-vitjunartímar-

Í Arkívinu fórum við vandlega ofaní sögu Vesturveldanna í og eftir Aðra Heimsstyrjöld, og niðurstaðan var sú að þau voru margfalt stórtækari í stríðs- og menningarglæpum en Nasistarnir og aðrir þeir sem Vesturveldin fóru í stríð gegn og eyddu.

Dýpri niðurstaðan var sú, að meðan glæpa þessara væri ekki vitnað um, af valdhöfum, og þeir gerðir upp, myndu glæpir og óhugnaður þessara aðila aukast, að það myndi skapa Siðrof og yrði sá Vitjunartími (Time of Reckoning) ekki viðurkenndur yrði Siðfall (Civil Implosion) og mjög líklega með allsherjar styrjöld sem gæti varað um langan tíma.

Þetta hóf að að rætast í mars 2020 og þegar við útskýrðum 2021 að Glundroði væri framundan, var það byggt á sömu útskýringum.

Glundroðinn hefur tvöfaldast árlega síðan!

Minnum á að Exodus, og atvikið við Fjallið Helga, er óháð tíma og rúmi, eða því hvaða trúarhugmyndir ramma þig inn - og hefur ekkert að gera með hópsálarhvatir (Sósíalisma) - að útgönguhliðið er varið af fjórum frumathöfnum (Metaphysical actions): Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning.

Gangið út úr hörmungum Heljar og til Fagnaðar Skaparans - af eigin vali - hikandi, skríðandi, eða hvernig sem er. Yðar vegna.

Þetta hefur ekkert með neinn að gera, engan hóp, engan söfnuð, engan bloggara, heldur þig, og persónuleg vensl (Relation) þau sem þú ræktar viðþúveisthvern, án milligöngu þriðja aðila hvort heldur sá aðili er [mann|anda]vera eða bók (Kredda, Hugmyndakerfi).

Já; þetta er Persónulegt, og það tilheyrir öflugasta leynifélagi Alheimsins.

 

 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góður Guðjón, -segi og skrifa - sá sagna besti.

Amen.

Magnús Sigurðsson, 16.6.2025 kl. 17:21

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir, Magnús, og fyrir að líta við.

Bestu kveðjur

Guðjón E. Hreinberg, 16.6.2025 kl. 17:47

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já þetta með bænina og iðrunina, ég er alltaf að fatta betur dýptina í þessu, en hinsvegar hefur maður frelsi til að velja sér hvaða vætt maður tignar og telur beztan, þá og þá stundina, sé maður reikandi og leitandi.

Þetta með siðrofið og siðfallið er einnig laukrétt. Þessvegna er eina rökrétta niðurstaðan úr þessum ómenningarhryllingi jarðarinnar löng og ömurleg borgarastyrjöld og allskonar styrjaldir vitleysinga við völd. Nema eitthvað annað gerist sem sameinar, endurkoma Krists?

Beztu kveðjur, góður að vanda.

Ps, hvað segirðu um innrætingarstefnu Ölmu og félaga? 

Ingólfur Sigurðsson, 16.6.2025 kl. 20:37

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband