Skottulækningar og Slöngolíuprettir

Ef enginn stöðvar morðingja, hvað þá fjöldamorðingja og aðra loddara, hví ættu þeir að hemja sig sjálfir? Eins með platvísindi sem fela sig á bak við styttuna af Giordano Brunó, skugginn sá er ærið langur orðinn. {sjá tengda frétt}

 

 

Já ég veit að þú veist ekki hver Giordano Brúnó var, eða hvað hann táknar, og einnig að þú skilur ekki muninn á blóðfórnum og lyflækningum. Stór fullyrðing, en 83 % þjóðarinnar lét lodda sig í sprautuna fyrir fjórum árum, frekar en að rannsaka alvöru vísindi og tékka á staðreyndum.

Jamm. Akkúrat; bóluefni hafa aldrei varið neinn gegn neinu og eru aðal orsökin fyrir krabbameinum og taugasjúkdómum, og allir sjúkdómar sem logið er að bóluefnin standi gegn, eru læknanlegir með lyfjum.

Við erum ekki að skálda neina fullyrðingu; allt er þetta rekjanlegt og fullsannað.

Fyndnast af öllu fyndnu, að bólusetja gegn krabbameinum, þegar mesti krabbavaldur allra tíma eru einmitt bóluefnin!

Hví ættu börn (fulltrúar) Satans að segja þér satt ef þú tilbiður lygarnar?

Soldið fyndið, á tímum vísindamúgsefjunar, að enginn skilur einfalda rökfræði. Hefurðu heyrt um fyrstu heimsstyrjöldina? Hún hófst um leið og öld sósíalismans hófst - mesta múgsefjun allra tíma - 99 % allra þjóðarmorða með sprautum, sprengjum og vélbyssum, er síðan þá.

Eru ennþá kommúnistastríð og slátranir í gangi? Eru skattar og gjöld sex til sjöföld umfram það sem var áður en öld sósíalismans og slátrana hans hófst? Trúir þú því ennþá að kóngarnir og trúarbrögðin séu ástæðan fyrir ofsköttun og styrjaldaslátrun?

Settir þú á þig grímu fyrir fimm árum og fórstu í sprautuklefana fyrir fjórum? Ert þú þessi sem borgar áttfalt verð fyrir húseign og skatta af téðri eign þegar þú hefur klárað að borga?

Hey: Múgsefjun og firring - ásamt sinnuleysi og sjálfumgleði - eru mælanleg fyrirbæri!

Svo mætti nottla ræða Glyphosate og Atrazine og fleira drullumall sem er að gelda stúlkur og drengi og breyta sumum þeirra í transdýr. Hví ættum við að rekja raunvísindi á tímum allsherjar musteris húmanismans og djöfladýrkunar allskonar?

Velkominn til Helvítis, þú ert eitruð sál, og þú mátt bæði kommenta og kjósa.

... eða komið þér á grúfu í mölina og iðkað eitthvað alvöru, s.s. Bæn, Iðrun, Vitnisburð og Fyrirgefningu. Steinvölur kenna stöff, sjáðu til.

Já, grjót er lifandi vitund. --Tröllin

Ekki leirstyttur, hehe! --Medúsa

 


mbl.is Drengir undir 18 ára verða bólusettir gegn HPV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góður Guðjón, -bóluefnaiðnaðurinn lætur ekki sitt eftir liggja hvað heilbrygði varðar.

Verst hvað þeim fækkar sem þola forvarnirnar, mannskepnan nú þegar orðin sjúkasta lífvera jarðar þrátt fyrir allar góðgerðir í boði þess opinbera. 

Annars bara bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 27.5.2025 kl. 06:20

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Magnús.

Já segðu - [ríkis]musterið hefur aldrei hugsað betur um okkur, og ítarlegar, og við höfum aldrei verið veikari og vitlausari ...

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 27.5.2025 kl. 09:26

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Þetta með Brúnó er býsna magnað. Hann varði ævi sinni í að slípa sannleikann og segja sem fæst, en móðgaði samt yfirvaldið. Bækurnar hans eru djúpar en þær eru líka duldar, því hann skrifaði á dulmáli til að verða ekki drepinn - sem þó gerðist. Hann notaði líkingamál. Hann talaði um heimska og vitra og reyndi í heimspekilegum leikritum eða samræðum að láta kirkjuna líta gáfulega út en andstöðuna heimskulega - en örfáar setningar komu uppum hann. 

Hann var ofsóttur en nú er það hann sem er verjandi þeirra sem ofsóttu hann. (Eða minningin um hann og það sem hann stendur fyrir). Rétt eins og Aristóteles, hans úreltu vísindi voru afsökun fyrir kirkjuna að ofsækja og vera með ranghugmyndir, og þó skrifaði Aristóteles svo margt og mikið að sumt er þar gott og rétt en annað ekki.

Hræsnin er ógurleg að nota hann sem tákn fyrir vísindi, hann sem var ofsóttur fyrir vísindaiðkun.

Annars er það rangt að Brúnó hafi verið einhver sérstakur vísindamaður. Hann skrifaði reiðinnar býsn og alltaf á flótta um heiminn, átti sér velgjörðarmenn og verndara útum allt, og skrifaði þar bækur, var að lokum handsamaður.

Brúnó var samt tákn fyrir vísindin, því hann var leitandi eins og við. Hann þorði að gagnrýna og hjá honum eru setningar sem vísuðu fram á við, og hann studdi Kópernikus, til dæmis.

Ég vil að Brúnó verði allur þýddur á íslenzku, það myndi hefja heimspekilegt stig okkar ofar. Því hefur ekki verið sýndur áhugi. Ég skil ekki nóg í latínu eða ítölsku til að þýða allt sem hann skrifaði. Ég hef komizt í bækur hans á ýmsum málum, ensku og þýzku, þar skil ég mest.

En hann var alvöru, djúpur heimspekingur. Hann ræddi um guð og var ekki trúleysingi, en efaðist mjög um klisjur kirkjunnar og það var ekki þolað. Hann hæddist ekki síður að því sem kallað var vísindi þá.

Ég get tekið dæmi um það sem Brúnó getur kennt nútímanum:

Hann gagnrýndi hinsegin og hán áður en það kom fram. Ég las stutta grein eftir hann í bók á ensku, og hann lýsti Englendingum:"Karlmannlegar konur og kvenlegir menn", þetta er það eina sem ég man, en hann hæddist að úrkynjun samtíma síns. Ég man að hann hæddist að heimskulegum trúarkreddum og "vísindum" þarna. En löngu bækurnar hans voru heimspekilegri, samræður oft og þar komu fram vísindi og heimspeki.

Það sem ég las eftir hann fannst mér benda til að hann hafi verið betur kristinn en samtími hans. Hann var langt frá því að vera trúlaus. Ef hann væri uppi í dag væri hann eins og Kristur, að velta við borðum ræningjanna og heimta iðrun og yfirbót.

Alltaf góðir pistlar frá þér.

Ingólfur Sigurðsson, 28.5.2025 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband