Viðaukafærsla - 20250610

Fyrir þrem árum veltum við því upp, að stríðin sem þá hófust, væru sviðsetning til að villa fólki sýn (Diversion). Árin tvö þar á undan fékk almenningur að finna fyrir því á eigin skinni - fyrst með grímum og varðhaldi heima fyrir og því næst með sprautumeðferð tilraunaefna (og allt byggt á lygum) - að mannréttindi þess eru einskis virði, og þeir fáu sem veltu við muninum á borgararétti og mannréttindum, tja, soldið flókið?

 

 

Hér er hnífurinn í kúnni; þrjátíu prósent fólks um allan hnöttinn áttaði sig á því að hnattræna stjórnkerfið er illa innrætt og skeytir einskis og að "elítan" sem svo nefnist, er þjófótt, morðótt, og yfirleitt illskeytt (Wicked).

Samtímis lygaraplágunni var byrjað að innleiða snjall-borgirnar og snjall-stjórnkerfin - sem uppnefnast gervigreind (en eru algríms uppskriftir), sem vitað er fyrirfram að mun fjarlægja frá fólki þá litlu tilfinningu sem það hefur fyrir að kerfið sé þess virði að lifa við það.

Þróun snjall-borga og snjall-kerfa er jafn langt komin í Kína, ESB, Rússlandi, USA og alls staðar, og "stafræna-hel-gúlagið" verður ekki stöðvað nema með guðdómlegu inngripi. Svo elítan bjó til fáein stríð, Úkraína, Gaza, Súdan og önnur smærri, sem halda heimsbyggðinni njörvaðri við "hvað gerist næst" og í flokkadráttum "ertu með þessum vonda eða hinum vonda."

Á meðan er blaut ullarhettan dregin yfir okkur öll.

Undanfarið hafa verið miklar umræður í Bandaríkjunum t.d. og á Bretlandseyjum - meðal jaðarfólks - um hernig Palantir kerfið hans Peter Thiel í samstarfi við Elon Musk er að yfirtaka öll heimskerfin, en viti menn; Palantír fulltrúar og pabbians Elon Musk, ásamt flestum helstu "jaðar rýnendum stríðanna" voru á tveim meiriháttar ráðstefnum í Rússlandi nú eftir mánaðamótin, um einmitt innleiðingu þessa sama.

Enginn virðist átta sig á að Microsoft og Android Samsung og iPhone Apple -snjallkerfin- eru jafn útbreidd þar í landi og annarsstaðar.

Velkominn til Heljar; þú mátt bæði nota QR snjall-kótann til að kommenta og kjósa.

Skrapp í bankann í morgun, það kemur í ljós á næstu tveim vikum hvort ég fæ haldið plastkortinu hér í paradís snjall-kerfanna. Hik kom á suma sem voru nærri, þegar minn missti út úr sér, er orðinn soldið pirraður á stafræna gúlaginu. Svo minn sá að sér og bætti við, afsakið, ég hef erfiðar skoðanir.

Iðrun virkar.

Sumir sjá ennþá mun á Bæden og Trömp, jafnvel á Modí, Xí og Pútín; en þetta er allt sama liðið, dímonar sem staðfærast (Manifest) sem fólk, og stjórnvaldskefin þeirra eru öll hin sömu: Það sem Biblían nefnir Dýrðarkerfi Samaels - þ.e. Satan fór með Jesú upp á hátt fjall og sýndi honum allar dýrðir veraldar, og bauð honum þær, enda á hann þær, svo fremi að Jesú myndi efla hagsmuni Satans (Tilbiðja).

Það er engin málamiðlun til í Helvíti. Þrír vogunarsjóðir, stjórna öllu skúespilinu, rekjanlega, og ótrúlega. En þú mátt samt bæði kjósa og kommenta.

Leiðrétting, stjórna öllum þeim sem hlýða skúespilinu. Sumir hafa yfirgefið Píramída garðinn og eru að snæða manna frá Guði úti á mörkinni, en þeir komast ekki í birtingar-algrímin á félagslegu miðlunum, eða í fréttirnar.

---

Já ég er ennþá hættur að blogga - þessi færsla er bara ímyndun í þér.

Góðar stundir.

 

e.s. Áhugavert hversu margt er að koma fram á þessu misseri, sem styður greiningu okkar frá 2017, að Hrunið var sviðsett valdarán, og að sagan af því var útúrsnúningur (Diversion). Sem minnir á að þau 20 til 30 prósent borgara Vesturlanda, sem misstu aleiguna í kjölfarið, voru beinlínis rænd fyrir opnum tjöldum, með embættisglöpum (Malfeasance).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Þegar skorið er að innstu rótum sannleikans.

Rúnar Már Bragason, 10.6.2025 kl. 14:52

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Nákvæmlega, Rúnar Már, hér í Helvíti er það mannvonska að hafa heilindi og heiðarleika að leiðarljósi.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 10.6.2025 kl. 15:04

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband