Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 3. september 2024
Hverjum er ekki sama um einfalda merkingarfræði
Þegar rætt er um ríkið er ekki rætt um Ríkið, því annað er almáttugt og allsstaðar - eða bara frumspekilegt hugtak - en hitt er eitthvað tiltekið. Nú vill þannig til að svarmur af pólitískum - sósíalískum - engisprettum hefur étið upp menninguna og telur sjálfa sig goðumlíka.
Þú getur kommentað, en Antivistar dáleiddu þig, svo þú þér hugkvæmist ekki lærdómur aldanna, eða frumspekileg dýpt menningarinnar; þú getur ekki hugsað "hvað með flótta."
Vegna þess að græska hugsunar þinnar er uppétin, af ríkinu.
Samanber tengda frétt: "... salan á helmingi hlutabréfa af þeim 43% sem ríkið á í Íslandsbanka ..." {4+3=7}
Þýddu hugtakið "occupied" (valdnuminn) á Íslensku.
Vill selja fyrri skammtinn fyrir áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. september 2024
Ósjálfstæðiflokkurinn* lengi lifi
Dáldið merkilegt eftir allt sem gengið hefur á síðan 2017, að til eru tvífætlingar "sem vilja bjarga Sjálfstæðisflokknum" og ennfremur halda sumir þeirra að það sé hægt að lífga rotnandi skrokkinn við.
Sem sýnir að enginn þeirra veit hver Jón Þorláksson var. Enda yðar einlægur, síðasti Íhaldsmaður landsins. Svipað og með kristna zíonista! Þú getur ekki verið hvorutveggja, og heldur ekki bæði Frjálslyndur [kommúnisti] (Neocon) og Menningaríhald.
Tónlist dagsins, jafn illa sungin og hún er, fær tíu fyrir viðleitni*, í anda færslunnar, sem er eins og nútímakerfið, þú færð tíu fyrir að mæta [í félagslegan útjöfnuð] og þegja.
* Ósjálfstæði-flokkurinn er stundum nefndur Sjálfstæði Kommúnista flokkurinn, en í slangri óvandaðra, Sjálfstæðisflokkurinn.
* Sárabætur fyrir tónlistarunnendur:
https://www.youtube.com/watch?v=Uw9IWjUdY_Q
Viðbót 11:59
Ha, er sjálfstæðisflokkurinn orðinn vók kommúnistaflokkur?
Hvað næst, Unisex sturtur á sundstöðum! Öh, já: "Í byltingakenndri reglugerð ráðherra Sjálfstæðisflokksins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem tók gildi fyrr í sumar er kveðið á um innleiðingu kynlausra klósetta" ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. september 2024
Óheft valdstjórn, valdasjúkra og sandur verður saur
Loksins loksins á Íslandi: hægt að sekta þig fyrir að tefja fyrir öðrum, og þó það krefjist allsherjar vöktun, þá er það ást en ekki eftirlit.
Velkomin í Kínverska "Sósíal Credit Score" kerfið. Eintóm hamingja, útópía fullsprautaðra, hugstolinna tvífætlinga með félagslega* samræmt útskiftar- eða greindar-próf.
Félagið passar þig, Valdstjórnin vaktar þig, og [yfirborðs]Efnið er fínpússað.
Elska skaltu Ríkisstjórnina, svo hún hirði ekki afganginn!
Cerberus sýnir vígtennurnar ...
* Sósíalískt (þýð. fyrir iq < 111)
Munu ekki fylgjast með ferðum borgaranna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 31. ágúst 2024
Velkominn til Heljar
Þú mátt kommenta, en hugur þinn er svo dofinn að þú getur ekki hugsað "flótti". Manstu þegar allir flokkar settu grímu á trýnið á þér og allir voru happý? Hvernig er það gert? Jú, rétt giskað; hugur slökkt.
Veistu hvað elítan* á við þegar hún ætlar að leiða þig allt til endaloka?
---
---
Þú getur ekki horfst í augu við hvað þú ert, hvar þú ert, og því ekki séð veruleikann, aðeins fantasíuna sem Medúsa töfrar handa þér. Þetta er brennandi runninn hans Móse, sem svaraði honum; "ég er veruleikinn (ég er það/sá sem er), ég hef heyrt ákall minna um réttlæti og útleiðingu til mannvirðingar (deliverance to dignity), og ég sendi þig að sækja mína."
---
Smávegis gotterý fyrir, "hugur kveikt" hlutann (en):
All "trinitarian" constructs, allude to one of the greatest conspiracies of the past 6000 years. The Nephilim and their Cherobim fathers/mothers, and the "conspiracy" - agreed pure spirit - between them; to a) erase humans, b) erase Seraphims and c) defeat or vanquish Lightangels (plasma weapons), and hence "prove" to "the universal all-father" that they are "the fittest" and should inherit the solar system. All myth of all times, can easily be decoded with this template. And your gullible foolish energy is hypnotized to energize it. Tell this to the Antivists and try to "wake them up." You want a hint? The "jesus" that Christians "worship like a god" is a nephilim, and that has nothing to do with Jesus son of Mary, and the "holy spirit" of the Christians, is not what you think it is.
Mæli með Dr. J. P. Farrell konfekti, frá í fyrra, fyrir þá sem fatta nauðsyn þess að sprengja alla Píramída með kjarnorkusprengjum og eyða þeim. Daniel hjá Dark Journalist er einn af fáum sem fattar hversu vandaður rannsakandi Dr. Farrell er.
- https://www.youtube.com/watch?v=aEMYCriJj8A
- https://www.youtube.com/watch?v=rehqIebmMZE
- Living (sentient) plasma ... Lightangels!
- Trapping Lightangels in Uranus ...! {17 hour gush (the covid drill)}
Að lokum; elska skaltu elítuna eins og sjálfan þig, svo hún rífi ekki restina af þér.
* Ég minni leirmenni á að já, elítan "okkar" er sneið af Elítunni, reynið að útskýra það fyrir bergmálsstyttum.
Hyggst leiða ríkisstjórnina til enda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. ágúst 2024
Flett upp í frumspekilegum fellingum
Nornahár falla á bíla á Reykjanesskaganum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. ágúst 2024
-bílasamsærið-
Eins og allir vita, er Elítan (ásamt krúttlegu elítunni okkar) að undirbúa afnám bifreiða og flugferða frá Almúganum (Dirty Peasants), þetta er þó ekki einsleitt. Þegar bifreiðar komu fyrst fram, upp úr 1881 og allt fram undir 1920, var aldrei gert ráð fyrir að "almúginn" myndi nýta bíla.
Algengt var að þeir væru hand-smíðaðir af vandvirkni, hlut fyrir hlut, samsettir bíl fyrir bíl, og fokdýrir. Enginn sá neina ástæðu til annars. Gæðavörur, fyrir gæðafólk.
Ljóst var að hagræði væri að því að stærri bændur (elítubændur) hefðu aðgang að dráttarvélum, en almenningur var minntur kyrfilega á að hraðinn væri almúganum stórhættulegur, þó hann væri það ekki elítunni.
Flest fólk áttaði sig á að best væri að dást að fallegum Búgatti og Rolls Royce, mæta reglulega í ríkissprautur*, og njóta hins hóflega lífs. Svo komu tveir vondir menn til sögunnar!
Annar þeirra var fasistinn Henry Ford sem fjöldaframleiddi Ford módel T, á verði sem "almúginn" réði við, og stuttu síðar mætti nasistinn Adolf Þúveisthver og skipaði vini sínum Porsche (sem síðar hannaði besta skriðdreka allra tíma) að framleiða Almúgavagn (Volks Wagen).
Að ógleymdum verkfræðingum Japanska Keisarans, sem jafnframt því að þróa frábæra orrustuflugvél, þróuðu svo fullkomið fjórhjóladrif fyrir fólksbíla, að jeppar urðu praktískir!
Elítan missti af þeirri orrustu, allir fengu sér bíla og menningin dafnaði og viðskipti og iðnaður dafnaði, svo elítan bjó til söguna af iðnbyltingunni miklu og eignaði sér heiðurinn.
Svipað er með Douglas DC 9, eða þannig. En, ekki er öll sagan sögð.
Öfugt við rafbílavæðinguna og loftslags"vána" þurfti engan áróður, heilaþvott eða ríkisaðgerðir til að fólk fengi sér almúgavagna eða bregðu sér til Tene ...
... en elítan náði að vinda onafessu, og bráðum verður þú með örmerki góurinn minn, og rafmynt sem athugar með algrími hvort þú megir taka almenningsvagninn eða bregða þér í flugferð, þ.e. hvaða blogg þú lest og hvort þú tuldrir sveijatann yfir því.
Eh, já, snjallsímar skanna sjáaldravíkkun (Pupil dilation) og allir snjallsímar virka ÞVÍ AÐEINS að þeir séu tengdir tvennum prófílum í útlandanetþjónum elítunnar, og þó þú notir Telegram þá breytir það engu.
Var þetta flókin samsæriskenning?
Stenst hún rýni, þ.e. sagnfræðilegar staðreyndir?
* Árin 1860 til 1920 voru öll vestræn ríki að skyldusprauta Almúgann, en á þessum tíma komu fram mörg vísindarit (flest er þetta rekjanlegt á Archive.org (ennþá)) sem ekki var hægt að afneita, sem sönnuðu að Bóluefni framleiða tífalt meira af veikindum og sjúkdómum en þeim er ætlað að milda (Mitigate), og árin 1910 til 1930 féllu flest þessara stjórnvaldsríkja frá þessum glæpi gegn mannkyni, eða djöfullegu blóðfórnum og gerðu sprauturnar valkvæðar.
Sagan rímar ...
Viðbót 20240829-00:42 - - Mynd sem upphaflega átti að fylgja greininni en gleymdist við vistun. Einhver vanstilling í 5G [áhrifa]kerfi Ríkisstjórnarinnar.
Bloggar | Breytt 29.8.2024 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. ágúst 2024
Svikaframfarir og alvöru
Sem menning, ef hún á að lifna á ný, þurfum við að ræða sprautuna, og það án samvisku-raskaðrar elítu. Einn sem ég kannast við, fór í fimm sprautur og ýtti á ættingja sína í að fara í þrjár til fjórar. Nú predikar hann gegn sprautunum, eftir að skaðinn af þeim kom í ljós.
Annar sem fór í þrjár - því hann treysti áróðrinum og heilaþvættinum - segir í dag að heilsan hans hafi meir og minna verið í rúst síðan, en hann hafi alltaf verið heilsuhraustur áður.
Enginn þarf að skammast sín fyrir að hann lét blekkjast; við vorum alin upp af mörgum misflóknum þáttum, í langan tíma, til að trúa í blindni, og leidd frá því að rannsaka og grúska.
Sá þóttafulli sem iðrunarlaust stingur hausnum í sandinn, er asninn.
Níu af hverjum tíu sem ég ræði við, annaðhvort dauðsér eftir að hafa farið í sprauturnar (vegna sjálftjóns) eða vegna þess að viðkomandi fór að hugsa málið og lesa betur. Fólk vill þó ekki ræða sprautuna - því það skammast sín - en ég kann að laða þetta fram, enda ekki Antivisti.
Hrokafullt? Kannski. Sorrý.
Þannig virkar guðdómlegur vitnisburður; heilaþvottur og áróður elítunnar snýst við í höndunum á henni sjálfri og sýnir fólki hver viðbjóðurinn er.
Antivistar hafa engin áhrif á slíkt. Ljóst er að á næstu tveim kynslóðum (átta áratugum) mun fólk almennt, kynna sér hlutina betur varðandi "vísindin" og átta sig á lygafjallinu, og hefja samræður í alvöru grasrót um "hvers kyns laga- og stjórnkerfi hentar okkur almenna fólkinu best."
Enginn veit hvað kemur út úr því; þess vegna höfum við rætt í Arkívinu, að sjö sýnir hafi verið þolreyndar á sex árþúsundum í rúmlega tuttugu heimsmyndum, og nú sé áttunda sýnin framundan, eins og spáð var.
Að reyna að giska á það, núna, er tímasóun. Klárum útför dáinnar menningar fyrst.
Þannig hefur framvinda sögunnar verið í þúsundir ára, og eru hinar íhaldssömu framfarir, en ekki svikaframfarir fals-róttækra stjórnvaldssinna.
Annars er sosum ekkert að frétta.
Nema í sumar hef ég verið duglegur að gefa svartþrestinum, og það hefur virkað vel. Yfirleitt líta spörfuglarnir ekki við fuglafóðri á sumrin, þó þeir vilji það með áfergju frá hausti til vors.
Starinn er t.d. duglegur að koma hér á haustmánuðum og svartþrösturinn á vormánuðum, snjó- og auðnutittlingarnir koma um leið og snjórinn kemur og fara um leið og hann bráðnar. Það er gaman að gefa staranum, bæði glitrar fallega á fjaðrirnar og eins er gaman að fylgjast með hópfluginu þeirra.
Stöku sinnum sér maður skógarþröst og tvisvar í sumar kom hingað máríerla, eitt sinni sá ég máríerlu í grenitré, í göngu tæpan kílómetra frá húsinu, og flaug hún með mér áleiðis heim á ný. Í morgun sá ég máríerlu-ungling að leita fæðu á flötinni framan við pósthúsið, leiðrétting; á flötinni framan við Lausnargjaldspóstinn.
Mér hefur þó engan vegin tekist að fá krumma í mat!
Svartþrösturinn er feimnari, en það er sérstaklega gaman að honum þegar stálpað ungviðið er að fljúga fyrstu dagana, en í vor fann ég uppskriftina að því hvernig maður gefur spörfuglinum á sumrin, en það er blanda af rúsínum og hvolpafóðursmælki. Það hefur slegið í gegn.
Að tveir til þrír máfar stálust í það, var áhyggjuefni í fyrstu, en fljótt kom í ljós að svartþrösturinn er ekki hræddur við máfinn, og fékk áfram eitthvað af matnum. Máfurinn var t.d. fljótur að sópa upp hvolpasmælkinu og þrestirnir fengu rúsínurnar.
En nú er vandi!
Máfurinn fær minna í fjöruborðinu en yfir sumarið, og þó styttist í að hann fljúgi til Spánar og Marokkó, þá vill hann borða, og allt er ekki nóg! Svo nú hef ég ekki við að gefa spörfuglunum því máfarnir "mínir" þrír hafa eitthvað félagsnet; innan tveggja mínútna frá því ég fer út með matardolluna, eru komnir tíu til fimmtán í viðbót og allt er búið á næstu tveim.
Já, ég tók tímann, og ég gái í kring, og upp og í kring, hvort sjáist til þeirra. Hef ekki minnsta grun um hvernig þeir fara að þessu, nema þeir fljúgi það hátt að maður sjái það ekki, en spörfuglarnir hafa reyndar einnig vald á þessari bíókemísku tækni.
Efnishyggjufólk heldur að samskipti séu bundin við hljóð og táknmál, en við nennum ekki samræðum við styttur. Ekki hér. Spennulosun er of dýrmæt fyrir streð.
Allavega, ráð er fundið.
Fann bakarí hér í grennd sem leyfir mér að sækja fuglabrauð, sem ég nýti mér þessar vikur þar til þeir fljúga til "Tene." Því hafi maður komið greyjunum uppá að fá hjá manni bita í gogginn, þýðir víst lítið að flytja þeim faglegar elíturæður um breytt fyrirkomulag með ekkiméraðkenna útskýringum.
E.s. Minn þarf að kaupa nýja garðslöngu til að þrífa burtu máfadritið, á næstu dögum. Það er gaman að gefa greyjunum bita, en þakkirnar kannski ekki jafn gleðilegar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 25. ágúst 2024
Skemmtifærsla dagsins - 20240825
Sitjandi Ríkisstjórn starfar í umboði óbreytts borgara sem heitir Guðni. Hún hefur nákvæmlega ekkert valdumboð. Reyndar hefur ekki setið lögleg ríkisstjórn síðan 1944, en hverjum er ekki sama.
Þar fyrir utan, hefði átt að leysa alvitra Ríkisstjórnina upp í vor sem leið, þegar handhafi umboðsins vék ... fyndið.
Og annað, sástu upptalningu DV í vikunni á fjáraustri öfga-vinstrisins, í sjálft sig, meðan Grindvíkingar lifa heimilislausir á hor úr nös? Og já, fjármagnið kemur beint frá bitlinga- og tilskipanastjórn Evrópusambandsins (sem er ekki Sambandsríki (Federation))!
Nú myndi "Hæ Litli" glotta væri hann enn á lífi! Fyrst allsherjar þjóðarmorð og síðan allsherjar fasismi og loks heimsstyrjöld!
Úr aðalfrétt dagsins: " Bílastæðum í Vesturbæ Reykjavíkur kemur til með að fækka enn frekar þegar framkvæmdum lýkur ... í takt við stefnu Reykjavíkurborgar um að fækka bílastæðum í borginni. "
Dáin menning.
Eitt varðandi "kirkjugarða" en eins og þú veist væntanlega hefur "biskup" "ríkiskirkjunnar" lýst því yfir að djöfullinn sé ekki til, í trássi við að þriðjungur ævistarfs "ækonsins" hennar snérist um að sýna fram á tilvist (og áhrif) djöfla og dímona (og dísa).
Kirkjugaðar eru hugtak sem á við vígða grafreiti kristinna, séu krossar* fjarlægðir þaðan, samanber umræður sumarsins, þá eru framliðnir ekki lengur heygðir í kristnum grafreitum ... og það hefur djúpa merkingu í kristninni*. Hvar er Geir Waage í þessari umræðu, eini prestur landsins?
Hver man í dag að sjálfsmorðingjar og heiðingjar væru grafnir utan garðs?
Nú er ég ekki að réttlæta kristinn sið, enda ekki lengur kristinn - niðurdýfingar-skírðist til Eingyðistrúar í september 2014 - og hef aldrei trúað á krossmerkið sjálfur. Við höfum hins vegar áður bent á: Veistu hvað SIÐUR er?
Veistu hvaða [máttar]öfl eru á bak við þá frumspekimaskínu (Metaphysical engineering)?
Það hefði verið auðvelt fyrir djöfladýrkendur samtímans að fara fram á sína eigin "guðlausu" grafreiti, en dáin menning þekkir ekki eigin sið, skilur ekki eigin vætti; hún stendur í kviksandi, sem "ækonið" einmitt varaði við.
Innfallinn SIÐUR, kafnaðrar menningar.
Góðar stundir (eða eigðu góðan dag, skiljist hrognamálið betur).
E.S. Það hefur afleiðingar að helstu lögvitringar landsins fengu nefnda áskorun - með lagatilvísun - að stofna lögmætan stjórnlagadóm*, fyrir fáeinum misserum, og allir [vitringar landsins] létu eins og áskorunin væri ekki til.
* Kriststáknið er sett við grafreit, og moldin vígð, til að djöflar og dísir, eða dímonakynið (disembodied nephilim) komist ekki á eftir sálinni þegar hún ferðast yfir þokulandið (eða styx-lendur) til jesúbarnsins og hans slegtis. Þetta hefur merkingu, sem er dýpri en þig grunar, og vægi. Nema nottla ef allir SIÐIR séu dauðir síðan 11. mars 2020?
* Forseti hefur ekki heimild til að framselja öðrum að mynda ríkisstjórn. Alþingi hefur ekki heimild til að setja lög um forsetann eða ráðuneytin. Þá hefur Lýðveldið ekki heimild til að skattleggja eignir s.s. land, byggingar, bíla, hunda, ...! Brot á stjórnarskrá er brot gegn [laga]sáttmála viðkomandi ríkis, og því brot gegn ríkinu, og þar með landráð. Þá hefur forseti ekki heimild til að undirrita lög frá Alþingi, brjóti þau stjórnarskrá (hlutdeild í glæp, er glæpur).
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. ágúst 2024
-kennsluvaldið-
Fjölmiðlar ræða mikið "menntamálin" þessa dagana, en rifrildið snýst ekki um menntun, heldur valdabaráttu þriggja stofnana, og börnin eru aðeins fiat-gullstangirnar sem bitist er um.
Veistu hver hin merking orðsins "að kenna" er?
Úr einu í annað, en fjarskylt.
Nýlega stóð ég fjóra miðaldra karla að því að ræða saman, umræðuefnið var verð á ýmsum neytendavörum. Tvo þeirra kannast ég við, og eru "nafn" í bæjarfélaginu, ekki stórt nafn, en gegna hlutverki.
Hina tvo kannaðist ég ekki við, en í hvert sinn sem annar þeirra dró andann dýpra, hættu "nöfnin tvö" í miðjum setningum, svo mig grunaði að stærra væri undir ónöfnunum en á sýndist.
Eins og sumar vita, hefur litli knár aldrei haft minnimáttarkennd, enda trúir hann ekki á mælistikur. Auk þess verður maður fljótt þreyttur á verðmiðum á kleinum og sultu.
Þá nefndi einhver þeirra bankastefnu Ríkisguðsins, svo ég sagði mjúklega "bankamenn eru ekki fólk." Hneykslissvipurinn á frumefnunum fjórum var ódulinn! Svo ég bætti við, áður en þeir héldu að hér væri dulspeki á borð við "djöflar í mannsham" á ferðinni:
Þeir sem gera fólk heimilislaust fyrir tölur í kladda, hafa kúplað sig út úr mannlegu samfélagi, og því eru þeir ekki lengur fólk, það merkir ekki að þeir hætti að vera mann-verur!
Þessu gátu ásarnir fjórir ekki svarað, og sá ég að annar óþekktunafna tók þetta nærri sér, svo við giskum á hvar hann starfar. Ónafni hans segir þá við mig "þetta var djúpt og flókið." Með vandlætingarsvip.
Sáttur við að umræðan snérist ekki lengur um verð á rakvélarblöðum og mjólkurfernum, svaraði ég honum "þetta er nú sú hugmyndafræði sem sósíalískt nútímasamfélag byggist á."
Nú voru þeir orðstopp, svo ég hypjaði mig, áður en ég yrði mér frekar til skammar.
Svona ástand myndast þegar illa skólaðir kennarar menntakerfisins vinna ekki betri vinnu við að ala mann upp! Ég stóðst samræmduprófin, en hef ekki vit á að þegja í Góðramannahóp.
Glottið á mér, þegar ég dreif mig á braut, var þó að þeir hafa [líklega] ekki grænan grun um muninn á mann-verum mann-kyns og mann-eskjum mann-fólks!
Maður útskýrir ekki sumt fyrir vitringum Leirmenna og Bergmálsfólks.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. ágúst 2024
Í minningu dáinnar túngu
Ensk-Ameríska hugtakið "Babyshower" merkir á Íslensku Barnagóss. ... en hverjum er ekki sama þó Íslenska deyji út? Gervigreindin virkar betur á ensku.
Katrín Edda fékk óvænta barnasturtu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)