Gúrkupúnktar

Ég hef forðast að ræða eftirfarandi, en það tengist landvættum. Gosin á Reykjanesi síðan 2020, eru ekki stök gos, þetta eru Reykjaneseldar, í annað sinn á þúsund árum. Síðast þegar Reykjenseldar geisuðu hafði farið fram stórfelldur glæpur á landinu, samfara siðrofi.

Enginn kannast við þá sögu þá né nú.

Hitti Suðurnesjakonu í dag sem sagði mér hvernig öfga-vinstrið sem stjórnar "grindavíkuraðgerðum" hefði komið sér hjá aðstoð við 380 fjölskyldur, með lagaflækju ...
 
Kom á aðra staði í dag, og var tekinn tali af "almennum" einstaklingum sem trúðu á Lygarapláguna og Eitursprautuna á sínum tíma. Þau bæði sögðu mér, nánast samhljóða að "þetta var bara áróður byggður á flensu og sprauturnar glæpur, en við viljum samt ekki hlusta á antivistana." Allir sem ég ræði við, undanfarin þrjú ár segja meir og minna hið sama. En Antivistar sem hafa Sannleikann, neita að spyrja "hvers vegna þolir okkur enginn?"
 
Ein spurning:
Hvaða tveir einir stjórnmálamanna á Vesturlöndum hafa reynt að stilla til friðar í Úkraínu, og fengið skammir, sniðgengi og þöggun í hattinn? Ég leik mér stundum að spyrja hinn almenna mann að þessu, og glotti þegar svarið er augnaráð, en ég er aldrei spurður til baka "nei hverjir?"

 
Matrix; fyrsta dáleiðslan síðan 325 AD sem bæði Antivistar og Almenningur er sammála um.
 
Að lokum: Fico biður öfga-vinstrið afsökunar á að hann lifði af banatilræðið. Og eitt enn, manstu þegar sælureitunum í Þjórsárdal var lokað vegna reglugerðar, og svo eitt enn; bjúrókratarnir sem ætla sér að smíða "virki" í Brákarey hefja gjaldtöku við Brákareyjarbrú á næstunni ...
 
Annars hef ég ekkert að segja þessa dagana. Við dóum öll 11. mars 2020, og erum núna í Helvíti, og við komumst ekki út nema með Bæn, Iðrun, Fyrirgefningu og Vitnisburði.
 
... og enginn kippti sér upp við á dögunum, að Evrópskur stjórnmálaflokkur var afbankaður (deBanked) á dögunum og öllum reikningum lokað, ræðandi um innfallna siðmenningu sem ætlar sér að sigra í kjarnorku-heimsstyrjöld, nýbúin að fremja tífaldan nasistaglæp ... bwahahahahaha ... og allt í gúddí.
 
Einfalt.
 
--hinthint
--Dáin menning
--Flýðu
 
 
 
 
 
Þurfti að koma við í apóteki og kaupa sprittglas eins og keypt var í gamladaga til að þrífa sár og soleis. Spurði um lítið spritt, og Daman fór beint með mig að hillunni þar sem eru spritt-gel, og nei sagði ég, svo hún fór og leitaði, og fann. Þegar ég greiddi, sagðún eitthvað og ég svaraði með einhverju sniðugu, eins og gengur þegar miðaldra afgangsmenn eru afgreiddir af ungum skvísum, "ha" svaraði hún, en ég sagði þá "þetta var bara athugasemd því ég kemst ekki á félagsnetið." Þetta fannst henni fyndið.
 
Maður getur eitthvað ennþá, þó það nái ekki langt nú orðið.
 
Að öllu gríni slepptu, ef þig vantar mælingu fyrir allsherjar sturlun, ofan á allt sem gengið hefur á undanfarin fimm ár; fyrirhugaðar borholur "carbfix" við Straumsvík ... Í alvöru? Þarf að afpakka hversu stórhættuleg og umfangsmikil geðbilun er hér á ferð? Nú veist þú líklega hversu margir eru að ræða þessi mál á Samfélagsvefjunum þessa dagana, eða danska staðfestingu á fyrirhugaðri niðurdælingu á geislavirkum úrgangi, en byrjum hér: Veistu hvað "water table" er? Veistu hvernig vatn veraldarinnar endurnýjar sig, eða yfirleitt hvaðan það kemur? Viltu afpökkun á því stóra dæmi eða ertu hluti af dauðaköltinu?
 
Áttarðu þig á því hvaða stórslys er í uppsiglingu fyrir vatnsból og jarðskjálftavirkni á Höfuðborgarsvæðinu í kjölfar niðurdælinganna á Hellisheiði? Eða fattaraðu að við verðum afbankaðir ef við ræðum það?
 
Aflíkömnuðu andarnir, Nephilim (Disembodied spirits), trúa því að ef þeir geti lokkað mann-kynið út í allsherjar sjálfsvíg - sálarlegt sem líkamlegt - fái þeir réttindi til að endurlíkamnast (re-corporate) og umboð til að yfirtaka alla tilveru á jörðinni.
Án gríns. Lestu ritningarnar.
 
Hvers vegna heldurðu að Hollývúdd og Marvel og allir sem geta í heimselítunni séu endalaust að selja endurlífgunar-líkömnun á manngreyum (Humanoid) með ofurkrafta og yfirskilvitlega hæfileika? Heldurðu að það sé saklaus fantasía?
 
Hvers vegna trúum við á endurholdgun - re-incarnation, re-corporeal - frekar en endurfæðingu? Ég hef sjálfur látið lokkast af þeirri djöfullegu tæklingu og iðrast þess sárt.
 
... og það tók mig ellefu ár að fatta, eftir að ég fyrst las skilgreiningu á muninum, í bók eftir okkar helgaða aldingja (Sage), Benjamín H. J. Eiríksson!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góð gúrka Guðjón, -nú eru aflíkömnuðu andarnir bæði komnir í bankana stórmarkaðina, sem sjálfsafgreiðslukassar, á endanum afgreiða þeir sjálfa sig og sjá alfarið um hagvöxtinn.

Vonandi geturðu séð af fleiri gúrkum fljótlega.

Annars bestu kveðjur, -og þakkir fyrir raunsannan pistil.

Magnús Sigurðsson, 9.7.2024 kl. 18:50

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið Magnús, og hlýleg orð, maður er orðinn lafhræddur undanfarið að segja skoðun sína ómengaða.

Guðjón E. Hreinberg, 9.7.2024 kl. 20:30

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nei, það er ekki sjálfgefið að maður segi eitthvað ómengað.

Eins og staðan er þá virðast flestir sem líta inn á bloggsíður vera lafhræddir við að láta skoðun sína í ljós.

Annars er ég nokkuð viss um að þú ert að hitta naglann rækilega á höfuðið varðandi landvættina.

Magnús Sigurðsson, 10.7.2024 kl. 06:34

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband