Færsluflokkur: Bloggar

Svo vitnað sé í Wednesday Addams

"Verið hrædd, verið skelfingu lostin." En á persónulegu nótunum: Ég sé ennþá grímurnar á fólkinu með atkvæðin, þessi sem voru að endurnýja valdheimild þeirra sem sprautuðu þau.

 

 


mbl.is Sjá ekki fyrir mörg ágreiningsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

-1993-

Eins og allir vita hefur Íslenska Lýðveldið 44 ekki haft sjálfstæða utanríkisstefnu síðan EFTA breyttist í EES, en það sem færri átta sig á, að samtímis þessu, árin 1991 til 1993 var Evrópu Samfélaginu (European Community, Treaty of Rome 1957), breytt í Evrópusambandið (European Union, Maastricht treaty 1992), sem gerði þjóðarleiðtoga Evrópskra aðildarríkja að álíka valdamiklum embættum og borgarstjórnir og utanríkisráðherrar sömu ríkja urðu lítið annað en alþjóðabloggarar.

Flókin efnisgrein? Já, jafn flókin og allt umræðuefnið er í höfðum Almúgajóns (Dirty Peasant, Scumma de Terra), því hann veit ekki hvað verið er að ræða um, annað en fyrirsagnir og orðagjálfur.

 

 

Í dag hagar Evrópusambandið sér eins og það sé Evrópskt-Sambandsríki (European Federation) þar sem þing þess afgreiðir pantanir Lobbýista, Evrópuráðið gerir það sem því sýnist og Evrópuframkvæmdastjórnin einnig. Svonefndir borgarar álfunnar - hálfur milljarður - veit ekki muninn á þessum stofunun: European Congress, European Commission, European Council, og hafa borgarar engin kjósendaáhrif!

Þetta tilhæfulausa sambandsríki rekur m.a. hernaðarvél (Eurocorps) í átta deildum, en hefur enga valdheimild (Mandate) til þess, og beitir þessum her án þess að þú sjáir það í fyrirsögnum.

Enda skiptir allt þetta engu máli; Úrsúla von der Leiðinleg stjórnar því sem henni sýnist, með harðri hendi. Einn foringi, Ein Evrópa, Einn Evruborgari. Hæ Litli. Bókstaflega og án gríns.

Orðið of flókið?

Sástu á dögunum ræðuna þar sem Evrópuþingmaður skammaðist yfir Lúkashenkóisma Úrsúlu og hún flissaði? Til nokkur slík m.a. með Viktor Orbán, en þú færð ekki að sjá það í mellumiðlum. Veistu hver Christine Andersen er, eini þingmaður Evrópu sem enn virðist vita hvað borgararéttindi eru?

Sé t.d. rýnd Íslensk löggjöf allan þennan tíma, þá eru Íslendingar þegar í sambandinu, því þeir flytja inn löggjöf þess nánast hráa, og EES tímabilið hefur afnumið þá litlu Ríkissmiðju sem lýðveldisfeðurnir mótuðu árin 1930 til 1944 og viðhéldu þar til kommúnistinn Davíð Oddson breytti Íslenska ríkinu í reglugerða, ofurskatta og stofnana bákn í stíl Sovétríkjanna, og eftirmenn hans Geir og Bjarni breyttu því síðan í eftirlíkingu af Austur Þýskalandi, eftir sniðmáti frá Brussel.

Enn ein flókin efnisgrein?

Engar áhyggjur, það skilur þetta enginn, öllum er sama, og þegar skrýtilíngar eru þeir einu sem benda á þetta, er málefnið öfgasamsæriskenning sem þú þarft ekki að skilja. Ísland er ekki lengur til, og aftakan var gerð í sneiðum, fíngerðum, svo dauðahryglan misskildist sem unaðarstuna.

Spáðum í apríl á þessum ári, næsti forseti "Lýgveldisins" verður sá sem leggur það niður.

Piparkökudrengurinn hóf verkið og Marsipankleinan mun klára baksturinn. Og miðað við kosningagjörninginn sem nú er afstaðinn, hvernig hann var búinn til, hvernig að honum var staðið, hvað rætt var hér og þar á meðal fólks; blóm og kransar afþakkaðir.

Sem er ágætt, því sé það sem þú áttir, einskis virði, er ágætt að taka skrautið frá þér, svo barnabörn þín geti staðið fyrir eikkað.

Ef þú ert búinn að fatta að Vesturlönd eru innfallin siðmenning, sem Jósúa Maríuson (Jesú) nefndi viðurstyggð á helgum reit, þá hefurðu undirbúið flótta. Þú gætir þurft að hypja þig hratt, og þá borgar sig ekki að hlaupa inn og sækja slektið (svo vitnað sé í Jósúa sem negldur var á staur fyrir óreiðuskoðanir).

Stýrða andstaðan er hönnuð til að halda aftur af þér.

Ef þú fattar núna kommúnista nöðruna sem læðst getur inn í alla huga og umsnúið, fattarðu hvernig 1984 breyttist í 1993 - eins og rofinn 11 þar sem fremri ásinn er plús og sá aftari mínus - eins konar tvíundarhugsun (Binary), þar sem hug er breytt í algrím útdregins bergmáls (Abstract echo); enginn hugur, engin sýn, minni skilningur.

Einföldun: plús tíu mínus einn :: ellefu ellefu - meitlun ellefta boðorðsins!

Nú veistu hvers vegna Viktor Orbán er svo hataður af Evrópskum Marxistum, svo og hvernig menntakerfi álfunnar sem þeir hafa hannað hefur fjarlægt úr þér skilninginn á alvöru hugtökum og gelt getu þína til að taka ábyrga afstöðu í menningarlegri gildistöku.

Ef þú rýnir allt ferlið, fer ekki á milli mála að allt var stýrt, eftir uppskrift, og samhæft þvert yfir alla Evrópu af aðilum sem aldrei hafa komið í viðtal, hvað þá birst á kjörseðli.

Þetta er engin samsæris-kenning (Theory), þetta er greining (Analysis), rekjanleg staðreynd.

Fattarðu núna hvers vegna Samsæraútskýrendur (Conspiracy Theorists) eru lokkaðir til að ræða Chemtrails og Flat Earth?

Þú veist að það er að koma Evrópuskattur, Stafræn skilríki á alla ásamt skyldaðri sprautuskrá! Manstu þegar ég fór til Sýslumanns að grínast? Var að sækja Evrópunafnskírteinið! Ég er kominn með öll skilríki sem þarf til að komast út úr Gettóinu, um leið og aðstæður mínar leyfa.

Góðar stundir.

 

e.s. Á persónulegu nótunum. Eins og allir vita viðheldur Jens Guð fágaðasta bloggi landsins og hefur gert frá upphafi bloggs á landinu. En hvað á maður að gera þegar það eina sem maður ræður við er flókin heimspeki og djúppæld alþjóðasaga? Þú Spennulosar þar til þú nærð sömu fágun. Helst þannig að allir haldi að þú takir allt jafn alvarlega og allir hinir sem látið hafa fjarlægja úr sér "húmorinn" með vélabrögðum sósíalismans, og sjá ekki að allt sem þeir telja sig vita er bergmál og þeirra eigin sjálfsvitund hnoðaður leir.

Það er markmið í sjálfu sér.


Opinber kímni brátt lögfest, og óopinber stöðluð

Vænta má reglugerðar um útfærslur á kímni, gríni og "húmor" ásamt leiðbeiningum varðandi persónulega og ópersónulega notkun, svo og skilgreiningar á því hvenær stjórnmálafólk, ritstjórar, og embættisfólk eru fyndin og hvenær ekki.

Til dæmis fór minn á Sýsluskrifstofuna í dag, átti erindi. Þegar opinberi starfsmaðurinn tjáði mér hvað á verðskrá er fyrir Almúgajón (Scumma de Terra) og hvað fyrir Öryrkjajón (Untouchables), sagði minn kankvíslega; ég þarf að ræða þetta við Sýslumanninn!

Það þótti ekkert fyndið.

Svo minn reyndi aftur; þú afsakar hvernig ég læt, maður fær kvíðakast í samskiptum við embættin.

Nei það getur ekki verið, svaraði opinberi starfsmaður (grá-brosandi), við erum öll mannleg hérna.

 


mbl.is „Við verðum að hafa húmor fyrir sjálfum okkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með úrelt séríslensk dýr

Eins og allir vita mistókst að rústa Íslenskunni, því danskur maður endurlífgaði hana. Einnig mistókst að útrýma Íslenska hundinum, því Breskur maður bjargaði honum. Þá rétt svo mistókst að farga Íslenskum handritum í buxnabætur því Danska Konungsríkið bjargaði þeim. {sj.t. frétt}

En það tókst að drepa Íslenska menningu - og breyta siðmenningu landsins í afstyrmi* - því þær áttu engan útlendan velgjörðamann, svo þetta hefst á endanum. Út með öll séríslensk dýrakyn, þau eru ekkert annað en óþverralegur og skítugur þjóðernis-sósíalismi og rasimi og nasismi og fornaldar rörsýn.

Lengi lifi Algrímið og útdregna (Abstract) heimsskipulagið.

Sem aftur sannar ádeilu Satans í Jobsbók Biblíunnar; að menn séu ekki tilverunnar virði. Ádeila sem sannaðist 11. mars 2020. Restin er útfararsaungur. Þess vegna Nálaraugað með lyklunum fjórum.

Sem minnir á annað.

Hitti mann í dag, sem sagði mér af aðför MAST að sér og systur sinni, því þau hafa of mörg gæludýr samkvæmt reglugerð, en vegna ákvæðis í Stjórnarskrá um einkalífið mega þau velja sjálf (og þannig samþykkja) daginn sem eftirlitsmaðurinn kemur að sækja umframdýrin til svæfingar.

... vegna Dýravelferðarlaganna sem gáfu gæludýrum borgararéttindi!

 

 

Eða mennirnir tveir sem ég hitti í bankanum í morgun, báðir trúðu þeir á Farsóttina og Sprautuna, en skildu ekkert í því að ef þú tekur út hundraðþúsund eða leggur það inn, þarftu í fyrra tilfellinu að gera grein fyrir í hvað þú ætlar að nota, og í hinu síðara hvernig þú aflaðir.

Eða þegar elítan í Hafnarfirði hafnaði því - með sviðsettum borgarafundum (gervigrasrót) - að Svissneskri drullu væri dælt í grunnvatnið þeirra, var sú verkfræði færð með kyrrþey til Reykjanesbæjar!

Hvar eru Radíusbræður þegar allar fréttir eru farsi? Ó, þeir eru báðir
á launum hjá -elítunni-
!

Séríslenska dýrið, sjáðu til, er tvífætt en hausinn ekki
skrúfaður á samkvæmt reglugerð
.

Eða fórnarlömb Hrunsins og Sprautunnar, sem voru að
endurkjósa Lúkasjenkó mafíuna sína
!

 

* Afstyrmi (Monster, Freak) er einnig Viðurstyggð (Abomination) samanber spádóm Jósúa Maríusonar.


mbl.is Framlegð gæti aukist um 3,3 milljarða á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ranghugmynd dagsins - 20241202

Fórnarlömb Hrunsins og Sprautunnar, voru að kjósa BDSM dommana sína aftur, og aftur og aftur. Einföldun? Flokkurinn sem nú er stærstur á þinginu er skipaður fólki sem bar ábyrgð á Hruninu, ráninu í kjölfarið, Farsóttar ódæðinu og sprautunni, og ráninu í kjölfarið, og rústa mun framtíð landsins þíns.

Til hamingju, Stórastamúgsefjunarland! Meiri einföldun?
 
Allir þeir sem trúðu á Covid og sprautuna, og trúa enn, vita ekkert um The Great Barrington Declarataion: https://gbdeclaration.org/. Menning Íslands er dáin, og siðmenningin féll inn í sjálfa sig (Implosion) fyrir þrem árum. Þú mátt kommenta.
 
Ef þú ert einn af þeim sem skilur þetta, þá notar þú lyklana fjóra, annars heldurðu bara áfram að hvíja með myndastyttunum.

Ranghugmynd dagsins - 20241201

Þú getur ekki borið saman lífveru sem getur fætt af sér afkvæmi og lífveru sem getur það ekki. Sú síðari nær aldrei sömu skör. Hvað þá getur þú samið jafnræðisreglu. Ef þú reynir það, rústar þú þeim kúltúr sem tvenna þessi annars myndar með sambúð sinni.

Karlar hafa aldrei stjórnað neinu, munu aldrei gera það, og þó þeir mættu það, gætu þeir það ekki því vitið til þess er ekki í krómósómum þeirra. Metrósex geta stjórnað, en þeir eru ekki karldýr. Karldýr geta þó leitt, en ekki séu þeir mengaðir.

Þetta vissi Karl Marx þegar hann samdi uppskrift að eitrinu, svo og Frankfúrt skóli postula hans sem blönduðu það. Orðræða þeirra um Kapítalisma (sem aldrei hefur verið til og Marxistar einir þrá, girnast og þykjast hata), var allan tímann ætluð til að villa þér sýn.

Þeir höfðu mun meiri áhuga á að draga fólk í dilka (Class), og vinna með tilhneigingu smámenna til að tileinka sér útdregnar (Abstract) hugmyndir og beita þeim á aðra, í formi firringar (Alienation).

Áhugaverðast í þessu, er að Marxistar lesa ekki meistarann og vita þetta ekki, enda lesa þeir aðeins útdrátt eða hlusta á predíkanir postula hans.

Ef orðræða Arkívsins er rýnd, kemur í ljós að þó færsluritari geri mörg jakahlaupin sem gera lítið úr Marxistum og frændum þeirra Fasistum, þá vita máttu að í vorum augum er Marx einn af sárafáum í mannssögunni sem sigrað hefur heiminn með orðin ein að vopni, og virðing er fyrir því borin.

Hversu stór er sá hópur, fimm, átta, manns, þrír? Gætir þú nefnt þrjá, eða fleiri, og rökstutt? Geta Leirmenni og Bergmálsfólk skilið hvað um er rætt? Veistu hvað SIÐr er, eða Logos? Veistu hvað afmarkar muninn á manndýri og manni?

Hefurðu upphugsað nytsama hugmynd, sem aldrei hefur áður verið hugsuð, og útskýrt þannig að skildist (yfirfært)?


Hversu margir hafna munu "Lýgveldinu"

Eins og allir vita hefur færsluritari meiri áhuga á því að vita hverjir hafna vélabrögðunum en hverjir myljast þar inn. Hef rýnt þetta hlutfall í öllum kosningum -elítunnar- síðan 1904 og velt við sjónarhornum.

 

 

Sérstaklega þótti áhugavert að rýna höfnunartölfræði þingkosninga Bretakonungs í vor, og birtum við hér þá tölfræði, sem sýndi allt aðra mynd á bæði hvernig kosningakerfið þar í landi virkar, svo og hver raunverulegur hugur borgara eða kjósenda er, en sú mynd sem mellumiðlar birtu.

Hið sama á við t.d. um Bandaríkin, en að að meðaltali 50 til 60 prósent Bandarískra kjósenda hafna Forsetum sínum, en það segir þó ekkert um hvernig kosið er í einstökum ríkjum (fylkjum) Sameinuðu Amerísku Ríkjanna (United States of America) - eða Sambandsins (The Union).

Mörg ríkjanna hafa mjög vakandi og spennandi innanríkisstjórnmál og í sumum þeirra eru aðskilnaðar hreyfingar (Secession movement) mjög öflugar s.s. frægt er í Texas, New Hampshire, Oregon, Kaliforníu, og víðar.

Rétt eins og við sáum í Bresku, Frönsku og Þýsku kosningunum í vor og sumar, fer fjölgandi þeim hópum kjósenda sem eru í verundarógleði* (Dysphoria) með ríkjandi valdakerfi og valdstjórnir þeirra, þó fátt sé um sýn eða heimsmyndar umræður varðandi úrlausnir eða leiðir út.

Færsluritari man ekki rétt í svip hvort það hafi komið fram hér í Spennulosun undanfarinn mánuð, að minn hefur beðið með eftirvæntingu að vita hversu margir muni hafna "Lýgveldinu" eða vélabrögðum þess í kosningunum sem fram fóru í gær. Minnir að það hafi komið fram í einhverri innstungusetningu, en meira undir rós.

Meðaltalið hérlendis, eftir því hvaða málefni eru á döfinni við hverjar kosningar, er að yfir rúma öld eru fjórðungur borgara landsins undir Valdnámi (Occupation) þeirra sem stjórna ferðinni en ýmist hafa enga rödd eða er of sundurlaus hópur til að móta slíka.

Sem er ágætt, mósaíkin hans Móse sér um sína. Gleymdi að taka það fram, í færslunni frægu um Mósaíkina - hverjum hún heitir eftir, en það var þó gefið í skyn, að Öldungaráðið sem sló eign sinni á spámanninn, ..., tja, ... þú skilur. Djúpt stöff sem væri efni í aðra djúpa, bæði menningarlega og lögspekilega.

Hitt er ljóst, að á Íslandi og í Bandaríkjum Norður Ameríku, eru aldrei erlendir kosninga-eftirlitsmenn á ferðinni, og hérlendis er kosið með blýanti og atkvæðin brennd og engin leið er að rekja hvort svindlað sé, og þau tilfelli þegar ljóst er og sannað af ábyrgum aðilum að óhreint mjöl er í kosninga úrslitunum, er venjulega sópað yfir það og því smámsaman gleymt.

Í morgun gladdist minn að sjá klukkan 11:20 að 51 % hafa hafnað núverandi Kerfi. Því það merkir að þetta margir átta sig á að þeir hafa hafnað, að þeir eru valdnumdir, að -elítan- sem allt veit og allt skilur, er hugsanlega ekki jafn heiðarleg og einlæg og hún sjálf segist vera.

Minn veit þó að enginn þessara mun grúska í Þjóðveldinu eða Exodus, hann gladdist ekki yfir því að þessi mósaíkhópur yrði neitt nær honum sjálfum. Nei, heldur hinu; auknar líkur á að menning landsins lifni aftur við og að á næstu þrem kynslóðum verði hér aftur siðmenning (en hún tók sjálfa sig af lífi í febrúar 2021) en það er óvíst að þessi 51 % sjái málin þannig, sem aftur kemur mér ekkert við.

Bíddu nú við, minn ritaði færslu á Feisið, skrapp svo út að gefa fuglunum, og hella uppá - já minn svaf frameftir - og leit svo aftur á fréttirnar, og viti menn; búið var að breyta tölum um kosningaþáttökuna ... bíddu, minn kann tölfræðilíkön.

Veistu t.d. hversu margir dóu úr sprautunum, og hversu margir dóu úr pestinni, hversu margir voru skimaðir og hversu margir skimaðra töldust smitaðir og hversu margir þeirra tóku sóttina? Spyr stundum fólk að þessu - en við ræddum tölurnar í Arkívinu, vandlega - en fólk veit þetta ekki, og í samræðum hvarflar ekki að mínum að uppfræða um það.

Oft segir þú fólki meira með því að spyrja að einhverju varðandi það sem þau halda að þau viti, og láta því ósvarað, en að predika eikkura [vöknunar] sannleika.

Tökum annan snúning. Einn fimmti [félags]þjóðarinnar höfnuðu sprautunum á sínum tíma. Þriðjungur Frakka, tveir fimmtu í Póllandi, Þýskalandi, Austurríki, Rúmeníu, og víðar. Þrír fimmtu höfnuðu sprautunni í Rússlandi. Þetta margir  áttuðu sig á því að Lyfjafræðikerfið var að ljúga að þeim, og það hefur ekkert að gera með hverja þetta fólk kýs til að semja lögin utan um líf sitt.

Þetta er einmitt málið; fólk þarf ekki að vakna með þér í einhverja Antivistahreyfingu til að hafna vélabrögðum, og svo hitt: Hver semur lögin sem þú skalt hlýða, og eftir að fyrstu heildstæðu lögin (Hammúrabí) voru samin 1750 BC, hafa verið samin mörghundruð lög á ári um allan heim, og á Vesturlöndum nokkur þúsund árlega.

Einföldun; þetta reddast, við þurfum bara nokkur hundruð lög í viðbót, og dash af reglugerðum! Einmitt það sem Leirmenni og Bergmálsfólk tilbiður, og kaus um í gær; fíngerðari vélun.

Nú er mikið rætt síðan 2009, hérlendis; á að fara í ESB eða ekki fara í ESB!

Staðreyndin er sú að þegar EFTA samdi um EES samninginn við ESB, var það selt á grundvelli þriggja loforða. Íslensk fyrirtæki mættu selja sína vöru og þjónustu á innri markaði ESB, fyrirtæki þar í hreppi mættu hið sama hérlendis (sem þau fæst nenna) og borgarar landsins gætu ferðast um ESB lönd, eða starfað þar og búið án hindrana.

Þeir sem efuðust voru þaggaðir með einföldum leir: við þurfum þennan markað svo við förum ekki á hausinn [því það er enginn annar markaður í boði fyrir okkur neins staðar í heiminum]. Bæta mætti við hér; og enginn vill sækja neitt til okkar nema við verðum mellur.

Það var aldrei sagt frá því að Ríkisþingið - sem nefnir sig Alþingi - myndi stimpla ESB lög á færibandi hingað inn, og að þá sjaldan þeim væri breytt eða um þau rætt, væru þau notuð til að íþyngja borgurum með auknu og harðara kerfi, að í rauninni höfum við verið í ESB síðan 1993!

Borgarar og/eða kjósendur landsins, hafa engan skilning á þessu og ekkert er um þetta rætt, og viti menn. Af þeim 49 % sem kusu í gær, eru aðeins 1 % sem vilja endurreisa Borgararétt sinn!

Við getum rætt þetta dýpra, s.s. hvað er Þjóð, sem margir halda að sé til en vita ekki hvernig ber að skilgreina. Látum duga, að 47 % íbúa landsins eru rekjanlega tilbiðjendur Karl Marx og postula hans, en valda ekki hugtakamenginu sem afmarkar það.

Hvað um það - frá og með þessu ári þurfum við, sem höfum gaman af að taka menningarpúlsinn, að vera vakandi fyrir hvort þáttökutölur* verði slípaðar til. Elítan* hefur vitað síðan árin 2005 til 2010 að framundan er blindhæð á farvegi mann-kyns til framtíðar og að handan við blindhæðina er blindbeygja, og hún kærir sig ekki um að almúgajón (Scumma de Terra) velti því fyrir sér. Þetta merkir að oft er óljóst hvað sé hægt að rýna, hvað sé vélun, eða hverju skolað til, og eftir því erfiðara að vara sig á snörum.

Sífellt fleiri sjá þetta, bæði að bæði mann-kyn og mann-fólk hefur búið að heimssýnar og vitundar stöðnun síðan upp úr 1975, að þetta hefur verið útskýrt af þeim okkar sem gefið hafa djúpan vitnisburð s.s. Arkívið, Buckminster Fuller, og fleiri, auk þess sem margir menningar- og samsæra rýnendur (Conspiracy Analysts) um allan heim, ásamt orðræðum þúsunda aldingja (Sages) og [menningar]öldunga* sjá þetta, svo og nær allir spádómar þekktra frumspekiritninga undanfarin 5000 ár.

Hér þarf að taka fram að fíngerð skil eru á milli menningarrýni og kverúlantisma, rétt eins og á milli samsærakenninga og samsæragreininga, hvað þá hliðvarða, hvellibjalla (Shills) og þá ekki síst hvort útskolun og útþynning sjáist s.s. hvernig Tavistock mafían og Eranos mafían hafa endurhannað bæði menningarvitund og andlega meðvitund með kerfisbundnum hætti í á aðra öld, og búið til gildrurnar fyrir fólkið sem "vaknar" og fer í grúskið sem breytir þeim í stýrðu andstöðuna.

Þetta hefur verið útskýrt vandlega í Arkívinu og eitt hið skemmtilegasta í útskolun eða útþynningu, eru þeir sem týnast í hafi ... en 2018 og 2019 var þessi síðasta vélun framin af frábærri fimi. Svo vitnað sé í Julian Fellows, "sama hvað þér dettur í hug, þau hafa rekist á það áður og þau munu sjá þig koma, úr órafjarlægð."

Tækni og líffræði þekking beggja mannhópa veraldar, í dag, er á þeim stað að okkur verður ekki hleypt áfram nema við gerum upp hvort við séum þess verð, og því miður er allt útlít fyrir að niðurstaðan verði sú neikvæða þessi misserin.

Í Arkívinu og einnig að einvherju leyti á logostal.com (óklárað) höfum við rætt grunn sýnir mannsins síðustu 5785 ár, og hvernig þeim er blandað í tuttuguogeina heimsmynd, eða útfærslur, hvað þær eiga sameiginlegt, hvað ekki, og hvernig það vegur (Torque) inn í vitnisburð þriggja helstu ritninga Eingyðistrúarinnar (Avestur, Biblía, Kóran). Hvernig þetta stóra fljót ber að einni veiga mikilli niðurstöðu, a) við vitum ekki hvað Fjallið helga er, og b) áttunda sýnin er væntanleg en enginn veit hver hún er, enda getum við ekki séð það sem enn er ekki sýnt.

Einföldun; fyrstu sjö dagar sköpunarinnar, er fyrsta vika, þú annaðhvort reynir að ríghalda í sjöunda daginn eða býrð þig undir þann áttunda. Við vorum ekki sköpuð til að verða myndastyttur í Píramídagarði útvalins eitraðs nöðruhóps í mannsham, og ólíklegt að við skiljum þetta fyrr en við verðum nokkura ára - eða unglingar - í þessum skilningi!

Allavega.

Klukkan 1300 meðan færslan var í ritun: Kjörsókn: 215.216 (80,2%)! Berðu saman hvaða áhrif á þingmannaskipan þessi þrjátíu viðbótar prósent höfðu ekki. Hvort 49 eða 20, höfnuðu, skiptir engu, en því fleiri sem hafna vélabrögðum eiturnaðra og siðlausra lygara, því líklegra að við verðum aftur menning. Það er hluti af eðli okkar að hafa elítur og hæfa/dyggðuga leiðtoga, en í dag hefur veröldin enga slíka. Ekki einn.

Ríkiskerfi er hins vegar ónáttúruleg útdregin (Abstract) hugmynd og ekkert slíkt kerfi hefur nokkru sinni reynst annað en ómerkilegt skurðgoð í drullupolli, nema nottla Guðdómlega ríkið þau 430 ár sem það var til, en þú veist ekkert um það, né hversu viðfemt það var, hvernig það varð til, hvernig það varð úreldað, né hvers vegna, og það af vélaðri snilld því þekking þess blasir við þegar þú fleygir þér á grúfu í mölina (frekar en að vera leirstytta í drullupolli).

Gamanaðessu.

 

20241201-112033--A

 

20241201-120422--A

 

20241201-120304--A

 

20241201-130246--A

 

Loks biðjum við vandaðar vændiskonur afsökunar á notkun hugtaksins mellur í færslunni. Meðan hræsnara kerfi samtímans veita ekki vændiskonum mannvirðingu, hefur enginn enga. Í engu var ætlunin að gera lítið úr blíðveitendum.

 

* Euphoria er einskonar algleymi eða vitundar-unaður, Dysphoria er andstæða þessa og við notum hér vitundarógleði eða verundarógleði (Conscious vs. Phenomen) samanber að gender dysphoria væri þá kynvitundarógleði en -elítan- notar fúskyrðin kynvandi eða kynóróði eða eitthvað slíkt.
Er ekki viss hvar við löndum þessu - verundaróró eða verundargleymi, kynórói eða kyngleymi ... (þú t.d. gleymir þér í því sem þú ert sáttur við og gefur því varla gaum ...) - algaumur, verundargaum, .... blah ... spennandi verkefni, eins og með mörg orð sem við erum ennþá með lausbeisluð.

* Af sorglegu tilefni þarf að taka fram að elítan er hluti Elítunnar, og því notum við -elítan- um þessa innlendu.

* Mér finnst ljótt að setja þrjú té í þáttöku ...

* Hugtakið Öldungur (Elder) er horfið/fjarlægt úr menningunni, en þeir eru þarna. Dylst t.d. nokkrum að JVJ var einn af öldungum Íslenskrar menningar (blessuð minning)?


Ranghugmynd dagsins - 20241129

Akademíur, fjölmiðlar og "stjórnmál" Vesturlanda, allar götur síðan á miðri átjándu öld, hafa sannfært okkur um að fjárfestinga- og hugsjóna-klúbbar í "City of London" hafi ekki fjármagnað níu af hverjum tíu stjórnarbyltingum og borgarastyrjöldum í heiminum - eða átt byltingaleiðtogana - og eftir þær endurhannað stjórnkerfin sem bylt var og síðan eignast þinglýstu þræðina.

Að halda öðru fram, sama hversu rekjanlegt það er, hlýtur því að vera samsæriskenning og þar með borgaraleg trúvilla. Enda vita allir hinn augljósa Sannleika, nema nottla Antivistarnir sem halda að YouTube hafi upplýst þá um sannleikann varðandi lýgina.

Eins og Cosimo de Medici [of the ancient Ligurian investment houses of the Roman empire] sagði við Páfann; ég hef falið gullið í allra augsýn, svo þú finnir það aldrei. Nokkrum öldum síðar fjármögnuðu þessar ættir Evrópska valda uppskurðinn 1799 til 1816, eins og allir vita.

Þetta er svipað og með Beethoven. Allir vita að enginn getur í raun spilað hann, nema Daniel Barenboim, en það er vegna þess að Yuja Wang vill frekar spila Rússnesk tónskáld en Þýsk ...

... henni finnst Beethoven of heimspekilegur og þeir Rússnesku rökréttari (Math.).

 

 

Ef þetta var allt saman of flókið, þá er hér eitthvað einfalt:

Í vissum skilningi voru Hebrear, antivistar egypska heimsveldisins, Júðar, antivistar persneska heimsveldisins, Kristnir, antivistar rómverska heimsveldisins, og bæði Marxistar og Fasistar antivistar mannkynsins.

Eða enn einfaldara:

Byltingar og stríð skipta ekki út sýslumönnum, lögreglustjórum, embættismönnum eða bankastjórum, né ættum þeirra og blóðlínum. Einungis sýnilegu brúðunum í brúnni! Í hverjum slíkum, blóðfórnagjörningi, fækkar sjálfstætt hugsandi og hugrökkum akurþrælum, og þrælahjörðin fær nýja "sögu" að kjammsa á. --Úbbs.


Milljarður á [svika]myllu, eða svo gott sem

Fyrir utan það hversu hallærislegt það er að reisa vindmyllur á Íslandi. Það hversu heimskuleg verkfræðin er á þeim [raforku]vindmyllum sem hannaðar eru. Þessi montvirki og allsherjar fuglalífs drápsvélar sem byrjað var að byggja í Ameríku og Evrópu fyrir fáeinum áratugum, eru risastór táknmynd fyrir, engin verkfræði, ekkert hugvit. {sjá tengda frétt}

 

 

Tuttugu milljarðar fyrir tuttuguogátta fuglalífsdrápara, verða líklega fimmtíuogsex milljarðar, eða rúmir tveir milljarðar á Babýlóníuspaðann.

Fyrir utan, að engin raforkumylla hefur nokkru sinni endurgreitt byggingarkostnaðinn!

Þá er ekki síður áhugavert - rétt eins og með Kárahnjúkavirkjun og Álverið á Reyðarfirði - að engir Íslendingar vinna við þetta og engin Íslensk fyrirtæki koma að hönnun og framkvæmd þessa. Feður minnar kynslóðar snúa sér við í gröfinni - enda Ísland dáið, og það nær til allra sviða íslenskrar hugsunar og mannlífs, Covid sprautan var aðeins skreytingin á líkkistunni.

Þannig séð mætti endurnefna Lýðveldið Ísland 1944 yfir í Evrópska Stofnanaríkið Ísland 1993, eða þá Íslandsdeild Evrópska Heimsmarxismans 2017.

Minn sá auglýsingu á FB í gær.

Seljandi hafði smíðað 38 fermetra sumarhús, og gerði hönnun ráð fyrir að auðvelt væri að færa húsið af byggingarlóð á framtíðarlóð. Aðal söluatriðið var að húsið væri hannað í samræmi við sumarhúsabyggingareglugerð.

Þetta er svipað og þegar fólk lítur á grjóthrúgur píramídanna sem verkfræði, og láta eins og Karpatískir og Nílardals kastalar Evrópu séu ekki til, sem voru alvöru verkfræði og alvöru afreksbyggingar og í dag fengju ekki byggingarleyfi í Félagslegagreindarvísitölujöfnuði Húmanista og Marxista.

 

Kanntu að skilgreina hugtakið Menningu, og síðan muninn á menningu og siðmenningu? Eitthvað um það í heilaþvottaskólunum?


mbl.is Samið um kaup á 28 vindmyllum á 20 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ranghugmynd dagsins - 20241126

Hef tekið eftir að "stjórnmálafólkið" sem í boði er, hagar sér eins og a) engar árur, b) allir litlausir og innfallnir og c) straumur af merkingarlausum hraðsögðum orðum og d) enginn brosir af innri ró og e) mikið af stjórnlausu handapati eins og hjá fólki sem veit hvorki hvað það segir né hvort eitthvað sé að marka langlokuna.

Innfallin siðmenning.

Viðbót úr daglega lífinu:

Mikið fjör að gefa brauð við Fitjatjörn í morgun. Ein álftanna þorði að taka bita úr útréttri hendi, og sjálfsagt hugsar hún um það fram eftir degi. Vetrar gæsirnar eru sumar nokkuð djarfar að sniglast inn á milli álftanna og ná molum. Snéri mér að gæsahóp sem var ögn til hliðar, og uppskar hávær mótmæli frá álfta-unglingunum í hópnum.

Held að hópurinn sé farinn að þekkja bílinn og karlinn ... kannski bregðast þau þannig við öllum sem koma, en það lifnar yfir öllum hópnum þegar maður rennir inn á svæðið og kemur út úr bílnum með brauðpokann.

 

2024-11-26--03

Fuglalíf á Suðurnesjum (FB)

Það sem allir eru að hugsa, og enginn viðurkenna: Frá 1264 til 1944 höfðum við konungsætt, og öllum leið vel! Núna, Quislínga ...

 

e.s. 2152 - Meira blogg fikt á Telegra.ph - finnst það betra en Substack fyrir stuttar ranghugmyndir og einfaldari Spennulosun (á ensku) en Substack fyrir lengri.

Eiginlega "note to self" :: Spennulosa meira á ensku en undanfarið ...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband