Þrjár gerðir mannapa og síðan fólk

Það eru þrjár tegundir af Leirmennum og Bergmálsdúfum - les. myndastyttum Medúsu - Almenningur, Antivistar og loks leiðtogar beggja hópa. Allir hópar eru ýmist siðblindir eða siðlausir, allir hugsa þeir aðeins í þeim setningum og lausnum sem Medúsa leyfir þeim.

Aldingjar (Sages) liðinna alda notuðu hugtökin Umskiptingar (Golems), Uppvakningar (Ghouls) og Uppskafningar (Gargoyles) til að útskýra og hjúpa þetta ástand.

Fyrrgreindur hópur telst til mannkyns (Human kind) og einstaklingar hans eru mann-verur (Human beings).

Fólk er þó til en tilheyrir engum þessara hópa en telur um það bil 2 til 4 prósent af heildafjölda allra tvífættra manngreyja (Humanoids). Þessi hópur eru manneskjur (Humans) og tilheyra mannfólki (Human-folk).

Hægt er að afgreiða dávald Medúsu - sem er af ætt Gorgona, rétt eins og Hýdran sem Herkúles reyndi að höggva hausana af - en til þess þarftu að höggva af henni hausinn. Það er kúnst. Rétt eins og með Hýdruna, það er hægt að afgreiða hana en það er einnig kúnst.

Þetta hefur allt verið útskýrt, ekki aðeins á þessari öld, heldur allar þær aldir sem liðið hafa síðan núverandi blóðlínur fengu umboð Samaels til að stjórna þeim sem velja að tilheyra mann-kyni; fyrir 5783 árum.

Ábending: Sannleikurinn sem þú trúir og sagan sem þú segir, gerir þig ekki að góðum eða dyggðugum tvífætlingi.

 

Tónlist dagsins er frá Lars Leonhard, við "time lapse" myndskeið af upptökum NASA Goddard af sólinni Gloriu, sem stundum hitar jörðina meir og stundum minna, eftir því hversu háa loftskatta þú borgar umboðsfólki hennar, Aðlinum:

 

Talandi um Gloríu: Listaðu hvaða kaflar lotukerfis efnafræðinnar lýsa sólinni okkar best, jafnframt hvað tendraði hita hennar og viðheldur honum. Útskýrðu jafnframt hvers vegna þyngdarmiðja sólkerfisins er fimm milljón kílómetra utan við yfirborð hennar (eða kórónu) - barycenter.

Rökstuddu með óhrekjanlegum hætti, eða sönnunum. Þú mátt nota marxistavísindi Wikipedia, en gættu þín á dulspeki á borð við plasma og gashnettir, eða að ljós geti haft massa (afstæðiskenningin), sömuleiðis fullyrðingum um hugsanlegt aðdráttarafl Júpíters.

 

Á persónulegu nótunum:

Einu sinni fyrir langa löngu, áður en sósíalistar og kommúnistar yfirtóku ríkið og breyttu því í barnfóstru og kommúnista alræði, og gáfu því síðan guðlegt vald, gat ein fyrirvinna séð fyrir mannmargri fjölskyldu, og samt keypt hús og farið í löng sumarleyfi ...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband