Fimmtudagur, 12. september 2024
Örlítil dagrétting frá síðustu færslu
Elítan fær alltof lítið í skatta og gjöld. Sjáðu bara hvað hún elskar okkur mikið, og samt skuldar Ríki elítunnar heilan helling! Auk þess er það bara Spennulosun að uppnefna Ríki elítunnar Fúskríki og "Lýgveldi."
Þau eru elítan og þau gáfu okkur lögin og mannréttindin, og ef þau fara ekki eftir stjórnarskránni, hafa þau fínar og góðar ástæður til þess, sem við Almúginn eigum ekki að reyna að skilja.
Elítan veit best, og öll neikvæðnin í færslum mínum, eru bara þjáningarfull spennulosun í örvæntingu veiklyndis og skoðanaröskunar, sem hugsanlega, og þó, gæti verið um að kenna mis-hæfum kennurum Ríkisskólans.
... sem er örugglega óvart af hálfu elítunnar, en hatursglæpur af minni hálfu.
Góðar stundir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning