Þegar öfga-vinstrið verður ritskoðað, verður Íslensk siðmenning endurreist

Þrjú atriði gjörbreyttu velmegun á Íslandi á síðustu öld; Verkamannabústaðirnir sem auðvelduðu fólki að eignast eigið húsnæði, löggjöf sem veitti starfsöryggi og tryggingasjóðir og lífeyrissjóðir sem tryggðu fólki framfærslu ef það missti vinnu eða heilsu og loks heilbrigðiskerfið sem tryggði fólki aðgang að heilsugæslu óháð efnahag.

 



Í gær hlustaði ég á þrjá karla á miðjum aldri ræða þessi þrjú atriði. Þeir voru allir sammála að þessi þrjú kerfi væru hrunin eða hrynjandi. Þeir trúðu því hins vegar allir að Sósíalistar - öfga-vinstrið - hefðu búið til þessi kerfi.

Þegar ég benti þeim á að öll þessi kerfi voru smíðuð á vakt Íhaldsins og þeim rústað á síðustu 15 árum eftir að sósíalistar náðu meirihluta bæði á þingi/ríkisstjórn og einnig í [ó]sjálfstæðaflokknum.

Kom frá þeim aumkunarvert nei, en þeir skiptu síðan um umræðuefni.

Staðreyndir ljúga ekki.

WHO ákvað í síðustu viku að farsóttinni væri lokið. Því var þó ekki blásið upp í stórfréttir. Í yfirlýsingu WHO kom fram að 7 milljónir hefðu dáið úr plágunni en í sömu yfirlýsingu kom fram að líklega væru það þó 20 milljónir.

Nákvæm tölfræði eða þannig ...

Við höfum áður rætt að komið hefur fram hjá fjölda þjóðríkja m.a. Ítalíu og Bandaríkjunum að 96 prósent þessara talna er vegna annarra sjúkdóma. Því má með öryggi halda fram að 4 til 6 prósent Covid dauðsfalla séu raunverulegt Covid. Ljóst er að frá vorinu 2021 þegar heimsbyggðin var sprautuð við farsóttinni er ekki hægt að telja neitt Covid dauðsfall, en eingöngu sprautuskaða og sprautudauða.

Órætt með öllu; nema hjá leiðinlegum Antivistum sem fæddust eftir 2020 og neita að vinna heimavinnuna sína. Stýrða andstaðan lýgur minna en hinir, en til meira tjóns því antivistar eru hliðvarslan sem lokar þig af í falskri von.

Ég hélt því fram sumarið 2020 - í ritgerðinni Húmanistadulspeki - að tölfræði allra faraldra frá og með 1950 (sem er eina áreiðanlega tölfræðin) sýndi að hámark 2 prósent fólks myndi smitast af þessum faraldri á heimsvísu og af þeim myndi hámark 2 prósent verða farlama eða láta lífið. Ég hafði þá sótt tölfræði þessara faraldra og jafnframt fylgst með tölfræði COVID19 frá viku til viku; og sett upp í reiknilíkan sem ég hafði áður birt á FB.

Þessi spá mín hefur staðist.

Hér má minna á að þegar sprautuherferðin hófst hérlendis hafði 90 prósent þjóðarinnar verið skannað með PCR til að leita að smiti, og svonefnt smit fundist með þessari dauðaleit í aðeins 6000 manns en af þeim höfðu aðeins 375 veikst og 29 dáið.

Viltu sjá þessu slegið upp í grafi eða kanntu á töflureikni og vilt gera það sjálfur?

Enn í dag er ég sá eini hérlendis sem ræði þessar tölur, og þá eru Antivistar meðtaldir.

Afleiðingar sprautunnar, í veikindum, örkumlum og dauðsföllum eru nú þegar 12 til 20 sinnum hærri en Covid19 tölurnar, og hérlendis eru tölurnar skæðari en víðast erlendis.

Auk þess er ég sá eini sem hefur rætt að Sóttvarnalæknir og Heilbrigðisráðherra og Landlæknir brutu Almenn hegningarlög svo hrottalega á þessum tíma að refsiramminn krefst allt að 12 ára fangelsi, og þá eru órædd brot á lögum 144/2018 (sem firnast ekki).

Siðmenning þín er ekki lengur til. Vísindin ekki heldur.

Jafnframt benti ég á að farsótta-mildanir (Pandemic Mitigation) í formi grímunotkunar, félagsfjarlægðar, lokunar á þjónustu og landamærum myndi ekki hemja smit eða faraldur, en gera illt verra.

Fyrir ári síðan komu fram tvær yfirlýsingar frá hinum þekkta John Hopkins sem staðfestu að þetta var rétt, byggt á þróun Covid19 aðgerðarinnar sem að jafnaði nefnist faraldurinn. Engin umfjöllun var í þjóðfélaginu um þessar staðreyndir.

Maður skyldi ætla að allar hliðar á farsótt væru umræðuefni ... nema trúað sé á opinbera vísindamenn í blindni.

Í upphafi þess þegar ríkið notaði farsótta-mildanir (Mitigation) til að koma á öfga valdhyggju og félagshyggju (Authoritarianism and Socialism), var iðulega vitnað í spár John Hopkins háskólans til að réttlæta öfga-hyggjuna; ekki var vitnað í þegar John Hopkins viðurkenndi að hafa haft rangt fyrir sér.

Fyrir bæði almenning og Antivista: Finndu 30 mínútna kynningarmyndskeið sem sýnir með nákvæmni hvernig PCR skimun er framkvæmd, hver útprentunin er, hvernig hún er túlkuð, og loks hvernig hún er sett í tölvuna.
 
Getir þú fundið þetta, muntu skilja hvers vegna aðeins einn maður á jörðinni - meðal átta þúsund milljóna - hefur þráfaldlega leitað að þessu efni síðustu þrjú árin og reglulega spurt hvort það sé til.
 
Þetta ætti að vera það fyrsta sem við öll vildum finna í maí 2020!
 
Fyrir tveim árum skrifaði ég reglulega um að kynþvottur (Grooming) væri hafinn í skólum hérlendis, sem væri aðferð öfga-vinstrisins til að sundra (Disrupt) samloðun (Cohesion) innan samfélaga landsins. Á undanförnum vikum hefur gosið upp umræða á félagsmiðlum, þar sem foreldrar eru byrjaðir að veita þessu eftirtekt. Skólakerfi öfga-vinstrisins hefur ráðið félagasamtök úti í bæ til að heilaþvo ókynþroska börn í kynferðismálum.
 
Kristín Inga Þormar hefur nýlega gert þessu ágæt skil - en eins og allir vita stendur hún vaktina af hetjulund. Eins og við höfum bent á, kemur þessi kynferðislegi heilaþvottur frá SÞ, Unesco, Unicef og WHO: kommúnistastofnunum sem ætla sér að koma á alræðisríki öfga-vinstri um alla jörð með áróðri og meinfýsni (Wickedness). Sjá hér:
Kynþvottur er dulin barnagirnd (Pedophilia) og ódulið barnaníð (Child abuse). Stjórnmálin og fjölmiðlarnir neita að ræða þetta, eins og svo margt annað.  Við gætum rætt hversu margt af þessu fólki sjálfkennir sig (Self Identifies) sem vini Jeffrey Epstein og besta vinar hans Bill Gates.
 
Kannski eru einkaþotur þessa hyskis notaðar í sama tilgangi og Lolita Express var notuð ... kannski þess vegna sem Elítan hérlendis neitar að uppfræða fólk um þá spillingu sem hér er ýjað að.
 
Enn er ekki farið að ræða að á síðustu fimm árum hefur öfga-vinstrið flutt inn 40 þúsund nýja Íslendinga; 80 prósent þeirra karlmenn á herþjónustu aldri, sem enginn veit neitt um, veitt þeim vegabréf, frítt húsnæði og framfærslu. Er þetta ekki hæft umræðuefni?
 
Nei.
 
Menning okkar er dáin, siðmenning okkar er hrunin, tungumál okkar er orðið merkingarlaust; en þú ert ekki flúinn því þú heldur ennþá að þetta reddist.
 
Ábending: súperhórurnar* sem nú stjórna landinu voru að bjóða stjórnendum Evrópuráðsins og Evrópuþingsins hingað til lands, ekki því við séum í Evrópubandalaginu, heldur til að sýna þeim að Elítan okkar sé gjaldgeng í klúbbinn, og geti reist hér stofnanir til að þjóna Brussel.
 
Sama Elíta er að fjármagna og hvetja til gjöreyðingarstríðs í Úkraínu: lands sem hefur bannað stjórnarandstöðuflokka og nú síðast blásið af frjálsar kosningar til verndar lýgræðinu; lands sem opinberlega styður við að notuð séu kjarnorkuvopn. Nú á dögunum sprengdi Rússneskt flugskeyti upp skotfærabirgðir sem NATÓ á í Úkrainu og í kjölfarið dreifðist geislavirkt ryk út um allar trissur.
 
Elítan er nú að hraða Bókun 35, sem gerir Ísland að héraði innan ESB og er viðeigandi að það er gert á sama tíma og nýlenduherrum Brussel er boðið í kaffi í Hörpunni sem byggð var fyrir Rússneska penínga en kommúnistar landsins eigna sér heiðurinn af!
 
Við höfum reglulega skilgreint landráð hér í spennulosun.
 
Stjórnendur okkar sem uppnefna sig Leiðtoga, eru glæpahyski. Fólk sem á síðustu þrem árum rústaði menningu okkar, siðmenningu okkar og tók þátt í stærsta fjöldamorði allra tíma.
 
Þetta reddast ekki.
 
Eignir þínar sem þú heldur að þú eigir; þú greiðir 12 til 15 falt gjald fyrir þær. Þú getur ekki lengur treyst á nein af kerfum okkar - og 60 prósent allrar þinnar veltu fer til öfga-ríkisins og rányrkju elítunnar.
 
Það eina sem þú og börn þín getið gert í dag er að flýja í alþjóðlegar flóttamannabúðir eða til lands sem styður borgararéttindi frekar en mannréttindi. Þetta er eina gilda umræðuefnið í dag og þeir sem iðka þá umræðu er fólk sem iðkar Bæn, Iðrun, Vitnisburð og Fyrirgefningu.
 

Góðar stundir
 
... spennulosun lokið.
 
 
344001379_742684797498900_100454650332565633_n
 
347429295_161935890146720_3025756207085932173_n
 
 
* Orðið súperhórur er í engu ætlað til að óvirða blíðusala. Ég minni á að ég krefst þess að hræsnara-ríkið og öfga-sósíalisminn hætti að ofsækja og vanvirða heiðarlegar hórur og vændiskonur og veiti þeim sömu mannréttindi og starfsöryggi og öðrum hópum samfélagsins. Hórur eiga að geta verslað í matinn af sömu reisn og við hin. Súperhóra eru embættisfólk, fjölmiðlafólk og stjórnmálafólk sem lýgur og prettar og svíkur, til að komast í stöður og súpupotta spillingar og siðrofs; glæpahyski.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband