Þriðjudagur, 28. janúar 2025
Leyndardómur Chechnýju
Mín kynslóð veit vel af Chechnýju stríðunum tveim sem voru háð milli uppreisnar aðila í Chechnýju Lýðveldinu á Kákasus svæðinu við Rússneska Sambandsríkið, áratuginn eftir að Sovéska kommúnistasambandið liðaðist í sundur.
Í mínum huga er lítill munur á þessum tveim stríðum, annar en að Yeltsín var leiðtogi Rússalands í hinu fyrra og Pútín í hinu síðara. Fyrir mér eru stríðin þannig séð, eitt og hið sama, nema með pásu í miðjunni.
Ýmsar fréttir voru á Vesturlöndum svipaðs eðlis og frá 2011 til 2024 varðandi svokallaða Borgarastyrjöld í Sýrlandi, þar sem Nató vopnaðir og Nató fjármagnaðir skæruliðar, og/eða málaliðar, voru notaðir til að rústa Sýrlandi. Grúskurum er ljóst hvernig Chechnýju stríðið var, í því ljósi, og nóg er til af upplýsingum til að staðfesta þessa yrðingu.
Stríðinu lauk þannig að Grosný borg í Chechnýju var því sem næst ein risastór hrúga af steinryki, svipað og Gazaborg er í dag, og Kadýrov eldri tók völdin, friðaði sína eigin þjóð og samdi frið við Rússa, en eftir að hann var drepinn - 2004 - tók sonur hans Ramzan við leiðtogahlutverki þjóðar sinnar, sem hann hefur sinnt með glæsibrag allar götur síðan.
Vissulega er Ramzan Kadyronv djöflakenndur (Demonized) á Vesturlöndum, eða í Natómusterinu, en engum blöðum er um að fletta, að velmegun Chechnýsku þjóðarinnar og uppbygging, undir hans forystu, er umtalsverð og óumdeilanleg. Þá er einnig áhugavert að Chechnýjumenn eru upp til hópa vopnaðir en ekki afvopnaðir eins og borgarar eru víðast hvar í lýðræðislöndum, Rússland þar með talið.
EN, hér er fleira áhugavert ef maður rýnir í hylinn.
Athygli hefur vakið til að mynda að sérsveitir Chechnýjumanna hafa barist af nákvæmni og með talsverðum árangri í þeim þorpum og borgum sem Rússar hafa háð hildi gegn Úkraínuher undanfarin þrjú ár.
Hvort heldur við erum hlutlaus eða ekki, hefur komið í ljós að þessir hermenn eru verulega hæfir þegar kemur að borgarskærum (Urban Warfare) en því var til dæmis spáð af sérfræðingum í fyrra, að IDF (Israeli Defense Force) þeirra Ísraelsmanna myndi standa sig illa í borgarskærum gegn Hamas í Gazaborg, sem hefur komið á daginn. Sem fyrr segir, hlutbundið (Objective) en afstöðulaust (Neutral) mat.
Almennt er talið af hliðarsettum (Marginalized) sérfræðingum í hernaðargreiningum, að Nató herir og aðrir vestrænir herir, hafi ekki næga eða rétta þjálfun þegar kemur að borgarskærum, og er bent á mörg atvik í hernámi Natóríkja á Afganistan og Írak, því til áréttingar. Hvort þetta sé rétt, kannski, kannski ekki, en hitt er annað, að eftir átökin í Grozný fyrir tveim til þrem áratugum síðan, leggja varnarsveitir Chechnýska Lýðveldisins sérstaka áherslu á þjálfun í borgarskærum, en sveitir þessar bókstaflega flengdu Rússneska herinn í Grozný á sínum tíma.
En það er fleira í hylnum.
Nú er vitað að ekki eru allir Chechnýjumenn á bandi við Kadýrov og vitað um talsverðan fjölda þeirra sem berjast með Herliði Úkraínu (AFU, Armed Forces of Ukraine) en ekki hefur farið neinum sögum - sem við vitum um - hvernig þeir hafa staðið sig.
Margir vita vafalaust af að Trump forseti lét hafa eftir sér á dögunum, að hann væri að þrýsta á Konungsríkið Jórdaníu og Egypsk Arabíska Lýðveldið (Egyptaland, Arab Republic of Egypt), að afmarka svæði handa íbúum Gazaborgar, og vill hann að þar séu byggðar upp nýjar borgir handa þeim Palestínuborgurum sem IDF er að ýta í burtu, en nú þegar hafa 1,9 milljón manns - allt óbreyttir borgarar - misst heimili sín.
En slík lausn virkar ekki og Chechnýja er sönnunin.
Íbúafjöldi Chechnýju er 1,5 milljón manns! Dagestan sem er þar við hliðina, þar sem einnig býr Íslömsk þjóð, náskyld, er tvöfalt stærri. En bíddu nú við, allar götur frá lokum Krímstríðsins á miðri nítjándu öld, og fram á tíma Stalíns rétt fyrir miðja tuttugustu öld, stóðu Chechnýjumenn uppi í hárinu á Rússum og börðust gegn þeim. Ekki nóg með það, Stalín leysti vandann með því að þvinga meirihluta þeirra til að flytja af landi brott og dreifði þeim víðsvegar um Sovétríkin.
Þeir fluttu allir aftur heim og héldu áfram að berjast. Ég veit ekki hvað það er með Kadýrov feðga, að þeir komu sönsum á fólk sitt, en lausnin var hvorki stríð né þvingaðir fólksflutningar.
... kannski var það eitthvað sem Pútín datt í hug.
Kannski ekki.
Hitt er annað, að Palestínufólk hefur búið í Palestínu í fjögur til fimmþúsund ár. Í nokkrar aldir voru flest þeirra júðatrúar. Aðfluttir Zionistar, er eitthvað allt annað.
Biblían er ekki sagnfræði- eða efnishyggjurit.
Biblían er trúar- eða frumspekirit, slíkt er ekki landa afsal, heldur kennslubók í siðfræði, meðal annars. Biblían kennir þér að hugsa, og hún kennir þér að skilja, en er ekki réttlæting á ofbeldi og fjöldamorðum, og sé lesning hennar ástunduð, gæti hún kennt þér guðdómlegt gildismat.
Berir þú ekki virðingu fyrir þessu, snýst hún gegn þér. --Sagan
Viti menn; hinir sömu og fjármögnuðu innflutning Zionista til Palestínu síðan 1930, og stríð þeirra gegn frumbyggjum landsins síðan 1948, eru sömu fjölskyldurnar og fjármögnuðu Krossferðirnar og Kristnu furstadæmin á svæðinu milli Tyrklands og Egyptalands, frá 1100 til 1300, sem slátruðu mörgum frumbyggjum og þeir hinir sömu fjármögnuðu umfangsmestu þjóðflutninga allra alda, þegar hundruðir þúsunda "kristins Evrópufólks" flutti búferlum til svæðisins, fólk sem síðar tók upp Íslamska trú.
Sagan er soldið sposk, stundum.
En [ofsa]valdbeiting og heilaþvottur, stríð, mútur eða þjóðflutningar, leysa engin vandamál, heldur stækka þau. Chechnýja er sönnunin.
Svo er annað.
Allir vita sem rýnt hafa Grískar mýtur, að í Kákasusfjöllum er fjötraður einn af öflugustu frum-vættum heimsins og einnegin að varast ber að hreyfa of mikið við Kákasussvæðinu. Þá vita allir sem ekki eru heilasmúlaðir af kommúnistavefnum Wikipedia, að hvíta fólkið er Kákasusfólkið, Caucasians, en það er einnig nefnt Indó-Evrópskt fólk.
Nú eru margir sem rugla hér saman ýmsu varðandi húðlitinn sjálfan, t.d. eru norður-indverjar yfirleitt Kákasusfólk, svo og Latínu/Hispanic fólk, Semítar (Arabar), rétt eins og Germanskar og Slavneskar þjóðir. Einnig eru sumar skáeygðar þjóðir Síberíu einnig af Kákasusfólki. Hægt er að fara dýpra í þetta, sem við höfum gert í Arkívinu, því þegar menning stórþjóðar Kákasusfólks er rakin í gegnum aldirnar, með öllum hennar hugmyndum og þróun þeirra, kemur verulega margt áhugavert í ljós, ekki síst í Jungískum skilningi. Sem fyrr segir, Arkívið hefur þegar rættetta.
... og við erum ekki byrjuð að ræða Þjóð heilags Georgs, í Tíflísi, hina varðberana sunnan við Kákasusdímoninn sem Grikkir fjötruðu ...
Djúpt stöff.
e.s. 13:12
Minntist nýverið á kvikmyndina Koyaanisqatsi, sem er að mínu mati skylduáhorf meðvitaðra, en í myndinni er sjö mínútna sena, af þegar borgarhverfið Pruit Igoe var jafnað við jörðu. Hverfi sem Bandarískir Kommúnistar byggðu í Suðurríkjunum, fyrir undirmálsfólk. Það vildi enginn búa þar.
Hverfið var hannað af sama verkfræðingnum sem teiknaði World Trade Center. Eitt af því áhugaverða við stórbygginga rústun, er að kvikmyndir af þeim sanna að 911 WTC var ekki það sem okkur var sagt.
Fjölmiðlar, og Wikipedia, sýna þér ekki veruleikann og alls ekki það sem þú þarft að vita. Rétt væri að nefna samtímamenningu; Skrípó.
Athugasemdir
VVP segir að vestrænar moldvörpur hafi fengið vopnaða heittrúarmenn frá Sádí til að smeygja sér inn í Tétseníu, rugla í heimamönnum og koma þeim í uppreisnarhug. Sama var víst gert í Bosníu.
Helgi Viðar Hilmarsson, 28.1.2025 kl. 13:05
Já, hef heyrt slíkt, og einnig að vígamenn hafi komið frá svæðum á borð við Uzbekistan, Tajikistan, Turkmenistan og Kazakhstan ... svipað og gert var í Sýrlandi og er gert enn sumsstaðar.
Bestu kveðjur.
Én já, Salafisminn / Wahabisminn hefur verið notaður til að búa til fyrirbærið "múslímaheimurinn" í hugum Vesturlandabúa.
Guðjón E. Hreinberg, 28.1.2025 kl. 13:09
Góður Guðjón, -þú hefur farið mikinn upp á síðkastið með áhugavert lesefni, takk fyrir eljuna.
Bestu kveðjur.
Magnús Sigurðsson, 28.1.2025 kl. 13:32
Takk fyrir góðu orðin, Magnús, já, ég held að ég þurfi að fara í smávegis Óreiðuskoðanapásu. Annars enda ég á að taka mark á eigin skrifum.
Sem er bannað.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 28.1.2025 kl. 14:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning