Örsutt áminning, þung

Þó ég hafi lítið minnt á það síðasta hálfa árið, þá er krafan ofarlega í huga, alla daga og allar nætur.

Náttúrulega fólkið á að fá einn fjórða landsins undir öryggisgettó þar sem "við" getum séð um okkur sjálf, óhult fyrir ofbeldi og lygum Sprautudýra og annarra Leirmenna.
 
Eitt lýðveldi, tvö kerfi.
 
FLÝÐU - LIFÐU.
 
Ef þú heldur að Þjóðarmorðingjarnir séu hættir, þó þeir virðist í pásu, þá skaltu svara einni spurningu; Hvaða Antivistar hafa hægt á þeim og hvaða dómstólar slævt þá?

Fram fram fylking, allir í Davosgallann, strax eftir jól

Eftir áramótin lögleiðir "ríkið" svokallað "hringrásarhagkerfi" og allur efnahagur, öll vísindi, lýðræði, borgararéttindi, málfrelsi og ferðafrelsi, verður lagt fyrir "nefnd."
 
Til hamingju með sinnuleysið.
 
Ég setti í færslu fyrir fáeinum dögum spurninguna, veistu hvað ESG Investment er nefnt á Íslensku? Já, þú giskaðir rétt, Davos mafían hérlendis nefnir það Hringrásarhagkerfi.
 
Var einhver að ræða sturlun og innfallna siðmenningu? Er ég enn sá eini sem sá stjórnarandstöðu og þjóðfélagssamræðu gufa upp haustið 2017?
 
Spurðu næstu þrjá Íslendinga sem þú hittir tveggja spurninga: a) Veistu hvað fjórða iðnbyltingin er, og b) veistu að það er opinber stjórnarstefna (Ríkissmiðja) á Íslandi?
 
Svarið sem þú munt uppskera er tómt augnaráð gímalds þar sem áður var hugur.

Hvernig hliðvarslan virkar

Mikið hefur rætt verið um Guðmundar og Geirfinns málið síðustu áratugina. Óþarft er að bera í bakkafullan lækinn, flestir hafa séð heimildamyndina, eða lesið stuttar dagblaðagreinar eða lengri tímaritsgreinar, eða jafnvel bók eða svo.

Nóg um rætt, svo mjög mikið rætt og svo mörg sjónarmið komið fram, að bæði aðalatriðin týndust.

Fyrra aðal atriðið: Til að sanna að einhver hafi dáið þarf að finna af honum líkið, til að sanna að hann hafi verið myrtur þarf líkið að gefa það til kynna. Þetta heitir Habeas Corpus.

Síðara aðal atriðið: Til að gera dóm ómerkan, þarftu ekki að hjóla í dóminn, heldur þarftu að taka skjölin og skýrslurnar sem dómurinn er byggður á, og ákæra þá sem gerðu þau fyrir skjalafals, og sanna það; fyrir öðrum dómi. Þegar einn eða fleiri dómar hafa gert sönnunarskjölin og skýrslurnar ómerkar, er aðal dómurinn sjálffallinn.

Þegar fjórmenningarnir fengu sýknu, hafði þessi orðræða verið rækilega framsett á jaðarmiðlum sem þú hvorki fylgist með né skilur, en meitlararnir sem stýra Elítunni vita vel af.

Nú skilur þú hliðvörslu; þá aldagömlu aðferð að halda þjóðum í sjálfheldu, Gáfnaljósum í hnappheldu, og áhrifahvötum földum á bak við áhrifavalda. Þetta er ekkert flókið, en ef þú skilur þetta ekki, þá er það samsæriskenning (sem er fínt orð fyrir trúvillu og nornaseiða).

Almenn hegningarlög tilgreina 16 ára fangelsun dómara sem rangdæma: Glæpur á borð við dómsbrot hefur engar fyrningar. Ekki frekar en lög 144/2018.

Á Íslandi er aldrei rætt um embættis- og/eða dómsglöp (Malfeasance), en það er ekki vegna skorts á tilefnum.


Hvað með Ærðatréð?

Vafalaust hafa athugulir veitt því eftirtekt að sérfræðingar hafa nýverið flokkað furutré sem illgresi. Það mun hins vegar æra óstöðuga að reyna að skilja hvernig það er rökstutt, nema þeim sem trúa á dulspeki á borð við kolefnisfótsporið.

Skógareyðingar eru eitt af því sem mín kynslóð var alin upp við að trúa í blindni. Um 1980 var það vísindaleg staðryend að Amazon skógarnir, og aðrir regnskógar, yrðu horfnir um og upp úr 2010. Að fljótlega myndi allt líf á jörðinni kafna úr súrefnisskorti.

Enginn elítu-miðill segir þér frá því að vöxtur skóga og runnagróðurs hefur aukist og breitt úr sér um 25 til 30 prósent síðan 1970. Enginn birtir samanburðarkort af skógargróðri Evrópu, til samanburðar við notkun eldiviðar - eða smíðatimburs - síðustu 2000 árin.

Já, ég hef séð slíkar samanburðarmyndir, og leitað eftir þeim; Evrópa ræður ekkert við skógana sína, eina leiðin til að álfan kafni ekki úr trjám og runnum er að hætta að kynda eða matreiða við gasloga og hefja aftur eldiviðarnám.

Ærðir og óstöðugir vilja ekki vita þessa hluti, né heldur bera sig eftir að sannreyna hvort þetta standist. Þeir eru á leiðinni til Tene, að skoða umheiminn. Þeir trúa því að beljuprump muni eyða öllu lífi á jörðinni, nema Öfga-Vinstrið frelsi þá frá sjálfshatri sínu.

Að taka mark á kommúnistum - eins og öðrum sósíalistum - er andlegt og vitsmunalegt sjálfsvíg.

Fura er illgresi, helmingur þess sem þú gætir sagt er hatur eða sósíalískt guðlast, heilbrigð menning er hægri-öfgar, flensa er nú skæð farsótt og skyndilega er helmingi mannkyns smalað í allsherjar lyfjatilraun; og þess vegna veistu að þetta reddast, því Pútler er svo vondur, nema Nefndin (Sovétið) segi annað.

Og vísindi? Skilgreindu hvað það er, á meðan það er ekki bannað.

Mannkynið er dáið. Dautt fólk á ferli.

Bæn.

Iðrun.

Vitnisburður.

Fyrirgefning.

Umorðun; fetaðu sjaldfarna veginn að nálarauganu. Það er engin önnur leið opin.

 

Viðót, 19:18.

Þú ert ekki alveg að átta þig á því hversu vond mannvera þú ert, enda er skóla-, afþreyingar-, og fréttakerfið stillt þannig af að gefa þér þá fölsku sjálfsímynd að þú sért gull og gersemi með "gildan" kosningarétt, og að skoðanir þínar skipti Elítuna máli. Staðreyndin er sú að siðlaus elítan virkjar [ómeðvitaða] siðblindu almennings sjálfri sér til mögnunar. Eins og þú veist þá erum við öll hluti af samfélagi og "vísindin" hafa fyrir löngu sýnt fram á að undirvitundir okkar tengjast, þetta vita allir. Nú vildi þannig til að ég kom við í matvöruverslun í dag, til að kaupa smotterí, hundamat, mannamat, ofl. til helgarinnar, en ég ætlaði alls ekki að kaupa súkkulaði en gerði það samt. Þarna sérðu hvað mannvonska þín hefur skaðleg áhrif þegar þú lifir í afneitun. En straffinu lýkur núna. Þú veist að kommúnistaríkið mun banna texta af þessu tagi eftir áramótin; og það er gert með þínu sinnuleysis samþykki. Vittu til.

mbl.is Innflutningur sem stuðlar að skógareyðingu bannaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðustu forvöð að tjá sig áður en Ritskoðunarríkið neglir þig á staur

Áminning: Eftir áramótin setur Kommúnistaríkið Ísland ný lög um guðlast (uppnefnt hatursorðræða), svo nýttu tímann til áramóta að segja og skrifa hvaðeina sem þér dettur í hug, nema alls ekki segja neitt sem kommúnistarnir munu flokka sem hægri-öfgar.

Til að finna út hvað séu hægri-öfgar - eða hvað má tjá sig um eftir áramótin - mæli ég með miðilsfundi.

Það ætti að duga þér að vita að héðan í frá má KGB (áður Lögreglan) banka uppá hjá hverjum sem er eða setja í varðhald, eða láta hverfa, án nokkurrar lagalegrar ástæðu annarrar en að hana langi til þess.

Eins og þú veist mun mannorð þitt einnig lagt í rúst í fjölmiðlum ef þú ert guðlastari, andvísindasvín eða annarskyns rangmenni.

Á persónulegu nótunum: Hversu lengi og hversu oft, og hversu vandlega hefur einhver útskýrt fyrir þér síðustu 33 mánuðina, FLÝÐU, LIFÐU?

 


Það tók KKF tvo áratugi í að smala þér í gúlag, fyrirhafnarlaust

Þú fellur alltaf á sama bragði, þegar öfga-vinstrið skellir fram frösum og setningum sem hafa ekkert raunsæi, en hljóma vel í augum einfeldninga, og þú reynir að rökræða frasana eða svara þeim, og þegar þér heppnast að vekja umræðu eða rök, færðu persónulegar athugasemdir sem setja þig í vörn:

Öfga-vinstrið er ekki að reyna að rökræða eða vera raunsætt, það er að reyna að brjóta upp og mölva allar samræður, umræður, orðræður og raunsæi, frumeinda það og smala þér út í horn. Eina leiðin til að sigra slíkt, er að beita sömu leikreglum.

Meðan þú reynir að nota raunsæi, tapar þú.

Öfga-vinstrið er nebblega pappírstúngl og þau eru mun viðkvæmari fyrir eigin vopnum en þú, og þegar þú bregður fyrir þau sama fæti og þau bregða fyrir þig, öskra þau á þig, eða beita þig frekara ofbeldi, og fólk sér það. Um leið og fólk sér hvers kyns vitfirringar öfga-vinstrið eru, missa þau atkvæði og fylgi, og þá er ekkert eftir handa þeim nema kosningastuldur, ritskoðun, meira ofbeldi, eða það sem er enn verra; Ef þú fattar valbrögð (Tactics) þeirra of seint, kínverskt gúlag.

Vesturlönd eru hrunin, en það er hægt að byggja þau upp aftur. Það mun taka þrjár kynslóðir. Ef fulltrúar (Agents) Kínverkska KommúnistaFlokksins (KKF) klára rústun vesturlanda, mun það taka fjórar kynslóðir, því um leið og yfirtakan heppnast, tvöfaldast eyðilegging þess hruns sem er þegar hafið.

Hver fann upp hugtakið vopnuð segð (Weaponized speech)?

Öfga-vinstrið, og stofnanir þær sem þau hafa yfirtekið, svosem Alþjóðastofnanir? Já; vegna þess að svo margir um alla veröld eru að afhjúpa viðbjóðinn sem veltur upp úr þeim, að þau viðurkenna með ásökun (Confession through projection/accusation).

Þú hefur fyrir löngu tekið eftir hversu margt er að gerast í yfirteknum ríkjum og alþjóðastofnunum og félagsmálum síðustu árin. Þú hefur fyrir löngu furðað þig á að óraunsæið og rangsnúningurinn stigmagnast, og þú skilur ekki hvers vegna það virðist tilgangslaust að beita yfirvegaðri rökræðu; rétt eins og þau sjái ekki heilbrigða skynsemi.

Þau eru viljandi að stroka heilbrigða skynsemi út, því það er Marxískt verkfæri til valdtöku. Á næsta ári flokkast "Loftslagsbreytingar af Eldfjallavöldum" sem hatursorðræða og er því hegningarlagabrot. Er þetta langsótt? Ekki ef þú hefur fylgst með.

Vopnuð segð? Bitsegð? Vopnvædd orðræða? Eggsegð?

Flókinn texti með löngum orðum, sem merkir alls ekki neitt, en stjórnar lífi þínu, með frösum og rangmerkingu. Kommúnisminn í hnotskurn. Þú ert hér. Þú mátt kalla það samsæriskenningu.

Sem minnir mig á annað. Þú getur slengt einföldum svarfrasa á flest sem kemur frá dáleiddum vinstrikálfum: Enga samsæriskenningu.

Dæmi:

 

Twitter er ógn við þjóðaröryggi.

Enga samsæriskenningu.

 

Öfga-hægrið er hættulegt.

Eins og öfga-vinstrið?

 

[Kan]Ye West sagði að Hitler hefði verið ágætur.

Hver er Hitler?

 

Marínefndin bannar Gyðingahatur?

Eru til gyðingar á Íslandi?

 

Rússahatur er leyfilegt - af sama ákafa og Nasistar ofsóttu Gyðinga - og hvatt til þess. Eigum við að ræða þetta?

Nei, því við erum í gúlagi.

 


Einfaldleikinn

Vitjunartími þinn var sannaður fyrir þér, en þú hafnaðir af ásetningi.
Þannig muntu uppskera.


Það sem koma skal

Til að vega upp á móti hversu ágeng glerframleiðsla er á sandbirgðir jarðarinnar, má búast við sérstökum glerkvóta á iðnríkin, auk þess að setja sérstaka endurvinnslu- og skilaskyldu - á ónýtt gler frá heimilium. Þá er varað við því að keramik sé notað í stað gleríláta, til að hlífa leirbirgðum jarðarinnar.

Þér kann að finnast þetta langsótt og óraunsætt í dag, en þú sættir þig við klikkun á borð við kolefnissfótspor, lög um plastpoka og grænmetispoka, að flensa væri skaðleg heimsfarsótt og að genabreytir væri bóluefni, og að takmarka þurfi ferðagetu fólks, og umfram allt; verri ritskoðun en stunduð var á miðöldum.

Svo já. Marxistarnir sem hafa yfirtekið heimsmenninguna, munu skattleggja og/eða takmarka aðgang þinn að sand- og leirauðlindum.

Því þú ert vond mannvera.

Bókstaflega.

Og meðan ég man; þeir sem sprautuðu heimsbyggðina með geldingarefnum, blóðtappa og hjartaáfalla glundri, ætla sér að sprauta mann-kynið allt að sex sinnum á ári, miðað við yfirlýsingar þeirra, og örmerkið er á næsta leyti. Þú veist nottla að sáðfrumum hefur fækkað um 62 prósent og meir en helmingur eggfruma eru óvirkar. Er því slegið upp í fréttum heimsmarxista?

Samsæriskenning eða staðreynd?

Áður en þú svarar því, taktu eftir að "almenningur" er enn að rífast um að það sé munur á marxistaflokkunum þrem sem mynda ríkisstjórn Lýgveldisins og enginn veit um Maríunefndina sem nú hefur vald til að ritskoða alla orðræðu á landinu.

 


Lagið sem bráðum verður ólöglegt

Sá skemmtilega FB færslu áðan, og tók eftir að hún vakti athygli fleiri. Ég vona að höfundur fyrirgefi mér að afrita hana hingað inn (en ég kann ekki við að nafngreina hér):

"Af hverju eru yfirvöld svona hrædd við að venjulegt fólk segi skoðanir sínar eins og það mátti áður? Yfirvöld hika ekki við að segja sínar skoðanir…"

Ég leyfi mér að svara henni þannig:

Vegna þess að núverandi "yfirvöld" eru hústökufólk sem smeygðu sér inn (Infiltrated) í öryggiskerfin okkar og yfirtók þau; þ.e. valdaræningjar.
 
Þér kann að þykja það langsótt í dag, en þetta fólk mun gera tvö lög með Prodigy ólögleg á næstu misserum: Diesel power og Their law. Niðurhalið og geymið.
 
 
 
 
Úr einu í annað.
 
Það er mjög erfitt að afla frétta um hvað er raunverulega að gerast í Kína, og þjónar KKF á vesturlöndum gera sitt besta í yfirhylmingum. Mannkynið allt, átta þúsund milljónir, eru því sem næst algjörlega komið inn í eina miðstýrða kommúnistagirðingu, og flestir halda ennþá að það sé samsæriskenning.
 
Dautt fólk í tjóðri.
 
Það má drepa fólk á fleiri vegu en þú hélst.
 
Set tengil í tvö myndskeið um hvað er að gerast í Kína, en þetta er skásta rásin í dag til að vita hvað er að gerast þar. Ef þú veist hvað hefur verið í gangi síðustu 33 mánuðina veistu að vegasaltið er þar.
 

Þá er engin spurning að ef þú ert ekki að fylgjast með Steve Bannon - en hann er í dag leiðandi í baráttu okkar á vesturlöndum til að halda því litla sem eftir er af menningu okkar (og hvar vegasaltið er) - missir þú lesleyfi á spennulosunar-færslurnar mínar..

 

Veistu hvað "ESG investing" er á Íslensku og hvernig það er framkvæmd hér í Útópíunni?

 

Að lokum. Blessuð minning Christine McVie - frá 19430712 til 20221130:

 

 

 

Vopnvædd orðræða? Flókinn texti með löngum orðum, sem merkir alls ekki neitt, en stjórnar lífi þínu. Kommúnisminn í hnotskurn!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband