Það sem vantar um málaferli Moderna gegn Pfizer-Bi­oNTech

Hver fann upp mRNA tæknina og hvenær rann einkaleyfið hans út og hvað segir hann um notkun allra Covid stungulyfjanna sem sósíalistavísindin uppnefna bóluefni?

Hann heitir Dr. Robert Malone, er einn reyndasti lífeðlisfræðingur heimsins í dag og hefur starfað árum saman við ráðgjöf á sviði lífeðlisfræði bæði til ríkja og stórfyrirtækja og hann varar fólk stranglega við því að dæla þessu genaglundri í skrokkinn á sér.

Sérstaklega varar hann við að þessu eitri sé sprautað í börn og unglinga. Hvers vegna skyldi það nú vera? Varla er hann kenningasmiður (conspiracy theorist)? Ef það er ekkert að marka það sem gaurinn segir, hvers vegna er þá ríkið að sprauta uppfindingu hans í skrokkinnn á þér?

Nei, það má ekki minnast á þetta í kommúnistafjölmiðlum.

Málaferli Moderna og Pfizer-BioNTech eru svipuð og tvær útrýmingarbúðir Nasista sláist um hvor sé betri. Eða þá hvort sé betra að vera drepinn af  Fasistanum Hitler eða Marxistanum Stalín, eða þá Kommúnistanum Maó?

Ó, allir voru sósíalistar! Eins og okkar eigin lygaelíta, jafnaðar aðallinn.

Nýjustu fréttir frá Bandaríska Alþýðulýðveldinu, er að Alþýðuflokksmenn þar vestra undirbúa að kenna Donald Trump um skaðann af genaglundrinu sem vestrænir kínakommar kalla bóluefni. Tucker Carlson fjallar um málið í gær:

 

Pólitískar ofsóknir Alþýðuflokksins í Bandaríkjunum, gegn stjórnmálafólki í Lýðveldisflokknum, herðast í kjölfarið á pólitískri innrás FBÆ á heimili fyrrverandi forseta síns. Nú er ráðist á Marjorie Taylor Greene, en margir búast við því að hún verði næsti forseti öldungadeildarþingsins. Nánar um þetta hjá Steve Bannon:

Manstu eftir General Flynn eða Roger Stone eða Alex Jones eða Steve Bannon, sem allir hafa verið dregnir fyrir sýndarréttarhöld amerískra kínakomma? Hvað með hundruði fólks sem hafa verið í gæsluvarðhaldi án dóms og laga síðan 6. janúar 2021? Eða fólk á borð við Dr. Simone Gold sem dæmd var í tveggja mánaða fangelsi fyrir að vera stödd á röngum stað á röngum tíma til að  halda stutta ræðu sem hún var boðuð til?

Þegar þessir þættir eru ræddir við meginstraums sprautufíkla, er viðkvæðið annaðhvort mér líkar ekki við trömp eða þá líklega eru þetta falsfréttir.

Vestræna Alþýðulýðveldis mafían hefur lagt niður siðmenningu þína, það heppnaðist vegna þess að menning þín, eða raunsæi, gufaði upp 2019. Allar ritningar Eingyðistrúarinnar útskýra vandlega hvers vegna slíkt gerist og hvað kemur í kjölfarið á slíku.

Guð sendi aðvörun í tæka tíð.

Þú tókst ekki mark á því, vegna sinnuleysis og hroka.

 

 

Viðbót (á ensku) í boði Dr. Naomi Wolf, sisona ef þú efast ennþá um að Kínverski Kommúnistaflokkurinn á útsendara á vesturlöndum sem hika ekki við að fremja þjóðarmorð og leggja niður siðmenningu:

"We were told that Pfizer/BioNTech is a German company. But it is actually a German-Chinese company. Since I first found that Pfizer/BioNTech had an MOU with Fosun Pharmaceuticals, a major CCP-linked pharmaceutical company based in Shanghai, to make the Pfizer/BioNTech MRNA vaccines, I knew that with a bit more digging I would find China at the heart of these acts of war."


mbl.is Moderna í mál við Pfizer vegna Covid-19 bóluefnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Svona ættu fleiri að vera. Þora að hlusta á samvizkuna, rökhyggjuna ekki bara RÚV og það allt.

Ingólfur Sigurðsson, 26.8.2022 kl. 23:15

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt!

Helga Kristjánsdóttir, 30.8.2022 kl. 02:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband