Íslenska Lýðveldið og þriðja heimsstyrjöldin

Ef marka má "leiðtoga" Íslenska Lýðveldisins, þá eru allir brotlegir við alþjóðalög sem þeim dettur í hug, án tillits til þess hvað alþjóðalög tilgreina. Ennfremur eru þeir nú í stríði gegn Rússum, sannfærðir um að fyrirsagnafræði þeirra muni gjörsigra Hrímþursa í Austurvegi.

 

 

Við minnum á að hér er um spennulosun að ræða, sem bannað er að taka mark á!

Nú er það að frétta af Íslensku Stríðsvélinni, að hún fordæmir að Íran sendi þrjúhundruð eldflaugar og dróna frá Íran til Ísraelsríkis, til að refsa fyrir fordæmalausa loftárás þeirra síðarnefndu á sendiráð Írans í Sýrlandi, sem drap bæði hátt setta sendifulltrúa og almennt starfsfólk (á sjötta tug alls).

Ekki hef ég séð Íslensku stríðsherrana fordæma hið skýlausa brot á alþjóðareglum og hefðum*. Nú er það ekki brot á alþjóðalögum að ríki svari fyrir hernaðarárás með hernaðarárás, svo ljóst er að Íranir brutu ekki Alþjóðalög - hvort heldur miðað er við alþjóðasamþykktir Þjóðabandalagsins eða Sameinuðu Þjóðanna.

Ég er Þjóðveldismaður og Þjóðveldið bannar allt hernaðarbrölt á Íslandi og er skilyrðislaust hlutlaust í alþjóðastjórnmálum. Lýðveldið hefur einnig ákvæði um hlutleysi í lögum sínum, sem elíta þess sniðgengur og fyrirlítur. Lesið alla þessa færslu í þeim anda; hér er engin afstaða tekin með eða á móti Íslamsk-Íranska Lýðveldinu eða Ísraelsríki.

Við erum hlutlaus hér.

Undanfarið hefur Ísraelsríki drepið allt að 33 þúsund almenna borgara með loftárásum, eldflaugum, drónum, fallbyssuskotum, snæperum og með venjulegum hermönnum. Minnst 15 þúsund börn hafa verið drepin með þessum hætti. Borgarar Gaza svæðisins, sem eru hálf þriðja milljón, búa nú við hungursneið og komin er upp farsótt á svæðinu. Ísraelsríki hefur þegar verið ásakað í að minnst tveim alþjóðadómum um fyrirlitlegt þjóðarmorð á svæðinu, og fleiri málssóknir eru í smíðum.

Íslenskir Stríðsherrar láta eins og þetta sé einhver samsæriskenning, og að þeir sem á þetta minnast séu sekir um hatursegð gegn "gyðingum" og um upplýsingaóreiðu. Ekkert minnast þeir á eftirfarandi;

Gervigreindar kerfin sem Zionistar nota til að finna fólk sem þeir drepa.

  • -Lavender
  • -Where is your daddy
  • -Gospel

Íslenska Ríkisstjórnin fordæmir ekki þessa notkun gervigreindar til að drepa konur og börn.

Snúum okkur aftur að téðri loftárás Íransk-Íslamska lýðveldisins gegn Ísraelsríki, eða Zionistaríkinu sem þykist vera júðaríki. Íran lýsti því yfir strax um morguninn að árásin væri afstaðin og ekki yrði um frekari aðgerðir að ræða og hvatti Bandaríkin, Bretland og önnur samherjaríki* (Allies) Zíonistaríkisins til að halda að sér höndum.

Létu Íranir vita að ef Zíonistaríkið léti sér þetta að kenningu verða, yrði engin stigmögnun (Escalation) á ódæði sem Ísraelsríki átti upptökin að. Ísraelsríki svaraði fyrir sig með umfangsmikilli loftárás á skotmörk í Líbanon sem er skýlaust brot á alþjóðalögum, og stigmögnun.

Lítum snöggvast á árás Írans. Varnarlið Ísraels (Israeli Defence Force (IDF) hefur ítrekað gefið upp að þeir hafi með loftvarnakerfi sínu (Irondome) náð að skjóta niður eða eyða á bilinu 75 til 85 prósent þeirra dróna og flugskeyta sem sent var gegn þeim. Það merkir að á milli 40 og 50 komust í gegn. Íran tilkynnti að þeir hefðu forðast að beina skeytum sínum á borgaraleg skotmörk - en IDF miðar aðallega á borgara - og að þeim hefði heppnast að eyðileggja þau tvö skotmörk sem þeir ætluðu sér, Nevatim herflugvöllinn og aðal gervigreindar og upplýsingamiðstöð sem notuð er af IDF fyrir gervigreindardráp á almennum borgurum.

Ég minni á að við erum hlutlaus hér, spennulosunar færslan snýst fyrst og fremst um eftirfarandi: Forystumafían sem hefur breytt Íslenska Lýðveldinu í hernaðar-, lyga- og þjóðarmorða maskínu er fordæmalaus stríðsóð glæpamafía sem raungusnýr staðreyndum, fyrirlítur eigin "þjóð" og annarra, fer ekki að eigin stjórnarskrá, og varla eigin lögum, og stundar heilaþvott og rányrkju í stærri stíl en nokkur sjálfsipuð-alræðis-harðstjórn (Autocratic-Despotic-Tyranny) í þekktri mannkyns sögu.

Við eigum að vera landið sem stendur fremst í stafni friðarbera í heiminum, og menning okkar hefur allar forsendur til að skína af heilindum, hugmyndaauðgi og gæfulegri siðmenningu. Þess í stað hefur hún breyst í sambland af draugum í haughúsi og skottum í hlandfor.

Siðrof Íslands er svo til algjört, siðleysi elítunnar þekkir engin takmörk og siðblinda og hugstjarfi hins almenna borgara er - án gríns - líkara myndastyttum en fólki. Stjórnendur landsins og óformlegar aðalsstéttir, eru raunverulegir djöflar í mannsham* og gjáin á milli þeirra og skrílsins sem í daglegu talin nefnist "fólkið í landinu" er líkara ginnungagapi en brúanlegu gili.

Ekkert mun laga þetta ástand nema allsherjar hrun eigi sér stað, sem neyðir hvern mann og hverja konu og hvert barn til að skoða eigin rann og endurgera eigin hug. Það mun ekki gerast á næstu árum og eina afkomu von þín er að flýja land og finna siðmenningu sem þú getur treyst.

FLÝÐU, LIFÐU!

Hvert spyrja menn. Þú getur rannsakað það jafn vel og ég. Þú getur sparkað af þér fjötrum uppalins huga og ræst greind þína og vinnusemi; annars muntu hvorki flýja né fá neinu bjargað.

 

* Ekki ljóst hvort alþjóðalög voru brotin.

* Við notum ekki hugtakið bandamenn fyrir "allies" því bandamenn merkir "confederates." Íslenska fúskelítan hefur aldrei gert greinarmun á ensku orðunum allies, union, confederation, federation, coalition, ... {eftir höfðinu dansa limirnir} ... við munum gera þessu betri skil síðar.

* Þegar manneskja lætur leirhnoða sig eða bergmálstöfra í mann-veru, hættir hún að verja þær sálargáttir sem djöflar nota til að komast að sál hennar og huga til andsetningar - að vera andsetinn eða haldinn illum öndum er mjög algengt sjúkdómseinkenni - en að samlagast (Assimilate) er annað atriði þar sem hinn andsetni lætur andann yfirtaka alla vitund sína og sál og nota sig í hvaða tilgangi sem vera skal, breytist hún í ham. Þetta er kennt í ölllum fornum dularfræðum, en þekkingunni hefur verið kerfisbundið útrýmt síðan 1908 eftir að félagshyggju-andinn fékk hindraunarlaust að vaða inn í hvaða gátt sem er.

 

 

Leiðrétting 20240415

Hélt því fram að á sjötta tug hefðu verið drepnir í loftárás Ísraelshers á sendiráð Írans í Damaskus 1. apríl síðastliðinn, sú tala var byggð á tveim til þrem viðtölum við erlenda greinendur. Tehran Times segir rétta tölu vera þrettán manns.

 

Viðbót 20240415

Varðandi alþjóðalög (var óskýrt í færslunni): Árás á sendiráð getur af sér casus belli samkvæmt alþjóðalögum, þ.e. lögmætt tilefni til að svara vopnaðri árás með vopnavaldi, jafnvel stríði. Allar yfirlýsingar skal skoða í þessu ljósi, þ.e. hversu margir "þjóðarleiðtogar" taka ekkert mark á alþjóðalögum í yfirlýsingum sínum, sérstaklega hérlendis.


mbl.is Skutu niður fjölda dróna og eldflauga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Guðjón.

Þessi færsla þín er hrikalega raunsæ lýsing á ástandi okkar og tek ég undir með hverju orði þínu. Ég er sammála því að einasta bjargráðið sé að flytja eða flýja á öruggari stað, áður en allt fer hér endanlega til fjandans.

Það er auðvitað sorglegt að Ísland sé ekki öruggt friðland lengur, einungis vegna aðgerða spilltra ráðamanna, ýmist vegna græðgi þeirra eða heimsku.

Eitt er þó öruggt, en það er að þetta sama landráða hyski sem þvældi okkur inn í feigðar dansinn, ætlar ekki heldur niður með skipinu.

Jónatan Karlsson, 15.4.2024 kl. 11:39

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Jónatan. Stundum þegar maður lýsir ástandinu er maður hálf hræddur við eigin orð. Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 15.4.2024 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband