Samsæriskenning dagsins - 20240210

Við höfum haft rafrænar kennitölur og sjálfvirka skattheimtu í fjóra áratugi. Við erum öll skráð. 14.000 kennitölur gufa ekki upp. Rýndu hvað hefur verið í gangi hérlendis sem erlendis eftir 2007; án sólarlampa.

Birtingin á fréttinni var tímasett, meðan allir voru að lesa fréttir af eldgosi og heitavatns skorti og rafmagnsleysi. Eins var með birtinguna að Ríkisstjórnin - sem við elskum - var löngu tilbúin að kaupa Grindavík.

Þarf að útskýra hvað Elíta heimsins (ásamt ís-elítunni) var að gera síðustu fjögur ár? Er skammtímaminnið sprautað í tætlur?

Hvergi bólar á Bragga/Gáma hverfinu fyrir tvöþúsund manns, sem reisa hefði mátt á viku. Óspennandi lausn, en til eins eða tveggja vetra, meðan betri lausn er fundin, í samráði við íbúa, er hún fín.

Að Ríkisstjórnin hafi fróað sér á eigin munnfroðu undanfarna fjóra mánuði, er sorgleg staðreynd. Að sjö af hverjum tíu krónum sem við öflum, renni til hennar, ætti að skila sér betur en í lygum og rangsnúningi. En hún veit best. Ríkisstjórnin er vitur.

Akið í kringum gagnaverið á Ásbrú; skoðið stóru Díselrafstöðvarnar sem geta séð heilu bæjarfélagi fyrir rafmagni.

Að endingu; þú manst að þetta blogg er spennulosunar blogg og bannað að taka mark á því.

Ein hitaveitulögn.

Ein raflína.

180 stofnanir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta er orðið all svakalegt Guðjón, -já ég held að fólk ætti að fá sér bíltúr með miðstöðina á.

Það er að segja ef eldsneyti er á bílnum og kíkja á gagnaverin áður en landinn gufar endanlega upp sem sviðsmynd í rafrænni gervigreind.

Annars getur maður lítið annað núna í morgunnsárið, en biðja Guð um að blessa Ísland, -og vera sérstaklega með ykkur á Suðurnesjum.

Magnús Sigurðsson, 10.2.2024 kl. 08:10

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir þetta, Magnús, já ástandið er skelfilegt núna (allsstaðar) en það var búið að vera all svakalegt í nokkurn tíma. Það sem gerðist var að það versnaði úr vont-95% í vont-97% á fjórum árum; og enn sér fórnarlambið aðeins sólarlampann.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 10.2.2024 kl. 13:55

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

 -þolandinn- átti það að vera :) fórnarlamb er annað.

Guðjón E. Hreinberg, 10.2.2024 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband