Föstudagur, 18. apríl 2025
Samsæriskenning dagsins - 20250418
Árið 1988 var allt með kyrrum kjörum í "Austurblokk Evrópu," fólk hlýddi marxistum og kommúnistum, og allir "löglega hamingjusamir."
Þrem árum síðar höfðu allar kommúnista stjórnir Austurvegs verið afmáðar - að mestu friðsamlega - því fólk lét ekki bjóða sér viðbjóðinn lengur.
Þó höfðu stjórnir þessar haft áratugi, rétt eins og okkar, til að heilaþvo lýðinn í skóla, ásamt frétta og afþreyingar kerfunum; allir, rétt eins og við, voru á sömu bókina lærðir.
Kommúnistarnir flúðu allir til Parísar, Berlínar, Brussel og Reykjavíkur. Sumir þeirra flúðu með ríkissjóðina til Pekíng og hófu um aldamótin að fjárfesta í Hollývúdd og Háskólaútgáfum Vesturlanda, í augljósum [árángursríkum] tilgangi.
Við föttuðum þetta allt saman of seint, og þó ...
Hugmynd hvers tími er kominn, verður hvorki stöðvuð né handsömuð.
Eins og allir vita er Till Lindemann,
í ónáð á Vesturlöndum.
Þú vissir það er það ekki?
Þú hefur þó tekið eftir að Trömp og Bæden og Úrsúla,
eru öll sek um nákvæmlega sömu skoðana ofsóknirnar,
og sama stríðsþorstann, og af sömu grimmdinni?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 18. apríl 2025
Ranghugmynd dagsins - 20250418
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 17. apríl 2025
Samsæriskenning dagsins - 20250417
Undanfarið hafa hliðverðir jaðarumræðna verið uppteknir víða á útlenzka Netinu, að skelfa okkur öll með hættunni á stríði Bandaríkjanna og Írans, með mismunandi flötum í rökræðum og vangaveltum.
Hef hingað til látið sem vind um eyru þjóta, enda er ákveðin list að þekkja hvernig hliðvarslan virkar, og eftir skoðanahreinsanir YouTube árin 2017 til 2020 skilið fáa eftir utan við girðingu Stýrðu Andstöðunnar.
Er þó að velta fyrir mér, að hugsanlega er þessi hætta raunveruleg, og hef hripað það saman í fáeina punkta, en á ensku: Sjá tengil:
Vona að friðsamlegar lausnir verði ofaná, en held að hættan sé veruleg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2025
Frábært viðtal við Kristján Loftsson
Það er klassískur kommúnismi hjá MBL hvernig myndbirting er valin - ásamt fyrirsögn - í tengdri frétt, til að gefa ákveðin skilaboð frá Sjálfstæða Kommúnistaflokknum. Hitt er annað, að viðtalið er sneisafullt af fínum punktum varðandi þá menningar-morðhyggju sem útdreginn (Abstract) hugsunarháttur menntastéttar (Intelligentsia) landsins (Marxismi*) hefur tamið sér undanfarna áratugi.
Mikilvægasti punkturinn - atriði sem við höfum rætt ítarlega í Arkívinu - er að dómsvald stofnana brýtur réttarríkið í tætlur og er andstyggð (Andsnúin, Antithetical) vestrænnar ríkis- og lagasmiðju. Atriði sem furðu fáir skilja í ríkis innprentaðri hugsun þess fyrirbæris sem kallast Þjóðin.
Þá er einnig mjög fínn punktur í lok viðtalsins, sem mig grunar að muni fara framhjá mörgum, ef ekki öllum, en það er hvernig Efnishyggja kommúnista og annarra sósíalista samtímans, er ófær um að skilja hvað auðlind er, eða hvaða afl það er sem stofnanakerfið þarfnast, en það afl - menningar og náttúru - deyr undir reglugerðafjallinu.
Þetta viðtal við Kristján, er hollt að horfa á þrisvar, og glósa. Því þó það komi ekki fram, sannar hann það sem við höfum lengi rætt varðandi nauðsyn þess að endurstofna Íhaldsflokk Jóns Þorlákssonar, og með hans röksemdafærslum.
Sem vekur upp ágenga (Aggressive) spurningu, getur verið að við séum tveir Íhaldsmennirnir á landinu, þegar minn hélt sjálfan sig vera síðasta íhaldsmanninn?
Nei, minn er sá síðasti. Ekkert rugl!
* Það er hollt að muna, að Marxismi er ekki sjálfkrafa hið sama og kommúnismi eða sósíalismi, heldur efnishyggjuleg raungusegð (Dialectical Materialism), oft nefnt Þráttunarhyggja eða Þráttunarefnishyggja - og byggist á þeirri hugmynd að yfirtaka vald og auð með því að iðka menningarlega raungusegð (orðræðu) - en Dialectics merkir nákvæmlega wrongful or twisted dialogue pretending to be logical og var fundin upp af Plató, þróuð lengra af Abelard og fullkomnuð af Karl Marx. Íhaldsmenn geta einnig verið Marxistar og kommúnistar geta verið Fasistar - þessi hugmynda-sálfræði (sem þykist verað þjóðfélagsheimspeki) er svipuð klæðnaði þannig séð. Marxismi og Fasismi sömuleiðis sem er frumspekileg raungusegð (Dialectial Metaphysics) og í raun Marxismi II; aðeins staðfæring (Manifestation) á hinum Júngíska skugga[1] í þjóðarsál eða hópsál. Þekking á hinum Júngíska Skugga[2], bæði sjálfs og þjóðar, getur verið ein besta heilunin frá eitrinu. Tveir bestu præmerar - auk Arkívisins - varðandi Júngískan Skugga[3] væri Alan Watts og Marie-Louise von Franz. Í þessu ljósi er t.d. áhugavert að fólkið sem á nítjándu öldinni bjuggu til Marxismann og einnig Jewish Reformation stefnuna sem gat af sér Zionismann, voru allt fólk sem rabbínarnir höfðu ýmist rekið út úr gettóunum fyrir raungusegðir þar, og einnig plastkristnir sem höfðu flæmst úr kirkjunum af svipuðum ástæðum. Þegar maður skilur þessa eitur hugsun - samtvinnun, Efnis, Félags og Valdhyggju (sem við höfum áður rætt og ítarlega) skilur maður margt.
* Við notum orðið raungusegð í svipaðri merkingu og að vera í skyrtu eða skyrtubol á raungunni, sem er nær Íslenskri málvitund, en þráttunarhyggja, þó bæði orðin nái að hjúpa sama hugtakið.
![]() |
Kristján segir Guðrúnu krata inn við beinið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 18.4.2025 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. apríl 2025
Óreiðuskoðun dagsins - 20250417
- https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/17/veitur_aetla_ad_banna_einkabilinn_i_heidmork/
- https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/16/ljuga_hreinskilnislega_um_hlutina/
* Útdregin hugmyndafræði getur verið ágæt, fyrir einstaklinga, til að velta fyrir sér mengi hugmynda í hlutlægu (Objective) samhengi, en þegar mengið er meðtekið allt að því trúarlega eða kreddulega (Dogmatic) sem huglægur (Subjective) sannleikur (þykjustuhlutlægni) breytist hún í afmyndunar eitur (Toxin). Þegar Hóphyggja (Collectivism) bætist þar við, þ.e. að einstaklingurinn fletur út eigið raunsæi, fyrir rökhyggju hópsins, verður "isminn" eða hugmyndafræðin að allsherjar fangelsi, bjögun og ofbeldishyggju - eða baneitruð - skiptir engu hver isminn er; kommúnismi, zionismi, sósíalismi, kristíanismi, íslamismi, júðismi, kapítalismi, marxismi, fasismi, femínismi, ríkis-ismi eða hvaða ismi sem vera skal. Hóphyggja er ágæt þar sem hún á við t.d. þegar sameinast er um að smala fé af fjöllum og raga féð í réttum, en það nær ekki lengra. Hið furðulegasta af öllu furðulegu, því frumspeki allra liðinna alda hefur kennt þetta, er að þessi einfalda vitneskja - sem þykir fullsönnuð - hefur verið strokuð út á okkar upplýstu vísinda tímum.
Af öllum hóphyggju eitrunum, teljum við þó að Félagshyggjan, Efnishyggjan og Valdhyggjan, séu verstar, en þetta byggjum við á Biblíunni og þá sérstaklega Daníelsbók og Opinberun Jóhannesar, og hefur röksemdafærslan verið útskýrð ítarlega í Arkívinu. Þegar þessar þrjár hóphyggjur - samanber Spámannin Elíja*, breytast þær í villtar þríhöfða hýenur (Cerberus) og rífa allan Sið og menningu í tætlur. Þetta er raun ástand (State) okkar tíma.
* Venjan er að heiti Spámanns Guðs, Elíja (Elijah), sé ritað Elía á Íslandi, en það er rangritun, því nafn hans er samsett, Elí-Ja, sem merkir Guð (Elí) er Jahve (YHVH), eða Jahve/Jehóva er Guð. Við ritum því Elíja, héðan í frá. Samael er mikið fyrir að fá þjóna sína til raungusegða hvar sem hann getur, t.d. er nafn Guðs fjarlægt úr flestum Biblíum og fólk ómeðvitað um mikilvægi þessa nafns. Eins er með *ismana* að fallnir englar Samaels, sérstaklega ljósenglarnir, sjá þetta jafn skýrt og þú sérð umhverfi efnisheimsins berum augum, og það er markmið þeirra í tæp sex þúsund ár að tæla frumspekivitund þína til að samþykkja sjálfblindu og sjálfsaftöku.
Andstæðingar Eingyðistrúarinnar eru hins vegar meðvitaðir um þetta og rita meir um nafnið en Trúaðir. Gaumgæfni (Discernment) og rannsókn eru öflug tól, enn hópsálarvígðir geta ekki valdið þeim, því hóphyggja Medúsu baðar mótar huga þeirra úr steinlími.
Við minnum því á Bæn, Iðrun, Vitnisburð og Fyrirgefningu, besta móteitur við ismum, raungusegðum og sjálfsdáleiðslu, sem í boði er. Fjögur frumefni vakandi óbeislaðs huga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 15. apríl 2025
Óreiðuskoðun dagsins - 20250415
Ef ég get sannað, að elítan eins og hún leggur sig, virðir sín eigin lög að vettugi, þá hef ég sannað að almúginn er ekki jafn elítunni gagnvart lögunum og þar með að nákvæmlega ekkert réttar- eða réttlætiskerfi (Jurisprudence) er til staðar á landinu, þaðan af síður jafnrétti, og alls ekki jöfnuður (Equality vs. Equity)
Þetta merkir að engin siðmenning ríkir meðal þjóðar og elítu, og því ástand frumskógarlögmáls. Sé þetta staðreynd, er algjört hrun, beggja hópa - hinna siðlausu sem stjórna og hinna siðblindu sem tilbiðja/hlýða - einungis tímaspursmál.
Sé þetta hvergi rætt, af ábyrgð og festu, ríkir siðrof, og sé innfall hafið ríkir siðfall*. Við slíkar aðstæður er tímasóun að "vekja" samborgara sína og hið eina skynsamlega í stöðunni, er flótti.
Sannið hið gagnstæða.
Á persónulegu nótunum.
Mínum þótti undarlegt nú á dögunum þegar vinstri hreyfingin ræddi hist og her, að siðfár (Moral anguish, panic) ríkti hér og þar - sem er ágætt sem slíkt, en minn hafði aldrei séð né heyrt þetta hugtak notað, né fannst það í orðabók, svo hann leitaði það uppi, og fann það skilgreint í tveim vinstri sinnuðum akademískum ritverkum. Ágætis orð sem slíkt, en skemmtilegt klór ... því jafnvel marxistarnir vita nú að verði þeir ekki stöðvaðir, verður ekkert eftir handa þeim. Þess vegna lögðu þeir VG niður og færðu djúsið yfir í FF og SF.
Einn af hornsteinum Hammúrabí laganna, var einmitt hvernig ætti að meðhöndla dómara sem sekir væru um dómsglöp (judicial malfeasance) ... reyndu að kæra Íslenska dómara (af handahófi) fyrir slíkt, og þar sem þú veist ekki hverjir þeirra eru sekir, þeir eru það allir, og þú getur byrjað á þeim dómum sem þeir neita opinbera birtingu á.
Annars var að koma út nýtt viðtal Peter Robinson við Thomas Sowell, og því höfum við ekki meiri skriftíma í dag. Góðar stundir.
** Siðfall (Civil[izational] implosion) þ.e. innri samfélög (og sjálfstæð félög*) dalandi og Þjóðfélagsríkið hið eina sem vex, og lög almennt orðin ólögmæt samkv. grunnlagasáttmála.
* Félög allt frá almennum (jafnvel óskráðum)* áhugafélögum til óháðra fyrirtækja af öllum stærðargráðum frá einmennings verktakarekstri til stórfyrirtækja.
* Félagið Blámi - sem hefur skráða kennitölu - hefur haldið allri sinni starfsemi óskráðri og ósýnilegri frá 2017, í kjölfar mikils áfalls þegar Firmaskrá reyndi ólöglega að afmá félagið. Þessi saga er vitnuð í Arkívinu, og öll skjöl til staðar, og málið fyrnist ekki verði úr því dómsmál - en brotið var á þrennum lögum þar af einum stjórnlögum. Þetta er djúpt og mikilvægt, - og mælistika - en tímasóun að útskýra Leirmennum og Hrópdýrum (Echoanimals) þ.e Bergmálsfólki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 14. apríl 2025
Erlend stríð koma Íslendingum ekki við
Það er brot á lögum Lýðveldisins, að taka afstöðu með eða móti erlendum átökum eða erlendum stríðs aðiljum. Ef elítan fer ekki að eigin lögum, er hún siðlaus, og þegar borgarar eru sinnulausir um slíkt, eru þeir siðblindir.
Þetta er mælanlegt siðrof (Anomie) og sé ekki brugðist við, verður siðfall þ.e. innfall siðmenningar (Imploded civilization). Hvar erum "við" þá stödd?
Ef við virtum eigin siðmenningu, og arfleifð eigin SIÐr, værum við fyrsta landið sem erlendir aðiljar hugsuðu til, svo hægt væri að hittast, ræða málin og finna friðsamlegar lausnir. Við ættum að vera sá sem leitað væri til, um milliráðgjöf, til að finna sættir.
Við erum ekki þar. Við erum voma eigin sögu og þjóðarvitundar. Hnípin plastþjóð í seldu landi.
Það er sérstakt, að sjálfumglaður sósíalískur Húmanismi sniðgengur ritningarnar sem kenna lausnir við slíku ástandi, og þær sömu vara við sama sniðgengi, með rökstuðningi. Við erum að upplifa afleiðingar þess að taka ekki mark á ritningum eigin [sið]menningar.
![]() |
Þorgerður fordæmir árás Rússa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. apríl 2025
Hverja áttu að hata í dag
Meðfylgjandi grein er afar áhugaverð, því nánast allt í henni eru rangsnúningur og misvísanir og hatursfullur áróður. Það merkilega við Nató, er að maður er alinn upp við að elska það, en svo fer maður að læra sjálfstætt, utan við girðingu áróðurs og heilaþvottar, og kemst að raun um hversu mikið af heimsmyndinni sem ól mann upp eru rangfærslur, lygar, og brenglanir.
Það mætti tíunda, og útlista, og útskýra, en til hvers? Partýið hefur breyst í martröð.
... og maður yfirgefur "gettóið" í huga og hjarta og bíður þess að skýjaborgin leysist upp í næsta þrumuveðri.
Án gríns, þá er um það bil þriðjungur borgara Nató gettósins á þessum stað í dag, að við viljum ekki lengur okkar eigin valdabákn.
Hið merkilega við alla siðmenningu sem fellur inn í sjálfa sig, er að valdamafían - elítan - virðist ekki læra af sögunni og menningunni, og virðist ekki skilja, að þegar sá heilaþvegni, eða sá fullsprautaði, lifnar af doðanum, snýr hann ekki aftur inn í kúgunarástina. Hann ýmist yfirgefur, eða hættir þáttöku í því sem eflir (Advances) kúgun hans og blöndu af hugarnauðgun og rúningi.
Ert þú til í að fórna þér fyrir Tobbu og Úrsúlu? Trúir þú ennþá á Bill Gates lygarnar frá 2020 og 2021? Trúir þú ennþá á "Ríkið" og "Réttlætið" eða "Sagnfræðina?" Eða bíður þú eftir dögun heimsmyndar sem þú ert til í að efla?
Sá sem hættir að trúa valdinu og missir virðinguna fyrir þeim sem beita því, hættir að hlýða við allar þær aðstæður sem hann kemst upp með. Þannig hafa öll heimsveldi hætt að vera til, ekki vegna ytri árása, heldur innfalls. Þegar Siðrof breytist í Siðfall, er skriða lögð af stað - samanber risann og steininn í Daníelsbók - sem ekki verður stöðvuð, og þá flýja gaumgæfnir.
![]() |
Hverjir eru Hútar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 12. apríl 2025
Ranghugmynd dagsins - 20250412
Það eina sem við getum ekki framleitt sjálf, eru bómull, hrísgrjón og stál. Allt annað getum við framleitt sjálf. En elítan hefur meiri áhuga á að flytja allt inn, og búa til milliliði með allskyns gjöldum, og opinberum nefsköttum, og það er allur tollastormurinn.
Þeim er slétt sama um tolla, þannig séð. Allur tolla-spuninn, er froðuþeyta. Kommúnista elítan er í áfallastreituröskun, yfir að Trump, sem vill minna rán og bákn, skuli geta minnkað rán, heilaþvott og bákn kommúnista og sósíalista ...
Já, það eina sem við getum ekki framleitt sjálf hér á Íslandi, eru bómull, hrísgrjón og stál, en við getum stytt þann lista niður í bómull og hrísgrjón. En þá yrðum við sjálfstæð, og sinnuleysi myndi hverfa og við færum að verja landamerkin við lóðina í staðinn fyrir innan við blóðrásina, og það væri voðavoða vont.
Já, við getum framleitt bensín og dísel, úr Hemp, og til eru trjátegundir sem gefa af sér timbur frekar fljótt. Þetta myndi lífga landbúnaðinn við. Og við þurfum ekki einn ESB markað fyrir fisk, það eru tíuþúsund sinnum stærri markaður fyrir fiskinn okkar (fullunninn) útum allan heim, og það er hægt að semja um allt hvað það snertir.
Egyptar myndu t.d. gefa okkur alla bómull sem við þyrftum, fyrir fáeinar grásleppur.
Við - sem sjálfstæð (hugsandi) þjóð - getum allt, en undir ESB og Nató, erum við verri en akurþrælar, sama hvað við svæpum og teneþvælumst.
Pældu í nýjasta útspili kommúnistanna, að verðfall á eldsneyti handa okkur sé mjög slæmt því það trufli stríð evrukommanna gegn Pútín! "You cannot make this shite up."
Eða þetta með gervigreindina og strætó ... þú getur ekki fengið leiðréttingu á ofgreiðslum, en hvað með stóru umfangsmiklu kerfisgreindina sem öllu stjórnar, og í mörgum lagskiptum flækjustigum?
Hnattræna kommúnista kerfið - sem Clinton bjó til - tryggir að þú hafir ekkert sjálfstæði, að þú verður að treysta nefndinni og Bákninu (Establishment) og sérfræðingunum fyrir öllu þínu lífi og allri þinni hugsun. Jafnvel sjálfbærnisþvæla UN (SÞ) snýst um að rífa af þér allt sjálfstæði og rýja þig allri náttúrulegri sjálfbærni.
Það er einmitt kommúnisminn (Sósíalisminn) í hnotskurn; að ræna þig og gera þig að skrúfu í hugarstolinni vél, sem stýrt er af djöfullegri (rangsnúinni) rökhugsun (óraunsæi). Og sá sem sér þetta ekki, árið 2025, eftir að heimssósíalisminn hefur kerfisbundið frá 1908 staðið að stærstu styrjöldum, ríkisrányrkjum og skoðana-ofsóknum allra tíma, hefur engan huga, heldur leiraða sál og bergmálsgreind.
Ástandið (samkv. Daníelsbók) mun standa fram undir 2050, jafnvel allt fram að 2097 í einhverri mynd, sé það rétt greining að djöfullegur heimssósíalisminn hafi risið árin 1908 - 1919 (Arkívið).
Ekki að það skipti neinu máli. Eignasköttun hérlendis stenst ekki stjórnarskrá, fyrirframgreiddir (staðgreiðslu) skattar ekki heldur, aukreitis stenst enga rýni sú ofsagræðgi sem skattar samtímans eru, og sé það ástand borið saman við samræður og umræður í þeirri ranghugmynd sem nefnist samtíma menning, er enginn hugur neins staðar og við ekki þess virði að fá aftur alvöru siðmenningu. En hvað veit maður sosum.
Það er svo margt sem er að hjá Homo Sapiens Sapiens að fullkomlega skiljanlegt væri, ef Alheimurinn strokar tilraunina út (aftur(x2))* og reynir nýja. Spádómarnir sjá það fyrir, en að sumum verði hlíft þegar allt fer upp á skerið, en skiptir það einhverju máli?
Hefur einhver komist út fyrir "alheiminn" og getað sannreynt að hann sé yfir höfuð til?
* Ef marka má ritningar, hefur það þegar gerst tvisvar, en skilja þarf í lagskiptingu, t.d. gætum við verið að klára þriðju umferð í fangelsun eitraðra sálna, og hver þeirra lokið 42 endurf.. og ritningar og fleiri úr fornri dularfræði styðja þá skrítnu tilgátu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 12. apríl 2025
Landadripp og þjóðakörfur
Allar tölur teknar úr CIA World Fact Book (2024)
Bloggar | Breytt 13.4.2025 kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)