Þrjú djúp myndskeið um Westphalískan veruleika fyrir lengst komna

Margt af því sem ég skrifa og tala um er ekki alltaf augljóst, enda byggt á grúski sem sumir telja djúpt, en er ekki djúpt heldur fyrst og fremst óþekkt því Elítan kennir þér ekki hvað skjalavald er eða hvað menning er eða hvað siðmenning er, enda heldur hún á valdasprotanum.

Hér skeyti ég inn þrennum myndskeiðum sem útskýra þokkalega vel hvernig Alþjóða mafíurnar eru að leggja niður Westphalískan veruleika síðustu fjögurra alda, eins og enginn sé morgundagurinn; og um leið kippa teppinu undan öllu fólki alls staðar, og leirmennin halda að séu samsæriskenningar.

Reggie Littlejohn í samræðum við Steve Bannon, í dag:

 

Myndskeiðið er klippa úr lengri þætti:

 

Ef þú höndlar framangreint efni, þá bjóðast tvær dýpri ræmur til að fara í gegnum snilldar-samtal Catherine Austin Fitts við Karel van Wolferen, fyrsti þáttur:

 

 

Þá er annar þáttur, sem finnst enn sem komið er aðeins á solari.com (en þriðji þáttur er væntanlegur):

Það er hægt að niðurhala hljóðútgáfum viðtala C. og K. en, þetta er efni sem þú nærð ekki til fulls fyrr en við aðra eða þriðju runu, enda hreint hugarkonfekt.

Siðmenning okkar er sannanlega hrunin, um allan heim. Meirihluti fólks er ófært um að sjá það og skilja, Antivistar sjá það en skilja það ekki. Líklega er innan við fimm prósent fólks sem skilur þetta, hvað þá að geta útskýrt það.

Sértu í fimm prósenta hópnum, ertu ekki klárari eða blessaðri en hinir, því þú sérð hryllinginn fyrir það sem hann er. Hugsanlega er þægilegra að vera í Leirmennahópnum, því kannski er betra að vita ekki að Hindenburg sé að hrapa eða Titanic að sökkva.

Veideggi.

Jú, ég vil vita.

Ég skrifaði eina færslu á FB í morgun, sem ég læt fljóta hérna með.

"

Ef við myndum öll biðja fyrir heimsmorðingjunum - jafn ógeðfellt og það er - þá tærast þeir upp og missa flugið, því svört sál þeirra þrífst ekki ef þeim er sendur kærleikur.
Annað; slíkt styrkir þann sem biður, svo hann verður nærri fullbrynjaður. Ég treysti mér þó ekki enn til svo þroskaðra hluta.

"

 

Í lokin, léttmeti frá Mike Adams og Dr. Francis Boyle, um ólögmæta yfirtöku WHO á öllum þjóðríkjum, sem var frestað í vor en er enn í fullum gangi.

Þetta er allt saman alvöru, og ef þú ert að bíða eftir að það reddist, eða fokkast í ferðalög til "Tene" áttu afleiðingarnar af sinnuleysinu skilið.

 

 

Níu ára gömul upptaka um Þjóðveldið og tengd mál:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband