúski. Dáin menning, og Innfallin "vofu" siðmenning, hefur ýmsar birtingarmyndir.

En að öllu háði slepptu - þó innan efnistaka.

Tyrkjaland (Türkiye) heitir enn Tyrkland (Turkey) hér á landi, þó opinberlega hafi farið fram alþjóðleg nafnbreyting á Tyrkneska þjóðríkinu hjá Sameinuðu Þjófunum* fyrir fáeinum misserum. Nú ber svo við að Íslenska Stórveldið lítur niður á Tyrkjaland, s.s. öllum er ljóst sem fylgjast með hérlendum Áróðursmiðlum og Stjórnmálavísum.

Það er áhugavert í stærra samhengi hvernig Ríkisþingið* við Austurvöll innleiðir annars vegar lög í samræmi við áróðursmiðla og hins vegar á færibandi frá Brussel. Bíddu nú við; Tyrkjaland lét þróa sinn eigin innlenda samfélags- og gróusagna miðil, sérstaklega til notkunar opinberra starfsmanna, en opið borgurum landsins?

Veistu hvert lénið er eða netslóðin? Þótti líklega ekki hæfilegt umfjöllunarefni hér hjá Atlantshafs Heimsveldinu.

Íslensk menning hefur áorkað fernu í tölvutækni. a) fyrir fjórum áratugum var hugtakið völva sett upp fyrir tölvu. b) DOS stýrikerfið innsetti stafasett 850 og 861 með séríslenskum stöfum, en sniðgekk tyrkneska. c) Sá áróður að "við Íslendingar"** værum fremst þjóða í tölvu- og upplýsingatækni. d) Lýðveldisþjóðin og Lýðveldi ÍsQuislínga býr núna í rafrænum gagnaverum Google, Facebook og X, fullsprautuð og næs.

Þeim fyndið sem enn hafa næmi fyrir kímni.

Fimmta stakið fær að fljóta með, e) Tölvuorðasafn SKÝ og Íslenskrar Málnefndar, er því sem næst að fullu í anda málvitundar, og frábært verk sem færsluritari hefur notað með ágætum* árangri bæði í tölvukennslu og í bókaritun á tölvusviði.

Við höfum nokkuð rætt hér í spennulosun um staðla varðandi rafræna tilveru, sem engir eru hérlendis, og bent á að hvergi í neinum stjórnvalds eða faghópum, hvað þá meðal almennra fórnarlamba er nein umræða um þetta, hvað þá rýni, og alls engin fagleg tilfinning.

Tökum hnattrænan (Global) snúning á þessu.

Samtímis því að öll þjóðríki heimsins eru að innleiða rafrænt gúlag fyrir stjórnsýslu sína og borgara, ásamt SÞ stofnanakerfinu (79 elítustofnanir), er hvergi gert ráð fyrir að borgarar neinna þessara ríkja hafi aðgang að borgaralegu skjalasafni undir eigin gögn s.s. skrif, ljósmyndir, hljóðritanir og myndskeið. Almúginn - Dirty Peasant - er nebblega svo frjáls eftir að aðallinn breytti sér í sósíalískan farsa.

Við vorum alin upp í skóla sem sagði okkur lygasögu um ritskoðanir miðalda, á sama tíma og okkar eigin stafræna tilvera skiptir engu máli, og bankareikningum og starfsframa fólks er hent í ruslið svo mikið sem fólk geispar úr takt. Þegar stóru flottu samfélagsmiðlarnir fjarlægja aðgangssíðurnar (reikninga) þína, og eyða efni þínu, áttu ekkert skjól fyrir vindi s.s. borgaralega þjóðarbókhlöðu.

... en þú hefur [gefins] mannréttindi, svo hverjum er ekki sama um borgararéttindi!

Tómarúmið er svo algjört að ginnungagap ásatrúarinnar myndi týnast þar ef það dirfðist að líta þangað inn, og í anda Nítsje, ef þú rýnir í hyldýpið, rýnir hyldýpið í þig.* Mundu, að allt sem við ritum hér er spennulosun, og háð okkar um eigin menningu, er örvænting vinarþels sem var flæmt í útlegð frá  múgsefjun og sjálfsblekkingum eigin þjóðþáttar (Ethnicity).

Þetta er allt saman ást. Þú manst hvað Kolabretinn segir stundum; love hurts.

 

 

* Anecdote;  Munnmæli, Frásögn, Skrítlusaga, Gróusaga, ...

* Venjulega er sagt "stjórna landinu" en hérlendis eru tvenn Þjóðríki, og land er ekki samtvinnað stjórntækinu sem náttúrulegt fyrirbæri, þó fáir fatti. Ef þú t.d. tilheyrir vitundarlega "landinu og þjóðríkinu" sem náttúrulegu fyrirbæri og elítunni sem sjálfsprottnu fyrirbæri þá er viðeigandi að elítan þín "stjórni þjóð sinni" frekar en þjóðinni.
Flókið? Ef já; þá múrsefjun sönnuð og múgsefjun úrelt. Sumir sjá að Lýðveldið er lýgveldi, aðrir ekki. Einföldun; drullusúpa lýginnar er djúp og víð ...

* Afsakið; Þjóðunum. {lá vel við höggi}

* Stjórnlaga fyrirbærið við Austurvöll, á ekki skilið nafnbótina Alþingi.

* Nietszche; if you look (peer) into the abyss [long enough] the abyss will look into you, and if you wrestle monsters take care not to turn into one. --Beyond good and evil

** Ég er ekki með í "við" enda Herúli, fæddur á Íslandi og mæltur á tungu Þorsteins Ingólfssonar.

 

 

 

e.s. Bandarískur stjórnmálamaður byggði sér hús sem er "off grid" sem m.a. merkir að hann framleiðir sjálfur það rafmagn sem hann þarf, en jafnar út rafmagnsnotkun með stórri rafhlöðu. Nú vill svo til að rafhlaðan sem hann taldi sig þurfa - en hann er menntaður rafmagnsfræðingur - er dáldið stór, og til að kaupa hana og til að fá tilskyldar tryggingar og leyfi til að geta flutt hana á kerru (vegna þyngdar og sprengi og mengunarhættu) var mjög dýrt. Lausnin var að hann keypti notaða Teslu, sótti hana - man ekki hvort hann dró hana á bílakerru eða ók henni - og notaði rafhlöðuna úr Teslunni, sem er jafn stór og sú sem hann taldi sig þurfa.

Þetta er e.t.v. utan efnistaka (Out of scope) við fyrstu sýn en ekki ef gramsað er.

Hver er stjórnmálamaðurinn?


mbl.is „Ég mun ekki skipta mér af þeirra störfum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íhaldið er steingelt

Ekki láta fyrirsögnina slá þig úr jafnvægi. Ég er eini íhaldsmaður landsins og á enga afkomendur, svo ég hef vel efni á henni. Hægri armur Ósjálfstæðaflokksins, eru ekki íhaldsmenn, og þeir hafa engin tól, engar hugmyndir og enga getu til að taka Marxista-slagsíðuna af Íslenskum stjórnmálum.

Þú leysir ekki vandann sem komið er í, með sömu tólum og bjó vandann til. Krossgötuhópurinn, sem hér tengist málum {sjá t. frétt} eru allt saman stjórnmálalegir geldingar úr öllum tengslum við hagsmuni og viðhorf fólksins sem býr þetta land.

Síðan 2019 hafa allar menningar-aðferðir frá 1640 verið úreltar og geldar. Þetta er vandinn, að þeir sem vilja spyrna við fótunum og draga menningarfánann aftur að húni, eru litlausar rjúpur við fúnar fánastengur.

Hver er lausnin?

Hún er ekki útskýrð frítt.

Hrokafullt?

... það mættu fleiri vera*.

En lausn á stjórnmála vanda samtímsans er til og það eru hreyfingar sem á síðustu þrem öldum hafa útfært hana öðru hvoru með fullkomnum árangri. Hún er eðlilega ekki kennd fánaberum múgsefjunar verkfræði.

 

 

 

 

e.s. Það eina sem krossgötu riddararnir og tengd frétt staðfestir, er að síðan 2017 er Miðflokkurinn eini hægri flokkur landsins, en ekki Íhalds, heldur ný-frjálshyggja, sem er sauðargæru marxismi. Fólk sem ræðir við Miðflokkinn, í þeirri von að endurvekja hægri stefnu, hefur enga sýn, engar hugmyndir, og engar ferskjur. Svipað og "má ég vera memm í partýinu."

 

* Tókstu eftir þegar þú hneykslaðist yfir hrokanum, að þú varst búinn að gleyma hvernig færsluritari hóf færsluna á sjálfsniðurlægingu? Kanntu sálfræði? 

Hefurðu [séð] djörfung?

Myndirðu valda því að yfirgefa bergmál og leirhnoð?

 

 


mbl.is Viðræður við Miðflokkinn skiluðu engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband