Ranghugmyndir dagsins - 20250606

Allt sem þú gerir í dag með nýjustu og flottustu tölvunum, er hægt að gera með i386 dx tölvu frá 1993, og hugbúnaði þess tíma. Grínlaust - minn var fagmaður í tölvuheiminum, frá því fyrir þann tíma. Það eru nú allar framfarirnar.

 

 

Já, snertiskjáir voru til fyrir 1980. Sem ætti að vekja sumum djúpar spurningar. Sem dæmi, er Android síminn þinn, ekkert annað en krúttlegt notendaviðmót ofan á Linux tölvu, gegnum Java sýndarvél.

Sem er bilað fyndið, ef maður hefur smá húmor, því Linux er eitthvað sem enginn vill nota eða vita af og "Java sýndartölva" er bara eitthvað flókið og djúpt; en samt geturðu ekki verið án hvorutveggja, ef það er rétt matbúið handa þér.

...

Áður en heimsvalda mafían - elítan - útrýmdi boðskap Spámannsins Manú*, fylgjendum hans og öllum ritum, varði útsendari Frímúra sautján árum í að verða einn öflugasti Manúistinn (Manichaeism), og þegar flugumaðurinn þekkti hreyfinguna út og inn og vissi allt um veikleika hennar, breyttist hann í "heilagan Ágústín" Rómversk kaþólskra og þekking hans var notuð til að rústa Maníkeismanum.

Aðeins tvennt lifir enn af boðskap Manú - en hann samtvinnaði margt úr Zoroaster í boðskap í bland við Abrahamismann - var a) að borða ekki kjöt þ.e. að drepa ekki dýr og b) tvöfeldni heimsvaldanna í baráttu góðs og ills, en þetta síðarnefnda er oft vísað til í erlendum orðræðum.

Þetta síðasta er reyndar skýrt í öllum útgáfum Eingyðistrúarinnar - oft nefnt Dúalismi í Húmanista-Kristni - en útskýrt með mismunandi stefjum, og Manúisminn var e.t.v. skýrastur, en Zorasterisminn er ekki síður skýr með þær línur sem segja má að Manú hafi slípað til. Spennandi efni, en í dag utan efnistaka, en að sjálfsögðu full útskýrt í Arkívinu.

Dáldið áhugavert ... því það er sjaldgæft að valdamafía föllnu englanna nái að hreinsa svo gjörsamlega upp einhvern guðdómlegan boðskap, en til eru örfá fleiri dæmi t.d. boðskapur Temujin sem var í margar aldir "uppáhalds hitler" heimsvaldafólksins áður en nýr hitler kom fram.

Minnum á frægustu setningu Temújins - en hann hóf baráttu sína á ferð til helgs fjalls í vitranaleit - "ef þið væruð ekki siðfallin, hefði Guð ekki sent mig í veg fyrir ykkur."

Ha, hvað með Hitler?

Öll félagslegu kerfin í heiminum eftir 1950 eru mótuð eftir Þýska nasistakerfinu, öll, og nú er verið að fjarlægja þau öll, sem er soldið sérstakt, því eftir síðari heimsstyrjöld voru nokkrar milljónir hermanna - hersetuliðs - sem komu heim frá Þýskalandi með það á hreinu hversu öflugt félagslega kerfi nasistanna var, og því neyddust "Bandamenn" til að smíða lélegar eftirlíkingar og viðhalda í tvær kynslóðir, sjálfum sér til ama.

En nú er fortjaldið rofið - aftur - og Helvíti getur ekki lengur þóst vera það sem það er ekki.

...

Íslenski aðallinn - elítan - hamast þessa dagana að stimpla alla sem "hægri öfgafólk" sem vilja ekki láta heilaþvo sig og rýja sig inn að skinni fyrir útskiptimenningu (Replacement culture). En aðallinn sjálfur kann ekki Íslensku, samanber: Lýðsefari (Populist) er sá sem sefar reiði fólks með því að höfða til Lýðsælda (Populism) almennra hagsmuna ...

Og Merz, sem af sumum er talinn hættulegri en sjálfur Hitler, á Kanslarastóli Þýska Sambandsríkisins, óbeint viðurkennir (með fæðingarvottorði langafa Trömps), að allir forsetar Bandaríkjanna eru komnir af Carolingian og Merovingian blóðlínum (Melusin afkomendur) forn Frankóníu - eða Karla Magnúsar (einum frægasta rómverska keisaranum).

Við höfum oft bent á að laun-elítan sem þú heyrir aldrei um og tosar í alla spottana, og jafnvel Antivistar og Samsæraútskýrendur grúska ekki í (með örfáum undantekningum), hefur meiri trú á Dulfræðum (Mysticalism) - sem er ekki hið sama og Dulspeki (Mysticism) - en þeir sjálfir taka á "vísindunum" sem þykjast vera það sem þau eru ekki, og því dulspeki, og við öll hin, bæði húsþrælar (elítan) og almennir akurþrælar erum heilaþvegin af.

Bilað fyndið, þegar það skilst.

Ræðandi um Carolingjana og Merovingjana - sjálfur gleymi ég oft hvor aðalsættin (Dynasty) kom á undan, minnir að hér sé röðin rétt (við flettum ekki upp á Wikipedia nema í neyð). Þetta eru í rauninni Melúsin ættir, sem er dýpra stöff, en það tengist einnig öðrum ættum, s.s.  Pendragon, sem Trömparinn er af.

Sem dæmi er Barón Trump kominn bæði af Pendragon (gegnum föðurinn) og Melusin (um móðurina) ættum, sem er verulega áhugavert, ekki síst í ljósi þess hvernig móðir hans elur hann upp, eða hvernig hann er að koma fram þessi misserin sem agaður og áhugaverður ungur maður. En þetta skiptir engu, dugar að minna á að Rothschild er dvergættar (monningalega) við hlið Orzini, en svo er spurning hvað varð af hinum Lígúríuþráðunum s.s. Medici, Bardi, Strozzi eða miðevrópsku Fugger ættliðunum, því hurfu ættirnar eða skiptu þær um heiti til að fela auðinn, en auður þessara ætta var margfaldur - hlutfallslega - á við það sem gerist á okkar tímum, og þekking þeirra á eðli hlutanna var slík, þ.e. að þau sýndu á margvíslegan hátt að þau skyldu eðlisfræði fortjaldsins.

Já, við erum að ræða um bak við slæðuna stöff. Við fórum til að mynda djúpt í Pendragon flækjuna sumarið 2020 - í Arkívinu - og vorum að hefja rannsókn á Ligúríu leggjunum sem beittu Buonaparte ættinni fyrir vagninn á sínum tíma, en sá þáttur er enn valdamikill og hefur djúpar rætur, en sýn varnaði veginn varðandi dýpri eftirgrennslan og úrvinnslu.

... og við höfum lært af reynslu[m] að vont getur verið heilsunni að beita upp í móti sýn.

Flókið?

Allir vita sem einhverju nenna, að Blackwater stjórnar Úkró hernum (sem oft gerir hluti þvert á vilja forseta síns), en að lífvörður forsetans er algjörlega mannaður og rekinn af Breskum einkaher, sem ekki er ljóst (enn) hvort tengist Blackwater, en hins vegar eru því sem næst allir aðalmenn Vesturvelda s.s. Merz, Macron, Rutte, Starmer og fleiri, meir og minna í eignamöppu Blackwater sem sjálft var komið með allar auðlindir og land Úkraínu í eignamöppuna sína (með aðalskráningu í London) þar til Trömp setti puttann í möppuna á dögunum, og viti menn, allir þeir sem eru að knésetja friðarstefnu Trömp eru tengdir Blackwater, sem síðan var sjálft aðal gerandinn (ásamt Vanguard og Statestreet) í fjármögnun og ákvörðunum þess að þú settir grímu á trýnið og mættir af sjálfsdáðum í Sprautuklefann (og afhentir þeim þar með höfundarrétt þíns breytta genamengis). Sem aftur minnir á Hamas og dæmið á Gaza, og við finnum Blackwater sem aðal gerandann í að koma því dæmi í gang og viðhalda.

 

 

En á sama tíma er svo til útilokað að finna út hverjir eiga Blackwater og Vanguard, en Íslendingar voru fljótir til nú á vormánuðum að fjárfesta aleiguna í útibúi þeirra hér á Íslandi, og nafnalisti þeirra skráður og vottaður (innviklaður).

Sem er aftur fyndnara en Spaugstofan sjálf.

--Stórastagáfnaljósaland.

Púnkturinn er einfaldur, sé hann ekki augljós, því hér er ekki svo mikið sem krafsað í yfirborðið; þú veist nákvæmlega ekkert um heiminn sem þú býrð, og trú þín á sjálfan þig er innprentuð, þræll. Já, þú ert stak í eignasafni, bókstaflega, ásamt vitund þinni allri, og það er rekjanlegt.

...

Veðurvélar CIA hafa soldið fokkað upp vorinu hér á Suðurnesjum undanfarna daga, en afgreiðslukona í bankanum tjáði mér í vikunni, að þetta fari að lagast. Og minn tekur [hæfilegt] mark á fulltrúum elítunnar.

Ha, eru veðurvélarnar samsæriskenning? Hvers vegna gerðu þá Sovétríkin og Bandaríkin þjóðréttarsamning (Treaty) um veðurvélafokkerí á sjöunda áratug síðustu aldar?

Ég má líka trúa allskyns vitleysu.

Bland í poka, eða þannig.

Annars bara allt gott.

 

...

Taugasjúkdómar (sprautuskaðar) margfaldast ...

...

 

Á vissan hátt er samt áhugaverðast af öllu, það sem er að gerast í klámheiminum og viðbrögð "musteris ríkjanna" við því. Flókið og djúpt stöff, sem minn er ekki alveg viss með hvernig best væri að greina ... og þyrfti þá lengri færslu ... en séu meðfylgjandi tenglar lesnir, orð fyrir orð, blasir ýmislegt skrítið við.

{https://www.rt.com/news/618621-pornhub-france-age-verification/
{https://www.rt.com/news/600460-spain-porn-passports-credits/
{https://www.rt.com/pop-culture/618729-france-vpn-pornhub-suspension/

Gerði reyndar skyldum málum góð skil á fyrstu árum Arkívisins, svo þannig séð ekkert nýtt.

 

---

Bilað áhugaverðir hlutir að gerast í Kína undanfarnar vikur, og í rauninni "buildup" af hlutum sem hafa verið að gerjast þar í fjögur ár, og það sem er e.t.v. áhugaverðast, er að nákvæmlega engin umræða er um neitt af því, hvorki hjá meginstraum né jaðarstraum kenningasmiða og antivista, nákvæmlega ekkert. Spes tómarúm ... Ef maður væri enn að gera Arkívis greiningarnar, þyrfti að gera langar og djúpar upptökur, s.s. varðandi fleira í óreiðufærslu dagsins.

Dáinn heimur, og innfallin siðmenning, er ekkert djók, en í rauninni hefur ekkert gerst síðan 11. mars 2020, þegar við dóum öll og fórum [sjálfteymd beina leið] til Helvítis.

---

Áhugaverðir hlutir einnig að gerast í mannheimum hvað varðar gervigreindar myndskeiðin - eða avatara-myndskeiðin - í einu vetvangi er orðið ljóst að nákvæmlega ekkert í neinum frásögum er eitthvað sem er treystandi á og hægt að falsa allt, og líklega hefur verið svo í langan tíma - samanber t.d. að CIA hefur notað "mission impossible" grímur í allt að þrjá áratugi í að "búa til leiðtoga" og sviðsetja málefni ... sem minnir á annað þessu tengd ... svo til útilokað er að sviðsetja Arkívis vídjóin útaf því hvernig "hráa formið" er notað, og það var rætt á sínum tíma ... Svo er eitt enn - "Essence Alone" greiningarnar eru nú níu ára gamlar - eitt besta stöffið í Arkívinu og hið misskildasta og um leið "far reaching" - en margt hefur gerst undanfarin þrjú ár, og sérstaklega síðustu tvö misserin, sem bendir til að þær séu hárréttar ... smá twist í þessu sem gæti gert allt heildar dæmið explósíft.

---

Spennulosun margra lausbeislaðra púnkta sem hver og einn væri efni í færslu út af fyrir sig. En úti bíður sólin og handan við beygjuna sundlaugin.

---

Stórasti brandarinn á X, í gær, var að Pútín hefði boðist til að koma á sættum milli Trömp og Mösk.

---

 

 

 

* Spurning hvort það er fortjald musterisins eða fortjald Neith frá Saith ... og áhöld um hvort hvorutveggja sé eitt og hið sama, enda voru bæði musterin svo til allan tímann tengdari Ba-alisma en Jahveisma.

* Ef Satanístaheimurinn gat [svo til] útrýmt boðskap Manú, þ.e. ef Guð leyfði það, var hann þá Spámaður Guðs? En leyfði hann það? Fyrsta útgáfa færslunnar reit "Spámanns Guðs Manú" en er nú "Spámannsins Manú" (höfðust.) svo hvað er rétt hér? Hafi hann sagst vera það, má nota það. Munum hvað Samael sagði við Jósúa Maríuson á fjallinu, að hann ætti allar dýrðir heimsins og víðar er bent á að hann stjórnar þessu heimskerfi, og því má velta fyrir sér yfirleitt hvað Spámenn Guðs séu. Djúpstöff. Rýnum síðar (to be cont.)


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Macintoshtölvur frá 1993 eru mitt uppáhald, jafnvel allt til 1987. Þær bila aldrei, þær eru miklu fljótari að ræsa sig en þær nýju, engir vírusar þegar engu er hlaðið inn. Engin vandamál, einfalt og gott viðmót.

PC og Windows tölvur keyptu þennan kóða og Apple fékk markaðshlutdeild í Windowssölumörkuðum, samningar Steve Jobs og Bill Gates. Nútímawindowstölvur eru LÉLEG eftirlíking af Macintosh áður en þær slógu í gegn. 

Hitt er gott líka sem þú skrifar, en svo djúpt að ég kannski bara fæ hugmyndir til að blogga um það öðru hverju í litlum köflum.

Beztu kveðjur, frábær pistill.

Ingólfur Sigurðsson, 6.6.2025 kl. 16:58

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Ingólfur, og gott innlegg.

Mac vélarnar voru tær snilld, síðan dalaði þeim (en margir þakka Jef Raskin það besta), en þegar Jobs kom aftur inn í dæmið með reynsluna úr NeXT, var margt gott að gerast þar aftur - en NeXTOS (NeXTSTEP)var skel ofaná Berkley Unix (að mig minnir) þ.e. BSD - hef sjálfur unnið smávegis í BSD umhverfi og væri til í að fara alla leið þangað aftur.

Var hugsað til þín þegar ég var að hugleiða Manú - það er margt í þeim kjötpotti handa pælurum.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 6.6.2025 kl. 18:19

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hér má bæta við - fyrir ofurgrúskara - að Jef Raskin sem margir þakka besta hugvitið í notendaviðmóts pælingum Apple/Macintosh og MS/Windows, sem upprunalega var þróað af Xerox (ásamt snertiskjám), þróaði Canon CAT vél sem er fágæti og mjög áhugaverð maskína, ásamt því hugviti sem á bak við liggur.

Guðjón E. Hreinberg, 6.6.2025 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband