Færsluflokkur: Bloggar
Sunnudagur, 5. janúar 2025
Sjálfsdyggðamerkingar og froðufull bj-glös.
Þess er skammt að bíða, miðað við flest annað, að Íslensk útgáfa af Mirotvorets listanum verði innleidd hérlendis, til að vernda Félagslegan Þjóðjöfnuð, og allserjar reglu hinnar Marxísku Útópíu.
Það verður væntanlega með flóknari texta, með lengri orðum, og smínkað með froðusnjáldurslegri fyrirsögn, eða freðsnegldri ... eitthvað soleis.
Um annað skemmtilegra, smávegis samsæriskenning. Veistu hvað bóndastúlkan Anna Jónsdóttir úr Heiðarsveitarkoti, sem ritaði undir skáldheitinu William Shakespeare eftir að hún flúði land og gerðist vinnukona á Englandi, fann upp mörg nýyrði fyrir enska tungu?
... ef nafngiftin er ekki hint, hefurðu engan húmor!
Hvort er frægari geimverulendingin í Aurora, Texas, eða Roswell, New Mexico, eða þessi þarna í Donbass, Sovét sem bannað er að minnast á? Nei, við trúum ekki á geimverur hér, en það er alltaf gaman að muninum á þeirri markaðssettu ggn. hliðarsettu.
Já, Mirotvorets, Úkraínskir systurflokkar, og soleis.
Já, ég held að kenningin um Önnu Jóns, sé rannsóknarinnar virði. Hef haldið það í mörg ár. Ræð ekki við það, frekar en þú varðandi Elvis lifir. Það er eitthvað heillandi við þegar tvær jafn fáránlegar kenningar og jafn klikkuð dulspeki, önnur grípur hópinn eins og brætt smjör á soðningu, meðan hinni er hafnað eins og úldinni mjólk.
... nei, ekki endilega múgsefjun, kannski eitthvað annað.
Branagh: Love-s labour lost (imdb)
e.s. 22:29 - - Mannhafinu hefur frá aldaöðli verið skipt upp í rúmlega tuttugu manngerðir - á bak við flokkun þessa eru margskonar fræði - á okkar tímum er 16 flokka Myeers-Briggs kerfið vinsælast - en þetta er yfirleitt táknað með tölunni 42, því grunntýpurnar séu 21, en innan hverrar týpu er ávallt einhver rangvíraður, eða þannig. EN, síðan 11. mars 2020 hefur allt mannhafið hugsað í aðeins tveim uppskriftum! Týpurnar eru bara tvær í dag. Hvaða rofi var virkjaður? Hvernig var þetta framkvæmt. Arkívið hefur mína útskýringu, sem er löng, hver er þín? Hvers vegna er þessi einfalda rekjanlega staðreynd hvergi rædd?
![]() |
Ísland tekur sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 5. janúar 2025
Óreiðuskoðanaröskun dagsins - 20250105
Tim Burton, einn mesti snillíngur kvikmyndaheimsins, gerði bíómynd um Ed Wood, því hann vildi viðurkenna, að jafnvel í hópi þeirra lélegustu væri einhver í fremstu línu.
Ed Wood var klárlega lélegasti B mynda leikstjóri Hollývúdd, og átti klárlega skilið að Tim Burton gerði hann ódauðlegan í kvikmynd.
Þess vegna held ég að Tim Burton þurfi að gera bíómynd hér á Íslandi, sem er fremst í hópi þjóða, í opinberri lágkúru, almennum sjálfsblekkingum og allsherjar múgsefjun.
Svo við verðum stolt af sjálfum okkur aftur, frekar en að þykjast vera það. Hver veit, Útvarpsmenn gætu jafnvel hætt að flissa yfir eigin fyndni í öðrum hvorum útvarpsþætti og látið sunnudagsþættina duga.
... enda er það hefð, Rasmussen bjargaði Íslenskunni, Watson bjargaði hundinum, Jörgen Jörgenson mynti okkur á að endurvekja innlenda lagagerð, Danakóngur bjargaði bókunum frá að verða buxnabætur, og Tim Burton mun gefa okkur aftur sjálfsvirðinguna.
Gleymdi ég einhverjum útlendingi sem bjargaði Íslendingum frá sjálfum sér?
Hey, strákarnir í Red Letter Media hafa fjallað um myndina. Kannski þeir ættu líka að gera þátt um Íslenska fjölmiðlun, á eftir Tim Wood myndinni ... :
Við yrðum sko flott "þjóð" - hvað svo sem það annars er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 5. janúar 2025
Delusion of today - 20250105 [en]
One day you will realize that we all are actually in Hell, and then after a while you accept it. From then on, your Exodus begins, and someday you-ll realize that the Event at the Sacred Moutain, is beyond spacetime.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4. janúar 2025
Sjö fallnar sýnir
Það eru fáein atriði sem allir sjö ljósenglar [innsta hrings] Samaels eiga samaeiginlegt, en þeir eiga Sýnirnar sem notaðar eru í grunninn í öllum þeim heimsmyndum sem notaðar eru (undangengin 5785 ár) til að rugla fólk í ríminu og tæla til sjálfs-afvegaleiðunar.
Í stórum dráttum má segja að hver sýn sé til í þrem útgáfum, eða tuttuguogein heimsmynd, fyrir grunn sýnirnar sjö. Við höfum áður farið ofaní þessi málefni, og talið upp það sem allar sýnirnar eiga sameiginlega og notaðar eru í blandípoka þeirra kerfa sem myndaðar eru - sýn framkölluð í mynd:
- https://gudjonelias.blog.is/blog/logostal/entry/2294839/
- https://gudjonelias.blog.is/blog/logostal/entry/2294843/
Segja má að þessar greinar séu uppkast, unnið úr glósum, sem ætlunin var að upprita í heildstæðri greiningu á logostal.com (sem hluti annarra skyldra), en síðan við fórum til Heljar í mars 2020, hef ég ekki séð tilgang í neinum alvarlegum skrifum.
Utan nottla, Húmanistadulspeki, sumarið 2020. Sem mætti pússa mávegis og bæta við, en tja, við erum þar sem við erum, eða þannig.
Allavega.
Tvennt er ástæða til að draga fram til áminningar, og Spennulosunar
Það er mjög erfitt, hvaða huga sem vera skal, að ímynda sér neitt það sem ekki er hjúpað af þeirri Sýn sem notuð er í völdunarhús þeirra sjöþúsund spegla sem afmarka skilningsgáfu (Faculty, Hæfilén) hans og heimsmynd, annars vegar, og allar þessar útgáfur krefjast þess að til sé fyrirbærið Alheimur (þar sem [téður vitundar-hugur býr] sem bæði eigi sér upphaf og endi (þrjár eða fjórar fallasíur í einni) hins vegar.
Svo hvernig a) sannar þú að Alheimur sé fyrir hendi, að b) téður Alheimur eigi sér upphaf c) og/eða endalok d) og þá að hugur þinn eða vitund sé yfirleitt til? Ef þetta var auðvelt verkefni e); manstu hvað allir átta langalangafar þínir hétu og/eða ánur?
Í heildarmenginu, þess utan, þessar sjö sýnir hafa allar verið raktar, með spámannlegum vitnisburði, sem fallnar, og án þess vitnisburðar, hefði Heimskerfi Samaels ekki siglt upp á sker fyrir fimm árum.
En það er ögn flóknari dúkkulísa að útskýra.
Fyrir þá sem fatta þetta einfalda en djúpa mengi; fyrr eða síðar hefst áttund í öðru veldi, áttundi dagurinn þegar Sköpunin hefur næsta þrep og Áttunda sýnin fæðist - eða fæðist og úreldist daginn fyrir (árþúsund messíasarins sem spáð er), hverri væri hægt að lýsa væri hún sýnd, og það er akkúrat hér sem dæmið verður spennó (þræða nál með reipi), en þangað til eru allir uppteknir við að meitla sína útgáfu af 21 heimsmynd, í reglugerðir, grjót og aðra úrelta fjötra.
Svipað og Almúgajón sem rökstyður og ver Heilaþvottakerfi II. meðan Antivistajón heimtar afturhvarf til Heilaþvottakerfis I. og Elítujónar beggja fróa sér á persónulegum upphafningum.
Við mælum með ástundun, Bænar, Iðrunar, Vitnisburðar og Fyrirgefningar, en fyrir lengra komna á grúfu í mölinni.
Öfugt við "dýrðir Samaels"; einfalt, ekki flókið, kannski smá erfitt í fyrstu, en æfist.
e.s. 20240105-15:06 - Breytti efnisgreininni sem hefst á "Í heildarmenginu ..." hún var röng, er nær lagi nú. Við erum að upplifa mikla tíma, og guðdómlegir kraftar hafa nú vitnað daglega og tilvistarlega fyrir öllum mönnum með yfirveguðum og skilvirkum hætti í fimm ár, en s.s. allar helgar ritningar geta vottað, gerist slíkt aldrei án þess að fyrst sé gerður spámannlegur vitnisburður og hefur slíku yfirleitt verið hafnað af þeim sem síðar upplifa þrenginguna, en sem betur fer aðeins yfirleitt. Gríðarmikill fjöldi fólks um alla veröld er að taka við þeim vitnisburði sem fram fer, og virkja lyklana fjóra til lausnar, Bæn, Iðrun, Vitnisburð, Fyrirgefningu, að okkar mati án kröfu um einhvern lífsskoðunarlegan sannleiksklúbb, heldur eftir persónulegum venslum, sem aftur gerir stöðuna afar áhugaverða og spennandi.
Bloggar | Breytt 5.1.2025 kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 4. janúar 2025
-þjóðarauðlindin-
Ein skemmtilegri rökvilla (Fallacy) hér á Stórastamúgsefjunarlandi, eru þjóðarauðlindirnar, svo og hvað þjóðin á og hvað þjóðin á ekki. Þetta hefur sótt á, undanfarið, að ræða betur, því það situr í mínum þegar einn af áhrifahvötum þjóðfélagsins sagði fyrir fáeinum misserum; þjóðin getur ekki átt neitt.
Setningin stuðaði minn á sínum tíma, og hann fann múrverkið hrynja utan af sumum heilaþvottasúlunum, og smámsaman sá hann hversu augljóst þetta er. Jafnframt að þú getur ekki útskýrt það.
Annað hvort trúir þú því að þjóðin geti átt eitthvað, eða ekki, en hverju sem þú trúir; hver svo sem elítan er hverju sinni, hún hirðir það sem henni sýnist og kallar það hvaða heiti sem hún kemst upp með.
Ræðum annað stak sem hér kemur inn í, því það blasir við, sumum en öðrum ekki, hvað er auðlind. Er vatn, fiskur og súrefni auðlind, eða er bergolía og gull auðlind? Allt saman, hluti þess, eða ekkert af þessu.
Þegar við segjum hér framar, þetta hefur sótt á, undanfarið, er það því okkur langar að Spennulosa, en hikum við, því hvað er Þjóð, hvað er Auðlind, hvað er Eign, hvað er Réttur. Augljóst er að efnið gefur tilefni til langrar færslu, og maður þarf að vera í stuði fyrir langar færslur, og finna lög til að skeyta inn í færsluna, og tja, andinn þarf að vera til staðar, eða þannig.
Í gær var mínum sýnd hér í bænum, færsla sem minnti á téða segð*, þjóðin getur ekki átt neitt, svo minn hugsaði þegar heim kom, get ég um helgina spennulosað þetta? Síðar sama dag var honum hótað ofbeldi á FB fyrir að trúa ekki sjúkdómsgreiningum elítunnar á ADHD ... sem setti dálítið úr jafnvægi.
Hann var jafnvel uppnefndur kommúnisti fyrir að efast um rétttrúnaðinn, sem er enn áhugaverðara! En hér er naglinn negldur: Hvað er þjóð? Hvað er ADHD þjóð? Hverjir eru Kommúnistaþjóð?
Þjóðríkja húmanisminn lítur t.d. á allar handhafa allra Franskra ríkiskennitalna sem franska þjóð. Eins er hér á Íslandi, en margir hérlendingar líta einnig svo á, að það hafi eitthvað með gen* að gera, sértu fæddur á Íslandi af Íslenskum foreldrum sem eru af Íslenskum foreldrum (þó fluttir væru t.d. til Lúxembúrg eða Noregs) sem aftur tala Íslensku og líta út eins og blanda af sunnlendingum og skagfirðingum og ... þá ertu íslenskrar þjóðar í merkingunni þjóðþáttur (Ethnicity).
... og þetta er augljóst.
Reyndar hefur þetta breyst, því undanfarna kynslóð (fjóra til sex áratugi) hafa komið blöndur inn í landið, ef þú t.d. heitir pólsku nafni á borð við Pavel Bartó og skrifar betri Íslensku en jafnaldrar þínir og ert klárlega alinn upp í innlendum barnaskóla og átt vini af Íslenska þjóðþættinum, sleppurðu inn fyrir gættina og þar með kvittað fyrir að börnin þín eru "Íslensk."
Er þetta flókið?
Þetta er rugl - en það hugsa allir svona.
Sveitungar Íslands sem bárust á banaspjótum mest alla sextándu öldina - í kyrfilega þaggaðri borgarastyrjöld sem þá var háð um mest allt land - voru minnst tveggja þjóða. Næstu öld á eftir, auðkenndu þeir sig, sem töpuðu, við Jón Arason biskup, þeir væru hans, hreinlega af honum komnir. Margir flúðu þó til Danaveldis, þaðan til Færeyja, og er þjóð Jóns biskups Arasonar þokkalega fjölmenn á bæði Íslandi og í Færeyjum.
Kona nokkur fædd 1914 í Laxárdal í Skagafirði, gretti sig og hristi höfuðið, ef maður hélt því fram að Skagfirðingar, og Austfirðingar væru sama þjóðin, og hún mundi þegar tunga þeirra var ólík. Að taka í mál hvort Þingeyingar yfirleitt væru Íslendingar, krafðist samræðna!
Allir sem búið hafa lengur en þrjá mánuði í Þingeyjarsýslum vita vel að þetta þarf ekki að ræða, svo við rekjum ekki frekar. Hver sá sem búið hefur í bæði Borgarfirði og meðal Húnvetninga, veit vel að þeir eru ekki sama þjóðin, og að einungis Borgfirðingar sjá húmorinn í því.
En þú ræðir þetta ekki við Sunnlendinga, það er ekki hægt, og því aðeins við Reykvíkinga að þeir séu með kaffibolla við hendina. Þú getur rætt svona hluti á Reykjanesinu, svo og í Suðursveit, og á völdum fjörðum fyrir vestan. En þú þarft næmi fyrir andanum, eða þannig.
Ég er t.d. ekki Íslendingur, ég er Herúli, og hef farið djúpt í þau fræði með útskýringum í Arkívinu. Ég sé nákvæmlega enga ástæðu lengur til að útskýra fyrir "Íslendingum" hvað ég á við, og viti menn, ég hef kynnst öðrum Herúlum, sumum fæddum hérlendis, öðrum í Póllandi, jafnvel í suðvestur Evrópu, og ég veit af Herúlum víðar, og ég veit að enginn þeirra - eða nærri því enginn þeirra - mun samþykkja mína skilgreiningu á því, og viti menn, bæði þeim og mér er slétt sama.
Það er galdurinn við þjóðina. Þú þarft ekki að rökstyðja hvað hún er, hún er, eða hún er ekki.
Hún á ekkert, nema þegar Hrói höttur spilar á hana og stofnar Nefnd, eða Sýslinn í Nóteringaskíri en það varir yfirleitt ekki lengur en tvær til þrjár kynslóðir.
Það eru til margar skilgreiningar í fræðum mannssögunnar yfir hvað er þjóð og hvað ekki. Utan fyrrgreindrar dul-skilgreiningar*, líkar mér best sú sem Mummi Spámaður kom fram með, að þjóð væri hópur fólks sem hefði sömu heimsmynd og sömu táknfræði til að tjá hana [þannig að hún skildist óháð tungumáli eða útliti], og þegar aldingi skilur þessa skilgreiningu, sér hann hversu margar þjóðir eru í kringum hann, og hvernig þær skarast yfir svæði og höf, og hann áttar sig á því að þjóð getur alls ekki átt auðlind, en auðlindir þjóðar eru hugarnir sem setja hana saman. Þar byrjar það og endar.
Öll umræða umfram þetta, eru áróðursmúrsteinar sem loða saman á þreyttu steinlími.
Að öðru leyti, hlýtur að vera ljóst, þeim sem vitað hefur lengur en í áratug að landið getur ekki framleitt nóg rafmagn til að selja úr landi, að elítan sem endalaust ræðir um rafstreng til að selja straum úr landi, er sama elítan og viðheldur þeirri vitleysu að landið eigi auðlindir sem eru ekki auðlindir.
Að lokum grunar mig að "ríkiselítan" þakki stórustumúgsefjunarþjóðinni fyrir að hafa bæði fyrirgefið sér Hrunið og Sprautuna, og afhent sér allar upphugsaðar og óhugsandi auðlindir "þjóðarinnar" með útstrokuðu ókeypis blýantsstriki á brenndum pappírsmiða.
Á skemmtilegri nótunum.
Ræðandi um þjóðþætti að öðru leyti, getur verið skemmtilegt. Þú getur séð á fólki frá Normandy, Kent, Vallóníu og Jótlandi, að þau eru Norðursjávarfólk, og ef þú segir þeim það, og minnist á genaminnið eða frumuminnið, lifnar yfir árunni þeirra og samræður verða skemmtilegar og tveir áratugir af heilaþvotti hrynur af þeim.
Þú þarft þó að fara varlega í Gautana við strendur Prússlands, Litháens og Lettlands, því þeir gætu hvesst á þig glyrnunum, sérstaklega þeir sem eru með Teftónagen, en farir þú varlega verður þetta líka skemmtilegt. Veistu t.d. hversu margir Grikkir í Anatólíu þykjast í dag vera Tyrkir, eða hversu stórt svæði Tyrkjkalands lítur á sig sem Armenskt (Hittítskt) en viðurkennir það ekki opinberlega, eða hversu mikið af Circassian fólki er um allan heim og hvernig Óttómanar bjuggu þá til og í hvaða tilgangi?
Skemmtilegt, efni, og það sem er bilað gaman við það, er að alveg sama hversu vel múraður heilaþvotturinn er, það tekur sekúndur að myljann, og mínútur að sópann, en vikur að skrúbba.
Og loks Spennulosun á Óreiðuskoðun dagsins:
Hvernig tókst elítunni að sannfæra þig um að á landinu finnst hvorki vinnanlegt gull né demantar, og að ef slíkt finndist á landinu þínu eigi elítan allan rétt á því, og hvernig tókst henni að fela fyrir þér að stjórnarskráin þín (Réttlætissáttmálinn) skilgreinir ekki ábyrgt dómsvald, og að aldrei hefur verið staðið við aðskilnað valds hvað þá eignarétt!
Smáviðbót fyrir grúskara.
Frá um það bil 750 AD til 1066 AD stjórnuðu Jóskir og Frísneskir furstar (Norðursjávarfólks) öllu sem þeir vildu á því sem þá hét Brittanía, frá Jórvík í norðri, til Kantaraborgar í suðri, og Lífslaugar í vestri. Næstu tvær aldir þar á eftir hafði valdið færst til Normanskra fursta (Norðursj...), en þeir blönduðust smámsaman við það sem Danir og Pendragon ættin uppnefndi Anglóna og Saxóna. Á þeim tíma voru notaðar ýmsar mýtur til að segja nýsamdri-ensku-þjóðinni að þeir væru Englendingar og hvað það sé, með ótrúlega krúttlegum árangri.
Aðdáendum Tolkiens má vera ljóst, eða ekki, að hann hafði mikinn áhuga á þessu atriði og áhyggjur, og að Silmarillon var ólokið uppkast af ástæðu.
Já, Tolkien var hugsanlega drepinn.
Hugsanlega ekki.
Sama var gert á Íslandi eftir fyrrnefnda borgarastyrjöld, rétt áður en fulltrúi Dana hérlendis rændi öllum jarðabókum landsins og endurskrifaði sumar og brenndi sönnungargögnin.
Kannski hefur það komið fram nú þegar, en hverjar þjóðar þú ert, hver genin þín er, kemur engum við nema þér sjálfum, og hvernig hugur þinn er múraður inn, ætti að vera þér verðug glíma. Þar hefst líf þitt, og endar.
... nema nottla Fullsprautaður sért!
Þá ertu Gatesþjóðar í umboði Genaþursins í Vatnsmýrinni, þar sem áður fannst gull, og nú er soðið í potti.
Án gríns!
Þú þarft ekki að trúa þessu, en vita máttu að eigendur þínir gera það.
Bíddu; þegar barónarnir sömdu 1215 AD við Englandskóng, um stjórnarskrána Magna Carta, í lok fyrrgreindrar enskrar þjóðarsamsuðu, var samin önnur stjórnarskrá, um aðgang þjóðar að auðlindum, og allir hafa heyrt um Magna Carta, en enginn um hina. Sum hugtök áttu ekki að hafa í múrverkinu.
Það gæti endað þannig að tíund yrði bundin sem hámarkssköttun í Stjórnlagasáttmálann.
Þú gætir einnig fattað hvað Skotar, Svíjar og Kænverskir Skýþar eiga sameiginlegt.
* Segð er eitthvað sem sagt er eða haldið fram, yrðing er fullyrðing þ.e. staðhæfing um staðreynd. Þess vegna er t.d. haturssegð ekki hatursorðræða. Í forritun er t.d. segð (statement) notað til að fá út gildi fyrir gildistöku en yrðing til að fá út satt/rangt (True/False). Í orðræðu eru mörkin ekki jafn skýr. Ef Íslenskt mál væri ekki dáin menning, væri þetta öllum augljóst.
* Gen, bókstaflega, merkir andi (Genie) ... "nuff said."
* Dul-skilgreining (Meta definition) er skilgreining sem birtist í frásögunni sjálfri en er ekki skorin út sem afmarkað orðabókarskilgreint hugtak. Margt í heimspekinni er falið þannig, enda er menning þannig, þú þarft söguna. Engin saga, enginn andi, enginn skilningur, dáinn (meitlaður) hugur.
e.s. 15:55: Fyrir ofurgrúskara:
- https://duckduckgo.com/?q=on+this+day+you+hve+become+a+people&t=lm&ia=web
- https://www.youtube.com/watch?v=StyCnFMGfrQ
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 3. janúar 2025
Úreltar djöflamerkingar
Hverjum er ekki sama um einhverja stjórnmálamenn á tímum síðari heimsstyrjaldar? Það var fyrir þrem kynslóðum og enginn veit sannleikann um hvað gerðist. Þeir sömu og endalaust veifa myndum af Hitler útgáfu 8 og Mússólíní útgáfu 3, neita að ræða eigin glæpi í dag eða afa sinna í síðari heimsstyrjöldinni, sem margir voru sannanlega stórfelldir stríðsglæpamenn.
Hræsni á hræsni ofan og úreltar djöflamerkingar sem treysta á eitt og aðeins eitt; að fólk alið upp á sjálfshatri ríkisskólanna, sem trúir að Óþolinmæði og Gjörvileiki séu "náttúrulegur geðsjúkdómur" er kallist Athyglisbrestur og Ofvirkni, lætur smala sér í rugl og vitleysu með sama hætti og fólki var smalað í rugl og vitleysu fyrir tæpri öld út í stórstyrjaldir.
Núna áttu að hata Georgiu Meloni, sem stendur uppí hárinu á heilagri Úrsúlu í Brussel, útaf einhverri útjaskaðri fasistatuggu ... Lengi lifi Brussel, Ein Evrópa, Ein Úrsúla, Ein Múgsefjun, eða þannig.
Þú verður að hata rétt, annars ertu félagslegt rangmenni, eða á röngum geðlyfjum!
Veistu hver sannaði Covid vírusinn?
Ekki?
Þú hlýddir "vísindunum" eþaggi?
Að lokum ranghugmynd um ADHD sjúkdómsgreiningu elítunnar: Að vera Atorkusamur og Óþolinmóður, er hvorki röskun né geðsjúkdómur, ef eitthvað er þá greindarmerki og gjörvileiki, sem aftur er ógnun við heilaþvott og múgsefjun.
Og smádjók í lokin; þú átt einnig að hata AfD í Þýskalandi, sem stendur fyrir gildin sem Ósjálfstæðiflokkurinn fleygði fyrir átta árum!
![]() |
Mussolini góður stjórnmálamaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 2. janúar 2025
Minn tekur ekki þátt í múgsefjun, nema í dag
Svo ég gerði tillag:
https://island.is/samradsgatt/mal/3886
----
2.1.2025
176 - Guðjón Elías Hreinberg Ívarsson
a) Ráðningartími embættismanna sé jafn langur kjörtímabili þess sem skipar í embættið, eða almennu kjörtímabili.
b) Engin embætti séu skipuð nema umsækjandi hafi lokið starfsviðtali hjá væntanlegum undirmönnum.
c) Engar nýráðningar opinberra starfsmanna (eða verktaka) út kjörtímabilið.
----
Ég biðst afsökunar á að hafa lagst svo lágt að taka þátt.
Allavega. En í rauninni er þetta komið til af Ricardo Semler grúski, sem ég var duglegur við fyrir nokkrum árum. En allir vita líklega hvers kyns snillíngur hann er.
Bækurnar hans Maverick og Seven day weekend, eru perlur. Hvernig hann tók við ónýtu fyrirtæki og umbreytti í eitt áhugaverðasta stórveldi samtímans, hlýtur að vera á allra vörum hjá fólki sem hefur áhuga á rekstri, stjórnun, og skapandi hagkvæmni.
En ég vissi ekki fyrr en í meðfylgjandi viðtali frá 2013 að hann skilur Jung, sem fáir gera, ... viðtal sem er þess virði að horfa á öðru hvoru, því það er dýpra en blasir við, s.s. að ímyndunarveikin ADHD er honum til framdráttar og er ekki lyfjuð niður með ríkisdópi ...
![]() |
Biðja almenning um tillögur um hagræðingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 2. janúar 2025
Óreiðuskoðun dagsins - 20250102
![]() |
Útlit nýja spítalans er nú komið í ljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 1. janúar 2025
Fyrsta ranghugmynd ársins - 20250101
Íslenska Lýðveldið er eina ríkið í heiminum þar sem finnst hæst hlutfall sprautufíkla Bill Gates, og enginn sprautuskaði. Þvílíkur vísindalegur árángur!
Eins og eikkur sagði, við fórum úr einni Katrínu í þrjár!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 31. desember 2024
Yfirgefið Nató og lifið
Snúið aftur til verndar Íslenskra landvætta, og vonið að útlegðin sem þeir settu þjóðina í veturinn 2018, ljúki. Setjið ekki von yðar á lygara, þjófa og morðingja, heldur SIÐr yðar.
Hefurðu fylgst með síðan 2019? Skilurðu eitthvað eða ekkert.
![]() |
Okkar skylda er að huga að eigin vörnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)