Fimmtudagur, 6. febrúar 2025
Fræðimenn Faraós dæla vítissóta í sjóinn
Viti menn, nú er Fuglaflensa [hugans] komin í ketti og kýr, og enn biður enginn um sönnun fyrir vírusnum, enda eru Fræðimenn Farós meðetta. Sama hversu fáránlegar staðhæfingar -elítunnar- eru, þær eru ávallt viturlegri en raunsæi, því raunsæi er samsæriskenning (dulspeki) ef -elítan- segir annað.
Vilt þú vera fremstur meðal fávita? Viltu upphefð í Helvíti?
Ha, erum við ekki í Helvíti?
Ef við erum í Helvíti, þá græða mest og ráða mestu, þeir sem drepa flesta, ljúga mestu og ræna öllu. Hvort vegur meira í okkar heimsrými (Realm), lýgi eða sannleikur? Veist þú hvað efnisheimurinn er, geturðu sannað fyrir mér að Alheimurinn sé yfirleitt til? Ertu viss um að þú vitir hvað þú sjálfur ert, eða hvort það sé bara sannfæring?
Veistu hvað hugtakið Fræðimenn Faraós merkir í Bibbunni? Kanntu merkingarfræði, gerirðu mun á Siðferði og Siðfræði, á yfirborði og innihaldi, á dáleiðslu og innprentun, á því að trúa á vísindin eða lesrýna vísindin?
Athugasemdir
Næst verða það þungmálmar & geislavirk efni.
Ásgrímur Hartmannsson, 6.2.2025 kl. 12:23
Góður Guðjón, -þær fara hamförum kellingarnar eða þannig.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 6.2.2025 kl. 13:40
Guðjón, þú ert frábær í sumu, en slærð feila finnst mér. Þegar þú afneitar vísindum nútímans get ég mjög tæplega samþykkt það. Eins og súrnun sjávar, auðvitað er hún möguleg, eða fuglaflensan.
En við erum í Helvíti, það er auðvitað rétt og satt hjá þér, eða helvíti eins og ég vil heldur orða það. Það eru mörg helvíti en eitt Helvíti, sem hugtak sem lýsir ástandi. Hin mörgu helvíti geta verið hnettir eins og okkar hnöttur, eða ástand í einhverri vídd eða hvað sem við köllum það.
En þú ert alvöru heimspekingur og því vel þess virði að lesa sem þú skrifar, þótt maður sé stundum ósammála.
Ingólfur Sigurðsson, 6.2.2025 kl. 13:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning