Háhnöttur A endurspeglar ljósi vakandi og vinnandi fólks

Það er löngu orðið tímabært að úrelda kjánaleg hugtök á borð við Sól og Túngl. Himinhnöttur 1 og 2 væri mun betra. Til greina kom ljósgefandi daghnöttur og ljósgefandi næturhnöttur, eða Daghnöttur og Næturhnöttur. Held að Himinhnöttur A og B sé bæði hnatthlutlaust og því sem næst dag/nætur hlutlaust, eða þá Há[n]hnöttur A og B.

 

Kristinn karlakór í Beirút syngur Sálm 135

 

Mundu að ef þú tekur ekki mark á þessu, trúir þú ekki á vísindin, og heldur líklega að náttúran hafi aðeins búið til tvö getnaðarkyn. Þú ert sumsé hægri-öfgi - í minnihluta eða antivisti - og hefur því ekki kommentaleyfi, og ættir ekki að hafa debet kort.

Allavega.

Vísindin munu brátt leiða í ljós að Himinhnöttur A kemur á himininn í réttu hlutfalli við fjölda þeirra sem vakna milli 0600 og 0800 (áður "á morgnana") eins og fyrir óþekkt aðdráttarafl - s.s. á borð við þyngdarlögmálið.

Þegar ljóst var að ekki væri hægt að mæla [þyngdar]kraftinn og vega náttúru hans, var honum haganlega breytt í lögmál, og þar með er hann lögmál. Hið sama gildir um þetta, aðeins er eftir að leiða það í lögmál.

Augljóst er að hnöttur þessi endurspeglar ljós vakandi fólks, sem lýsir upp Jarðarhnöttinn. Eins er með Himinhnött B, sem birtist í réttu hlutfalli við "vakandi B fólk" og það útskýrir kvartélaskil Himinhnattar B, sem stjórnast alfarið af tíðahring Leghafa.

Þetta er morgunljóst og loksins hafa vísindin leitt þetta í ljós.

Afsakið; þetta er Vísindaljóst.

Morgunljóst er gamaldags hægri-öfga útúrsnúningur.

Það er að mínu mati einungis tímaspursmál hvenær Ríkisstjórnin lögleiðir þessa augljósu niðurstöðu.

...

Ef þú sérð ekki þau augljósu sannindi að Himinhnöttur A endurspeglar aðeins því samfélagslega ljósi sem geislar frá fólki sem vaknar til vinnu eða skóla milli 0600 og 0800, endarðu í allskyns ranghugmyndum, svosem að eitthvað úrelt fyrirbæri sem Samsæraútskýreyndur nefna "sólina" hiti jörðina, en ekki vondir kapítalískir einkabílar!

Hver er sönnunin fyrir að þessi svonefnda sól hafi einhvern innri hita sem HÁN endurspeglar. Þú veist nú þegar að Himinhnöttur B, endurspeglar ljósi, en þú vissir ekki hvaða ljósi.

Þetta er þó sagt með þeim fyrirvara hvort Ríkisstjórnin telji það vera upplýsingaóreiðu; en þetta er þó byggt á hennar eigin vísindum.

...

Þegar Ríkisstjórnin verður búin að örmerkja okkur og tengja við miðstýrða rafmynt, mun allt verða miklu betra. Tökum dæmi.

Þegar allt þetta verður tengt með gervigreind við snjall-eldavélina, snjall-örmerkið, snjall-bifreið, og snjall-eldavél, og snjall-vigt, getur Lýðheilsustofnun virkjað einfalt algrím, t.d. ef ég þarf að grennast um fimm kíló.

Augljóslega er annað algrím sem mun tryggja að ég horfi meira á líkamsræktar myndskeið en fréttir eða "stýrðan antivisma" á Netinu, til að halda mér við efnið.

Ég gæti þá ekki keypt súkkulaði. Ég gæti ekki opnað Ísskápinn nema örmerkið skynji að ég sé svangur, ég gæti ekki eldað mat sem væri of orkuríkur, ég gæti ekki keyrt bílinn ef örmerkis neminn hefur ekki skynjað hjartslátt sem gefi til kynna að ég hafi gengið, hlaupið eða farið í gymið.

Snilld.

Ríkisstjórnin, í samstarfi við Davos; er vitur.

Sjálfur er ég of tregur til að sjá viskuna í þessu og verð flúinn til Síberíu, en það er mitt vandamál. Þú verður í útópíunni, í kjörþyngd, eignalaus, og hamingjusamur.

...

Af öryggisástæðum munum við ekki ræða frekar "fyrirframgreidda skatta." Elska skaltu Ríkisstjórnina, hún er vitrari en ég og þú, allavega þú.

...

Þegar vopnaframleiðendur selja vopn úr landi, fylgir þeim ávallt skírteini sem tilgreinir afmörkun á hvernig notkun þeirra skuli takmörkuð.

Til dæmis þurfa Sýrlendingar leyfi frá Rússum til að geta notað S-300 loftvarnaflaugarnar gegn sprengjuþotum IDF (Ísraelsher) og Tyrkir þurfa leyfi frá Bandaríkjunum til að nota F16 þoturnar í átökum gegn Kúrdum.

Þegar Sáudar sprengdu Yemenskar fjölskyldur í loftupp með Bandarískum vopnum og þegar IDF drepur mæður og börn þeirra á GAZA með Bandarískum vopnum, þá hefur þeim verið veitt leyfi til þess af "leiðtogum okkar" þessum sömu og þykjast standa gegn þjóðarmorðum og drápum á óbreyttum borgurum.

Að hræsnisfull og morðóð veröld okkar er að fremja sjálfsvíg, er staðreynd, að það gerist of hægt, er umdeilanlegt.

 

"This chant was performed by father Seraphim Bit-Kharibi"
https://duckduckgo.com/?t=lm&q=father+Seraphim+Bit-Kharibi&iax=videos&ia=videos

 

E.S. Þessi færsla er samansafn af punktum dagsins á FB.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband