Fimmtudagur, 12. júní 2025
Hamingjusama úrræða- og refsiríkið
Fangelsi samtímans eru algjör tímaskekkja, og lenging refsiákvæða eða þynging refsidóma, rétt eins og stærri eða fleiri fangelsi, hafa engin mildandi áhrif (Mitigation effects) fyrir samfélög Þjóðfélagsins (Ríkisins) - eða glæpi innan þess - þvert á móti.
Minnum á í þessu samhengi, að vitund er víðtækari en uppskriftir og reglugerðir og "úrræði" því Þjóðfélagið endurspeglar samfélögin innan þess, og Ástand (State) heildarpakkans er ekkert annað en staðfæring meðvitaðrar, ómeðvitaðrar og óvitaðrar heims- og sjálfsmyndar. Vitundarverkfræðin veit þetta vel, en kærir sig ekki um að þeir sem sjá þetta, séu memm í flækjunum sem ofnar eru eins og persneskt teppi utanum alla.
Siðlaus elíta þrífst ekki nema almúginn sé siðblindur (og hugstjarfur). --SIÐr
Þegar þú skilur þetta, sérðu að Ríkið er ekki til; heldur birtist sem staðfæring (Manifestation) sálar-Ástands.
Halldór Kiljan sá þetta og ritaði Vefarann mikla frá Kasmír í tilefni þess. Sérstaklega má draga það fram, að öfugt við sjálfsheilaga elítu samtímans, vissu forn persar að hinn fullkomni vefnaður er ekki til - en ef vefarinn nær því, verður verkið og vefarinn að viðurstyggð því aðeins Skaparinn er fullkominn og ögrun þess er varasöm - og því gættu þeir þess að í frægum teppum Iranshar menningar, væri gætt hinnar ófullkomnu lykkju.
Hinn óvitaði (Unconscious) skuggi tengist þessu, en ærum ekki óstöðuga. Þó sjá þetta ýmsir, t.d. sagði einn Antivistaspekingur - Max Igan - nýlega; "evil is willful ignorance of The Shadow" eða "illska er yfirveguð afneitun Skuggans."
Það hafa verið áhugaverðar áróðursgreinar ásamt vitundarmótandi viðtölum undanfarið í fjölmiðlum landsins. Rætt er við aðila sem starfa í "fanga iðnaði" Ríkisins, afbrotafræðingar, úrræðafræðingar, lögfræðingar og allskonar; allir mis ábúðarfullir vitringar sem gefa sig út fyrir að vita hvað þeir ræða um.
Enginn þessara aðila er marktækur innan samfélags fanga og fyrrum fanga. Ekkert þessa fólks - eða sérfróðra - hefur nokkra hugmynd um heimsmynd og félagssjálfsmynd þeirra sem afplána eða hafa afplánað.
Allt þetta fólk, þegar þau eiga snertiflöt við "vondu og misskildu glæpamennina" sjá þá í gegnum síu innprentunar og fordóma (fyrirfram mótaðra sérfræðiútskýringa), og þó sum þeirra gætu e.t.v. sett sig inn í viðfangsefnið, vita að þau eru getulaus þegar kemur að því að vinna með þeim auk þess sem "fangakerfið" sjálft, frá ákærum, til dóma, til úrræða, býður ekki upp á betrun heldur refsingu og öll menningarvitund þeirra hópa fólks sem mynda samfélög landsins, sjá ekki eða skilja ekki muninn á samfélagi og þjóðfélagi.
Þeir sárafáu - fyrrum - fangar sem t.d. taka þátt í félagssstarfi s.s. félags fanga, eru þeir sem engir í fangelsunum ræða við eða taka mark á.
Ábending: Þegar þú hefur afplánað, vikur eða mánuði eða ár, skiptir refsirammi þynging eða létting, þig engu; þú kannt að afplána og veist að þú ræður við það næst, og þú veldur tímanum. Enginn "samborgari" þinn skilur þessa náttúru, eða að hann er þræll [hugans] og að veggir allra nútíma fangelsa snúa út á við.
Hef reynslu af þessu, en vil ekki ræða, og það er eitt sem þú getur treyst með 98,6 % allra sem hafa afplánað; þeir hafa engan áhuga á að ræða við óinnvígða um hvað refsivist er eða hvert ferlið er frá ákæru, til aflokið. Þessu geturðu treyst, og sérstaklega þegar kemur að "vitringunum." Við þá er ekki rætt um neitt innihald; engin undantekning.
Átti eitt sinn samræður við reyndasta - og e.t.v. eina reynda - fangasálfræðing landsins (sem vinnur helst ekki að kerfinu), og þegar fram kom í samtali okkar að minn hefur reynslu, spurði hann "hver er skoðun þín á fangelsun og úrræðum kerfisins" og minn svaraði "það er gjörsamlega úrelt."
Sálinn kinkaði kolli, svaraði "það er laukrétt" og síðan ræddum við um eitthvað skemmtilegra, s.s. djúpar og flóknar duldir (Complexes). Hugsanlega vissi hann að tilgangslaust var að ræða frekar um afplánun.
Hugsanlega. Kúl hugtak.
Jamm, færslan er Spennulosun; það er tilgangslaust að ræða þessi mál við Fullsprautaða og Antivista, en mínum líður aðeins betur.
Þú manst að minn er hættur að blogga.
Þú varst að ímynda þér alla færsluna.
Til gamans má bæta einu við. Kona nokkur á dóttur, og á tímabili var tvísýnt um að dóttirin leiddist út í ógæfu - fíkniefni og tengt stöff. Í samræðum dúkkaði þetta upp og móðirin hafði miklar áhyggjur af þessu, hvað væri til ráða. Hún hafði rætt við félagsráðgjafa og fíkniráðgjafa og fleiri, og reynt tillögur þeirra. Staðan versnaði við hvert skref.
Minn spurði hana, má ég spyrja einn sem ég þekki úr afplánun, sem þekkir þennan heim vel? Hún svaraði því játandi, svo minn spurði kunningjann, og fleytti svörum hans áfram, sem voru einföld, innsæisrík, og hnitmiðuð, til hinnar áhyggjufullu móður.
Dóttirin tók í kjölfarið vínkilbeygju út úr öngstrætinu sem hún var að lokkast út í og er í dag ung og efnileg kona í "þjóðfélaginu" sem má ekki vamm sitt vita.
Einu geturðu treyst, í Þjóðfélagsköltinu, að þú hvorki veist að það er költ, né hvernig vitund þín er dregin inn í blauta ullarhúfu og henni snúið á raunguna. Sem er ágætt, meðan þú fetar hrímstíg "upplýstra" uppskrifta með bundið fyrir bæði, og þiggur úrræðastuðning ef upp kemur kulnun.
Sem minnir á annað skemmtilegt.
Ungur maður "í nær-samfélaginu" var sendur á feðranámskeið á vordögum, og er skikkaður í feðraorlof á komandi vikum (sem hann má afhenda móður 20 % af), svo hann geti orðið vottaður nútímapabbi í "þjóðfélaginu."
Hann sér reyndar költið, og fattaði það alveg sjálfur, og er snillíngur að þykjast vera memm.
Skemmtilegur gaur, samt fullsprautaður.
Tónlist dagsins, frá Cream (1966 til 1968) er gott dæmi um þegar maður fattar,
því þau tvö árin sem Cream starfaði, hafði hún meiri áhrif en allar
aðrar popphljómsveitir frá upphafi, og þurfti ekki
"vitundarverkfræði" til að ná til fólks,
og er enn vel minnst.
Þegar þú sérð að þú situr allt þitt líf á
Aladdins teppi, sérðu einnig að það svífur.
![]() |
Hvað þýðir að byggja eigi fyrsta öryggisfangelsið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður Guðjón, -væri það t.d. betrun eða refsing að vera skikkaður með ökklabandi í fáviskufabrikku þó maður fengi að vera heimavið í ökklabandinu á kvöldin?
Ég hef grun um að fangelsin eigi eftir að að verða meira hagvaxin fyrir eftirlitsiðnaðinn sem kann að fylla út formið, þau muni hvorki hafa með refsingu eða betrun að gera.
Verði bara eins og hvert annað einkavæddur sjálfsafgreiðslukassi með eftirlitsmyndavél í snjallveruleikanum.
Kaninn hefur þróað einkavætt eilífðar varðhald og Kínverjar innprenta normið til eilífðar í ökklabandi.
Veit samt ekki alveg hvort kemur til með að gefa meira í aðra hönd, en ekki eflir það ímyndunina aða innsæið. -Þá er nú gettóið eða afdalurinn betri.
Að öðru; -feikna fínir pistlar hjá þér eftir að þú ættir að blogga, eins og þér einum er lagið.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 12.6.2025 kl. 15:04
Takk fyrir innlitið, Magnús, og góðu orðin. Þú átt við pistlana sem þú ert að ímynda þér.
Varðandi refsingar og betrun, dettur mér tvennt í hug.
Annars vegar fyrsta bíómyndin með Johnny English, þegar breyta átti Bretlandi í allsherjar fangelsi - sem öll vesturlönd eru orðin að. Hins vegar frétt (með mynd) sem ég sá á dögunum (en finn ekki aftur), þar sem ung kona í Bandaríkjunum hafði verið dæmd til að vera með ökklaband í fáeinar vikur, og þurfti sérúrræði svo hún gæti sótt ballet tímana sína með ökklabandið ofan við balletskóna.
...
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 12.6.2025 kl. 16:09
Eitt sinn var í fréttum - fyrir margt löngu - að fangi strauk, en hann fannst aftur. Minn fjallaði um (í Arkívinu) að um sviðsetningu væri að ræða, með rökstuðningi. Nokkru síðar hitti minn á mann í nærsamfélaginu, sem starfað hafði við vörslu þegar minn var í afplánun. Manninn sagði, "ég sá það sem þú skrifaðir um fangann sem strauk" - síðan glottum við báðir. Málið var ekki rætt frekar.
Guðjón E. Hreinberg, 12.6.2025 kl. 16:40
Mig grunar að innan skamms munu íslensk fangelsi bjóða upp á allt sem almennum borgurum stendur til boða annað en kannski Tene túra. -Þannig séð erum við nú þegar komin í unionið.
Annars er ég það fatlaður til sjónar og heyrnar að ég horfi ekki á bíómyndir frekar en fréttir, -viðkvæm sál sem varast að verða vitni að því sem er í beinni.
En það var einu sinni rútubílstjóri á þvottaplani sem sprautaði á mig ísköldu vatni um leið og hann orgaði; -ég sá að þú heyrðir þegar ég flautaði.
Magnús Sigurðsson, 12.6.2025 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning