Miðvikudagur, 11. júní 2025
Aukaviðaukafærsla - 20250611
Ef lesandinn tilheyrir þeim hópi Gáfnaljósa RÚV og Sýnar, að ekkert gerist í heimi hér nema það sem fjölmiðlar fjalla um, er hann áttavilltur á röngum bloggþræði. Í Spennulosun, sérstaklega þeim sem eru ekki ritaðar en birtast einungis ímyndunarveikum, er ekki fjallað um "Veruleikann" heldur Óreiðuskoðanir.
Að við viljum ekki hvaða lesanda sem er, hlýtur að vera augljóst þeim sem næmir eru fyrir stíl, því hann er hannaður en ekki sjálfsprottinn. Þetta snýst ekki um tíðni (Frequency) sem meitlarar hafa innrætt óstöðugum, heldur ómloðun (Resonance) fjölæringja og aldingja (Perennials and Sages).
Þú ert annað hvort fínstillt viðtæki, eða sjálfstæður sendir. Eða eikkað annað.
Evrópa hefur staðið í ljósum logum í fimm ár, uppþotin í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Ítalíu, Austurríki og víðar í álfunni eru vel sýnileg þeim sem hafa undanfarinn áratug komið sér upp tenglum á netinu - bæði texta og myndskeiða - sem fjalla um hitt og þetta sem hvorki birtist á meginstraumsmiðlum né á jaðarmiðlum stýrðu andstöðunnar. Þá er gaumgæfum (Discerned) nokkuð ljóst að öll álfan hefur verið í allsherjar stjórnarkreppu í jafn langan tíma.
Að tveir þriðju hlutar ESB ríkja eru öll á barmi byltinga og borgarastyrjalda, eru engar ýkjur. Að þessu er mætt með vægðarlausum heilaþvætti, ritstýringu allra miðla (megin- og jaðar-) er vel ljóst og víða fjallað vel um. Að stjórnkerfin sjálf - ásamt fjórðu og fimmtu deildinni (4th & 5th column) - eru upptekin við allskyns misvísanir og afvegaleiðingar með ýmsum aðferðum, er þó ekki augljóst nema menn hafi yfirgefið allar tjaldbúðir (Tabernacles) og flæmt eigin hvöt til huglægs (Subjective) mats á burt.
"Tjaldbúðin [um]hvelfist fyrir þann sem inngengur" --Rabbínar
(The Tabernacle warps for the one who enters." --The Talmud)
Undanfarna viku hefur Los Angeles logað í óeirðum, minnst er á þetta í meginstraumsmiðlum en gírað niður í áherslum, meðan margir jaðarmiðlar eru á bólakafi í að grúska hver sé að gera hvað og hver að segja hvað, en skera varla kökuna.
Komið hefur í ljós að margt í óeirðunum er stýrt, og minnir vel á hvernig Antífa og BLM óeirðir víða í Bandaríkjunum 2020 til 2021 voru þaulskipulagðar og vel fjármagnaðar. Margir fóru ofaní saumana á því á sínum tíma og bentu á hverjir skipulögðu og nokkuð ljóst var hvaða hugveitur stóðu að því að setja Bandaríkin því sem næst á annan endann fyrir fjórum og fimm árum.
Hitt er annað; uppþotum fækkaði lítið, ekki frekar en í Evrópu; umfjöllunin var gíruð niður. Að uppþot gerast á ýmsum stöðum, eru ekki Atvik, sem slík, umfjöllun þeirra eru hugræn atvik. Því var gírað niður (og atvikin falin) ekki síst fyrir þá sök að skipulagða tundrið tendraði annað bál sem er verra að taka í taumana á eða beina í valinn farveg.
Hvaða bál? Það er einfalt; fólk áttaði sig á að það er enginn munur á hægri og vinstri, og að miðstýrða allsherjarríkið sem hefur yfirtekið trúmálin, er það sem Jesú nefndi "viðurstyggð á helgum reit."
Mann-kynið og Mann-fólkið eru á þeim merkilegu tímamótum - síðan 1975 - að hafa fullreynt sjö [heims]sýnir, sem hafa verið framkallaðar (útfærðar) í um það bil tuttuguogeinni útgáfu (7 sýnir, 21 mynd (+0; 42 ef á hvolfi (Dialectics))), og höfum við fjallað ítarlega og djúpt um þessi mál í Arkívinu. Aðal niðurstaðan er sú að við - fólk um allan heim - erum í dag hnípið fólk án sýnar, við höfum því engan leiðarvísi út úr siðrofinu (Anomie) sem smámsaman hefur yfirtekið huga fólks og SIÐr um allan hnöttinn undanfarna fjóra áratugi (1975-2016) og siðfallinu (Implosion) sem fæddist í kjölfarið.
Þetta merkir að þegar "veruleikinn" sem fólk hefur treyst, riðlast í hugarmódeli þess, riðlast einnig getan til að finna leiðina eða lausnina við þeirri sálrænu og siðfræðilegu sundrungu sem myndast.
Munum hér að Efnishyggjan (Materialism) er blekking; veröldin sem þú snertir og sérð og heyrir og finnur lyktina af, er aðeins til sem líkan í huga þér. Þú hefur engan grun um hvað það er sem skynfærin fimm missa af og þar sem vitund þín rýnir líkanið sem ytri heim - af eðlilegri grunnhvöt - áttar vitundin sig ekki á að ytri veröldin, þó hún sé þarna (utan skynfæranna) er hún aðeins líkan í huganum.
Að náð raunsæis, var fjarlægð úr mannheimi 2019, ætti að vera óþarft að ítreka, nema nottla þeim sem eru án raunsæis, en ærum engan.
Víkjum aftur að L.A.
Þegar Bandaríkjaforseti virkjaði Landgönguliða Bandaríska flotans, á dögunum, til að vera borgarstjórn Los Angeles til aðstoðar, vöknuðu spurningar víða. Ríkisstjóri Kaliforníu tjáði efasemdir um gildi þeirrar aðgerðar, svo og borgarstjórinn, og efasemdir þessar eru mjög gildar og vægismiklar, því Sambandsríkið í Washington hefur ekki sjálfgefna heimild til að beita Bandaríkjaher innan fylkjanna, sem löglega eru sjálfstæð ríki og hafa sín eigin þjóðvarðlið (National Guard).
Þá er ekkert nýtt að umsvifamikil uppþot gerist í L.A. og bæði lögregla borgarinnar og þjóðvarðlið Kaliforníu hafa útfærðar verklagsreglur til viðbragðs og úrræða. Því má spyrja sig hvers vegna Washington stjórnin - án tillits til heilaþveginna skoðana okkar á Trömp sem virka þannig að menn neikvæðast ósjálfrátt við öllu er hann varðar - brást svo skjótt við, og af þvílíku offorsi.
Nema eitthvað annað sé í gangi, því t.d. er sjálfstæðishreyfing í Kaliforníu sem hefur frá 1860 verið mjög sterk og undanfarna tvo áratugi vaxið fiskur um hrygg. Svo er einnig í mörgum öðrum Bandarísku ríkjanna, sérstaklega eftir aðgerðirnar 2020 til 2023. Sumir muna eftir "The Oregon Standoff" fyrir tæpum áratug, en viðbragð Sambandsríkisins var heiftúðugt, enda sterkar útskilnaðar* hreyfingar í ríkjunum/fylkjunum Oregon, Washington (Bandaríkin) og British Columbia og Alberta (Kanada) sem allar haf áhuga á að endurmynda gamla "Oregon Count[r]y" sem sjálfstætt sambandsríki (Federation).
Þá er áhugavert að sífellt stærri hluti þeirra sem styðja slíkan útskilnað (Sedition, Secession), í Kaliforníu veifa ekki Kaliforníska fánanum, heldur þeim Mexíkansa!
Munum að Mexíkó er Sambandsríki, rétt eins og Bandaríkin, og vel má velta fyrir sér lagastoð beggja sambandsríkja varðandi útkilnaðarhyggju í öðru sambandsríkinu og inngöngu í hitt. Þetta er umræða sem allar götur frá 1860 er mjög virk í Bandaríkjunum, og þeir sem mest ræða þessi mál hafa ítrekað bent á að niðurstaða Borgarastríðsins 1861 til 1865 - sem byggðist á þessari deilu - leiddi ekki til lagalegrar niðurstöðu, langtífrá.
Bíðum nú við, þetta er skyndilega stærra en L.A. 2025, því undanfarinn áratug hafa streymt inn í Bandaríkin allt að fimmtán milljónum ólöglegra og mislöglegra innflytjenda, meirihlutinn frá Mið- og Suður-Ameríku. Oft er litið til fátækra frá Kólumbíu og Venezúela, en það er það sem megin og jaðar miðlar birta, aldrei er rætt um þá sem gera fólksflauminn geranlegan; glæpahringina (Cartels) í norðurfylkjum Mexíkó og suðvesturfylkjum-Bandaríkjanna.
Já, glæpahringirnir vinna báðum megin línunnar og hafa gert í meira en öld og eru vandlega skipulagðir, vel fjármagnaðir, og vopnaðir, og hafa eigin heimsmynd. Engar greiningar eru til varðandi það hverra hagsmuna þessir hringir gæta þegar lengra og víðar er horft til, eða þess hversu stór hluti borgara Arizóna, New Mexico og Texas - jafnvel Nevada og norðar - myndu vilja endurskoðun útskilnaðar fylkja sinna, eða hversu hratt hefur verið unnið í þessa átt undanfarna tvo áratugi.
Reyndar er líklegra að Texanar myndu frekar vilja einstætt "Republic" en aðra aðild að Sambandsríki, en sjáum til, Texanar eru soldið klikk.
En úskilnaðar umræðan er ríkust þar, meðal fylkjanna.
Höfum annað í huga í þessu samhengi, sem er verulega stórt atriði í Alþjóðlegu, Sagnfræðilegu og Menningarlegu tilliti: Ekkert heimsveldi treystir sér til að ráða niðurlögum Bandaríkja Norður Ameríku vegna þess að sambandsríkið er varið af tveim stórum úthöfum og hefur í fullu tré við þau tvö nágrannaþjóðríki sem deila landamæri með þeim. En til þess að annað heimsveldi verði til, í staðinn, mun einhver ráðst í að kveða þau niður eða yfirbuga, en með hverskonar átakatækni?
Þetta er atriði sem t.d. Japanska Keisaraveldið (Imperial Japan) reyndi að leysa á milli 1920 og 1940 þegar Japanir eyddu talsverðum fjármunum annars vegar í að koma "innflytjendum" á eigin vegum til Mexíkó, Perú og Brasilíu annars vegar (til að eiga vogarafl í þeim heimshluta) og byggja upp fyrirtæki af ýmsum toga sem gætu dulbúið ýmislegt hins vegar (jafnvel vopnageymslu og skotfæraframleiðslu), í þeim tilgangi að þegar til óumflýjanlegs Kyrrahafsstríðs kæmi, gætu þeir tafsað svo í Bandaríkin, eða jafnvel tælt Mexíkó út í átökin, að sundurleit Bandaríkin ættu erfitt með að standa í stríði hinumegin á hnettinum, í Suðaustur Asíu. {Hugmyndin er þó ekki Japönsk, enda höfðu bæði Þjóðverjar og Frakkar áður reynt svipaða átakatækni (Strategy) í Mexíkó og í sama tilgangi.}
Mexíkó hefur ekki viðhaft vingjarnleg eða hlutlaus milliríkjasamskipti við Bandaríkin síðan 1858, og munu aldrei gera. Þá vita þeir [kanadamenn] sem kæra sig um, að Bandaríkin hafa þrívegis reynt að leggja Kanada niður með hervaldi.
Það eru til sagnfræðingar sem hafa gramsað í þessu, en þú finnur þá hvorki á Landsbókasafninu né YouTube, eða á Íslenskum bloggsíðum. Þú þarft að gramsa. Ég gæti verið að skálda. Afsannaðu fullyrðingarnar.
Ha, að Bandaríkin séu sundurleit? Var ekki búið að banna lesendur með Hollývúdd og Wikipedia heimsmynd? Þetta verður ekki útskýrt, því jafnvel Wikipedia og YouTube veita upplýsingar umetta. {Veistu hversu tæpt stóð á hvort FDR tækist að smala Bandaríkjunum í stríðið 1941 og að hann hafði yfir 2000 MI6 leyniþjónustumenn frá Churchill í djobbinu?}
Lengi hefur verið unnið að því að sundra Bandaríkjunum og margt bendir til að sú aðgerð sé byrjuð að bera árangur. Hugveitur valdaþráða á bak við Pentagon - sem eiga Trump, Musk og Palantir (The Pentagon Junta)* - sýndu þegar árið 2015 að vera þessa meðvitaðar og með tilbúna átakatækni til að bregðast við.
Þetta er staðan á sviðinu - og allt sem hér er ritað var vandlega rýnt og fjallað um í Arkívinu fyrir tæpum áratug. Langt er síðan við ræddum - í Arkívinu - hvers vegna Trömp fígúran var smíðuð (Trampolini) og einnig hvers vegna Bandaríkin væru að draga sig út úr Úkróstríðinu (sem er ótengt ræddri sundrungu), en í komandi heimsátökum er það ósk "The Pentagon Junta" að Bandaríkin geti firrt sig ábyrgð, rétt eins og í stríðinu 1914 og 1939, og komið inn í lokin og þá eini aðilinn svo óþreyttur að græða á allri slammertunni, og skáldað sig sem bjargvætt og í framhaldinu mótað rafræna heimskerfið.
Flókið?
Þú manst að bannað er að taka mark á Spennulosun, og þessi færsla er ekki til, enda minn hættur að blogga; þú varst að ímynda þér alla lesnínguna.
* Á Íslandi er lítið rætt um "Aðskilnað" eða "Aðskilnaðarhyggju" - Sedition, Secession - enda óþarft í Stórastamöggins. Notum hér orðið Útskilnaður fyrir Ríkisútgöngu eða Aðskilnað úr þjóðríki eða ríkjasambandi eða sambandsríki. Samanber "Vestmannaeyjar sóttu aðskilnað frá Lýgevldinu" eða "Vestmannaeyjar stofnuðu útskilnað frá Lýgveldinu." --Málvitundin
* Til að útskýra hugtakið Herforingjastjórn Pentagon - sem vísar til dulvalds (Meta authority), þyrfti langa ritgerð, en rætt er um fjölskyldurnar sex sem bjuggu Bandaríkin til upp úr miðri átjándu öldinni og hafa mótað alla Ríkis- og Lagasmiðju sambandsríkisins síðan þá. Þetta hefur verið rætt ítarlega í Arkívinu.
* Við ritum aldrei þrístaf samanber í "þátttöku" ritum við "þáttöku."
-------
e.s:
This is what the George Soros-World Economic Forum Replacement Migration Policies looks like in full effect.pic.twitter.com/5qipiarEXj
Liz Churchill (@liz_churchill10) June 9, 2025
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning