Gervigrasrót og vélabrögð öfga vinstris

Hið eina áhugaverða við mótmæla þvæluna á Austurvelli (sjá t. frétt), er að elítan bókstaflega hleypti þessu Antífa og BLM pakki inn á Austurvöll til að búa til fréttaefni - friðsama samkoman hafði leyfi Lögreglunnar til samkomu og því bar Lögreglunni skylda til að vernda samkomuna; en fjölmiðlar stilla þessu upp eins og þeir séu saklausir af vélabrögðunum.

Það er dálítið merkilegt að af öllu hljóðvarps fólki sem þessi misserin þykjast gera greiningar á þjóðfélagsverkfræði elítunnar, er aldrei rætt hvernig gervigrasrót (Astroturf) öfga-vinstrisins virkar, eða hvernig henni er beitt af hugveitum hnattræna Marxismans, eða bent á hversu grunnt er á greind þessara menningarmorðingja.

Fleiri hafa vafalaust tekið eftir, að vélabrögð af þessu tagi eru reglan og ekki undantekning, og að fjölmiðlaritstjórnar og stjórnmálaljós þykjast ávallt koma út úr Aladdíns hellinum, ægilega hissa, ...

Þá er áhugaverður pistill Jóns Magnússonar frá í dag, þar sem hann minnist á ofbeldishótanir þessara "kærleiks boðenda."

Hnattræni marxisminn hefur yfirtekið allt, fylgjendur þess eru í öllum stöðum, framleiddir í ungliðastarfi háskólanna um öll vesturlönd, fjármögnuð af hugveitum sem allar eru rekjanlegar, og allar starfa eftir módeli Saúl Alinski og Frankfúrt skólans - merkilegt að enginn ræðir þetta, nema hvað; auðvitað ekki! ... og stýrða andstaðan? Ræt!

Bíddu við;  þetta er ekkert nýtt!

Allt sem farið hefur úrskeiðis í Vestrænni menningu og innfallinni siðmenningu, undanfarna tvo áratugi, er samkvæmt uppskrift og hugveiturnar allar rekjanlegar, og hvernig gervi-grasrótin er búin til og henni stýrt, og hvernig menntastétt (Intelligensia) "kerfisins" er heilaþvegin, tamin, og henni beitt.

Eins og Trotský sagði og síðan Maó formaður, lærisveinn hans, við yfirtökum menntunina og restin fylgir.

... allt er spurning um hvernig fókusinn er tekinn og honum beint ... líttu betur á myndirnar ... nei kjáni, ekki fréttarinnar ... hugans!

 

 

Veistu hver er munurinn á Hægri og Vinstri?

Búkurinn á milli þeirra; Valdstjórnar-Ríkið og elíta þess.

... hún elskar þig!


mbl.is Myndir: Andstæðir pólar mættust á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband