-jarmijarmijarm-

Allir virðast í einhverskonar samkeppni þessa dagana um hver getur best dásamað David Lynch - blessuð minning - eins og þegar allir eru að jarma yfir sömu brauðtertunni. Maður fær klígjuna uppí háls. Því David Lynch - blessuð minning - var eins og Werner Herzog og Megas; ógleymanlega leiðinlegt stöff.

Eins og Móna Lísa, vissulega snilld, en "who cares?"

Það var reyndar soldið kúl þegar Herzog lét draga skip yfir fjall til að gera kvikmynd um að draga skip yfir fjall, og falsaði leyfisbréfin! Líka soldið kúl þegar hann labbaði meðfram öllum landamærum Þýskalands, á sínum tíma.

En maður horfir frekar á gamalt Star Trek með "The Shat" ... síríuslý.

Og annað, jörðin er hvorki kringlótt né flöt, og veistu hvað, Sólmiðjukenningin (The Heliacal Model) hefur ekki enn verið sönnuð (þó hún sé reyndar líklegasta sólkerfisútskýringin) og meiraðsegja erki-guðleysinginn Sir Richard Dawkins, boðberi Vísindanna, viðurkennir það.

Sem minnir á annað; allir bergmálsvitringar stjarneðlisfræðinnar vilja helst ekki ræða Tycho Brahe, --hinthint. Þeir viðurkenna tilvist hans og skauta síðan hratt framhjá.

Reyndar segir Jobsbók í Biblíunni að jörðin sé keilulaga og svífi í tómum geimnum, en það má ekki viðurkenna þetta opinberlega.

Sem aftur sannar hvað predíkarar trúarbragðanna eru mikil fíbbl, þeir hafa haft fimm aldir til að bendáetta! Spurning hvort þeir lesi nokkuð dogmurnar sínar? Eins og fólkið sem trúir á vírusinn sem enginn sannaði og skrapp í nokkrar genabreytisprautur því þeim var sagt að gera það og skammar síðan fólk fyrir samsæriskenningar ef það vitnar í vísindin!

 


mbl.is Jörðin hvorki flöt né kringlótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Megas er bara leiðinlegur fyrir þá sem nenna ekki að hlusta á hann. Ætli flestir aðdáendur hans hafi ekki orðið aðdáendur eftir að hafa kafað undir yfirborðið, séð snilldina í textunum, ljóðunum?

Eins og með Laxness, ef maður lætur stafsetninguna hans trufla sig nennir maður ekki að lesa.

Nú veit ég að Magnús er sammála mér, hann er Megasaraðdáandi líka. En David Lynch er kannski ofmetinn eins og flestir nú til dags. 

En ég man samt eftir nokkrum myndum með honum - og hann hafði stíl. Twin Peaks var langdregin sería - en áhrifarík samt og eftirminnileg.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 19.1.2025 kl. 05:00

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ég elska "Ragnheiður Biskupsdóttir" og þrjú eða fjögur lög í viðbót, en ... tja ...

Takk fyrir innlitið kæri vinur, og bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 19.1.2025 kl. 05:04

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góður Guðjón, -en ertu nokkuð að gleyma Grísalappalísu? -´samt Jóni mesta fríki á Fróni, -og öllu hinum.

Ég tek undir með Ingólfi hvað Megas varðar, hann er einfaldlega eitt af stóru þjóðskáldunum þó svo að það verði ekki sannað frekar en vírusinn sem engin sannaði.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 19.1.2025 kl. 07:37

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Magnús, ég átta mig á - og hef gert lengi - það til þess að kunna að meta meistara Megas, þarf bæði vit og þroska, sem mér er [hugsanlega] ábótavant.

Sem fyrr segir, það eru til lög sem hafa náð í gegnum síuna.

Guðjón E. Hreinberg, 19.1.2025 kl. 14:57

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Ekki veit ég hvort það þarf vit eða þroska til að kunna að meta orðsnilld Megasar. Hún er þannig séð tímalaus hrynjandi um leið og hún er nátengd tíðarandanum.

Megas er ekki inn þessi misserin, en ef hann hefði verið upp á sitt besta nú í tíðaranda metoo myllunnar, þá efast ég ekki um að hann hefði tekið á því af gargandi snilld.

Magnús Sigurðsson, 19.1.2025 kl. 19:03

6 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Megas blessaður fylltist bölsýni eftir að síðustu diskar hans fengu lélega sölu. Ég hef haft eitthvað samband við hann í gegnum árin, en minna þó nýlega. 

Mér fannst hann virkilega flottur á sínum tíma þegar hann glotti að því þegar hann móðgaði femínistana svona frá 1987 til 2011. Ég hef allavega hringt í hann hin seinni ár stundum þótt ég hafi lítið heimsótt hann. 

Hann var svo svalur að þora að ögra femínistum og tók það létt. Já, hann hefði alveg getað gefið út tónlist þessi síðustu ár, ef hann hefði selt meira af tónlist. Hann er líka bissnissmaður og ekki bara listamaður. Hann hefur alltaf tekið það fram að þetta sé vinna en ekki hugsjón. Að vísu verður röddin sífellt óskýrari hjá honum eftir því sem heilsan brestur meira. En maður vonar samt innilega að eitthvað muni hann gefa út ennþá.

Megas er eins og hetja í samanburði við huglausa femínista eins og Bubba Morthens.

Beztu kveðjur.

Ingólfur Sigurðsson, 19.1.2025 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband