Samsæriskenning dagsins - 20250501

Það læddist að mínum í morgun, sá grunur, að brátt muni Ríkisstjórnin panta þá löggjöf hjá auðsveipu ríkisþinginu, varðandi eftirfarandi. Að enginn megi birta Íslenskan texta innan lagaléns (Lawdomain) Íslenska Lýðveldisins (frá 1944), án undangenginnar vottunar Árnastofnunar, um réttritun setninga og  hugtaka, og skuli stofnunin bjóða uppá sérforritaðan vef-aðgang svo textahöfundar á landinu geti fengið ritrýnda félagslega vottaða (gervigreindar) staðfestingu að íslenskt mál - þess sem ritað væri - sé rétt ritað og mótað, og skuli viðurlög sett í Almenn hegningarlög gegn misbeitingu Íslensks máls.

 

 

Miðað við allt annað í okkar upplýsta sjálfumglaða samtíma, kæmi mínum ekki á óvart - þó ritað sé í [óvottuðu] gríni og háði - að þetta eða svipað gæti rætst. Minni á að tveir Íslensku prófessorar hafa þegar ritað á þessa leið - á Katríntímanum - og enginn mótmælt þeim.

Loks minnum við á nauðsyn þess að kveða niður þann ferlega dímon sem sveipar sig hulu Árnastofnunar, áður en hann full-drepur málvitund "þjóðarinnar."

Að öllu háði slepptu.

Á dögunum var því slegið upp í einhverjum Múgsefjunarmiðla landans, að Tobba Kúla væri Kaþólsk. Gott og vel, en við minnum á að í Kristnum Sið, fer engin sómakær kona til kirkju án slæðu og alls ekki sé hún Kaþólsk eða Rétttrúnaðar (Orthodox).

Tobba fór því allsgáð til Rómar og flaggaði mynd af sjálfri sér smælandi við einum helsta siðrofsmanni okkar tíma, Jóa Bæden, en hvergi birtist mynd af henni eða Höllu Kleinu, í útför, eða með slæðu.

Fleiri stjórnmálaskörungar heimsins gerðu útför Frans Páfa að pólitískri markaðssetningu á sjálfum sér, frekar en að sýna útför hans þá virðingu sem útför skal sýnd, í lifandi og allsgáðri menningu. Svo látum kjurt liggja.

Hitt hefur vafalaust vakið athygli allra, að Frú Melanía, mætti til kirkju búin slæðu, glæsileg og vitur - í dyggð og hógværð (Virtue and Modesty) - að sínum Kristilega vanda. Og svo þú hneykslist ekki; þá kæmi engum á óvart - á okkar skrítnu tímum - að maður hennar yrði einn daginn Dónald Jóhannes fyrsti Páfi.

Skrítnara hefur gerst.

Annars allt gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Viðbót.

Á hverju ári tvöfaldast sá fjöldi Evrópufólks sem snýr frá sjálf-dáinni Kristni og Sósíalískum Húmanisma og til Íslam (sem nota bene viðurkennir Jesú sem Krist eða Messías og bíður endurkomu hans).

Þetta verður rækilega falið með allskyns sviðsetningum og guðleysisofstæki elítunnar magnast, næstu misserin, með tilheyrandi heilaþvætti.

Guðjón E. Hreinberg, 1.5.2025 kl. 18:41

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Já, þetta með eflingu islam er áhugavert. Jafnvel femínistarnir - þessir sálarlausu marxistar - leyfa þeim að nauðga sér, eins og sést á þögguninni yfir leigubílstjóramálinu að mestu. 

Hvort sem manni líkar vel eða illa við islam, þá er það trú sem er í samræmi við Gamla testamentið, gyðingdóminn, Tóruna og það. Ég virði það. 

Ingólfur Sigurðsson, 1.5.2025 kl. 20:17

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlit og framlag, Ingólfur. Ég veit ekki hvort til sé fyrirbærið rétt trú - þ.e. sem hugmyndafræði - og menn gleyma oft að trú er lítils virði án eflingar þess vættar, - eða vættahóps - sem hún tiltekur. Annars er hún bara kredda.

Til dæmis er algengt með all flesta Eingyðismenn, að einhver opinberun varð til þess að þeir snéru frá kreddu (um) til trúar (á) og flestir slíkir eru frekar umburðarlyndir gagnvart hinum ýmsu birtingarformum safnaða og félasgshyggjutrúfélaga.

Enda er oft rætt um Eingyðistrúna sem Opinberunarspeki. Þetta er rætt, aðallega hinum plast-kristnu Íslands og Vesturlanda, til vansa.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 2.5.2025 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband