Föstudagur, 22. nóvember 2024
-geisp-
Ekki í fréttum á Stórastamúgsefjunarlandi, en einn af herforingjum Pentagon viðurkenndi á dögunum að Bandaríkin hyggja á Kjarnorkustríð við Rússa, og telja sig geta sigrað slíkt stríð. Ekki fylgdi með hversu mörg okkar verða drepin í þessari flottu áætlun - í stríði góða fólksins gegn hinu illa.
Ljóst er þó að allir stjórnmálamenn og embættismenn Íslands styðja við þetta. Ef marka má flóknu textana með löngu orðunum sem þau nota til að útskýra [mest fyrir sjálfum sér] hversu góð þau eru í baráttunni við allar ófyrirséðu tilviljanirnar sem hækka gjöldin og stækka Ríkið og efla vald þeirra.
Ég minni á að heimurinn sem samþykkti Lygarapláguna og síðan allsherjar Genatilraun á "mannkyninu" er algjörlega vitfirrtur (Total alienation) og já; við höfum reynt að ræða hið augljósa allar götur síðan frá 11.3.2020, að við erum dáin.
Því um leið og þú sérð þessa stöðu, leitarðu að leiðinni út úr Siðrofsveröld, og margir hliðverðir eru þegar til staðar, til að villa fyrir þér hér, í völundarhúsi sjöþúsund spegla.
Við erum sumsé öll geðveik, því hver er geðveikari en sá sem segir við hina geðsjúklíngana að við séum öll geðveik þegar þeir telja sig heilbrigða, jafnt Normal "fólkið" og þessi Vöknuðu.
Eina flóttaleiðin (Exodus), í Guðdómlegum vitjunartíma - Time of Reckoning - þegar jafnt englar sem fallnir englar, sammælast um að mæla [sálar]ástandið, eru lyklarnir fjórir: Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning.
Ágætt á hjánum en best á grúfu í mölinni.
Án gríns!
Dag frá degi, eru fréttirnar æðisgengnari (Frantic) og það sem þótti fréttnæmt fyrir fimm árum er í dag smáfrétt á síðu þrjú. Annars er sosum ekkert að frétta. Við dóum 11. mars 2020, og erum í Helvíti, og dímonarnir sýna þér það alla daga, glottandi háðslega.
Á Vefnum er mikið af spekúlasjónum þessa dagana um nýju Trömp stjórnina sem taka á við í Bandaríkjunum eftir áramótin. Algengastar eru pælingarnar um nýfrjálshyggjufólkið (Neocons) og hversu áberandi Zionistar eru í hópnum. Talsvert er rætt um mismunandi persónuleika og einnig rakið hverjir hafi skift út málræðu (Rhetoric) sinni undanfarið.
Við höfum þó ekki séð neinn ræða hversu samansaumaður stríðsherrahópur er hér á ferðinni fyrir komandi heimsátök, né heldur höfum við séð neinn rifja upp neinar greiningar frá vetrinum 2016/2017 þegar þessi uppstilling, ásamt tengdri vitundarverkfræði var greind - en við fórum djúpt í þetta í Arkívinu.
Mjög skuggaleg uppstilling, sem hefur verið nokkur ár í samsetningu, og vil minna hér á "Endgame" athugasemd höfundar við nýlega færslu, "Þögla stríðið."
Allavega.
Þrennu geturðu ekki trúað, að efnið sé blekking (þó þú vitir að 99 % þess sé tómarúm), að Píramídarnir eru fangelsismúrar og að við erum nú þegar í Helvíti. Þú getur trúað nærfellt öllu öðru.
Já, loks er hið fjórða, Skaparinn; þú getur trúað ýmsu um hann, en getur ekki trúað á hann né eflt við hann vensl, og þú skilur hvorugt, né heldur hvernig hugur þinn er vélaður með allskyns medúsu-ismum, eða hvernig sú tíðni (ekki ómloðnun*) er töfruð til að endurskapa heiminn sem þú heldur* þig búa (nano nano nano).
Stór fullyrðing og flókin í tíðni en einföld í ómloðun, sem getur tekið heilt æviskeið að skilja, eða sekúndubrot.
Mundu að vinur er sá er til vamms segir.
e.s. 15:51 - Þú finnur ekki sannleika í skapaðri veröld, því hið skapaða getur ekki verið sannleikur, aðeins Skaparinn er sannleikur, en fyrir vensl við hann getur vitund hins skapaða orðið sönn - og ekki vottuð af ismum og elítum heldur Skaparanum sjálfum og þá aðeins fyrir þann veg er hann ákvarðar eða útdeilir (Dispensation) (sem gæti verið mismunandi eftir hverjum og einum viðtakanda) - s.s. Jósúa Maríuson benti svo snilldarlega á; Hashem er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Þetta er guðdómleg dýnamík, og mesta ævintýri allra hugsanlegra ævintýra.
* Við notum ómloðun fyrir enska orðið Resonance. Munurinn á tíðni (Frequency) og ómloðun er umtalsverður - segja má hringferlis-andstæður (Diametric opposites) - en Leirmenni og Bergmálsfólk Gorgónsins Medúsu taka við og mótast af tíðni (og endurvarp hennar er notað til að móta steinagarðinn), þau eru mann-verur Darwins. Mannfólk Guðs, hins vegar, efla vensl (Relation) við Skapara sinn (óháð trúarbragða ismum) og senda frá sér skapandi ómloðun sem er allt önnur eðlisfræði og er (eftir því hversu vel tekst að hreinsa leirinn burt) ... tja ... lærist á fetinu. Þetta er rætt í þaula í Arkívinu, og er að mati færsluritara, mikilvægt vitundargrúsk, en Skaparinn kennir það sjálfur, oft með venslum, og hér eru Tími og Þolinmæði traustir vinir.
* Allt sem þú veist um ytri heiminn, sem þú skynjar með skynfærum, er endurgert í hugarlíkani (Mind Model, Replica)sem hugurinn viðheldur, í raun veistu ekkert um heiminn utan þessa módels, né hvaða rofar geta endurstillt það. Vitund þín er þarna, ytri heimurinn er ekki það sem þú heldur að hann sé.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning