-glíngló-

Tveir menn hafa verið duglegir að ræða - með rekjanleika - um sprautumorðin, hvor á sinn hátt. Annar þeirra er auðmaður sem trúði á brellið í upphafi, en rankaði við sér þegar hann sá sprautuskaða hrannast upp í eigin tengslaneti. Hinn er fyrrum prófessor í eðlisfræði sem á öðrum vettvangi hafði skipað sér í fremstu röð þeirra sem röktu vísindalegan sönnunarskort á loftlagsbreytingum af mannavöldum.

 

 

Sá síðari kom fram strax í upphafi "áróðursplágunnar" fyrir réttum fimm árum og rakti fram mælanlegar staðreyndir á að gríman getur ekki stöðvað farsóttir, og þvert á móti, gerir hún illt verra. Hann hefur verið iðinn síðan sprautumorðin hófust, afsakið, sprautuherferðin hófst, að rekja tölfræðina sem sannar að engin var farsóttin annars vegar og að sprautuherferðin var rekjanlegt fjöldamorð hins vegar. Sá fyrri hefur farið aðra leið og rekur fram stórfellda reynslu af sprautuskaðanum, í samvinnu við ótölulegan fjölda af hjúkrunarfólki og öðrum úr heilsugeiranum. Allt rekjanlegt.

Þú hefur aldrei heyrt nöfn Denis Rancourt og Steve Kirsch í neinum fjölmiðli á Íslandi, nema þá í skrumyrkju. Landinu sem þó er mest sprautaða land á hnettinum, og ef marka má opinbera fjölmiðlun, eina landið sem engan skaða upplifði, og týndi samt 14000 manns, tölfræðilega.

Þessa dagana birtast reglulega auglýsingar á YouTube, fyrir þá sem nota þann þraut-ritstýrða myndskeiða vef fyrir sinn sjóndeildarhring. Rödd manns nokkurs vekur þar til umhugsunar, réttindi fatlaðra. Gott og vel, en ég þekki röddina og man vel þegar hann sem opinber persóna atti fyrir því að við, ósprautaða fólkið, værum sett í fangabúðir.

Ég man einnig vel eftir Elvishommanum sem elítan hampar hvar sem hún getur, sem tók í sama streng. Ég man vel eftir ýmsum löggjöfum (þingmönnum), ritstjórum, embættismönnum og öðrum landsfeðrum og þjóðarfóstrum, sem vildu hið sama. Ég man einnig vel eftir öllum þeim greinum fjölmiðla sem ekki mölduðu í móinn, sem ekki stóðu í vegi fyrir þessum kommúnistanasisma. Ég man vel þegar fámennur hópur í Ríkisstjórn ákvað að fara ekki að þessum tillögum.

Þjóðarmorð, hvorki fyrnast né gleymast.

Þögn getur verið ærandi.

Við erum sannanlega hnípin þjóð í vanda. Ítrekað segir mér fólk, hvar sem ég kem og hvar sem ég ræði, ég les ekki eða horfi á fréttir, og síðan ypptir það öxlum og setur þverslaufu á varirnar, sem er nanóhreyfing sem við öll beitum þegar við erum við það að fitja upp á vegna ýldufýlu, en höfum á okkur stjórn. Hér er málið; fólk fætt fyrir 1980 les enn og horfir á fréttir, hinir yngri hafa yfirgefið elítuna og snúið við henni baki, í huganum.

Fólk er löngu búið að átta sig á gjánni milli aðalsætta félagshyggjunnar og okkur heilaþvegins almúgans. Þetta fólk hefur ekki sömu skoðanir og ég eða þú, þau eru ekki með neinar lausnir, en rétt eins og verið hefur í Evrópu síðan 2020, og í Ameríku sömuleiðis, bíður þetta fólk einhverrar lýðsefunar* sem höfðar til lýðsælda[r] þeirra.

Tími Félagshyggjunnar, sem hófst 1919, er liðinn, og við sjáum það öll, en við vitum ekki hvaða beygju skal taka á vegamótunum. Þetta er ekki stafrænn rofi, og dauðahryglan er hafin. Því miður sér elítan sem nú veit að hennar vitjunartími er kominn, hikið, og notar það sem tækifæri til ýmissa voðaverka, svosem hún er iðin við undanfarin fimm ár.

Hér er enginn greinarmunur gerður á neinni afmarkaðri elítu, allar elítur allra þjóðríkja og þverþjóðlegra stofnana og fyrirtækja, eru sama elítan, eða -elítan-. Sumar þeirra standa sig betur, einmitt við lýðsefun, og aðrar við að stökkva málum á dreif, en niðurstaðan er sú sama.

Við röktum árin 2018 til 2021, að nauðsyn væri að rífa Píramídana, við röktum á sama tíma ákveðinn þéttleika varðandi Guðdómlega Sáttmálann sem Móse gerði við Ofurvættinn* við fundum einnig elleftu plágu Egyptalands frá hans tíma og eftir talsvert innra umrót, hví hún væri óskráð, og eftir leit í ritningum, skildum hvers vegna.

Þessi atriði værum við til í að ræða daglega, og hvarvetna, því vægi (Torque) þeirra er mikið og ristir djúpt, erum undir þeim tilmælum að forðast. Sem við hlýtum.

Jeremías, sá mikli og stórmerki Spámaður, veitti svarið við, hvers vegna, fyrir mörghundruð árum.

Lagskiptingar og Tímafléttur!

Rétt eins og með allt í Trúnni, þú ræktar persónulegt "Exclusive" vensla-samband við Skapara þinn, fyrir trú en ekki rekjanleika. Elítan hins vegar telur að hún hafi sannaðan veruleika, fyrir hlutum sem eru hreinræktuð dulspeki. Soldið spes.

Ritningar Eingyðistrúarinnar eru sérstakar fyrir þetta, að þær eru marglaga, eða marg lagskiptar. Ef þú tekur þær sem sagnfræði og efnislegt (Material, Physical) afsal, endarðu með morðóða Zíonista sem telja sig þess umkomna að slátra öllum sem þeim er illa við, og megi það útaf draugasögu úr Síðari heimsstyrjöldinni. Draugasögu sem bannað er að efast um!

 

Sannleikur?

Tvær frægustu ljóskur allra tíma,
Marilyn Monroe og Debbie Harry,
báðar brúnhærðar!

 

Ef þú kemst niður í næsta lag, eða niður á næstu þynnu í lagskiptingunni, sérðu að þetta er allt saman táknfræði, ætlað til að kenna þér Siðfræði, komistu í þriðju lagskiptingu ferðu að sjá frumefnisleg (Metaphysical) fótspor misvísandi og góðvísandi anda, dímona (illra og góðra (Demons and Fairies, Djöfla og Dísa), engla og fallinna engla, að englar eru þrennra ætta, að vættir láðs, lagar og lofts eru, eða gætu verið, enn önnur eðlisfræði, en fjórða lag vísar þér veg gegnum völundarhús sjöþúsund hindurvitna eða spegla.

Hvað sérðu í speglasal? Mismunandi útgáfur af sjálfum þér, og allar brenglaðar, og enga útgöngu.

Eitt gott dæmi um lagskiptingar eru skilaboð engilsins Mikaels til engla safnaðanna sjö í Asíu. Flestir fella út "engla" og lesa, skilaboð til safnaðanna sjö, enn aðrir gleyma að Kristnir söfnuðir voru ekki til á þeim tíma þegar þetta var ritað, að allir þeir sem þá kenndu sig við Spámanninn Jósúa Maríuson frá Nasaret, litu á sig sem ýmist umskorna og óumskorna Júða, og sóttu samkomur í sömu synagógum hvarvetna í hinum siðaða heim. Flókið?

Annað gott dæmi er Messíasar heilkennið (Syndrome). Fyrsti skráði Messías trúarinnar, hét Saúl, sá annar Davíð, en hver var sá þriðji? Salómon? Neibbs, enginn þriðji hefur mætt. En hvað er fyrirbærið?

Samkvæmt þessu var Jósúa Maríuson - eða Jesús - ekki Messías. Satt að segja bannaði hann Lærisveinum sínum að breiða út að hann væri það, og þvertók fyrir að hann væri það, einnig marg ítrekaði Jósúa að hann væri mannssonur en ekki guðssonur. Svo ef hann var Messías, sem ég hef sjálfur trúað, og Spámaðurinn Múhameð trúði, þá var María Magdalena Spámaður Guðs! Við vitum að Jóhannes frændi hans var Spámaður Guðs, en hann veitti Jósúa enga smurningu!

Flókið?

Lagskiptingar.

Þú mætir til fjallsins helga, og ræktar Vensl þín við Skapara þinn, fyrir trú (og andans árvekni). Einsamall! Helst á hnjánum, en betra á grúfu í mölinni.

Messías merkir nákvæmlega, leiðtogi ríkis sem smurður er til helgrar þjónustu, af Guði fyrir milligöngu Spámanns Guðs. Leiðtogi þjóðar eða hóps, hins vegar, sem kallaður er af Guði, og það með reynanlegum hætti, er Dómari. Ritningarnar eru skírar með þetta.*

En Messíasar heilkennið er oft uppnefnt Messíasar Komplex og þá er átt við fólk sem vill gera sjálft sig að Gúrúum eða Fræðurum, sem er allt allt annað fyrirbæri, eða Gúrú Komplex. Messíasar komplexinn (Complex, Duld, Sálarduld/flækja) er þegar þú gerir einhvern annan að leiðtoga og jafnvel einskonar frelsara þínum eða upphefur einhvern í leiðtogahlutverk lífs þíns og velferðar, og hefur hann upp yfir allan vafa eða fylgir honum í blindni. Allt mann-kyn heimsins er sokkið í þennan komplex og sér ekki út fyrir þann speglasal.

Flókið?

 

 

Tökum snúning á þessu með andaverurnar. Bæði Mikael og Satan (eða Samael) eru Ljósenglar (Morning star, Lucifer), þeir báðir vísa á sjálfa sig sem þeirrar tegundar. Á milli níu og ellefu ljósenglar eru þekktir með heiti, í fræðum Eingyðisritninga (Biblía, Kóran, Avestur), hugsanlega fleiri ef dýpra er grafið. Enginn veit hvað Serafar gera, en við leituðumst við að greina það fræðilega fyrir fáeinum misserum, eða haustið 2021, en sú greining er ekki lengur (og verður ekki) aðgengileg opinberlega, en vitað er hvers hlutverki Kerúbar gegna.

Margir líta t.d. á að fyrirbærið Dímonar (djöflar og dísir) séu það sem vísað er til sem fallnir englar, en svo er ekki. Fyrir árið 2019 voru mjög fáir sem gerðu sér ljóst hvað dímonar eru, og síðan áttuðum við okkur á því, en eftirtektar vert er að síðan sú greining leit dagsins ljós, er mjög víða í heimi andlegrar umræðu (erlendis að mestu) sem fólk hefur fundið sömu niðurstöðu en spurning hvort sú niðurstaða sé afrituð (bergmál úr samræðum), glædd (Inspired) eða greining (Analysis), HITT ER ANNAÐ, að ljóst er, þegar djúp og traust greining vitnar fyrir einhverju, svo ljóst er í andaheim, glæða andar þá í mannheimum sem þeir hafa aðgang að með hinu nýja eða uppljóstraða innsæi.

Á persónulegu nótunum.

Í mörg ár hef ég unnið með fyrirbærið áttunda sýnin, ekki að ég viti hver hún er, vill það ekki. Hún birtist þegar hennar tími er kominn. Hitt er annað, að tímanlega birti Guð opinberun á hverjar úreltu sýnirnar sjö væru, og hvernig mætti ljúka því upp. Margt í ritningum Eingyðistrúarinnar, hefur þessa náttúru.

Margt er um, á okkar tímum og gegnum aldirnar, að ýmsir hafa túlkað spádóma ritninganna eftir ýmsum táknfræðum og gert mikinn mat úr. Daníel, Jóhannes, og margir aðrir sem fengu spádóma til miðlunar, bentu á að síðar yrðu sendir aðrir sem fengju lyklana til að ljúka upp.

Hér verður að hafa í huga að Eingyðistrúin - sem hvíslast í fáein trúarbrögð og eru fern þeirra best þekkt með heitum, en þau eru fleiri en fjögur - er opinberunar trú. Taka má dæmi. Hvers vegna trúum við (og tignum) að einungis einn Vættur beri heiður og ábyrgð á því að Alheimurinn glæddist til veru. Því hann opinberar sínum, og vitnar hinum. Þetta er einfaldleikinn.

Hitt er annað, að við síðan rekjum úr opinberun hans og lærum að skilja þætti hennar og þynnur (lagskiptingar) og það glæðir áfram vit okkar, skilning, þroska, og hreinsar burt andstyggðir sálar og lífgar okkur að göfgi og dyggð (Virtue). Hann leiðir okkur, en við verðum að setja annan fótinn fram fyrir hinn, frá grúfu í mölinni til grúfu í mölinni, fetið, steinvölu fyrir teinvölu, uns (svo vitnað sé í Mikael) að við finnum hvíta steininn hvurslags enginn veit hverrar náttúr er.

Heilagur Tómas Aquinas orðaði mjög vel í Summa Theologica, rökleiðuna frá hinu hvatta til hins óhvatta (The Uncaused), rökleiða sem öllum trúuðum er kær, sem til þekkja. Tómas var kaþólskur Skólaspekingur, djúpvitur. Nýverið heyrðum við rabbínann Yaakov Shapiro, sem einnig er djúpvitur og við höfum lært margt af, nota sömu rökleiðu. Var hann að vitna í fræði Talmúdsins (Oral Torah) eða í Tómas Aquinas? Skiptir það máli?

Mér þótti vænt um þessa upprifjun rabbínans á rökleiðlu sem ég hef oft notað undanfarin misseri, því hún rak mig til að rifja upp, hvers vegna ég væri Eingyðistrúar. Ég var búinn að gleyma því. Þar sem ég á víxl hef skjögrað og reikað eftir krókótta einstiginu og séð það greiða mér för, hafði ég gleymt því hvers vegna. Í þoku fortíðarinnar leit ég og sá ekki, en þokan sá örvinglan sækja á, og greiddi úr sér, og opinberun barnæsku minnar rifjaðist upp og minnti mig á hvaðan ég kem, svo ég finni aftur hvert ég fer.

Fyrr í vetur setti ég athugasemd við færslu á Facebook, en þekkt stjórnmálakona úr Sjálfstæða Kommúnistaflokknum, er þar með síðu sem notar til að koma sínum málum á framfæri. Hún er iðin við að mælast fyrir stríði við Rússa og styður morðæði Zionistaríkisins og heldur sig vera kristna og elska Jesú, þó það samrýmist hvorugu þessa. Athugasemd mín var einföld, því ég lít á það sem hneisu fyrir Íslenskt stjórnmálafólk að svíkja hlutleysisgrunn Íslenskrar lagahefðar frá 1264. Stjórnmálakonan svaraði athugasemd minni og bauð mér að rökstyðja, sem ég gerði ekki, heldur minnti hana á að óþarft væri að hnýta í stuðningsfólk sitt. Síðar sá ég að stríðsæði hennar hafði aukist til muna, í annarri færslu, í þetta sinn setti ég aftur kurteislega athugasemd, en þá hafði ég vikið frá stuðningi mínum sem áður hafði verið gefinn af vanviti. Viti menn, skyndilega sprettur fram kona með Íslenskt heiti og gusar yfir mig svívirðingum og persónulegum meinsærum, með fullyrðingum varðandi Gyðingahatur* sem hún eignaði mér að ósekju, sem ég þakkaði fyrir með kurteisi, minnti á að meinsæri eru lögbrot og þakkaði fyrir eineltið og ofbeldið, svona gekk á, að froðufellandi mannvonska hennar sótti í sig veðrið. Stjórnmálakonan sem átti þráðinn, lét eins og þetta kæmi henni ekki við, þó ofbeldið, hatrið, stríðsblætið og illmennskan, væri á hennar eigin þræði. Þar með varð það að hennar eigin, því hún gætir þess að lesa allar athugasemdir á síðu hennar og svara þeim velflestum, ekkert hefur komið fram til að draga úr þessari niðurstöðu minni, og sé ég alla elítu landsins, frá æðsta toppnum á Bessastöðum, til skúringakvenna í skólum, og ritstjórum fjölmiðla, og afgreiðslufólki banka, sem eina elítu, og hún er þverþjóðleg.

Þetta með téða stjórnmálakonu, er táknrænt, en þó ekki aðal málið; hitt er málið, ég kem hvergi nærri síðu hennar í dag, því þó ég óttist ekki svona lið, og þó skrápurinn sé þykkur eftir skyrslettur Leirmenna og blaut viskustykki Bergmálsfólks, undanfarin fimmtán ár, þá hef ég ekki tíma fyrir rugl, og ekkert rými fyrir tvífætt Úrþvætti.

Ég er upptekinn.

Á grúfu í mölinni.

Að lesa steinvölur.

Það er enginn SIÐr á jörðinni og hefur ekki verið síðan fyrsta sprautan var munduð, en formálinn var þegar fólk var hneppt í varðhald á heimilum sínum árið áður. Mann-kynið er dáið, mann-fólkið er enn lifandi, en ég veit ekki, hvernig fer.

Hitt sé ég. Að þeim fer fjölgandi sem snúið hafa við elítunni baki, og að einhverju öðru, hvernig sem það er glætt. Nýverið sá ég verulega áhugaverðar umræður á X, þar sem fólk veltir fyrir sér mikilvægi kirkjuklukkna, og rakti hvernig þær hafa kerfisbundið verið fjarlægðar, og hvaða vægi þetta hefur (og næst verður bænakallið í turnunum rætt), fyrir brottfælingu á djöflum og dimmum djinnum. Ég heyri sífellt fleiri, í raunheimum og netheimum, komast að þeirri niðurstöðu að Sagan og Frumspekin, gangi í hringi, en í spíral, nokkuð sem við ræddum mikið í Arkívinu hér áður, og okkur þykir vænt um að sjá þetta innsæi glæðast.

Þú getur ekki sett upp grímuna mótþróalaust, nema andsetinn, og hafir þú ekki hafið vitnisburðinn sem leiðir þig úr þeim ham, hver er þá hugur þinn, og hvers, ef hann á annað borð Er?

Þetta er verulega áhugavert og algengt er meðal fjölæringa (Perennialists) og aldingja (Sages) hvers tíma, að þeir halda athygli sinni jafn vakandi fyrir þesskonar fræðum og þeir hafa athygli fyrir sögnum og rekjanlegum fræðum, því dafnandi vitund sér þessi fyrirbæri.

Tökum þriðja dæmið varðandi lagskiptingar. Víða í Júðisma, Kristíanisma og Íslamisma, er rætt um erki-engla, einnig í Zóróasterisma. Staðreyndin er sú að einungis einn skrásettur og vottaður engill Sáttmálsarkarinnar er og var og verður til. En fólk sem trúir að Erkienglar séu fleiri en einn, vita ekki hvað hugtakið táknar, og vilja ekkert svo flókið.

Niðurstaðan?

Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning.

Helst á hnjánum, betra á grúfu í mölinni, en í hrokafullum ástímshlaupum ef það hentar.

En lokaorð fyrir lagskiptingar. Spámaðurinn Enok, þýddist þau tilmæli föllnu englanna, að mæla sér afléttinga við Ofurvættinn, og spámanninum veittist tiltal fyrir. Múhameð gerði skíran mun á dímonum - samanber hér - sem á Arabísku eru "Jinn" og sá að sumir Djinn voru djöflar og aðrir dísir, og ræddi nokkuð vandlega. Við höfðum rætt þennan mun í Arkívinu áður en við vissum þetta, án þess að draga neina niðurstöðu af, samanber leiðsögn Enoks. Við gefum gaum að, en drögum ekkert í.

Það er sjáðu til, svo við vitnum í Jósúa Maríuson, nálarauga sem þræða þarf með hrosshársreipi, hvernig þræðir þú slíka nál með slíku reipi?

Akkúrat; þú ræðir við þann sem skapaði hvorutveggja. Prívat og persónulega.

Hann þarf engan klúbb. Allir hans, eru í mesta leynifélagi allra tíma, óskráða félagið sem Samaelískir hafa mikla ástríðu til að afnema og helst yfirtaka.

Þetta var nú ekki markmið færslunnar. Við vildum minna á Denis og Steve, og gera grín að okkar eigin dánumenningu í leiðinni. En dokum smávegis við hér. Það hlýtur að vera öllum ljóst hérlendis, hvílíkur glæpur var framinn á fyrirbærinu "þjóðinni" (sem við trúum ekki að sé til).

Hvernig er annað hægt eftir allt sem gengið hefur á undanfarin fimm ár, en að jafnvel sanntrúaðir covid vitringar sjái það. Hvernig má annað vera en að fólk átti sig á að kjarnorkustríðs hótanir allra landa sem eiga kjarnorkusprengjur, undanfarin þrjú ár, eru svívirða. Það hlýtur að vera öllum augljóst, að allir sem hafa aðkomu að stríðum í Palestínu og Evrópu undanfarin þrjú ár, eru sömu djöflarnir, öllu megin við allar línur. Það hlýtur að vera öllum ljóst í dag, að fjármála kerfi heimsins er í dag innfallið og einskis vert, ásamt stjórnvaldskerfi alls heimsins, og að réttlæti er í dag skammaryrði.

 

 

Sá sem ekki sér þetta, hefur engan huga, hann hefur heilabú og það vinnur úr þeim rofum sem áróður og innprentun virkjar hverju sinni, en engan huga. Sálarlaus líffræðileg vél, ekkert annað. Það má drepa fólk með ýmsum hætti og lifandi búkur án sálar, en yfirtekinn af einhverjum anda, er sálarlaus og því dáinn. Iðrun og vitnisburður, getur glætt hann lífi og kallað sálina heim, en hann þarf þá að virkja bæn og fyrirgefningu til að rísa á ný og ræsa hugann.

Og veistu hvað?

Jesú hamraði þetta inn hjá sínu fólki, en þér er ekki kennt það!

Öll fræði allra trúarbragða kenna þetta. Hvort Jesú var til eða ekki, hvort hann var Messías eða ekki, eða sé það enn og komi á ný, skiptir engu máli, í þessu samhengi.

Og menningin sjálf; ...

það er bókstaflega engin samræða neins staðar um hið augljósa!

Engin.

Hversu mikið ofbeldi þolir þú, nema hugur sé slökkt?

Einföldun; reglulega mælir Ofurvætturinn sálarástand allra, bókstaflega,
og hvernig þú bregst við slíku, prívat og persónulega, hefur afleiðingar.

Það heitir vitjunartími (Time of Reckoning).

 

 

* Lýðsældir notum við fyrir Populism og Lýðsefun (ekki sefjun) fyrir Populist. Þ.e. hvað er vinsælt meðal fólks (án áróðurs og innprentunar) er það sem fólk lítur á sem sér best til framdráttar í lifnaðar og menningar háttum, lýðsefari er sá sem ræðir við fólk um það sem það vill heyra og er að þess mati líklegastur, eða raunhæfastur, til að leiða það fram sem þeim verður best til farsælda og hagsmuna. Kommúnistar og Marxistar og Fasistar, niðurtala bæði fyrirbærin, enda lýðskrumarar og raungusnúendur (Demagogues, Dialectics; Marxists & Fascists).

* Ofurvættur - við vitum ekki hver vætturinn er sem stjórnar þessu Sólkerfi. Mörg heiti eru til á ofurvætti Eingyðistrúarinnar, hið þekktasta er svonefnt fjórstafaheiti (Tetragrammaton), best þekkt í framburðinum Jahve eða Jehóva. Móse gerði sáttmála sinn við Ofurvætt, og af öllum orðræðum Móse má skilja svo að um Skapara Alheimsins væri að ræða, en var það svo? Engillinn sem sá um milligöngu, var erkiengillinn Mikael - ljósengill sáttmálans - en til eru margir ljósenglar. Minnum á að fallinn engill, er ekki dímon, heldur engill sem vísar þér frá persónulegum venslum (Relationship) við Skapara Alheimsins, frá því að bjóðast ættleiðing. Samael lítur fyrst og fremst á sjálfan sig, sem málafærsluaðila (Advocate), hann ákærir Manninn, sem sé óverðugur og leitast við að sanna það. Mikael leitast við að færa sönnur á hið gagnstæða.

Enn birtast lagskiptingar ...

Því Spámenn Guðs, allra alda, vita að þú getur hvorugt sannað. Verðskuldun þín er engin.

Annaðhvort ertu í venslum við Guð, eða ekki, annaðhvort gengst hann við þér og þú verður sannur, eða þú dafnar og vex í lýgi, og allt sem er skapað, er skáldskapur og því lýgi.

Enginn sannleikur er til í sköpuðum heimi, en þú, já þú; getur fyrir náð orðið sannur.

* Varðandi Júðaóvild eða Gyðingahatur; ekkert slíkt er hægt að sanna á mig, því við höfum hvergi viðrað neitt slíkt, ekki í bloggi, ekki í bókum, og ekki í Arkívinu (hvorki því enska né íslenska). Virðing mín fyrir Júðisma, eða Gyðingdóm, er djúp, tær og fölskvalaus, og í allri minni orðræðu birtist þessi virðing. Eitt sinn var ég spurður út í blæbrigði þessara trúarbragða, af konu af Gyðingaættum sem alin er upp í Zionistaríkinu Ísrael, því hún - að eigin sögn - treysti betur mínum útskýringum en Rabbínanna úr eigin heimalandi, en hún þekkir vel til orðræðu minnar. Svo djúpt nær þessi virðing mín, að ef rabbíni myndi hringja í mig og segja mér að ljótasta dóttir sín væri á giftingaraldri og hann vildi gifta hana óumskornum (Goyim), myndi ég spyrja hann hvar ég ætti að  mæta og leigja mér jakkaföt.

* Viðbót við Messíasa og Dómara. Spámenn Guðs, eru síðan kallaðir af Guði sjálfum og skilgreindir eða vottaðir aðeins af honum sjálfum, og þá aðeins að það henti markmiðum hans, og hann einn setur þeim verksvið og afmarkar þau, og því óskilgreinanlegir af hugmyndfræði manna og regluverki þeirra, þó eru tvenn þekkt viðmið sem eru meira verkavani en regla, þeir eru allir beittir í baráttu gegn skurðgoðum og upphefja Skaparann einan og ekkert annað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Djúpur og góður pistill Guðjón, -takk fyrir eljuna.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 22.3.2025 kl. 18:39

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það er firnamargt áhugavert og gott í þessum pistli. Einmitt þegar þú ferð svona djúpt í þetta  vaknar áhugi minn á meðan hann sofnar hjá sumum. Ég var einmitt að ræða margt af þessu í afmælinu nýlega þar sem spekingar spjalla. Messías er hebreskt orð en christos er gríska og var notað um heiðna guði eins og Zeus sérstaklega. Iesus Christos er þar af leiðandi ekki nafn á persónu heldur virðingar og valdatitill hið seinna og einhverskonar afskræming á Yashua eða Esus I, fyrsti, eða I fyrir gyðinglegur Esus, sem var heiðinn guð. I stafurinn táknaði sá sem tignaði Yehova eða Yahve, en Rómverjar táknuðu J eða Y með I einatt.

Þú skilur þetta í þessum pistli og kemur með heiðarlega umfjöllun.

En margt í þessu er svo djúpt um dímonafræði og slíkt að ég þarf lengri tíma til að pæla í því. 

Þetta með Messíasarkomplexinn er mjög gott og rétt. Nema almenningur hefur gert mannlega kommúnistaleiðtoga að einum Messías, er það ekki Mammon sjálfur? Svo gæti virzt, Elítan og hennar ofurfjármunir, það er valdið sem er tignað af skrílnum, og valdið birtist í þessu, gullkálfurinn.

Síðan er hlægilegasta hræsnin þegar fólk er að rífast út af siðfræði sem það hefur ekki lengur, eða sið.

Ég er ekki sammála með píramídana, en það er ekkert nýtt.

Hinsvegar er ég svolítið hrifinn af hugmyndinni um að María Magdalena hafi verið spámaður Guðs. Hefur fólk spáð í hvað margt í kristninni og það fallegasta í henni er kvenlegt?

Það eru þversagnir í kringum Jóshúa son Maríu. Þú rekur sumar alveg prýðilega. 

Áhugavert að tala um Ofurvættinn, því það finnst mér passa nokkuð vel. 

Á bakvið Gamla testamentið og Nýja testamentið er galdur. Hvernig valdhafarnir umbreyttu textanum og mótuðu sér í hag er glæpurinn. Við lifum enn í rómverska heimsveldinu að því leyti að hin sataníska valdahyggja er enn að stjórna okkur.

Pointið er þetta, á heimsendatímum og upplausnartímum er þörf fyrir spámenn. Almenningur sér þetta ekki á Íslandi. Hér eru bara skriðdýr en ekki mennskar sálir. En þjóðirnar eru að breytast í eina þjóð, og úr þjóðahafinu kemur þörfin fyrir spámennina á komandi tímum, þannig að kallað verður á spámennina úr rottuholunum að gegna sínu hlutverki.

Svona pistlar hreyfa við mér, djúpt farið í málin.

Eins og ég segi, maður pælir í þessu.

Takk fyrir frábæran pistil. Maður verður leiður á að ræða alltaf pólitíkina, "let the dead bury the dead".

Ingólfur Sigurðsson, 22.3.2025 kl. 18:48

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, félagar, Magnús og Ingólfur, maður þarf smávegis klapp á bakið eftir svona rennsli niður brekkuna.

Ingólfur, þú hefur vafalaust gaman af, að út frá ritningunum sjálfum er hægt að sanna að Jósúa Maríuson, stjúpsonur Jósefs, hafi verið Rómverskur borgari, og ljóst að allir ritningafræðingar hafi vitað það allar götur frá dómnum yfir honum, og að dauðadómurinn var samkvæmt Rómverskum lögum, s.s. INRI merkir.

Þetta er merkilegt á svo marga dularfulla vegu, að ég hef ekki fundið góðan botn í, en merkilegast, að þegar allir vita það, og enginn viðurkennir það, þá er eitthvað dýpra falið.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 22.3.2025 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband