Ranghugmynd dagsins - 20250120

Hey, fyrir fjórum árum geisaði mesta farsótt í mannkynssögunni, í tvö ár. Upphafinu var lýst yfir með hávaða, endinum var lýst yfir hljóðlega. Manstu hvað WHO segir að margir hafi dáið í farsóttinni og hvernig það er mælt?

Ekki? En hversu umfangsmikill var sprautuskaðinn? Ekkert?

Í "farsóttinni miklu" kom fram stór nýjung; genabreytiefnið mRNA! Og nú er þetta ekki rætt, hvergi. En við erum ennþá að ræða um einhvern Hitler fyrir hundrað árum!

Eins og maðurinn sagði: Sersiously?

Einföldun fyrir bergmálsfólk og leirmenni; stærsti stórviðburður mannkynssögunnar sem er ekki ræddur ... meiraðsegja þegja Antivistarnir (eða stýrða andstaðan).

Trúir þú ennþá á -elítuna- og -vísindin- eða ertu kannski antivisti með sannleikann um lýgina? Eða ertu að leita að flugi til Tene með Snjallsímanum sem er beintengdur við gervigreindarstjórnkerfið sem á þig? Eða ertu í Telegram liðinu og heldur að enginn spæji þig þar eða mynstri sérsniðinn áróður handa þér?

Hefurðu velt fyrir þér hvernig sé best að snara orðasambandið "Cognitive Dissonance" eða hugtakið "Disassociation" yfir á Íslensku? Einföldun; þessi hugtök eru ekki nauðsynleg á Stórastamúgsefjunarlandi, með vatnshloti, löngum útskýringum, og alles.

Þú veist að flokkur "forsætisráðherrans" þíns vill loka ósprautaða í fangabúðum og einnig senda í fangelsi til Þýskalands þá sem ekki trúa á Helförina hans Hitlers. Án gríns, grúskaðu smávegis!

 

Viðbót

a) Var næstum búinn að gleyma ... og elítunni tókst örugglega að láta þig gleyma.
Samanber, tilvitunun í lög 144 frá 2018.

 
" 9. gr. Fyrning sakar.
Brot samkvæmt lögum þessum fyrnast ekki."
 
 
b) Loks, frábær mælikvarði á menningarlegan glundroða og stjórnsýslulegt innfall (Implosion). Fyrir þá sem sjá skóginn fyrir trjánum.
 
 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góður Guðjón, -smá fact check.

Á Íslandi fækkaði dauðsföllum á farsóttartímanum, -eða allt þar til að það varð kátt í höllinni.

Síðan fjölgaði umframdauðsföllum á Íslandi að lokinni farsótt, -miðað við dauðsföll fyrir hana.

Og eru nú viðkvæmt feimnismál, sem við ræðum ekki, -sei, sei nei.

Bestu kveðjur samt.

Magnús Sigurðsson, 20.1.2025 kl. 19:36

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir góða ábendingu, Magnús, og bestu kveðjur.

... við ræðum það ekkert frekar, eða þannig.

--Allir hressir

Guðjón E. Hreinberg, 20.1.2025 kl. 22:26

3 Smámynd: Þröstur R.

Þú stoppaðir nú stutt við á Telegram en ég er ekki að sjá hvernig þeir geta sérsniðið áróðurinn þar. Hef komið mér upp góðri upplýsinga og fréttaveitu og flest sem ég horfi á eru viðtöl og annað sem kemur frá þessum aðilum. 

Þröstur R., 21.1.2025 kl. 12:04

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Þröstur, allt sem þú segir er rétt. Hitt er annað, að ég hef greint ítarlega - einn á heimsvísu - hvernig heimselítan fylgist með fólki í gegnum Telgram tæknina, OG ennfremur held ég að nokkuð sé ljóst á orðræðu minni að ég fylgist ekkert ver með en aðrir, með klassískum hætti, normal vefsíðu og gamaldags gsm.

Greindi þetta í tætlur fyrir tveim eða þrem árum - man ekki nákvæmlega - og greiningin hefur haldið vatni.

Eða hvað? Er þetta rangt hjá mér?

Bestu kveðjur?

Guðjón E. Hreinberg, 21.1.2025 kl. 15:25

5 Smámynd: Þröstur R.

Hver veit hvað er rétt og rangt í þessu lengur .. Að fylgjast með manni er annað en að hafa einhver áhrif per sei.. Þegar maður er búin að kafa nógu djúpt ofan í kanínuholuna þá er erfiðara að hafa áhrif eða stjórna þér en að sjálfsögðu reyna þeir. Eiginlega er elítan orðin svo góð með sig að þeir segja nákvæmlega hvað þeir ætla sér t.d. eins og með Event201.

Þröstur R., 21.1.2025 kl. 17:11

6 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Event 201 var viðbragð, en ekki lýsing á ætlun. En Antivistar eru of sjálfumglaðir til að athuga við hverju var brugðist. En við greindum það.

Um leið og þú notar Telegram, er þér stjórnað, en þú sérð það ekki því þú heldur að salatborðið séu valkostir.

Bestu kveðjur, Þröstur, og takk fyrir gott innlegg.

Guðjón E. Hreinberg, 21.1.2025 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband