Morgunhugleiðing - 20250718

Broslegt að sjá "stjórnendur" "Lýgveldisins" - sem halda sig vera foringja (Führer[n]) - liggja flata eins og hormottur fyrir brýninu frá Brussel. Ísland er eina landið í heimsveldasögunni sem biður um að vera yfirtekið og flatt út.

Og leitar fídusinn neðst til vinstri á Spennulosunarblogginu virkar ekki lengur. Samsæri!

... en við eigum afrit af öllu. Spurning hvort maður forriti betri framhlið á það og með leitarfídus - en ég nota hann sjálfur til að fletta upp nýyrðingabröltinu.

e.s. Undirlénið "ordatal" komið með leitarfídus frá google, en einhver villa í "logostal" undirléninu sem við finnum út úr síðar (neðst á forsíðum). Eins og áður hefur komið fram, er athugandi að færa alla Spennulosun yfir á not.is eða hreinberg.is. Sjáum til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Við báðum aldrei um ESB aðild. Þvert á móti höfnuðum við órjúfanlegum hluta hennar tvisvar með bindandi hætti fyrir meira en áratug síðan.

Þetta og fleira því tengt hér: Símatími - Útvarp - Vísir (18.7.2025)

Við megum ekki gleyma okkar eigin fortíð og þegar teknum ákvörðunum.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.7.2025 kl. 23:17

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir þetta, Guðmundur, en Þjóðin og Lýðurinn er ekki sama fyrirbærið ;)

Guðjón E. Hreinberg, 19.7.2025 kl. 00:45

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvað áttu við með því?

Ég var einfaldlega að benda á lagalega bindandi niðurstöður.

Þegar slíkar niðurstöður liggja fyrir gilda þær hvað sem hver segir.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.7.2025 kl. 00:52

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ég veit - en hingað til hefur Þjóðin beitt okkur Lýðinn þeim úrræðum sem henni sýnist, hvað svo sem lögin segja, því lögin snúast um stjórnun þjóðar á lýð, eftir hentisemi. Hingað til hefur það verið þannig í verki.

Hélt að það væri augljóst.

Bestu kveðjfur

Guðjón E. Hreinberg, 19.7.2025 kl. 03:07

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband