Föstudagur, 2. febrúar 2024
Örstutt innskot - 20240202
Washington elítan er að reyna "de-escalation" verkefni gegnum fjölmiðla. IDF hefur skíttapað á Gaza, allir utan Nató gettósins fyrirlíta Washington, Tel Aviv, Kiev og Brussel, þriðjungur borgara Gettósins sömuleiðis. En Elítan getur ekki undið ofan af stríðshjólinu sem nú er komið á sving - sem er gott.
Heimskerfið sem við höfum búið við síðan 1908 er drulludý og verður að hreinsa það upp, og það gerist ekki fyrr en það breytist í kviksyndi, sem það hefur breyst í. Minnir að spámaðurinn Jósúa Maríuson hafi varað við að byggja á sandi?
Stríðshjólið er stórt og þungt vinduhjól, það er átak að koma því í gang, og því sem næst útilokað að stöðva það. Efnahagslíf Vesturlanda er í allsherjar klúðurhlaupi (Debacle) og þú hleypur undan slíkri skriðu, rétt eins og þú forðast snjóflóð.
Þú átt ekki að koma snúning á slíkt vinduhjól með þeim hortugs (Hubris)* hætti sem Marxistar vesturlanda (Neocons) hafa gert undanfarinn áratug, eða tvo. Bölvætturinn sem þetta fólk - ásamt milljónum foreldra - særðu fram þegar farið var í börnin, hefur afleiðingar með í för.
Eina leiðin út, er á einstaklingsgrundvelli; Bæn, Iðrun, Vitnisburður og Fyrirgefning. Engin önnur leið er í boði. Skaparinn setti vætti sem eru englunum eldri til að gæta þess að alheimurinn héldi sér á jafnvægisslánni, þessir vættir eru nú í uppnámi og aðeins Skaparinn getur komið þeim aftur á rétt ról. {greiningar á þessu eru ítarlegar í Arkívinu}
Lausn eða frelsun (Deliverance) frá siðrofi (Anomie) þjóðar og menningar, gerist ekki með hópefli Sósíalisma og Antivisma, heldur á einstaklingsgrundvelli og það með fyrrgreindum fjórum vopnum. Hér má minna á ómloðun (Resonance)* þeirra er byggja siðfræði sína á föstu, frekar en tíðni (Frequency) dáleiddra og teymdra, leirmenna og bergmálsguma.
Eins og bibban og kóraninn kenna, þarf ekki marga til að biðja fyrir blessunum, eða iðrast sinda sinna, eða vitna um hið illa í eigin fari eða siðrofi menningar sinnar, eða fyrirgefa valdstjórnum og leynifélögum til að Guð beini ljósi sínu gegnum myrkrið sem píramídarnir lokka okkur til að framleiða.
Texas og Flórída eru nú í kínetískri uppreisn gegn Sambandsstjórninni í Washington, fjórtán önnur ríki hafa lofað stuðningi við aðgerðina. Bandaríki Norður Ameríku eru aðeins til að forminu einu í dag. Bænda mótmælin - eða heykvísla uppreisnin - hefur nú breiðst út frá Hollandi til Þýskalands, Frakklands, Belgíu, Spánar, Póllands og fleiri Evrópuríki hitna.
Á meðan Áróðursmiðlar vesturlanda þegja þunnu hljóði, og eru þó enn uppnefndir Fjölmiðlar
Þeir sömu og ekki ræddu hvað var að gerast í Covid lygaraplágunni, höfnuðu því að gagnrýna fullyrðingar WHO/SÞ eða ræða tengingar Bill Gates við lýgina, eða afbökun á tölfræðinni. Neituðu að ræða raunveruleg læknisvísindi eða borgaralegan rétt. Höfnðu því að upplýsa fólk um muninn á bóluefnum og RNA tilrauna efnum, eða einfaldar og raunsæjar lækninga aðferðir, eða benda á muninn á samþykktum reyndum stungulyfjum annars vegar og óreyndum stungulyfjum á neyðarleyfi hins vegar; eða skaðabótaábyrgð lyfjafyrirtækja og Ríkis.
Hvernig dómskerfi vesturlanda hefur verið beitt í hernað (Lawfare) gegn lögum og rétti á Vesturlöndum og hvernig löggjafar og stjórnvöld og bæði opinberar og óopinberar hugveitur vinna með beinum hætti gegn hagsmunum samborgara okkar,
Þessi menning okkar er haughús lyga og raunguræðu (Díalektík) í miðju kviksyndi, steindautt hræ, í tómri innfallinni borg (siðmenningu).
Framtíðin er háð ákvörðun Skaparans.
--Bæn
--Iðrun
--Vitnisburður
--Fyrirgefning
Við höfum talað illa um Ríkisstjórnina, alla okkar ævi, og við sáum ekki að um djöfullega innrætingu var að ræða. Þegar þú lærir að biðja fyrir valdstjórninni, minnkarðu líkurnar á að lygarar, þjófar, manndráparar og barnanauðgarar laumi sér inn í hana og yfirtaki, þér til háðungar og tjóns.
Þess vegna verður þú að elska Ríkisstjórnina, og biðja fyrir henni. Hún er samnefnari þess hvernig menning okkar vill láta stjórna sér, hvers kyns leiðtogum og foringjum hún samþykkir að hlýða. Allar valdstjórnir óttast sniðgengi og flótta borgara sinna, og antivistar stýrðu andstöðunnar eru staðsettir af ónefndum hugveitum skuggavaldsins til að fyrirbyggja flótta og sniðgengi við valdið.
Engin valdstjórn þrífst án leyfis þeirra vætta sem varðveita jafnvægi alheimsins. Gættu að huga þínum og geðblæ.
Úr einu í annað:
Í kringum 1221 hrundi nærfellt allt heimskerfið fyrir einni árás, eða herför, sem leidd var af einum manni og tók tvo áratugi. Elítan hefur djöflamerkt (Demonized) hann allar götur síðan, en hann hóf herför sína á því að fara fyrst til fjalla og biðja bæna, en hafði þá verið þræll í áratug, kona hans hafði mægst við annan á meðan hann var í ánauð og átti tvo syni, sem hann ættleiddi.
Tveim áratugum fyrr sameinaði Salahudin öll Miðausturlönd til að sigra Krossferða riddara vesturlanda sem rænt höfðu og ruplað, í tvær aldir, nauðgað og rangsnúið öllu svæðinu frá Níl til Tarsus, með hernaði og stærsta fjölda-innflutningi fólks sem gerst hefur í þekktri sögu.
Já, stór hluti íbúa þessa svæðis eru af Evrópskum uppruna! Hvers vegna að þegja yfir því?
Þú veist aldrei hvenær elstu vættir veita brautargengi einhverjum til að hreinsa upp. En það gerist þegar nauðsyn er á. Hvað var að gerast árin 1000 til 1200 sem krafðist hreinsunar veit ég ekki, en það var hreinsað upp í öllum siðmenningarheiminum, svo um munaði - en hvaða hugveitur skráðu söguna eftirá, og hverra hagsmuna var þá gætt?
Þetta er ekki eina tímabilið, sem allsherjar siðrof greip heiminn og öll siðmenningarsvæði voru hreinsuð upp*. Svo hverjir voru þessir tveir leiðtogar sem gæddir voru svo merkilegum blæ?
Einn af leiðtogum ÍsQuislínga hérlendis nefndi nýlega styttu af leiðtoga Fjölnismanna, og svæðið sem styttan stendur á, sem helgan reit. Veistu hver Þorsteinn Ingólfsson var? Veistu hvers vegna hann er einn tveggja til þriggja markverðustu* manna Íslandssögunnar? Ef svarið er Nei, hvers vegna?
* Til að vera markverður, þarftu að leggja eitthvað fram sem mark er takandi á, og hefur vægi framyfir meira en þá öld sem þú lifir. Þetta er hægt, þó enginn viti af þér, eða því sem nær enginn, utan þá er liggja í leyni í holtum og móum. Fjöldinn skiptir engu, þegar vættir hóa.
* Hortugheit eða Hortugleiki (Hubris) er - samkvæmt skilgreiningu Ben Harnwell - meira en hroki og gort, því hort er þegar hrokagortið storkar örlögum, vættum og goðum. Sem er einmitt það sem Félagslegur Húmanismi hefur komist upp með síðan 1908, og sérstaklega 1919, og slær ekki af heldur eykst og magnast, til þess ástands (State) sem nú er. Vel má velta fyrir sér hvort þetta sé vikan þrjár og hálf sem Daníel sá fyrir, svo og Jóhannes.
* Við notum ýmist Ómloðun eða Ómkvoðu fyrir Resonate eða Resonance - fyrrnefnda heitið hljómar betur þó hið síðara sé réttara eftir orðabókum.
* Mæli með með grúski í 1177 BC fræðunum (sem vísa á 1312 BC (2448)), að öðrum heimsværum (global) siðrofs hreinsunum ólöstuðum.
Athugasemdir
Með þeim betri Guðjón, -snilldar nálgun.
Til að gefa örlitla vísbendingu um hver Þorsteinn var, þá átti hann tvo vitorðsmenn, -Úlfljót og Grím geitskor. Þeir voru báðir í þann tíma búsettir í Lóni á milli Hornanna tveggja, svo merkilegt sem það nú er, því Þorsteinn var hinumegin.
En umfram annað takk fyrir góðan pistil, eins og talaðan út úr mínu hjarta.
Magnús Sigurðsson, 3.2.2024 kl. 08:39
Takk fyrir, Magnús, og bestu kveðjur. Hver steinvala sem maður fleytir út í öldurótið, verður að brú yfir báru, þegar minnst varir.
Guðjón E. Hreinberg, 3.2.2024 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.