Stutt vár hugleiðing

"Öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta segir þarlend stjórnvöld bregðast við af hörku detti Rússum til hugar að beita kjarnorkuvopnum til að verja landsvæði sem þeir álíta að tilheyri sér." --RÚV
 
Ó, já, hrunið túngumál, engin merking ...
 
 
 
 
Láttu þetta meyrna aðeins þá sérðu eftirfarandi: Ef Rússar missa vitið og sprengja, þá ætla Bandaríkin að sprengja, og daginn eftir verður enginn jarðarbúi á lífi, því allir sprengja og geislavirkni ræður för.
 
Það er ekkert vit í neinu af því sem stjórnvöld hafa lýst yfir (hvarvetna) undanfarinn 31 mánuð, né heldur neinu því sem almenningur hefur sætt sig við. Málið er merking okkar - logos - og greinir Manneskju frá Mannveru (apa). Þegar merking þess ruglast, samtímis því að við tökum okkur guð[s/a]vald (babelsturninn), erum við dáin þó við drögum andann.
 
Sumsé Pútín og Bæden ráða því hvort þú heldur jól í vetur, en Tedros og Bill Gates ráða því hvort þú hafir hreint blóð eða ekki, sért örmerktur eða ekki eða megir ferðast án leyfis. Mannkynið allt, átta þúsund milljón manns hefur samþykkt að láta breyta sér þannig í áttaþúsund leirmenn í fjalli; eins og spáð var 2015.
 
Hvort viltu kjarnorkusprengju sem drepur þig á sekúndum, eða Eitursprautu sem drepur þig á 2 til 6 árum (en geldir þig) eða CO2 aðgerðir sem drepa getu þína til að lifa eðlilegu lífi?
Til hamingju með sósíalískan marxisma, sem þú veist ekki einu sinni hvað er.
 
Sumir trúa því að kosning hægri flokka á Ítalíu, barátta MAGA flokksins í Ameríku eða miðjuflokka í Svíþjóð, muni endurreisa siðmenningu og endurlífga menningu. Svo er ekki.
 
Nánari útskýring óþörf fyrir apahjörð sem heldur að orðalistinn í hausnum á sér sé merkingarloforð. Frumspekileg merking málsins er að gufa hratt upp þessa dagana, þú sérð sjaldan mistrið sem læðist í morgninum rétt áður en þú vaknar, þú sérð aðeins döggina í grasinu, en þú tekur sjaldan eftir þegar hún er horfin.
 
Þú getur ekki skilið þá heimspeki (sem er móðir vísindanna) að frumspekin er efninu æðri, því þú tilbiður efnið, valdið og félagið, eiturtennurnar þrjár sem spámenn Guðs (Daníel, Jóhannes og þúveist) hafa útskýrt, sem Grikkir nefndu Cerberus, villta hundinn með höfuðin þrjú. Þú hefur leyft vísindum kommúnista telja þér trú um að heimspekin sé deild í akademíu þeirra; enginn skilur þennan snúning.
 
Það er hvergi neinn skilningur lengur.
 
Heimsendi lauk fyrir fjörutíuogsjö árum, síðan fengum við tækifæri. Við höfnuðum tækifærinu. Refsingin er sú að uppskera af eigin sáningu. Við erum gagnslaus, við höfum snúist gegn Skaparanum, við erum án blessunar og njótum ekki náðar raunsæis. Þetta á við mig jafnt og þig, jafnvel einnig þá sem halda að þeir séu góðir vegna þess að þeir fatti einhverja sannleika um einhverjar lygar.
 
Því erum við nú föst í rökréttri efnishyggju, óheftri valdhyggju, og æðisgenginni félagshyggju, eins og í rússíbana fram af hengiflugi, nema hvað hengiflugið færist undan; því allt er reynt til að fá þig til að iðrast, biðja, vitna og fyrirgefa, svo þú lifir, svo þú finnir náð raunsæis; fyrir þig.
 
Einhverra hluta vegna ertu verðmætari en ég fæ vegið.
 
Ég skil ekki slíkt umburðarlyndi, en ég er illur eins og þú, svo hvað vitum við annað en þykjustuleik þeirra sem geta ekki viðurkennt þá staðreynd um sjálfa sig heldur uppdikta í staðinn darraðarleik[i] til að sannfæra sig um eigin ágæti, því við getum ekki horfst í augu við sjálf okkur.
 
Þegar borgarastríð föllnu englanna hófst veturinn 2013/14, missti mannkynið (sem allt tilbiður píramída kerfi þeirra á einn eða annan hátt) þá andlegu leiðsögn sem hefur gefið mannkyni stefnu í (nú) 5783 ár. Sjö heimssýnir innsta hrings Samaels, rugla þig í ríminu, flest fólk ræður ekki við nema eina heimsmynd, hvað þá heimssýn.
 
Að sjá sjö heimssýnir í þríliðu, það er tuttugogein heimsmynd, hvað þá að skilja hvað átt er við, er öllu fólki ofviða, sem ekki hefur þjálfað frumspeki sína og tamið sér agaða hlutbundna hugsun. Kannski fattarðu að eitthvað mikið er að, fyrst Covid heimsveldið og nú Þriðja heimsstyrjöldin.
 
Mistrið, döggin, manstu. Þú sérð ekki fjölærið nema hlusta á nið aldanna.
 
Ég veit hvað er að gerast, hef lýst því í mörg ár; en ég skil það ekki frekar en þú. Ég veit þó að það sem er að gerast er ekki eyðing mannkyns, heldur uppgjör á tæplega sex þúsund ára farvegi hugarmengis sem alheimurinn hefur nú fullreynt.
 
Hvað sálin þin, og sálin mín vegur í því mengi, léttar en léttasta fjöður, sértu í efnishyggju, valdhyggju, og félagshyggju. Sem vægir (Torque) mesta massa alheimsins, sjáir þú raunsæi, sértu þiggjandi náðar Skaparans. Því ég sagði rangt hér framar, þú hefur aldrei raunsæi, þú nýtur þess.
 
 
Smá farsi í lokin, þó í samhengi - það sem margir erlendis uppnefna Clownworld:
Rúv og Stöð2 hafa vafalaust sagt þér að Evrópska Sambandsríkið, bannaði forseta Kýpur að eiga fund með Lavrov utanríkisráðherra Rússlands.
Merking er gufuð upp, ekkert skiptir lengur neinu máli. Þú ert að upplifa að bölvætturinn sem reis þegar þú blóðfórnaðir börnunum þínum, tekur engum rökræðum né blórum.
 
Viðbót:
Ef þér tekst að "vekja" fólk um að covid er spuni byggður á flensu og sprautan er eiturhernaður byggður á annarri lýgi, hvað þá? Hvað með Atrazine og Glyphosate? Hvað með CO2 vitleysuna? Hvað með menntun vs innprentun? Hvað með réttlátt dómsvald; hvað með lögmæt lög? Nei, það er best að allt hrynji og að hver einstaklingur, mannverur og manneskjur, neyðist til að axla ábyrgð á vandanum Siðrof og Sinnuleysi.
 
Manstu enska orðið fyrir Siðrof? Veistu hvað tíund merkir?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband