Af fréttum og upplýsingaóreiðu sem gætu verið falsfréttir

Hryðjuverkaárás í Rússlandi er "hryðjuverkaárás" en fullyrðingar löggunnar hérlendis um ætlaðar pælingar um "hryðjuverk" eru hryðjuverk. Merkingarlaust túngumál; hrunin siðmenning. Hver einasta "frétt" sem er framboðin, þarf nú að sanna að hún sé ekki útúrsnúningur, misvísun (Diversion) eða upplýsingaóreiða, jafnvel (hugsanleg) falsfrétt.

 

 

Á sama tíma eru birtar myndir af ætluðum biðröðum "karlmanna" að flýja Rússland, en engin sönnun þess áróðurs er framborin, enda stórhættuleg upplýsingaóreiða, því milljónir borgara á "vesturlöndum" Nató og Esb eygir Rússland sem vænlegan stað til að flýja til.

Myndirnar af flótta mannanna, eru myndir frá því í ágúst [2021 eða 2022]!

Rússar eiga stöðugan gjaldmiðil, næga orku, sanngjarna löggjöf um bifreiðar, nægan mat, heilbrigða menningu, og siðmenningu sem almennt er borin virðing fyrir. Rétt eða rangt? Það fer eftir því hvaða fréttapressu þú velur að trúa í blindni.

Gladíó-Ísland heldur áfram, fyrir Gáfnaljós sem ekkert skilja nema það komi fyrst fram í Kastljósi; nú er það sprengjusveitin í kjölfar "ætlaðra hryðjuverka áætlana."

FLÝÐU.

LIFÐU.

Þjóðarmorðingjar síðustu þrjátíu mánaða hafa ekki mætt neinni orðræðu sem svo mikið sem hróflar við þeim. Siðleysi elítunnar er ódulið og siðblinda almennings skelfileg. Ekkert er á leiðinni að laga ástandið (the state).

Þú getur engu treyst lengur, og ef þú heldur að þú eigir húsið þitt eða bílinn þinn, minni ég á að þú átt hvorki í þér lúngun sem eru nú með hættulegar trefjar úr grímunum né blóðið sem sýður og kraumar af óþekktum tilraunaefnum.

Þú átt ekkert, en ef þú ert ekki kominn á flótta eða hefur ekki skipulagt hvernig þú getur flúið á fimmtán mínútum, ertu hamingjusamur. Sem er nákvæmlega það sem Davos lagði upp með. Þú verður örmerktur, fyrr en þig grunar.

Í alvöru talað! Nú er vinstri-öfga fólkið sem hefur yfirtekið stjórnkerfi og akademíu okkar vestræna heims önnum kafin að skilgreina alla sem hryðjuverkafólk eða hægri-öfga fólk sem dirfist að ræða raunsæi og menningu! Húmanismi vesturlanda, með lýðræðið, gegnsæið, samræðuna, vísindin, og allt góða stöffið, eru orðin að verra sovéti en Sovétið; og að benda á það er samsæriskenning, eða það sem er enn verra, villutrú og galdrar.

Ég útskýrði í þaula, fyrir tæpu ári síðan, hvernig hægt er að reisa lagalegar flóttamannabúðir. Ekki einn Antivisti nennti að kynna sér málið eða fleyta því áfram. Það er engin hugsun lengur, því það er engin menning lengur.

Næstu kosníngar munu ekki laga þetta ástand. Einungis hugarfarslegur, sálarlegur, og ef nauðsyn krefur fýsiskur, flótti getur skilað þér til mannvirðingar og réttlætis (Deliver to dignity and justice).

Gandhi kenndi þetta fyrir réttum hundrað árum í átökum sínum við Breska heimsveldið. Þegar Bretar bönnuðu mótmæli, vegna umdeildrar lagasetningar, og stjórnarandstaðan undirbjó fjöldamótmæli um allt land, sem vitað var að Breski herinn var tilbúinn til að mæta af hörku; sagði karlinn, notið daginn til bænahalds og föstu. Fólk tók mark á honum, og allt stjórn- og þjónustukerfi landsins (sem er hálf heimsálfa og hundruðir milljóna manns) stöðvaðist þann daginn.

Þú beitir því sem þeir eiga ekki von á. Þegar þriðjungur borgara á Vesturlöndum, sem skilja hvað hefur gerst frá og með 11. mars 2020, flýja borgina (og þjóðríkið) þá tekur nágranninn eftir því, elítan einnig. Þetta er besta tólið til að minna elítu og almúgastjarfann á að sumt sem er gert löglegt, er siðlaust og rangsnúið.

Síðan Covidríkin risu, hafa aðeins tveir menn útskýrt þetta. Báðir þrautlærðir Eingyðismenn. Annar þeirra dó 30. júní síðastliðinn, hinn lá sama mánuð bjargarlaus á spítala. Það eru gerðar árásir á raddir í eyðimörk, jafnvel þó enginn skilji orð af einfaldleika þeirra.

Það er alvöru stríð í gangi, Úkró er bara smá rifrildi í samanburði. Sjáir þú það ekki, ertu í hinu liðinu.

Flýðu.

Lifðu.

Fyrst í huganum, síðan sálinni, ræddu það opinskátt og útskýrðu það óþreytandi; og loks flýrðu ef þess þarf. Umfram allt, notaðu hvert tækifæri til að óhlýðnast en með þeirri virðingu sem þú vilt endurgoldna. Yfirvegun frekar en óráð.

Forðastu eins og heitan eldinn, Antivistana sem eru stýrða andstaðan sem fær þig til að eyða 30 mánuðum í rúnk og að bíða eftir lausn sem aldrei kemur. Með bæn, iðrun, vitnisburði og fyrirgefningu virkjarðu sköpunarmátt huga og sálar, og þú finnur flóttaleiðina fyrr en þig grunar, því þú hleypir Skaparanum sjálfum að vitund þinni til leiðsagnar og blessunar.

Þú verður þar með óskráður meðlimur í órekjanlegu leynifélagi, sem er leitt áfram af mesta hugsanlega krafti; sem sjálfur er ómælanlegur því ekkert mælitæki fær staðist snertinguna.

Er þetta flókið?

Ef svo, þá nýturðu ekki náðar raunsæis.

Síðan 11. mars 2020, ertu annaðhvort á bandi Skaparans eða þeirra sem ætla sér að ryðja honum úr vegi. Það er ekkert annað sem vegur á vogarskálum samtímans. Öll merkjafræði og táknfræði síðust 60 alda eru úreltar, það er engin menning lengur eða siðmenning og málið er að gufa upp.

Þú veist ekki einu sinni hver frumspekileg afmörkun hugtaksins Merking er.

Veruleikinn er allur að riðlast.

Tókstu eftir fréttunum um fall pundsins? Hefurðu fylgst með kröggum Evrunnar og Dollarans? Hefurðu fylgst með óstöðvandi falli verðbréfa á Veggstræti í Nýju Jórvík? Heldurðu að það reddist þann 1sta apríl?

Áttarðu þig á að framfærslukostnaður þinn hefur aukist um fjörutíu prósent á síðust 30 mánuðum, og það eru fyrirhugaðar frekari innheimtur af hálfu Ríkisins sem eru ekkert annað en fjárkúgun. Tja, það reddast nottla.

Tökum einn snúning á upplýsingaóreiðu og falsfréttum - en eins og þú veist er Alþýðulýðveldið með lög um slíkt, eða var að undirbúa slíkt í fyrra.

Þér hefur verið sagt að Pútler sé að hóta kjarnorkustríði. Staðreyndin er sú að hann hefur aldrei gert það. þeir einu sem hafa hótað kjarnorkustríði, og það í heilt ár eða frá því áður en Úkró átökin hófust, eru brjálæðingarnir sem nú stýra Vesturlöndum með hörku, lygum, ofbeldi, og þjóðarmorðum. Það eina sem Pútler og Lavrov hafa sagt um þessi mál, er þegar þeir eru spurðir beint um þau, að þeir benda á a) að þeir hafi allskyns nýmóðins vopn (eða úrræði) til að bregðast við ef tilveru Rússlands sé ógnað og b) áminning um að ströng lög gilda í Rússlandi um beitingu gjöreyðingarvopna. Allir sem eitthvað hafa fylgst með síðustu tvo áratugina vita að P. og L. fara aldrei út fyrir lög. Okkar fólk hins vegar rangsnýr lögum eins og óhreinum nærbuxum. Þess vegna ber fólk virðingu fyrir Kremlarherrum, bæði elítur utan við Nató blokkina og eins fjöldi vestrænna borgara sem daglega grúska í hvernig þeir geti flúið til Rússlands. Þetta eru staðreyndir.

Hefur Rúv eða Stöð 2 nokkurn tímann útskýrt fyrir þér hvaða ofbeldi Kola og Stálbandalagið sem nú hagar sér eins og Evrópska sambandsríkið, beitir Póllandi og Ungverjalandi eða hótaði Ítalíu fyrir fáeinum dögum? Hefurðu rýnt siðleysið - og glæpina - sem Úrsúla og félagar hennar í Evrópuráðinu eru sek um síðustu þrjú árin?

 


mbl.is Pútín fordæmir „hryðjuverkaárás“ í skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband