Laugardagur, 9. mars 2024
Þeir sem ekki trúa Elítunni, eru kjánar, allavega ekki Gáfnaljós
Skemmtilegur Kastljósgemlíngur spurði mig í vikunni hvort ég tryði ekki á Tunglferðirnar, en einhver samsæriskenning hafði dúkkað upp í samræðunum.
Ég sagði við hann að líklega hefðu allskyns flaugar verið sendar þangað, m.a. hefðu Sovétríkin sent þangað á milli 20 og 30 ómönnuð rannsóknarför. Hins vegar væri ljóst að enginn maður hefði gengið á túnglinu.
Glott kom á svefngengilinn, yfir hversu vitlaus ég væri.
Svo ég sagði við hann, að ég hafnaði öllum samsæriskenningunum um þetta mál, enda væru það bara greiningar á vídjóum og það væri svo augljóst að Nasa neyddist til að sviðsetja tunglgöngurnar af tæknilegum ástæðum. Það væri hins vegar hvorki sönnun með eða móti.
Forvitni hans var vakin, en ég var ennþá vitleysingur að hans mati, fyrir að trúa ekki heilagri Elítunni.
Svo ég útskýrði fyrir honum það sem enginn útskýrir; eðlisfræðina. Það er útilokað fyrir mann að lifa lengur en fimm til tíu mínútur í geimferðabúningum á tunglinu, vegna eðlisfræðinnar.
Hik kom á kauða, svo ég spurði hann hvort hann hefði heyrt talað um Armstrong línuna. Nei, það hafði hann ekki, svo ég útskýrði fyrir honum búningana sem flugmenn í herþotum þurfi að vera í þegar þeir fljúga í 21s kílómetra hæð.
Gaurinn snéri sér að næsta manni og þeir fóru að ræða um göturnar á heimsborginni Tene.
Lausbeislaðir púnktar:
...
14.400 Íslendingar horfnir, en 49.000 nýir fluttir inn, á meðan Antivistarnir röfla eintóma vitleysu. Drep-fyndið.
...
Hverjir hurfu á landinu á meðan "lögreglan" sviðsetti smávegis þjóðvitundar verkfræði í liðinni viku?
...
Í Rússlandi er farið að lögum, þú færð land ef þú vilt sjálfbæran búskap, greiðir lægri skatta og herinn ver landamærin.
...
Það var aldrei nein veira - SARS-COV-2 er ekki til. Það er hellingur af kjánum að röfla gegn covid lýginni, sem viðurkenna tilvist veirunnar, og þeir eru stýrða andstaðan. Það var engin farsótt (og það hefur margfalt verið sannað með einfaldri tölfræði) og veiran hefur aldrei verið sönnuð. Hvort veirur eru til eða ekki, er málinu óviðkomandi; þessi er ósönnuð og Elíta og Almenningur hafa aldrei beðið um sönnun fyrir henni, og "læknavísindin" hafa aldrei sannað tilvist hennar.
VELKOMIN TIL HELVÍTIS.
...
Allar fréttir af skotárásum, hópnauðgunum, bílum að aka inn í mannfjölda - á vesturlöndum - er sviðsett, og nóg er í boði af sönnunum fyrir því. --Gladio IV.
...
Loks mæli ég með tveim stuttum myndskeiðum frá Steve Bannon, frá í vikunni. Sagði þér 2017 að Steve Bannon væri sá eini sem berst gegn heimskommúnismanum með átakatækni (Strategy) og beitti öguðum valsbrögðum (Tactics) og þú ert ennþá að sleikja rassaskituna úr Elítunni og Antivistum hennar. Ef þú fylgist aðeins með stóru fjölmiðlunum hér heima, veistu nákvæmlega ekkert, og skilur enn minna. Sorglegt en satt.
Þetta merkir ekki að ég sé í liði með Bannon eða MAGA. Er ekki í liði með neinum, né á móti neinum. Aðeins benda á eitthvað sem ætti að vera augljóst, en átakatækni hans var kennd þrisvar í Arkívinu löngu áður en hann hóf að beita henni
Það hófst heimsstyrjöld í mars 2020, hún hefur varla náð hámarki, og meirihluti fólks - fórnarlömbin - eru strútar með hausinn í sandinum, þar til styrjöldin klárast, en þá hefst útför mannkyns því þeir sem eru að taka sjálfsvaldið af okkur og breyta heiminum í fangabúðir, hafa ekki velferð okkar að leiðarljósi, og við getum ekki þrifist í því "kerfi" sem þeir eru að smala okkur inn í.
Þessir tveir tenglar eru flugbeittir og gaumgæfnum verðmætir. Antivistar halda þér við þá firringu (Alienation) að hægt sé að laga lýgina, en það staðfestir lýgina, enda Antivistar Stýrð andstaða. Þú flýrð lýgina, snýrð við henni baki og lítur ekki til baka eins og kona Lots.
Eins og Antivisti nokkur, sem fattaði að sama stríð er í gangi allsstaðar og að stríðin í Úkró og Gaza eru athyglisdreifarar; hvert á að flýja?
Ef þú skilur ekki að sniðgengi er flótti, þá hefur djöfullinn fangað þig með Efnishyggju. Ef þú ræðir ekki flótta, heppnaðist Antivismanum að kæfa allar samræður.
Tenglarnir tveir, og einn í bónus:
"Dr. Naomi Wolf: "My Worry Is It-s Beating The Drum for Criminalization Of Certain Kinds Of Speech""
" Harnwell: Italian Monastery Gladiator School We Won Because We Never Gave Up"
Þetta var allt saman útskýrt í Húmanistadulspeki fyrir tæpum fjórum árum.
Maðurinn sem álítur mig vera asna, og færði sig um set þegar hann gat ekki sannað það, hafði reyndar rétt fyrir sér. Ég er asni að hafa orð á einhverju sem allir vita að er rangt, það er lífshættulegt og hefur þegar gert mig vina- og frændlausan og allslausan.
En annaðhvort segirðu satt og stendur fyrir heilindi, eða ert í liði með þúveisthverjum.
Að endingu:
Sumir fara nú í níundu sprautu af efnavopninu og Lýgveldið er að sprauta börn oní fimm ára!
Ath. Myndin er ekki mín og tölurnar
því ósannreyndar.
Athugasemdir
Miðað við hvað íslenzka þjóðin er heimsk og vond sem verið er að flytja út og þynna út, þá má maður binda vonir við að sú nýja verði skárri, blanda af venezúlelum, pólverjum og fleirum.
Tja, dáleidd hjörð...
Ingólfur Sigurðsson, 9.3.2024 kl. 15:03
Takk fyrir innlitið, Ingólfur. Ég er lauksammála og hef lengi verið á þeirri skoðun að innfluttir Íslendingar séu okkar bjartasta von.
Bestu kveðjur.
Guðjón E. Hreinberg, 9.3.2024 kl. 15:08
Magnús Sigurðsson, 9.3.2024 kl. 16:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.