Færsluflokkur: Bloggar

-viðundraveikin-

Síðan sumarið 2021 hafa allskyns furðulegir sjúkdómar fossað yfir þjóðir vesturlanda. Allir bera þeir merki þess að vera ADE ættar. Veistu hvað ADE er? Já, rétt, það eru Antibody Dependent Enhancement, og -elítan- sagði þér allt um það þegar hún sprautaði næstum alla [heilaþvegna] borgara vesturlanda - með allskyyns þvingunum - frá árslokum 2020 til miðs árs 2022.

Eða ekki?

Ah, mikið af furðulegum sjúkdómum og bráðakrabbameinum, rétt eins og samsæra-skýrendur spáðu, eftir að hafa hlustað á eða lesið alla bönnuðu vísindamennina.

Sveijattann þessir samsæra-útskýrendur og antivistar með allar sínar öfgar.

 

 

Vissir þú að jólasveinarnir eru alvöru?

Já, þeir eru til.

Þú getur sannreynt.

 

Enginn hefur sannað vírusinn fræga.

 

Þegar þú skilur að veruleikinn er saga og ekkert annað,
ferðu að sjá muninn á skáldsögu og sköpunarsögu.

Það getur enginn sannleikur þrifist,
hvorki í þróuðum né sköpuðum heimi.

Þú getur þó [hugsanlega] orðið sannur!

 

 

Allur heimurinn er upptekinn af tvennum sögum, opinberu sögunni og jaðarsögunni.
Nær enginn segir ferska sögu ... --hinthint

Ertu búinn að fatta hvernig nota má stíl til að
flæma 99,8 % frá, svo sagan óhreinkist ekki,
í [sýndar]heimi þar sem allir girnast eftir
athygli og viðurkenningu?


mbl.is Varð strax mjög frægur á spítalanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsæriskenning dagsins - 20241215

Á þarsíðustu öld (19) ákvað hátt settur Austurrískur frímúri - þýskumælandi - að finna út aðferð til að heilaþvo allt mann-kynið, svo 11 % gætu drottnað yfir 89 % eins og þrælum, en þrælarnir myndu trúa því að þeir væru frjálsir. Síðar fékk hann annan þýskumælandi lærling frá Svisslandi, í lið með sér og varð sá gaur með hæstsettu frímúrum síðustu aldar (20).

Síðar voru fræði þeirra beggja mynstruð upp í rannsóknir í viðfrægum fangabúðum síðari heimsstyrjaldar, á vegum klúbba á borð við Annunerbe og Thule Geschellschaft, og Vril (en allir þrír klúbbarnir ásamt anti-grav og plasma rannsóknum voru undir sömu yfirstjórn).

Fræði þeirra eru í dag undirstaða allrar nútíma sálfræði, nottla okkur til heilla.

Rannsóknir þessar voru síðar færðar yfir til Bandaríkjanna og Rússlands þegar herjir Bandamanna hertóku þýskumælandi héruð Evrópu. Sovétmenn fluttu sinn hluta austur í fangabúðir og veittu rannsakendum allt sem þeir þurftu til áframhaldandi rannsókna. Bandaríkin settu saman opinbera aðgerð - Operation Paperclip - til að flytja sinn hluta vestur um haf og gefa þeim ný vegabréf með nýjum nöfnum, og flottar rannsóknarstofur.

Niðurstaðan er einföld: Ef þú værir ekki heilaþveginn með MK-Ultra tækni (sem er skrásett rekjanleg staðreynd), þá myndir þú vilja vita hvernig það er framkvæmt.

Þetta er allt rekjanlegt, og þú ert frjáls, og þjóð Stórastamúgsefjunarlands var að kjósa yfir sig sama fólkið - til að setja lög og ríkisstjórn - sem hirti allt af þeim í Hruninu og genabreytti þeim í Farsóttinni miklu.

... það verður að segjast eins og er, að þú getur ekki smíðað fyndnari farsa en þann að setja Þríeykið í Ríkisstjórn á vegum Blackrock og Vanguard!

 

Úr einu í annað, en ekki svo fjarlægt:

"The first dream recorded in the Bible, the dream of Jacob and the
ladder, to me was and remains the greatest of all dreams ever dreamt
and the progenitor of all the other dreams, visionary material, and
mythological and allegorical activity that were to follow. This
dream, I was to realise, was in a sense an absolute existing outside
space and time, for it had lost none of its freshness and excitement.
Even though I know it occurred in the remote past, it remains one of
the great "nows" of my imagination, and I have only to close my
senses against the glitter of our electric-lit day to see in the darkness
within a ladder pitched on the stony ground of a great waste-land
and reaching as high as ever to a star-packed heaven, with the urgent
traffic of angels phosphorescent upon it." --Laurens van der Post

Hef oft velt fyrir mér hvers vegna aldingjar hafa verið svo hrifnir af draumi Jakobs, því hann nær ekki enn til mín - líklega vegna vanþroska - en steinninn sem hann hvíldi höfuð sitt á, hefur oft verið mér tilefni djúpra vangaveltna, eigi ólokinna.

 


Ranghugmynd dagsins - 20241213

Það sem ekki kom í neinum fréttum, er sneiðin sem Assad stjórnaði síðustu fimm árin: litla krúttlega sneiðin á kortinu. Einföldun; Sýrlenska ríkisstjórnin var fallin 2019! Á eftir táknfræði, þá launhelgar (einskonar messugjörð, platonic catechism), þá hjúpur (Encapsulation) og loks tímasetning; það sem prjónar vitundarverkfræðina.

 

 

Stórfréttin var sumsé tímastillt.

SIÐr lesr stef,
galaðrar glóðar,
gleymdrar sýnar,
í gerandis draumgjörð ...

Manstu, "endgame" fræðin og "2097" þeirra Zionista, og að enginn munur er á stjórnskipun, heimsmynd, akademíum og stjórnvaldssamsetningu deiluaðilja allra heimsstyrjalda, eða fjármögnunar klön og hugveitur sem tosa í tillana á þeim í dul-myrkrinu?

Bibban útskýrir það fullkomlega.

Allavega.

Fréttirnar og áhlaup 38 þúsund skæruliða gegn 200 þúsund manna stjórnarhernum sem allur gufaði upp, var og er áróðurs fréttafroða! Fjölskylda Assad hefur verið meira og minna búsett í húsi fjölskyldunnar í Moskvu í fimm ár.

Við minntumst nýlega á, að það er ekki í lagi að rústa margra milljón manna þjóðríki, aþþíbara, og búa til allskyns skrök og útúrsnúning til að réttlæta sig. Enda eru Vesturveldin í glundroða - sem við spáðum nákvæmlega fyrir fjórum árum - og glundroðinn er ekki hámarkaður.

Frakkland og Þýskaland, t.d. eru stjórnlaus, Rúmenía, Moldóva, Georgía, og fleiri Vestræn leppríki í uppnámi, og þetta er aðeins toppurinn á listanum. Vesturlönd hafa engan iðnað, svonefndur efnahagur aðeins algrím á hagstofum, borgarar geta ekki meðhöndlað eigið fé nema gera grein fyrir, stjórnmálin sigtuð, málfrelsið aðeins sýndarmennska, og heilsa þjóðanna og frjósemi bókstaflega sprautuð úr þeim og nú þrem árum síðar enn engin umræða neins staðar, eins og í - já þú sagðir það - í myndastyttugarði Leirmenna og Bergmálsfólks!

Meðan þér skiljið ekki að öll menntun yðar og öll fjölmiðlun, öll trúfræði, vísindafræði og stjórnmál, eru sýndarmennska til að nota huga yðar til að skapa sýndarveruleikann sem þér síðan trúið á í blindni; þá megið þér eigi lesa Ranghugmyndir og Spennulosun. Slík ómloðun (Resonance) er vond ritaranum og yður óþörf.

Viltu að ég hætti þérun og fari aftur í þúun?

En þú fattar núna orðaskrípó?

 

syrland-2023

 

... sástu fréttina í morgun sem notaði launhelgatáknfræði meitlara til að staðfesta greiningu okkar á valkyrju spunanum? Þjóðlíkið er á bandinu og bíður kjötskurðarins.

 

Önnur kemmtilegt samfella (Synchronicity) kemur upp í morgun, við erum nýbúin að fjalla um Constellis Group og leyniherjina þeirra, ásamt vopnasölu, en akkúrat í þessum orðum er documentary á RT um hvernig þessar mafíur og "óskráðar" leyniþjónustur þeirra nota demantasmyglara á borð við "föðurþúveisthverrar" sem stundaði partý "meðþúveisthverjum" í skipulagningu þessa stóra leynilega valda- og morð iðnaðar. Neinei, ekkert hinthint, allt er í fínasta á Stórastamúgsefjunarlandi og algjör tilviljun að íslensk stórfyrirtæki, með blessun lýgveldisstofnana taki þátt í vopnasmygli og þrælasölu /mannsali.

Þú ert skyldaður til að vera akurþræll Lýgveldis, en þú ert ekki skyldaður til að vera frelsingi Þjóðveldis. En menntun þín fyrirmunar þér að skilja hvað átt er við, og þegar þú réttlætir máttvana skilningsleysið - með hnoðuðum bergmálsflaum - sérðu ekki eigin innri glundroðaduld (Complexes) og hnoðaða hugarmúrinn innan á vitundinni sem endurspeglar öllum gödduðum heimsmyndaþvættingnum sem þú notar sem sjálfsauðkenni.

Allavega, á skemmtilegri nótunum:

Minn var að fá afgreiðslu eikkursstaðar í morgun, og honum fannst kerfið full flókið. Svo hann segir, "æi mig langar að flytja til Rússlands, þar sem allt er einfaldara og betra, og aðeins 13 % skattur." "Það er ekkert betra þar en hér," svarar daman, á fullkominni Íslensku. Nú - segi ég þá og daman svarar, "ég er frá Úkraínu" og skipti ekki svip. "Nú þú skilur þá Rússnesku," segir minn. "Já, ég tala bæði Úkraínsku og Rússnesku og hef oft farið til Rússlands." Mínum tókst að snúa sig útúr þessari flækju, en það var smá fyrirhöfn. Hún var næstum því aftur orðin brosmild í lokin, en við fáum betra tækifæri síðar.

Rússar eru svo flóknir. Fyrir langa löngu, deitaði ég eina Rússadömu, það var ekki séns að vita hvenær hún var fyndin og hvenær ekki. Svipað og með bjarndýr, þú veist aldrei hvenær þau eru að betla hunang, eða knús, eða þá í afhausunarham.

... en þetta lið fellur alltaf fyrir upplestri úr Tolstoy, og ef þú fattar það, reddastetta.

Að endingu biðjumst við velvirðingar á öllum ranghugmyndum, óreiðuskoðunum og viðhorfum, þú manst; misvandaðir uppalendur í Ríkisskólanum.

 

Fyrir lengra komna:

Biblían - 144000 munu endurreisa Guðdómlega ríkið. GuyEllis (2016) - þetta mun rætast á Þingvöllum, einhverntíma. Lýgveldið - 14000 kennitölur eru horfnar af landinu. Do the math!

 

e.s. - 16:02

Suffragetturnar bjuggu til lagajafnréttið 1910 til 1920. Verkakonur í síðari heimsstyrjöld, launa og atvinnujafnréttið. Femínistar hafa aldrei áunnið neitt fyrir neinn, nema hatur og raungusnúning.

Femínistar, Zionistar, Vísindistar, Marxistar, Fasistar, Kommúnistar, Trúarbragðistar, Sósíalistar ... "istar" í Dímonisma! --istaisminn

 

e.s. 20241214

Það sem blasað hefur við síðan hryðjuverkamenn tóku borgirnar þrjár sem Assad átti eftir, Aleppo, Hom, Damaskus, og elítan uppnefnir Sýrland; Nú hefur Tyrkjaland opinn veg frá Tarsus til Gólan, ef Erdógan kærir sig um!

 

* Var sáttari við upprunalega formið:
SIÐr lesr stef galaðrar glóðar gleymdrar sýnar í gerandis draumgjörð ...


Miklar [óreiðu]tilviljanir

Við í Vestræna-Weimar "lýgveldinu" skiljum bara ekkert í þessum tilviljunum sem fara illa með Almúgajón (Dirty Public/Peasant); þrátt fyrir öll algrímin okkar, kerfin, OG útskýringarnar! Við sem erum jú Ríkið, Réttlætið og Ránið! --elítan


mbl.is Miklar verðhækkanir á matvörumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

-óritaðafærslan-

Allir bíða eftir löngu ítarlegu færslunni sem greinir ástandið í Sýrlandi, í ræmur, en hún verður ekki rituð. Í það minnsta ekki að sinni. Staðan er flókin, og minnum við á færsluna um Mósaík í þessu samhengi. Auk þess er Spennulosun hætt s.s. komið hefur fram annars staðar, utan fáeinar Ranghugmyndir sem þarf að skola út öðru hvoru.
 
Sumsé: Staðan er flókin.
 
Dugar að minna á eftirfarandi; þegar Saddam var ljóst hvert stefndi, 2003, gaf hann þá skipun til hersins að dreifa sér og hverfa og breyta landinu í óvinnandi mýri. Enginn tók mark á því þá, og heldur ekki nú, tveim áratugum síðar þó mýrin haldi áfram að gleypa vit og vopn, þó svo Gaddafí hafi beitt sömu Átakatækni í Líbýju 2011.
 
Tækni sem Talíbanar - búnir til af Pashtun ættuðum útsendurum Pakistönsku leyniþjónustunnar sem er ein af þrem bestu slíkum í heiminum, sömu Talibanar og síðan 2016 hafa verið undir stjórn Constellis Group (--Arkívið) - hafa beitt síðan á tímum Alexanders mikla með ófrægum árangri.
 
Árétting: Staðan er dáldið flókin.
 

Ó, þú vissir að 60 % Afgana eru Pashtun ættar, eþaggi? Ekkert um það í Mellumiðlum Tótu Stríðsfjörð? Manstu þegar hún sagði Sýrlenskir uppreisnarmenn, en gleymdi að 99 % þeirra eru erlendir málaliðar fjarmagnaðir af Nató og þeir eyðilögðu þjóðríki sem er tvisvar sinnum stærra en Ísland, og heimili 23ja milljóna manna, og það með aðstoð Bandaríska og Ísraelska flughersins sem bombuðu allt í tætlur?

Niðurstaða:

Þetta flókna er svona; þú ert ekki í góða liðinu, heldur ert þú siðblindur akurþræll, og elíta þín siðlaus húsþræll. Sorrý. Þú mátt kommenta. Ó það má ekki tala svona við þræla. Assakið.

Að upplýsa Leirmenni og leiðrétta Bergmálsfólk, er tímasóun. Tímanum er betur varið á grúfu í mölinni eða niðrá tjörn að gefa fuglunum. Án gríns.

 

Sumar á Sýrlandi, Stuðmenn.


Ranghugmynd dagsins - 20241212

Einungis bastarðar aðalsættanna komast á listann: Almúgajón fær "frítt" atkvæði, og fríja innprentun og fríjar fréttir, og frí greindarpróf í formi einkunna, og stjórnmál í formi íþróttaliða, og frí mælingalaus "Vísindi."

Laxness sagði í Vefaranum mikla, að sumpart væri betra að vera þræll en frelsingi, því þrællinn vissi hvers virði frelsið væri, en hann minntist ekkert á þræl sem heldur að hann sé frjáls.

Svo vitnað sé í Biblíuna: Þegar þjóðfélagið breytist í viðurstyggð; FLÝIÐ! Stofnið flóttamannabúðir eða öryggis getttó.


-hugurslökkt-

... og skyndilega hafa allir gleymt nasistunum sem vildu setja ósprautaða borgara landsins í fangabúðir fyrir þrem árum ... eða liðinu sem hirti 30 prósent af eigum fólks og kallaði "skjaldborg heimilanna" ...

mbl.is Líst vel á samstarfið sem er að teiknast upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ranghugmynd dagsins - 20241211

Á milli níu og ellefu einkaherir eru starfandi í heiminum, átta þeirra á launum hjá Nató mafíunni, þar af er Constellis Group stærsta samsteypan, sem á og rekur Triple Canopy sem yfirtók Blackwater á sínum tíma. Að yfir níutíu prósent allra "vígamanna" í Vestur-Asíu og á öðrum óskastöðum Nató, séu aðfluttir málaliðar, s.s. í Sýrlandi og Líbýju, kemur nottla málinu ekkert við, og að hvorki meginstraums bergmálsvísundar né Antivistar jaðarsannleikans og Samsærakenninga gramsa í þessari gryfju, hefur ekkert að gera með áróður, innprentun, eða stýrðar andstöður, hvað þá að flest heimsveldi hafa yfirleitt notað svona skríl (ásamt sjálfstætt reknum leyniþjónustum slíkra). Að t.d. Bresku nýlendu herjirnir frá 1750 til 1910 voru að mestu einkareknir málaliða herjir, kemur aldrei fram í fréttum eða sögubókum sannleiksmafíunnar sem krefst algjörrar tilbeiðslu af þér, og alls sem þú átt.

Farðu í fleiri sprautur, og trúðu öllu sem elítan og undirmengið jaðarelítan (stýrði mótþróinn), hefur gefið út, og blessað. Snúningur; Egypska heimsveldið fjármagnaði Móse og þann hóp, Persneska heimsveldið fjármagnaði Talmúda mafíuna (Gyðinga) sem snéri "heim" frá Babýlon, Rómverska heimsveldið fjármagnaði "kristnu endurreisnina" á Gyðingdóm og tilurð Kristindóms, og Norður-Evrópskir frímúrar á þrettándu öld "smíðuðu" Ásatrúna, og Breskir anglíkanar fjármöguðu "spiritual" hreyfingu nítjándu aldar til dagsins í dag s.s. Cayce, Blawatsky, Baily, Steiner, Krishnamurti, Watts, Freud, Jung - lærisveina allra þessara - svo og alla hina sem kennt hafa hnattrænni menningu allskyns vitleysu um "andlega vitund" sem stenst enga rýni en trúað er í blindni - og enginn nennir að rekja hugveituna sem fjármagnar allar útgáfurnar - og viti menn, sé grúskað í grunnfræðum þeirra sjálfra t.d. Mackie og Waite kemur í ljós að allt er það byggt á mun eldri og dýpri andlegri raunguræðu sem vitundarverkfræði ... meðan þér er beint eina leið, fara meitlarar aðra ... allt rekjanlegt.

Allt sem þú trúir, er samsett í þjóðfélagsverkfræði, og öll sannleiks vísindi koma frá sömu hugveitum. Hef gaman af að skima öðru hvoru í nýlegum bloggþræði hér á svæðinu, sem framleiðir á færibandi hraðsuðu úr heimsendavísindum Wikipedia skólans, eins og sumir njóta þess að horfa á hryllings-bíómynd vitandi að ekkert er að marka en samt skelfingu lostinn: Hafandi sjálfur grúskað í öllum þessum fræðum og þekkjandi allar glufurnar, en um leið reynt að útilokað er að upplýsa sanntrúaða um.

Í BDSM menningu, réttlætir Bergmálsmaðurinn þann sem heilaþvoði, og Leirmennið þann sem ól upp og mótaði, og hópurinn sjálfur biður með ólund um meiri flengingar, lygar, féflettingar og stöku fjöldamorð: Stórastamúgsefjun, er ástunduð af íþrótt!

Allt hefur þetta verið útskýrt, í þaula, í Arkívinu, og krefst margra bóka ef ætti að gefa það út, en því miður, það er tímasóun að upplýsa Leirmenni og fræða Bergmálsfólk. Hollast er að grúska, fatta, og fleygja sér á grúfu í mölina, þar sem fela sig fjórar skínandi steinvölur sem vísa til nálaraugans á bak við hvíta steininn.

Afsakið óreiðuskoðanir og ranghugmyndir dagsins - soldið djúpt - og viljandi gert illa læsilegt - en það gerir skattlagða veðráttan!


Ranghugmynd dagsins - 20241210

Julani landstjóri Nató í Sýrlandi og Zelensky landstjóri Nató í Úkraínu; líta út eins og tvíburar! Arkívið var búið að útskýra hvernig þetta er gert; Argento 47 og Lutetia 71.

Eins og Nima Alkhorshid sagði á dögunum, þeir líta út eins og framleiddir í sömu verksmiðju.


Liðinnakviða

Valkyrjan er tvífætt kvenvera sem áður var ung og falleg stúlka sem Æsir hafa brottnumið og gamnað sér með, en þegar að urðu leiðir á var umbreytt í hana sem kyrjar yfir þeim er fallið hafa í valinn í átökum við lífs og veru véla og undra.

Hún er því hvorki lífs né liðin, hvorki mennskra né vana, tíminn er henni óriðið undur, og hún dundar sér í ætíðum hins óræða við endurtendrun þeirra er [v]alföður þóknast að færa til sinna.

Það segir sumum nóg, og öðrum ekkert, að þetta hryllilega hugtak sé límt á "fólk" (eða uppvakninga) sem nú fá að búta þjóðarlíkið í sundur.

Segðu svo að meitlarar sálar þinnar hafi engann "húmor" fyrir sjálfum sér.

 

 

 

... og þessa vexölu tíð þegar flestar valdstjórnir "vesturveldanna" um allan heim eru í uppnámi, og "þjóðir" þeirra þekkja hvorki ímyndunarafl né húmor, hvað þá táknmál eigin dánu menningar; man enginn Bölvættinn sem vakinn var þegar farið var í börnin ...

 

 

e.s. 20241208-21:23 - - Þessu bloggi er nú formlega hætt (þó ekki lokað), Spennulosun fer nú eingöngu fram á FB og Twitter. Góðar stundir.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband