Fimmtudagur, 5. júní 2025
Ranghugmynd dagsins - 20250605
Á dögunum framdi ÚkróNató áhugaverð hryðjuverk á landi Rússneska Sambandsríkisins* (Russian Federation). Hugsanlega er áhugaverðast hversu litla umfjöllun þessar tvær árásir hafa fengið hér á sjálfumglöðum Vesturlöndum.
Áður en lengra er haldið, minnum við á að hlutleysi í alþjóðamálum er lagaleg skylda Íslenskra Ríkisborgara samvæmt Almennum Hegningarlögum (19/1940) og allt hér er ritað í þeim anda.
Vel er hugsanlegt að hugveitur Vesturlanda átti sig á því sem við viljum draga hér fram. Önnur árásin var skemmdarverk á brúm sem engu hernaðar hlutverki þjóna, og olli árásin tjóni á lífi og limum óbreyttra borgara svo og á lestum sem ætlaðar eru í borgaralega þjónustu.
Þetta er lagalega skilgreint sem hryðjuverk (Terrorism).
ÚkróNató hefur verið uppvíst að hryðjuverkum sem staðal valsbrögð (Tactics) í hegðun sinni allar götur frá 2014 þegar núverandi mafía tók völdin í Úkró með aðstoð Viktoriu Núland, John McCain og Lindsay Graham, en sú aðgerð kostaði fimm milljarða dollara, samkvæmt Viktoriu.
Með öðrum orðum hefur ÚkróNató beitt ýmsum vel þekktum hryðjuverkum sem staðalhegðun (Standard Operational Procedure) og það lengi, en þetta síðasta er líklega mest áberandi, og því áhugavert hér. Vissulega hefur Nató/Esb mafían verið dugleg að ásaka Rússa um ýmis hryðjuverk, en ekki getað sannað neitt af þeim áróðri.
Á sama tíma og árásin á brýrnar átti sér stað, var gerð árás með drónum á allt að fimm herflugvelli víðs vegar í Rússneska Sambandsríkinu, sem slíkt er það ekki hryðjuverk þar sem um hernaðarmannvirki er að ræða, og árásin beindist að stórum kjarnorkusprengjuvélum sem Rússland á og geymir utandyra á biðflugbrautum.
En bíðum við.
Árásin er framin af óeinkennisklæddu fólki, og vopnin (eða drónarnir) fluttir með bílum og gámum sem ekki eru merktir sem hernaðartæki eða hluti hermáttar. Þetta er brot á öllum alþjóðasamningum varðandi hernað og stríðsrekstur, og því hreinræktað hryðjuverk, og samkvæmt alþjóðalögum eru allir þeir einstaklingar (og fyrirtæki) sem að ódæðinu stóðu, ásamt einkennisklæddum yfirmönnum sínum og stjórnmála yfirboðurum, sjálfdæmdir, og má drepa þá hvar sem til þeirra næst, og má jafnvel telja það skylduverk.
Fjöldi greinenda á Vesturlöndum hefur farið ofaní þessi mál og eru að ræða fleti á, þessa dagana. Þá kemur fram að sprengjuflugvélarnar sem geymdar voru utandyra, voru svo vegna þjóðréttarsáttmála (Treaty) á milli Bandaríkjanna og Rússlands, varðandi vörslu á tækjum er tengjast kjarnorkuvopnum.
Hafi Bretar eða Bandaríkjamenn átt hlut að máli, er því um beina hernaðar aðgerð þeirra að ræða gegn Rússneska Sambandsríkinu, auk þess að vera brot á alþjóðlega viðurkenndum þjóðrétti. Já, dáldið alvarlegt!
Eins og allir vita hafa Bandaríkin slaufað (Abrogated) flestum slíkra samninga undanfarinn áratug, og Trömp á stóran þátt í því, og sá samningur sem hér var brotinn af hálfu ÚkróNató* var því sá síðasti sem enn er í gildi. Ljóst má vera að báðar þessar árásir, en minnst önnur, væri óframkvæmanleg án þáttöku leyniþjónustu Breta og Bandaríkjanna.
Við leggjum ekki í vanann, hér í Spennulosun, að fara ofan í saumana á bútasaumsteppi þess hnattræna siðfalls sem nú á sér stað, en stundum þarf að rekja fáein spor.
Rétt áður en téðar árásir áttu sér stað, ræddi Pútín, forseti Rússlands, að til þess að ná árangursríkum og varanlegum friðarsamningum, þyrfti að ræða grunn orsakir (Root Causes) þess ófriðar sem nú á sér stað. Oft hefur hann rætt um, í ræðum og viðtölum, þátt Vesturveldanna í að koma þessum átökum í gang og viðhalda þeim.
Hver sá sem eitthvað veit um Rússneska menningu og sögu, veit að þú rænir ekki af þeim 300 milljörðum og lætur síðan eins og ekkert sé. Þeim er sama þó það taki kynslóðir að innheimta það sem þeim ber. Þá hefur hernaðarsaga þeirra allar götur síðan þeir glímdu við Friðrik mikla á átjándu öldinni, og marga aðra sjálfumglaða ofbeldismenn [okkar] í vestrinu, síðan þá, sýnt og sannað, að þeir bakka ekki fyrr en þeir hafa náð markmiðum sínum.
Medvedev, fyrrverandi forseti Rússa, sagði í kjölfar téðra hryðjuverka, "það sem þarf að sprengja verður sprengt og þeir sem þurfa aftökur fá aftökur."
Svo vitnað sé í Douglas Macgregor fyrrv. ofursta; Semjið frið fávitarnir ykkar (Make peace, you fools).
Loks minni ég á hversu fáránlegt það er að Íslenska stórveldið ætlar nú að tólffalda útgjöld sín til Nató á þessum erfiða tíma, þegar við eigum að yfirgefa Nató! Við eigum að rækta vináttu og sérstaklega við þjóð á borð við Rússa sem vita vel hversu mikið þeir hafa gert fyrir okkur og við ekkert fyrir þá!
Við áttum að vera friðarboðinn úr norðri, en í staðinn erum við sjúskuð og útrúnkuð skósleikja Nató/Esb. Við erum skert að sjálfvirðingu og höfum glatað okkar eigin sögu og vitum ekki hvað heiður er né siður.
Vissir þú að á Íslandi er nú þegar starfandi tæplega fimmtíu manna Íslenskt herlið, sem stýrt er af þrem Íslenskum ofurstum?
Landvarnir?
Ísland hefur aldrei þurft neinar landvarnir. Til voru í landinu nægar varnir gegn Tyrkjum á sínum tíma, og það var fullsannað í Grindavík og á Bessastöðum. Hægt er að fara dýpra ofan í það samsæri, já það var samsæri, en það er rætt ítarlegar í Arkívinu og óþarft hér.
Hvaða landvarnir hefðu dugað vorið 1940 til að verjast ólögmætri innrás Breska heimsveldisins? Innrásin var tilefnislaus og réttlætt allar götur síðan þá, af áróðri og útúrsnúningi, sérstaklega af hálfu Íslenskra landráðamanna (Quislínga). Er fullsannað að það voru Þjóðverjar en ekki Bretar sem beittu kafbátum gegn Íslenskum sjómönnum, veistu eitthvað um Churchill og hans átakatækni (Strategy)?
Við fórum djúpt í þessi mál í Arkívinu á sínum tíma.
Ó, Bretar voru góða fólkið! Eða þegar þeir afhentu okkur í faðm Bandaríkjanna átján mánuðum síðar - með samþykki Íslenskra Quislínga - voru þeir líka góða fólkið? Veistu hver Ríkissmiðja landsins var frá 1920 til 1940 eða hvernig henni var breytt eftir það? Veistu hvers vegna litabyltingar CIA eru óþarfar hér á Stórastahræsnislandi?
Svo hvað áttu við með landvarnir?
Hvernig á að verjast innrás eða berjast gegn hernámi?
Hvaða átakatækni er það sem hér þyrfti þá að ræða, hvaða tæknilegar útfærslur og verkfræði væri þá í boði, eða myndi henta, hvað með mannfjölda? Hversu stórt landavarnalið þyrftum við, hversu stór innrásarher kom 1940, hversu stór kæmi næst? Hversu marga Íslenska menn og konur er ásættanlegt að drepa í blóma lífsins fyrir téðar landvarnir? Hversu marga mega þau sjálf drepa?
Hef ekki séð besservissera elítunnar velta við neinum þessara steina.
Hvaða valsbrögð þarf landvarnafólkið að læra og tileinka sér og hvaða verkefnum þyrfti það að taka þátt í á vegum Nató - ef við værum þá í Nató - og drepa hversu marga í þessum verkefnum? Í ljósi lyga Nató liðsins undanfarin misseri, og óforskammaðar þjóðríkjarústanir, má velta fyrir sér hversu mikið af lygum og útúrsnúningi og öðrum sjálfsþjóðarnauðgunum þetta fólk þyrfti að sperra sig í.
Hvernig myndu verkfæri lýðræðisins duga til að standa vaktina gegn yfirmönnum slíks liðs, og tilheyrandi njósnaþjónustu þeirra?
Miðað við fyrirsagnir og froðusnakk í umræðum hérlendis, er ljóst að Hervaldssmiðja þeirra yrði sama skottan og sami kárinn og Ríkissmiðjan og Lagasmiðjan. Segjum að Íslenska "Lýgveldið" myndi koma sér upp landvarnabúnaði, liðsafla og viðeigandi tækni: Hvaða tækni, hvaða verkfræði, hvaða úrræði og hvaða kostnaður og hvers kyns fjármögnun?
Nei, við þurfum ekki landvarnir, við misstum engan Íslending við síðasta hernám, og græddum feitt á því og við endurheimtum sjálfræði okkar (að mestu) þegar Síðari heimsstyrjöld lauk. Við sömdum við Noreg 1264 og við sömdum við Dani 1662 - og Danir leystu úr ánauð þá sem rænt var 1627 og vildu koma heim - og við sömdum við Bandamenn/Nató eftir síðari heimsstyrjöld, og við eigum að semja við Rússa núna.
Ef við eigum samt að ræða landvarnir, þá er til tvinnlausn, og hún þarf ekki að vera gerð í leyni eins og fyrrgreindur smánarher sem bent var á.
Yemen á snilldar landvarnir, þeir hafa rekið þrjú flugmóðurskip á flótta og nokkrar freigátur, og landvarnir þeirra eru smíðaðar í hellum á fjöllum fyrir næstum ekkert. Best þjálfaða leiðangurssveit landsins er Flugbjörgunarsveitin - (og þar er meiri heiður en í hinum sveitunum) - hún getur séð um skipulagið sem hentar best, til að bregðast við áföllum ef við verðum hernumin aftur.
Já, til að bregðast við áföllum, svo við þurfum ekki að missa neinn. Enginn Íslendingur á að láta lífið í hernaði af neinu tagi og við höfum staðið við það að mestu síðan 1264 og við værum stolt af því ef við værum ennþá við sjálf.
Í hernáminu 1940 til 1946 græddu ungir menn á að smíða fyrir herinn meðan kærustur þeirra græddu á að selja offisérum dansa og koddahjal. Í raun má halda því fram, að Ástands gellurnar hafi mildað hernámsliðið, svo að við hin vorum látin í friði.
Það er snilldartækni; að besta landvarnaliðið séu vel þjálfaðar ástands gellur!
Úr einu í annað.
ÚkróNató og Ísraelsríki (State of Israel) - í samstarfi við Ungverjaland, Bretland og Bandaríkin - hafa nú breytt hernaði á dáldið sérstakan hátt.
Annars vegar er það sem hér er tilgreint, þar sem tæki er tilheyra óbreyttu borgaralífi geta dulbúið hernaðartæki sem nota má til árása á óbreytta borgara, annars vegar, og hins vegar að breyta símum og símboðum sem óbreyttir borgarar nota dags daglega þannig að geti á svipstundu (Instantaneously) breyst í morðvopn gegn eigendum sínum, ýmist gegn andlitslausum hópum eða algrímis völdum einstaklingum.
Þá er áhugavert í ljósi allra þeirra morða og morðtilræða sem ÚkróNató hefur beitt gegn bæði borgurum og yfirmönnum hersins í Rússlandi ljóst að vesturvelda mafían skirrist einskis við að þverbrjóta alþjóðalög um hernað og virðist með öllu skeytingarlaus um hvaða afleiðingar það getur haft, og ef til vill mun hafa, fyrir þá sjálfa.
Að veröldin öll er í Siðfalli (Implosion) ætti að vera öllum augljóst og við minnum gaumgæfna (Discernible) á að ritningar allra trúarbragða veita góð heilræði varðandi slíkt ástand. Ritningar gefa góða vörn gegn Siðrofi (Anomie) menningar, en nú er of seint í rassinn gripið, svo vitnað sé í Jósúa Maríuson (Jesú); þegar þú sérð viðurstyggð eyðileggingar á helgum reit - Siðfall - varpaðu öllu frá þér og flýðu.
Hér má minna á annað gott heilræði úr Orðskviðum 18:10, sem tengist þeirri áminningu okkar að Guðdómleg vensl (Divine Relation) eru besta úrræðið við allar hugsnlegar og óhugsanlegar stöður, eða Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning, best á grúfu í möl en annars á skeljunum.
Til gamans má bæta glettnislega við, að undanfarin misseri hafa einungis tvö kjarnorkusprengjuveldi sleppt þáttöku í hernaðarbrölti gegn öðrum! Soldið fyndið því þau eru gerræðisríki allsherjar kommúnismans, Kína og Norður Kórea.
Þá má bæta við, og væri efni í langa greiningu ef við værum enn að vinna Arkívið, er að Kína er svo til komið í upplausn þetta vorið, og hið áhugaverðasta við það, er að bæði meginstraumurinn og jaðarstraumurinn eru ekkert að rýna í það mikilvæga Ástand (State).
Góðar stundir.
e.s. (16:10) Rússnesk hernaðar löggjöf, sem var uppfærð eftir að Sértæk hernaðaríhlutun (Special military operation) hófst í Úkraínu, tilgreinir að árás á Kjarnorku þrenningu (Nuclear Triad) Rússlands, af hálfu ríkis sem er að hluta eða að fullu í samstarfi við önnur kjarnorkuveldi, gefi tilefni til að svara af fullum þunga og ef til þess kæmi með kjarnorkuúrræðum.
Vel má velta fyrir sér, með tilliti til viðbragða sumra ráðamanna Nató og sérstaklega í Bandaríkjunum, að ætlunin hafi verið að tæla Rússa út í umfangsmikil viðbrögð, jafnvel allsherjarstríðs ...
Það er tilvistar spursmál (Existential priority) fyrir Íslenska þjóð, og þjóðríki, að varðveita algjört hlutleysi í öllum alþjóðlegum átökum!
* Áhöld eru um hvaða orð hentar hér best, Ríkjasamband (Union) eða Sambandsríki (Federation). Við fyrstu rýni virðist það liggja ljóst fyrir, en hér á landi hefur ákveðið fúsk verið ríkjandi hvað varðar hugtaka notkun, samanber að Samherjaríkin (Allies) eru nefnd Bandamenn (Confederates), meðan enginn veit hvaða orð á að nota fyrir Bandalagsríkin (Samfylking, Samsteypa, Samferð (Coalition)), s.s. við höfum bent á varðandi Leiðangursfylkingu (Expeditionary force). Við erum ekki með lausn á þessu - utan við kröfsum íetta öðru hvoru - en tómarúm umræðunnar í málvitund okkar ástkæra hrognamáls er æpandi ginnungagap. Við höfum engar áreiðanlegar hugtakaskilgreiningar (Conceptual analysis).
* Eldri rithefði leyfir "á brým" þó þekktari sé í okkar tíma "á brúm."
* Að ræða hvort Úkraína sé sjálfstætt ríki eða ekki, er farsi sem við nennum ekki að rökræða, en að tilgreina hversu ríkan þátt Nató á í stríðinu í Úkraínu, gerir kröfu um lengri og ítarlegri færslu en tilefni er til hér og nú og er í dag öllum augljóst sem sjá eitthvað annað en rörsýn Rúv/Bbc/Cnn og við skrifum ekki fyrir hvernsemer.
Athugasemdir
Sæll Guðjón.
Þakka þér þínar ágætu og góðu pælingar.
Í stóru dráttunum held ég að við séum á sömu blaðsíðunni, en þegar að nærumhverfinu kemur, þá er ég niðurbrotinn yfir ástandinu á Íslandi, sem gæti þó verið svo einstakt, út frá auðlindum okkar, fámenni og virtri stöðu okkar meðal þjóða.
Ég er eiginlega alveg sannfærður um að vitrænasta aðgerðin, með hagsmuni okkar almennra Íslendinga í huga, væri sú að gera hosur okkar grænar fyrir BRICS sambandinu og reyna að gleyma barnalegu tilfinningasambandi okkar við Bandaríkin og Evrópusambandið, sem greinilega eru bæði tvö, heimsveldi á fallanda fæti og sjá hvort staða okkar öll myndi ekki eflast og margfaldast við þá fléttu.
En auðvitað stendur öll framtíð Íslands og fellur, þrátt fyrir allt, með þeim leiðtogum sem þjóðin sjálf velur sér til að stýra skútunni í höfn.
Jónatan Karlsson, 6.6.2025 kl. 09:05
Takk fyrir innlitið, Jónatan, já ég tek í sama streng, hef engu við að bæta né af taka.
Varðandi stjórnendurna sem nefna sig leiðtoga, siðspillt elíta þrífst ekki án siðblinds almúga, það er eitt af þeim vihorfum sem hvergi má ræða.
En já, hef séð á færslum okkar beggja, að mér sýnist við báðir sjá það sama.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 6.6.2025 kl. 15:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning