Föstudagur, 20. júní 2025
Farið varlega í sveppina
Tengd frétt er nottla kórrétt, ef þú fæddist í morgun og hefur ekki fylgst með neinu síðan 2019 og leyfir engu að komast inn fyrir hugarmúrinn nema fyrirsagnir -elítunnar-.
Til að afpakka öllum samsæriskenningum, afbökunum og raungusegðum tengdrar fréttar, þyrfti hálfa bók, eða heila. Svo punktinn hér.
Annars bara allt í fínu. Þrátt fyrir veldisstækkun á firringu.
Skrapp í sund í morgun.
Keypti bananabrauð á heimleiðinni.
Minn prófaði að kaupa bananabrauð fyrir tveim vikum, þó það væri soldið dýrt fyrir budduna. Það var svo gott að minn leit við reglulega, á sama stað, en aldrei neitt bananabrauð, svo minn fattaði að um samsæri væri að ræða, til að lokka minn oftar í búðina, og þá var bara eitt ráð, að króa verslunarstjórann af og segja við hann þetta er klárt samsæri að bjóða upp á eitthvað ómótstæðilegt svo maður kíki oftar við. Stjórinn var snöggur að láta vita á hvaða dögum leyndardómurinn væri í boði.
Segðu svo að það borgi sig ekki að grúska í samsæriskenningum.
Annað. Mínum tókst að fá endurnýjað debet kort hjá bankanum, en ekki sársaukalaust.
Sagði þeim að digital gúlagið væri pirr, þeim fannst það fyndið.
![]() |
Heimsstyrjöld ólíkleg, borgin skrefuð og allir á Swingers-club |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning