Hverjum er ekki sama um samgöngur við Höfuðborgina

Útlendingar eru löngu búnir að fatta, á leiðinni frá Fitjum til Kúagerðis, að hér fara allir monningar í innviðavasa elítunnar og engir í neitt sem Þjóðin þarfnast, hvað þá í gegnheila ímynd.

Svo hverjum er ekki sama um eina fallegustu útsýnisleið í nágrenni Höfuðborgar Norðurhafa.

Reyndar var minn hissa á dögunum, eftir að reynt var að koma í veg fyrir aftursætisgetnaði á afviknum stöðum í grennd borgarinnar, að hætt var við að hætta við að fjölga landsmönnum með rómantískum hætti.

Sem minnir á annað.

Heilbrigðis- og Vegakerfið - réttlætingin á skattaráninu - heitir héðan í frá "Svartholið og Þvottabrettið." Eða Holukerfið.

 


mbl.is Stendur ekki til að opna Bláfjallaveg að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband