Sunnudagur, 1. júní 2025
Bergmálsspeki meðalmennsku
Allir vita að Akademían er grunn hugveita lifandi og dafnandi samfélaga, og frumforsenda þess að téð samfélög geti vitrænt hlúð að menningu sinni og saman mótað ábyrga SIÐaða ríkissmiðju (Þjóðfélag). {sjá t. frétt}
Ekkert af þessu er til á Vesturlöndum undanfarna tvo áratugi, allt saman drepið í dróma kommúnisma og afdankaðs nítjándu aldar marxisma. Hver sá sem les akademíska texta, eða hlustar á baul hinna útskrifuðu, heyrir aðeins dauft bergmál af geldum glysbögum* og tröppuklóri.
Farið hefur fé betra en eitur dáinnar menningar, og þetta hefur ekkert að gera með Trömp, það er enginn munur á framkomu Trömps gegn Amerískum háskólum og var þegar Bæden nauðgaði þeim. Annar Oral og hinn Anal.
Tvær derhúfur á sama ríkiskolli. Vinstri eða Hægri, hönd á sama skrímsli ...
Ef Íslenska Akademían er í skugga þeirrar Amerísku - og grenjar yfir stundlegum keisara Voðatúns - er hún ekki bergmál og meðalmennska, heldur ómur af aumingjahætti. Svipað og Íslensk fjölmiðlun og stjórnmál Ís-Quislínga, samtímans, nær vart skugga eigin drauma frá síðstu öld.
Þeir einu sem fara í háskóla í dag, eru þeir sem fletja út huga sinn fyrir stimpil, og enginn þeirra skapar eða viðheldur menningu, og sé þeim hleypt á spena drepa siðmenningu.
Ó, það er heppnað ...
* glysbögur, ambögur, fróubögur, allskonarbögur í trilljón hringhendingum.
![]() |
Trump vekur ugg innan íslenska háskólasamfélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning